Dagur - 16.08.1989, Side 2
2 - DAGUR - Miðvikudagur 16. ágúst 1989
‘‘
\ •, • .. -1* 'i>-
xív<
fréttir
■ .m
Utsalan
hefst í dag
SiMI
(96)21400
Mikill
afsláttur
„Veguriim að
Sólborg er
stórhættulegur“
- segir Pórhildur Svanbergsdóttir
þroskaþjálfi
„Það er um 40 manna hverfi
hérna útfrá og hvers eiga þessir
íbúar Akureyrarbæjar að
gjalda?“ spyr Þórhildur Svan-
bergsdóttir þroskaþjálfi á vist-
hcimilinu Sólborg ráðamenn
bæjarins vegna slæms vegar
sem liggur að heimilinu.
A undanförnum árum hefur
starfsfólk Sólborgar reynt að
benda á hversu slæmur vegurinn
þangað er. Um 40 manns búa á
Sólborg og starfsmenn eru yfir
100. „Við sem vinnum hérna
borgum auðvitað okkar skatta til
bæjarins en í hvert skipti scm ein-
hver fer um þennan veg þá setur
hann sjálfan sig og aðra í stór-
hættu. Vegurinn er mjög hlykkj-
óttur og ofarlega á honum er
hlífðargrindverk en það er brotið
og vegurinn hallast niður að
gljúfrinu við Glerá. Þetta er eina
leiðin sem við getum farið að
ganga með okkar fólki og útivist
er það sem allir hafa gott af og
einn af þeim þáttum sem við ráð-
um við í okkar starfi," sagði Þór-
hildur.
Starfsfólk og- vistfólk sendi
undirskriftalista til allra bæjar-
fulltrúa fyrir u.þ.b. tveimur árum
en ennþá hefur ekkcrt gerst í
málunum. „Mér finnst alveg
sjálfsögð krafa að eitthvað verði
gert fyrir þessa rúmlega 40 íbúa.
Það væri engu öðru íbúðahverfi
boðið upp á svona hluti.“
Vistheimilinu var fyrir nokkru
gefnir bekkir til þess að setja við
veginn en Þórhildur sagði ekki
hægt að nýta þessa gjöf fyrr en
eitthvað yrði gert fyrir veginn.
„Það er mikið ryk á veginum í
þurru veðri og þegar rignir er
hann ein leðja. Hann er alveg
hrikalegur. Ég veit að Akureyr-
ingar hafa metnað til að hafa fal-
legt í kringum sig eins og sést á
bænum en ég skil ekki hvers þess-
ir íbúar eiga að gjalda. Þeir geta
ekki sjálfir látið í sér heyra og því
verðum við að gera það. Það er
ekkert óeðlilegt við að einhver
spyrji fyrir hönd íbúa í þessu
hverfi: Hvað með veginn, hvenær
á að laga veginn heim til okkar?“
Sigfús Jónsson bæjarstjóri
reyndist ekki fáanlegur til að tjá
sig um þetta mál.
Guðmundur Guðlaugsson yfir-
verkfræðingur tæknideildar bæj-
arins sagði að reynt væri að halda
veginum við en engar fjárveiting-
ar hefðu fengist til stærri við-
gerða.
„Málið mun leysast þegar
Dalsbraut og Borgarbraut koma
til sögunnar en ég get ekkert um
það sagt hvenær það veröur.
Auðvitað ber okkur skylda til að
halda veginum við svo þar sé fært
þangað til -aýr vegur leysir hinn
af hólmi,“ sagði hann. KR
Ekkert svar hefur borist vegna undirskriftarlistans sem sendur var bæjar-
yfirvöldum.
Skrifstofutækninam
fyrir þá sem horfa björt-
um augum fram á við
Hjá okkur færðu greinagóðan bækling sem seg-
ir þér allt um þetta einstæða nám.
Hringdu strax og við sendum hann um hæl.
Tölvufrczðslan Afcureyri fif.
Gíerárgötu 34, Akureyri.
Síminn er 27899 cða 27886.
Vegurinn að Sólborg er fremur illa útlítandi í rigningu.
Mynd: KL
Sala lambakjöts
á lágmarksverði
gengið vel
- verið er að skoða framhaldið
Undanfarinn mánuð hefur
sérpakkað lambakjöt verið selt
á lágmarksverði. Kjötinu hefur
verið mjög vel tekið og meira
selst en rciknað var með í upp-
hafi. Verið er að skoða fram-
haldið á sölu lambakjöts og
afstaða verður tekin á næstu
dögum.
Þórhallur Arason fram-
kvæmdastjóri samstarfshóps um
sölu lambakjöts sagði allt hafa
gengið ljómandi vel og áætluð
sala lyrir júlímánuð væri 800
tonn. Þar af voru 470-80 tonn í
pokunum. „Þetta gera um 70
þúsund pokar sem er álíka mikið
og heimilin í landinu. Þetta er
líklega söluhæsti mánuðurinn um
töluvert langt skeið og meira
heldur en ég reiknaði með. Salan
í júní var t.d. 680 tonn.“
Verið er að skoða framhald á
sölu á lambakjöti almennt. „Við
gerðum könnun til að vita hvað
neytendur vilja og til þcss að geta
komið betur til móts við þá.
Búast iná við niðurstöðum úr
henni á næstu dögum og í fram-
haldi af því munum við spila ein-
hverju út í takt við það sem við
teljum að sé skynsamlegt," sagði
Þórhallur.
„Við erum þeirrar skoðunar að
lambakjöt á lágmarksverði sé
eitthvað sem kemur til með að
vera vcgna þess hve vel fólk tók
þessu. Þetta verður alltaf hag-
kvæmasta og ódýrastá lamba-
kjötið þegar fólk er búið að læra
að umgangast þessa 6,5 kg. ein-
ingu. Það verður aldrei ódýrari
leið fyrir neytandann að kaupa
lambakjöt en þessi, hvort sem
það er á sérstöku tilboðsverði
eða ekki og við ætlum að reyna
að leggja áherslu á það áfram að
konta kjötinu til fólksins í því
formi sem það er ánægt rneð,
snyrt og sneitt,“ sagði hann. KR
Suður-Þingeyingar
Guðmundur, Valgerður og Jóhannes verða til viðtals og
viðræðna við heimamenn sem hér segir:
Barnaskólanum Svalbarðsströnd, fimmtud. 17. ágúst
kl. 21.00.
Gamla skólanum Grenivík, föstud. 18. ágúst kl. 21.00.
Komið í kvöldkaffi með þingmönnum og spjallið við þá um
þjóðmáiin.
Allir velkomnir. Framsóknarflokkurinn.