Dagur - 16.08.1989, Page 3
fréftir
Miðvikudagur 16. ágúst 1989 - DAGUR - 3
I
Vélsleðamenn úr Eyja-
firði byggja skála
- verður íluttur í Laugafell til afnota fyrir Ferðafélagið
Nokkrir vélsleðaáhugamenn
úr Eyjafirði eru nú að leggja
lokahönd á skála sem flytja á í
Laugafell norðaustan við
Hofsjökul. Ferðafélag Akur-
eyrar sem á fyrir einn skála í
Laugafelli kemur til með að
hafa afnot af honum yfir
sumartímann en sleða-
mennirnir yfir veturinn.
Þeir sem standa að bygging-
unni eru hópur vélsleðamanna
sem ferðast hefur saman í nokkur
ár, meirihlutinn er úr sveitinni
innan Akureyrar en einnig eru
bæjarmenn í hópnum. Hreiðar
Hreiðarsson einn Eyfirðinganna
sagði ástæðuna fyrir byggingunni
vera þá að skálinn í Laugafelli
væri orðinn nokkuð gamall og oft
upptekinn. „Við ákváðum því að
leggja á okkur nokkra vinnu til
að geta haft það gott en það má
segja að þetta sé líka hugsjóna-
starf. Við ætlum að fá að nota
skálann yfir veturinn meðan við
endumst. Ferðafélagið hefur
hann síðan til ráðstöfunar yfir
sumarið og að okkur gengnum
verður hann eign þess."
Skálinn er smíðaður í
sjálfboðavinnu og var byrjað á
því að rífa gamalt hús þar sem
mikið efni fékkst. Það var síðan
vélunnið og er aðaluppistaðan í
grindinni. Skálinn er svotil til-
búinn og verður fluttur upp eftir
um miðjan september. „Það á
ekki að vera svo erfitt að flytja
hann því við höfum fagmenn í
okkar hópi. Tveir kunningjar
okkar eiga síðan dráttarbíla og
þeir ætla að sjá um flutninginn
þannig að við sleppum býsna vel
frá því," sagði Hreiðar. KR
Dalbær, heimili aldraðra á Dalvík tíu ára:
Heimilisfólk býður fólki upp
á ijúkandi kafB og meðlæti
Um þcssar mundir eru liöin
um 10 ár frá því að Dalbær,
heimili aldraðra á Dalvík, tók
til starfa. í tilefni af því ætlar
heimilisfólk að gera sér glaðan
dag nk. sunnudag og efna til
kaffldrykkju og skemmti-
dagskrár. Heimilið verður
opið gestum og gangandi og
segist Halldór Guðmundsson,
forstöðumaður, vilja hvetja
sem flesta til að líta við og eiga
góðan dag með gamla fólkinu.
I tengslum við þennan „opna
dag“ verða settar upp ýmsar
upplýsingar varðandi starfsemi
Dalbæjar.
Starfsmenn voru ráðnir að
Dalbæ í júlí og ágúst árið 1979 og
því hefur það nú starfað í tíu ár.
Heimilisfólk er nú 44 að tölu á
tveimur deildum, hjúkrunar- og
dvalarheimilisdeild. Þá er rekin
dagvistun við hcimilið og eru 7-
10 manns sem nýta sér þá þjón-
ustu að jafnaði. Yfir veturinn er
ýmislegt félagsstarf í gangi ásamt
þjónustu eins og hár- og fótsnyrt-
ingu.
Að sögn Halldórs var sú
nýbreytni tekin upp á þessu ári
að vera með hvíldarinnlagnir á
hjúkrunardeild, en í því felst að
fólk er tekið til skemmri vistunar,
allt frá nokkrum vikum upp í
nokkra mánuði.
Það nýjasta í starfi Dalbæjar er
tilraun í samráði við hcilbrigðis-
yfirvöld sem verið hefur í gangi
frá því í vor. Fólki er gefinn kost-
ur á að prófa þjónustu eins og
hún er í vernduðum þjónustu-
Fræðsluskrifstofa Norðurlands-
umdæmis eystra er sem stend-
ur í leiguhúsnæði að Furuvöll-
um 13 á Akureyri og rennur
leigusamningur út árið 1991.
Að sögn Trausta Þorsteinsson-
ar, fræðslustjóra, hefur ekki
verið tekin ákvörðun um hús-
næðismál skrifstofunnar el'tir
að leigusamningur rennur út
en þessi mál eru á borði ráðu-
neytis og fræðsluráðs.
Trausti segir að núverandi
húsnæði skrifstofunnar henti að
sumu leyti vel fyrir starfsemina,
að öðru leyti ekki. Æskilegast
væri að skrifstofan fengi húsnæði
nær „hjarta“ skólastarfs Akur-
eyrar. Ein af hugmyndum um
íbúðum. „Þessi prófun hefur gef-
ist vel og hafa þeir íbúar sem tck-
ið hafa þátt í hcnni sýnt þessu
áhuga og viljað að þessari starf-
semi verði fram haldið," sagði
Halldór. óþh
húsnæði fyrir fræðsluskrifstofuna
er hús Húsmæðraskólans, sunnan
húss Háskólans á Akureyri.
Trausti telur einsýnt að það fáist
ekki fyrir starfsemina sökum þcss
að það sé nú þegar fullnýtt af
Verkmenntaskólanum og Háskól-
anum. „Þetta mál hefur verið í
nokkurri biðstöðu sökum þess aö
ekki hefur legið fyrir hvort
fræðsluskrifstofur myndu lenda
hjá ríki eða sveitarfélögurn. Nú
er Ijóst að húsnæði og rekstur
fræðsluskrifstofa verður á hendi
ríkisins. Það liggur hins vegar
ekki fyrir hvort ríkið vill leigja
áfram eða kaupa húsnæði fyrir
fræðsluskrifstofuna," segir
Trausti. óþh
Húsnæðismál Fræðsluskrifstofu NE:
Óvíst með kaup eða
áframhaldandi leigu
Landsvirkjun:
Helmingur milljarðaláns
til Blönduframkvæmdanna
Landsvirkjun hefur fengiö lán
frá Norræna fjárfestingarbank-
anum aö upphæð 2,4 milljarö-
ar króna. Lánið er til 15 ára og
greiðist með jöfnum hálfsárs-
legum afborgunum að 5 árum
liðnum.
Norræni fjárfestingarbankinn
hefur oft áður lánað til fram-
kvæmda hér á landi en þetta lán
til Landsvirkjunar er hið stærsta
sem sjóðurinn veitir íslenskum
aðila. Lánsfénu verð.ur að hálfu
varið til fjármögnunar fram-
kvæmda Landsvirkjunar við
Blönduvirkjun og að hálfu til að
greiöa upp eldri lán með óhag-
slæðari kjörum. óþh
Frá undirritiin láns.sainnings Landsvirkunar og Norræna fjárfestingarbank-
ans í Hclsingfors á dögunuin. Frá vinstri: .lannik Liudbæk, bankastjóri
Norræna fjáifestingabankans, Halldór Jónatansson, forstjóri Landsvirkjun-
ar og Þórhallur Ásgeirsson, stjórnarmaður í bankanutn.
Stórsýning
Stórsýning verður á hinum þekktu CEM rafsuðu-
og kolsýruvélum ásamt starttækjum,
plasma skurðarvélum og öðrum nýjungum.
★
Sýningin verður haldin hjá Véladeild
KEA Óseyri 2 (Hjólbarðaverkstæði)
laugardaginn 19. ágúst frá kl. 10-16.
Allir áhugamenn velkomnir.
Véladeild
Óseyri 2 Akureyri • Símar 21400 og 22997.
Frá menntamálaráðuneytinu
Lausar stöður
Við Flensborgarskóla í Hafnarfirði er laus til umsókn-
ar 1/2 staða kennara í frönsku.
Við Fósturskóla íslands er laus til umsóknar Vá staða
kennara í islensku og barnabókmenntum. Frekari upp-
lýsingar veittar á skrifstofu skólans milli kl. 10.00-15.00
alla virka daga.
Við Menntaskólann á Egilsstöðum er laus til
umsóknar staða kennara i tölvufræði, stærðfræði og
viðskiptagreinum.
Við Fjölbrautaskóla Suðurnesja, framlengdur er
umsóknarfrestur um stöðu kennara í íslensku.
Við Menntaskólann í Hamrahlið er laus til umsóknar
staða stundakennara í vélritun. Frekari upplýsingar
veittar á skrifstofu skólans.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6,
150 Reykjavík fyrir 21. ágúst næstkomandi.
- o -
Við Landsbókasafn íslands er laus til umsóknar
staða deildarstjóra í deild erlendra rita. Ráðið verður í
stöðuna frá 1. október næstkomandi.
Æskilegt er að umsækjendur hafi lokið háskólaprófi í
bókasafnsfræði.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og starfs-
feril skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu fyrir 4.
september næstkomandi.
- o -
Viö sjávarútvegsdeild Háskólans á Akureyri eru eftir-
taldar stöður lausar til umsóknar:
1) Staða forstöðumanns sjávarútvegsdeildar.
2) Staða lektors í stærðfræði, aðal kennslugreinar
stærðfræði og tölfræði.
3) Staða lektors í tölvufræði.
Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf
umsækjanda, ritsmíða og rannsóknir, námsferil og
störf, skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Hverfis-
götu 6, 150 Reykjavík, fyrir 10. september 1989.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.