Dagur - 16.08.1989, Síða 6
6 - Ð'AGUfi - Miðvikudagur 16. ágúst 1989
Heiðarbær í Reykjahverfi:
Sundlaug og
veitingasala
vel sótt í siunar
Ný sundlaug og tveir heitir
pottar við Félagsheimilið
Heiðarbæ í Rcykjahverfí voru
teknir í notkun við hátíðlega
athöfn á þjóðhátíðardaginn.
Síðan hafa þrjár ungar konur í
Reykjahverfí haft sundlaugina
og aðstöðu í félagsheimilinu á
leigu, séð um rekstur sund-
laugarinnar og verið með veit-
ingasölu í vistlegum húsakynn-
um Heiðarbæjar.
Esther Björk Tryggvadóttir sá
um reksturinn þá stundina sem
Dagur leit við í Heiðarbæ en hin-
ir þremenninganna eru Linda
Björk Reinhardtsdóttir og Anna
María Helgadóttir. Sundlaugin
er opin frá kl. 13-22 alla daga til
31. ágúst, en þá rennur leigu-
samningurinn út. Á sama tíma er
veitingasalan opin og þar er hægt
að fá kaffi, kaldar samlokur,
kökuskammta, öl og sælgæti og á
sunnudögum stendur til boða
kaffihlaðborð frá kl. 14-18.
Esther sagði aðsóknina í sumar
framar vonum, starfseminni væri
vel tekið og aðsókn ágæt. Ferða-
fólk, bæði erlent og innlent, hefur
staldrað við í Heiðarbæ í sumar.
Húsvíkingar hafa sótt staðinn
bæði á daginn og kvöldin en
Reykhverfungar koma aðallega á
kvöldin, sagði Esther aðspurð
um aðsóknina. IM
Esther við sundlaugina, heitu pottarnir í baksýn
Ferðaþjónusta bænda í Bláhvammi:
miklu betur en
- segir Jón Frímann
og þar hafa ekki gist fleiri síðan
ég þyrjaði með þessa þjónustu. I
húsinu eru 12 uppbúin rúm.“
- Pantar fólk gistingu með
löngum fyrirvara eða kemur það
og spyr hvort gisting sé fáanleg?
„Bæði og, á næstu þrem vikum
eru það fjórir dagar sem enginn
hefur pantað gistingu hér. En í
gærmorgun áttum við ekki von á
neinum gestum þó þeir væru
orðnir 22 í gærkvöldi og miklu
fleiri vildu koma, svo fólk dettur
bara svona inn líka. Þau sem
fengu inni voru með tjöld og á
leið upp á hálendi. Pau voru í
Vaglaskógi í fyrrinótt og þar flaut
allt upp hjá þeim. Einn í hópnum
hafði gist hér fyrsta sumarið svo
„ADt gengið
Jón Frímann í Bláhvammi,
Reykjahverfi er aðili að Ferða-
þjónustu bænda og býður
ferðafólki gistiaðstöðu í sér-
stöku gestahúsi, Laufahlíð, sem
stendur aðeins örfáa metra
norðan við íbúðarhúsið í Blá-
hvammi. Mjög skemmtileg
eldunaraðstaða er í Laufahlíð
þar sem nýttur er hiti frá hver
sem er skammt frá bænum.
Heitt vatn og gufa frá hvernum
er einnig notað í sundlaug og
gufubað sem eru rétt við gesta-
húsið. Þetta er fjórða sumarið
sem ferðaþjónusta er starfrækt
í Bláhvammi, og er Dagur átti
leið um Reykjahverfi var kom-
ið við hjá Jóni til að spjalla og
spyrja hvernig gengi.
„Já, gestahúsið heitir Laufa-
hlíð og maður nokkur sem kom
hér og gisti með fjölskyldu sína í
þrjár nætur, sagði að hann hefði
staðið í þeirri trú að hann væri í
Bláhvammi, en þegar hann fór að
skoða Byggðir og bú komst hann
að því að hann hafði aldrei í Blá-
hvamm komið. Petta eru í raun-
inni tvær jarðir; Bláhvammur og
Laufahlíð.
Pað hefur verið mikið að gera í
sumar við ferðaþjónustuna og
margir gist hér. Oft er fullt hús og
langt fram yfir það. í nótt var
metaðsókn, það gistu 22 í húsinu
Jón Frímann í Bláhvammi og íslcnsku hænsnin.
lítið tímakaup, ef þannig væri
reiknað. En mér líkar þetta vel
og sé ekki eftir að hafa byrjað á
'þessu. Ég hefði nú samt orðið
stressaður í gær ef það hefði ver-
ið brakandi þurrkur þegar allt
þetta fólk kom og ég þurfti að
fara að búa upp öll rúmin. Guðný
dóttir mín sem hjálpar mér er í
fullri vinnu á Hveravöllum og
drengirnir eru líka í vinnu og
ekki alltaf hér heima. Fólk sem
fer út í ferðaþjónustu má ekki
vera að hugsa um hvaða tími sól-
arhringsins er, heldur alltaf að
vera tilbúið að sinna gestunum.
Þetta hefur allt gengið mikið bet-
ur en ég bjóst við. Ekki hefur
einn einasti svartur sauður slæðst
með öllum þeim fjölda sem búinn
er að koma. í Laufahlíð er mikið
af bókum og ýmsu dóti og aldrei
hefur neitt horfið þaðan.“
Það er gaman að fá að skreppa
út í fjárhúsið með Jóni og líta.á
dýrin hans, og ekki er víst að jafn
margar tegundir dýra finnist í
öðru fjárhúsi hér á landi. Jón er
nýlega orðinn þjóðfrægur fyrir
ræktun kínversku dverghænsn-
anna sinna en auk þeirra á hann
ítölsk hænsni og íslensk hænsni,
heldur betur skrautleg. Hæna og
hæna er nefnilega alls ekki það
sama. Kanínur eru í búri og grísir
í stíu. Kötturinn og hundurinn
spígspora innan um fuglana og á
hlaðinu leika heimaalningarnir
sér, en hestarnir eru í girðingu
rétt við húsið. Jón er óþreytandi
við að segja frá og veita af sínum
hafsjó af fróðleik um dýrin sín,
sem greinilega njóta góðrar
umhirðu.
- Þú hefur dýr til að leyfa
kaupstaðabörnunum að skoða.
„Kaupstaðabörnin, það er
ekkert síður stóru kaupstaða-
börnin sem skoða dýrin. Það
komu t.d. hjón um þrítugt úr
Kópavogi hér í fyrra og hvorugt
þeirra hafði komið við kind eða
kálf. Það er ábyggilega að verða
stór hluti af þjóðinni sem ekki
hefur komist í beina snertingu
við skepnur."
Þessu finnst Jóni greinilega
þurfa að ráða bót á. Þó skemmti-
legt og fróðlegt sé að spjalla við
Jón er hann kvaddur og haldið af
stað frá Bláhvammi, með fullum
skilningi á því af hverju sumt
ferðafólkið kemur þangað aftur
og aftur. IM
hann þekkti til hjá okkur.“
- Finnst þér Ferðaþjónusta
bænda njóta meiri vinsælda með
árunum?
„Já, mikið meiri. Ef ég þyrfti
að fara að standa í að auglýsa
þetta núna eftir þessi ár, þá væri
eitthvað bogið við þetta hjá mér.
Ég sagði það strax og við byrjuð-
um að ef miklu þyrfti að kosta til
auglýsinga eftir þrjú ár en þetta
hefði ekki spurst út, þá væri þetta
ekki í lagi. Það hefur sýnt sig að
sama fólkið kemur hér aftur og
aftur.“
„Hvernig er afkoman af ferða-
þjónustunni, borgar þetta sig?
„Ósköp held ég að við höfum
ég bjóst við,“