Dagur - 29.09.1989, Qupperneq 5
Föstudagur 29. september 1989 - DAGUR - 5
— .
Hvað er að gerast
Matthías og Pétur
- ljóð og gítar
Ljóöaklúbbur Almenna bókafé-
lagsins efnir til bókmennta- og
tónlistardagskrár á Sal Mennta-
skólans á Akureyri, föstudags-
kvöldið 29. september klukkan
níu um kvöldiö. Þar munu þeir
Matthías Johannessen skáld og
Pétur Jónasson gítarleikari flytja
dagskrá sem byggist á samspili
ljóös og gítars.
Á efnisskránni verður meðal
annars verk eftir Atla Heimi:
Veglaust haf, níu hugleiðingar
um samnefnt ljóð eftir Matthías,
auk þess sem leiknir verða þættir
úr verkinu Tilbrigði við jómfrú
eftir Kjartan Ólafsson.
Matthías Johannessen er eitt af
ágætustu skáldum okkar íslend-
inga og hefur sent frá sér á annan
tug ljóðabóka sem allar hafa not-
ið verðskuldaðrar athygli. Pétur
Jónasson er meðal bestu hljóð-
færaleikara okkar. Hann kemur
reglulega fram sem einleikari,
kennir á námskeiðum og leikur í
útvarpi og sjónvarpi, hér heima
og erlendis. Það má því fullyrða
að samleikur þeirra Matthíasar
og Péturs verður athyglisverður
og spennandi listviðburður.
Dagskráin verður hljóðrituð.
Sýningu
Iðunnar í
Vín lýkur
á sunnudag
Nú eru síðustu forvöð að sjá mál-
verkasýningu Iðunnar Agústs-
dóttur í Blómaskálanum Vín í
Eyjafirði.
Iðunn sýnir þar 30 pastelmynd-
ir á einkasýningu sem opin er frá
kl. 13.00-22.00 fram á sunnudag.
Iðunn hefur áður haldið fjölda
einka- og samsýningar á verkum
sínum.
Knattspyrnudeild KA:
Þakkarhátíð
SjaUanum í kvöld
1
Knattspyrnudeild KA ætlar að
halda „Pakkarhátíð" fyrir stuðn-
ingsmenn KA í Sjallanum í kvöld
föstudaginn, 29. september.
Þangað verður starfsmönnum
féiagsins, leikmönnum meistara-
flokks, stjórnum og forsvars-
mönnum fyrirtækja er stutt hafa
félagið dyggilega fyrst boðið í
mat, en síðan verður húsið opnað
um miðnætti. Þá er öllum stuðn-
Vetrarstarf Glerárkirkju
Nú er að hefjast vetrarstarf í
kirkjum landsins.
Á sunnudaginn þann 1. októ-
ber byrjar barnastarfið við Gler-
árkirkju, og verður það vikulega
í allan vetur. Góður hópur starfs-
fólks hefur boðið sig fram til að
vinna við barnastundirnar og
gera þær sem ánægjulegastar.
Allir aldurshópar barna eru vel-
komnir og rétt er að hvetja for-
eldra og annað fullorðið fólk til
að koma með börnunum, sér-
staklega þeim yngri, því vafalaust
hafa bæði ungir sem eldri ánægju
af því sem þarna fer fram. Fyrsta
barnasamkoman verður eins og
áður er sagt sunnudaginn 1. októ-
ber kl. 11.
Þennan sania dag verður guðs-
þjónusta kl. 14. Ræðuefni þenn-
an dag verður: Koma syndir for-
eldranna niður á börnunum.
Organisti verður Jóhann Bald-
vinsson. Eftir messuna verður
Kvenfélagið með kaffiveitingar
og meðan kirkjugestir fá sér
kaffisopa kynnir bygginganefnd
kirkjunnar stöðu framkvæmda
við kirkjuna og það sem á döfinni
er á næstu mánuðum. Einnig fær
fólk að heyra af segulbandi í
sams konar kirkjuklukkum og
pantaðar hafa verið í Glerár-
kirkju.
Akureyrarkirkja:
Vetrarstarfið að
Sunnudaginn 1. október hefst
barnastarfið í Akureyrarkirkju.
Sunnudagaskólinn hefst kl. 11 og
verður svo framvegis í vetur. Öll
börn, eldri sem yngri, eru vel-
komin. Starfið fer fram bæði í
kirkjunni og í kapellunni. Á síð-
astliðnum vetri komu margir for-
eldrar með börnum sínum í
sunnudagaskólann og var það
mjög ánægjulegt. Vonandi verða
enn fleiri með í vetur.
Sóknarprestarnir munu leiða
starfið ásamt Sigrúnu Sigurðar-
dóttur og Þóru Bragadóttur, en
til aðstoðar verður áhugafólk úr
söfnuðinum. Vilji fleiri koma til
starfa er það velkomið því ætíð
er þörf á góðu starfsfólki. Auk
samverustundanna í Akureyrar-
kirkju verða aðrar kirkjur heim-
sóttar og margt gert til þess að
auka ánægjuna.
Fermingarundirbúningur hefst
í næstu viku og fljótlega byrjar
starfið í Æskulýðsfélagi Akureyr-
arkirkju. Hópur úr félaginu sótti
æskulýðsmót á Suðurlandi ný-
lega.
Á vegum Bræðrafélags Akur-
eyrarkirkju er nýhafið biblíu-
lestrarnámskeið. Leiðbeinandi
verður Björgvin Jörgensson og
mun hann ljúka við Jóhannesar-
heíjast
guðspjall og byrja lestur Matt-
eusarguðspj alls. Biblíulestrarnir
eru á mánudagskvöldum kl.
20.30 og allir velkomnir.
Starf Kvenfélags Akureyrar-
kirkju verður að vanda marg-
þætt. Það hefst nk. sunnudag
með kaffisölu í kapellunni eftir
messu, sem hefst kl. 14.
Fyrirbænaguðsþjónustur verða
áfram á fimmtudögum kl. 17.15.
Margir hafa þreifað á þeirri bless-
un sem fyrirbænastarfinu fylgir.
Að lokum er minnt á mikilvægt
starf kirkjukórsins. Þar er einnig
margt á döfinni og nýir félagar
velkomnir.
ingsmönnum félagsins sem náð
hafa aldri til þess að vera á vín-
veitingahúsi og gestum þeirra
boðið að koma á dansleik.
Á sunnudaginn, 1. október
verður svo haldin skemmtun í
Sjallanum fyrir yngsta fólkið í
KA. Stendur hún frá kl. 14.00-
16.00 en auk kvikmyndasýningar
þar sem sýndar verða fótbolta-
myndir, verður diskótek.
Fimmtudaginn 5. október nk.
stendur knattspyrnudeildin loks
fyrir unglingaskemmtun í Sjall-
anum frá kl. 21.00-23.00.
Aðgangur á allar skemmtanirnar
verður ókeypis. VG
HAUSTVORURNAR '89
K0MNAR
Glæsílegur fatnaður
fyrir íslenskar athafnakonur.
Pils, peysur, buxnapils,
blússur og kjólar
Hönnun og gæði í hávegum höfð.
'Hllu.ve’ilLvLn. ^teinunnax
-Hafnarstræti 98 • Akureyri • Sími (96) 22214-
Snyrtivörukynning
í dag ld. 13-18 kynnir snyrtifræðingur
nýju haust- og vetrarlitina frá
~Biodroqa
ásamt NO. 1 sem er enn ein rósin
í hnappagat TZiodroqa
Verið velkomin
T3iodroqa
Lífrænar
jut-tosriyrt ivoinir í 25 ár
SÍMI
(96) 21400