Dagur - 29.09.1989, Side 7
Föstudagur 29. september 1989 - DAGUR - 7
Hér er tækifærí til þess að leysa
húsnæðismál íslenskrar Getspár
með góðum hætti og skapa um
leið fjölbreyttara atvinnulíf á
Akureyri.
Akureyrí, 11. september, 1989,
Pétur Jósefsson,
sölustjórí Fasteigna- og
skipasölu Norðuríands.“
Svar íslenskrar Getspár
Pann 22. september sl. barst
Pétri Jósefssyni, fyrir hönd Fast-
eigna- og Skipasölu Norðurlands,
svar frá Birni Ástmundssyni,
stjórnarformanni íslenskrar Get-
spár. Svarbréf Björns er svo-
hljóðandi:
„Við þökkum ábendingar og
tilboð yðar í fasteignir á Akur-
eyri undir starfsemi íslenskrar
getspár.
Fréttaflutningur af húsbygg-
ingamálum fyrirtækisins hefur
því miður verið misvísandi eins
og búast mátti við þegar einstakir
aðilar í stórum félagssamtökum
vilja ekki sætta sig við ákvarðanir
stjórnar og bera fjölmiðlum rang-
ar upplýsingar. A þetta við um
byggingakostnað, eignaraðild og
stærðir fyrirhugaðrar húsbygg-
ingar.
Það breytir hins vegar ekki
áformum okkar um að byggja
yfir fyrirtækið hér í Laugardaln-
um í samvinnu við íþróttasam-
band íslands á því svæði sem
þessi stærsti eignaraðili íslenskr-
ar Getspár rekur höfuðstöðvar
sínar.
Hvað varðar staðsetningu
fyrirtækisins á Akureyri má
benda á þann kostnaðarauka,
sem hlytist af því að senda boð
um símalínur frá stærsta mark-
aðssvæðinu hér á SV-horni Iands-
ins til Akureyrar. Þá er viðgerð-
arþjónusta augljóslega best kom-
in þar sem flestir notendur eru,
en af 180 sölukössum íkerfi okk-
ar eru 115 hér á SV-horninu.
Við vonum að fasteignir þær
sem þú bendir á, eigi eftir að nýt-
ast fjölbreyttu atvinnulífi á Akur-
eyrí á komandi árum.
Með vinsemd,
Björn Ástmundsson,
stjórnarformaður
íslenskrar Getspár.“
Forvitnilegt mál
Með þessu bréfi hefur stjórn-
arformaður íslenskrar getspár,
væntanlega fyrir hönd fyrirtækis-
ins, kveðið upp endanlegan úr-
skurð í þessu máli. Höfuðstöðvar
Lottósins verða að vera í Reykja-
vík. Rökin sem Björn færir fyrir
því geta naumast talist stórvægi-
leg, en vissulega er athyglisverð
staðhæfing hans um að höfuð-
stöðvarnar íslenskrar Getspár
verði að vera á sama stað og við-
gerðarþjónustan. Bréfið er viss
áfellisdómur yfir þeim „draumór-
um“ landsbyggðarmanna að eitt-
hvað af þjónustustarfseminni á
höfuðborgarsvæðinu verði flutt
út á iandsbyggðina á komandi
árum. í þessu sambandi er rétt að
taka það fram að tölvutæknin
hefur fyrir löngu náð til Akureyr-
ar, ef einhverjum er ókunnugt
um það. Nokkur fyrirtæki í bæn-
um annast meira að segja þjón-
ustu á þessu sviði og ferst það vel
úr hendi. Varla yrði margt því til
fyrirstöðu að ráða viðgerðar-
menn á höfuðborgarsvæðinu til
að annast viðhald sölukassa
íslenskrar Getspár þar, þótt
höfuðstöðvarnar væru á Akur-
eyri, eða hvað?
Hvað sem um þetta mál má
segja að öðru leyti, er ljóst að
einhverjum, ekki aðeins á Akur-
eyri, kann að þykja það dálítið
forvitnilegt. BB.
Akureyrskt framtak í heimspeki
Komin er út í hinum kunna lær-
dómsritaflokki Hins íslenska
bókmenntafélags bókin Undir-
stöður reikningslistarinnar eftir
Gottlob Frege. Að útgáfu hennar
unnu m.a. tveir Akureyringar,
Kristján Kristjánsson og, Guð-
mundur Heiðar Frímannsson, er
til skamms tíma kenndu við
M.A. en stunda nú framhalds-
nám í heimspeki í Bretlandi.
Þýddi Kristján bókina úr þýsku
en Guðmundur ritar ítarlegan
inngang.
Gottlob Frege, sem oft er
nefndur faðir. nútíma rökfræði,
fæddist 1848 og lést 1925. Hann
kenndi lengst af við háskólann í
Jena í Pýskalandi og gaf út tíma-
mótaverk í heimspekilegri rök-
fræði árið 1879, Begriffsschrift.
Svo fór þó að fáir lásu verkið og
enginn skildi enda var það æði
tæknilegt í framsetningu. Frege
afréð því að rita aðra bók, styttri
og aðgengilegri, og er það sú sem
nú kemur fyrir almenningssjónir
á íslensku. Ekki var hún þó held-
ur metin að verðleikum af þorra
heimspekinga fyrr en löngu eftir
að Frege var allur.
í bókinni veltir Frege fyrir sér
sjálfu töluhugtakinu og spyr
hverju sannindi reikningslistar-
innar lýsi. Hann hafnar því m.a.
að þau lýsi eiginleikum efnis-
heimsins, innviðum mannlegrar
hugsunar eða reglum sem aðeins
séu leikur að tómum táknum.
Pvert á móti virðist mega draga
þá ályktun af bók Freges að sann-
indi reikningslistarinnar hvíli á
rökfræðilegum grunni og þau
skírskoti til eilífs veruleika sem
sé til óháður mannlegri hugsun.
Auk vangaveltna um töluhugtak-
ið má finna í bók Freges umfjöll-
un um ýmis efni í rökfræði sem
haft hafa djúpstæð áhrif á við-
gang hennar og óbein áhrif á
þróun annarra fræða, svo sem
hvers konar tölvuvísinda. Þá er
hvarvetna andæft þeirri hugmynd
að hægt sé að skýra rökleg sann-
indi með sálfræðilegum aðferð-
um.
Telja má mikinn feng að
útkomu þessarar bókar á íslandi
þar sem áhugi á heimspeki er
sífellt að aukast. Áður hafa kom-
ið út í lærdómsritaflokknum rit
hugsuða á borð við Platón,
Hume, Mill og Frcud. Ritstjórar
hans eru þeir Þorsteinn Gylfason
og Þorsteinn Hilmarsson.
Laugardagur kl.13:55
39. LEIKVIKA- 30.sept.1989 1 X 2
Leikur 1 Aston Villa - Derby
Leikur 2 Chelsea - Arsenal
Leikur 3 C. Palace - Everton
Leikur 4 Man. City - Luton
Leikur 5 Millwall - Norwich
Leikur 6 Nott. For. - Charlton
Leikur 7 Sheff. Wed. - Coventry
Leikur 8 Southampton - Wimbledon
Leikur 9 Tottenham - Q.P.R.
Leikur 10 PortVale - Leeds
Leikur11 Sunderland - Sheff. Utd.
Leikur 12 Watford - Middlesbro
Símsvari hjá getraunum er 91-84590 og -84464. LUKKULÍNAN s. 991002
Munið hópleikinn ll *
Aukablað —
Bílar
Priðjudaginn 31. október
nk. mim aukablað um bíla
fylgja Degi.
Þeir auglýsendur sem hafa áhuga
á að auglýsa í þessu aukablaði,
vinsamlegast hafi samband við
auglýsingadeild Dags hið íýrsta,
í síma 96-24222.
Vinsamlegast athugið að skila-
íirestur auglýsinga er til mánu-
dagsins 23. október nk.
Auglýsingadeild, sími 24222.
HRISALUNDUR
Fyrir sælkerana:
Úrval
sjávarrétta
i
helgarmatinn!