Dagur - 29.09.1989, Side 9
Föstudagur 29. september 1989 - DAGUR - 9
Haustönn Fræðsluvarps í útvarpi og sjónvarpi:
Mjög flölbreytt fræðsluefni
verður á boðstólum
Haustönn Fræðsluvarps í útvarpi
og sjónvarpi hefst í byrjun októ-
ber nk. og stendur fram í byrjun
desember. Vorönn hefst í janúar
og stendur fram í maí, 1990.
Mjög fjölbreytt fræðsluefni verð-
ur á boðstólum á haustönn og
sýningartímar fjóra virka daga
vikunnar í stað tveggja áður.
Útsendingar Fræðsluvarps hefj-
ast klukkan 17.00 mánudaga,
þriðjudaga, miðvikudaga og
fimmtudaga og síðan verður val-
ið efni endurflutt á sunnudögum
klukkan 13.00.
Á haustönn verður boðið upp
á fjölbreytt tungumálanám í
Fræðsluvarpi. í sjónvarpi verður
kennd ítalska, þýska og franska
en á Rás.2 í útvarpi verður kennd
danska og enska. Öll námskeiðin
eru ætluð byrjendum. í tengslum
við ítölskunámskeiðið bjóða
Tómstundaskólinn og Bréfaskól-
inn upp á stuðningsnámskeið fyr-
ir þá sem vilja nota tækifærið til
fulls til að læra ítölsku.
Sérstök athygli er vakin á fjöl-
mörgum nýjum kennsluþáttum
sem Fræðsluvarpið sýnir á haust-
önn. Meðal efnis má nefna nýja
Nauðungaruppboð
þriðja og síðasta
á eftirtöldum fasteignum fer
fram á eignunum sjálfum,
á neðangreindum tíma:
Glerárgata 26, 2. 3. og 4. hæð, Ak„
þingl. eigandi Eyri hf. miðvikud. 4.
okt. ’89, kl. 14.00.
Uppboðsbeiðendur eru:
Bæjarsjóður Akureyrar, Iðnlána-
sjóður, Gunnar Sólnes hrl., Hreinn
Pálsson hdl., Brunabótafélag
íslands, Fjárheimtan hf. og Ingólfur
Friðjónsson hdl.
Grenivellir 16, 1.h. t.v. Akureyri,
þingl. eigandi Steindór Kárason,
miðvikud. 4 okt. ’89 kl. 15.00.
Uppboðsbeiðendur eru:
Ólafur Birgir Árnason hdl., Ásgeir
Thoroddsen hdl., innheimtumaður
ríkissjóðs, Gunnar Sólnes hrl.,
Útvegsbanki (slands og Skúli J.
Pálmason hdl.
Grund II, Hrafnagilshreppi, þingl.
eigandi Þórður Th. Gunnarsson,
miðvikud. 4. okt. ’89 kl. 16.00.
Uppboðsbeiðendur eru:
Gunnar Sólnes hrl., Stofnlánadeild
landbúnaðarins, Baldur Guðlaugs-
son hrl., Benedikt Ólafsson hdl.,
Fjárheimtan hf„ og Landsbanki
Islands.
Bæjarfógetinn á Akureyri
og Dalvík,
Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu.
Gengið
Gengisskráning nr. 185
28. september 1989
Kaup Sala Tollg.
Dollari 61,150 61,310 61,160
Sterl.p. 98,308 98,565 95,654
Kan. dollari 51,807 51,942 52,051
Dönskkr. 8,3254 8,3472 8,0184
Norskkr. 8,7960 8,8190 8,5515
Sænskkr. 9,4645 9,4892 9,2206
Fi.mark 14,1846 14,2218 13,8402
Fr. (ranki 9,5711 9,5962 9,2464
Belg.franki 1,5441 1,5481 1,4905
Sv.franki 37,3435 37,4412 36,1103
Holl. gylllni 28,6880 28,7631 27,6267
V.-þ. mark 32,3888 32,4735 31,1405
It. líra 0,04473 0,04485 0,04343
Aust. sch. 4,6029 4,6150 4,4244
Port.escudo 0,3839 0,3849 0,3730
Spá. peseti 0,5127 0,5141 0,4981
Jap.yen 0,43392 0,43505 0,42384
Irsktpund 86,304 86,530 83,123
SDR28.9. 77,7431 77,9465 76,1852
ECU, evr.m. 66,9378 67,1130 64,6614
Belg.tr. fin 1,5368 1,5408 1,4882
þáttaröð um rítun íslensks máls,
þáttaröð um stærðfræði 202,
þætti um lífshætti unglinga, sem
nefnast Pú átt valið og þætti um
kennsluhætti á framhaldsskóla-
stiginu, sem nefnast Pað erleikur
að læra. Þættirnir um kennslu-
hætti á framhaldsskólastiginu
fjalla sérstaklega um kennslu f
raungreinum og tungumála-
kennslu. Þá verður á dagskrá nýr
þáttur sem nefnist Upp úr hjól-
förunum, en hann fjallar um þau
öfl þjóðfélagsins sem móta stúlk-
ur og drengi inn í hefðbundin
hlutverk kynjanna. Einnig verð-
ur sýndur nýr þáttur um gildi
brjóstagjafar fyrir móður og
barn, en hann nefnist Á brjósti -
ekkert jafnast á við það.
Umræðuþættir um skólamál
verða að hálfs mánaðar fresti og
auk þess fjölbreytt efni ætlað
grunnskólastiginu sem Náms-
gagnastofnun hefur látið
Fræðsluvarpi í té til útsendingar.
Þeir sem vilja fá þessa þætti á
myndböndum snúi sér til
Fræðsluvarpsins eða Námsgagna-
stofnunnar.
Bæklingur þar sem dagskrá
Fræðsluvarps er kynnt í smáatr-
iðum verður sendur út til allra
skóla. Auk þess er hægt að fá
bækiinginn á bókasöfnum víða
um land og í Fræðsluvarpinu,
Laugavegi 176, Reykjavík, sími
91-693853.
VERKMENNTASKÓLINN
Á AKUREYRI
Verkmenntaskólinn á Akureyri og
Verkalýðsfélagið Eining auglýsa:
Kjarnanámskeið fyrir ófaglært starfsfólk á dag-
vistum, dvalarheimilum, leikvöllum, heimilis-
þjónustu - og dagmæður, hefst í byrjun október.
Innritun fer fram á skrifstofu VMA á Eyrarlands-
holti dagana 2.-6. október.
Frekari upplýsingar fást á skrifstofu VMA, sími
26810, og hjá Einingu.
Umsjónarmaður.
BOLTINN
Bugðusíðu 1
Sími 96-26888
Veggtennisklúbburinn
Framhaldsstofnfundur verður haldinn að
Bjargi, fimmtudaginn 5. okt. kl. 20.00.
Fundarefni: Vetrarstarfið o.fl.
Gamlir og nýir félagar hvattir til að mæta.
Stjórnin.
Blaðbera vantar
í Aðalstræti og Lækjargötu frá og með 3. október.
Eiginkona mín, móðir okkar og tengdamóðir,
Guðný Margrét Magnúsdóttir,
lést á Dvalarheimilinu Hlíð, miðvikudaginn 27. september.
Ingólfur Árnason,
börn og tengdabörn.
SÁÁ-N
í tilefni af eins árs afmæli SÁÁ-N, sunnudaginn
1. október, verður haldin fjölskylduskemmtun í
Lóni, Hrísalundi 1, sem hefst kl. 15.00.
Ávörp, kaffihlaðborð og létt hjal undir stjórn Ingimars
Eydal. Dregið verður í happdrætti SÁA-N.
Allir velkomnir.
SÁÁ-Norðurlandsdeild.
Bridgefélag Akureyrar
autamót
félagsins"/sem er tvímenningur, hefst þriðjudag-
inn 3. okt. kl. 19.30 stundvíslega í Félagsborg.
Spilaðar verða tvær umferðir eftir Mitcell fyrirkomu-
lagi, (tvö spilakvöld).
Öllu spilafólki á Akureyri og nær-
sveitum er heimil þátttaka.
Skráning fer fram á staönum og eru spilar-
ar beönir aö mæta tímanlega.
Blómaútsala
Hin árlega stórútsala á pottaplöntum
hefst í dag, 29. september.
Góð blóm á lágu verði.
Allt að 50% afsláttur.
Opið laugardag og sunnudag frá kl. 10-18.
KAUPANGIV/ MÝRARVEG 602 AKUREYRI
SÍMAR 24800 & 24830 PÓSTHÓLF 498
fiBlómalmim
AKUR
Hagstætt verð
Gallabuxur með föllum.
Stærðir 44-54. Verð 1.550,- kr.
Black-Jack gallabuxur.
Stærðir 30-40. Verð 1.350,- kr.
Dömunáttkjólar.
Stærðir S-M-L. Verð 670,- kr.
Telpnanáttkjólar.
Stærðir 110-160. Verð 595,- kr.
1|I EYFJÖRÐ ao
^ÉBr. Hjalteyrargötu 4 - Simi 22275 ÍÉI
L,- ' krí.í [.wiuM.. j
Ifeil FRAMSÓKNARMENN Ífeil
IIIR AKUREYRI
Bæjarmálafundur
verður haldinn að Hafnarstræti 90, mánudaginn 2. október
kl. 20.30.
Þeir sem sitja í nefndum fyrir Framsóknarflokkinn hjá
Akureyrarbæ eru hvattir til að mæta og einnig vara-
menn.