Dagur - 06.10.1989, Síða 6
6 - DAGUR - Föstudagur 6. október 1989
Aðalfundur
Iðnþróunarfélags Þingeyinga
verður haldinn í Hlíðskjálf, Hótel Húsavík, laug-
ardaginn 14. okt. kl. 14.
Á dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Kynning á atvinnuþróunarverkefni fyrir Húsavík.
Allt áhugafólk boðið velkomið.
Iðnþróunarfélag Þingeyinga.
Yiðskiptavinir
athugið!
Sölustarfsemi, birgðahald og vörudreifing
Lindu hf. og Tómasar Steingrímssonar og co.
hefur nú verið sameinað að Hvannavöllum 14
(Linduhúsinu).
Símanúmerin eru hin sömu og áður:
22880, 23660, 23280 og 23999.
Laugardagur kl.13:55
40. LEIKVIKA- 7. OF :t. 1989 11! m m
Leikur 1 Blackburn. - Middlesbro
Leikur 2 Bradford - Brighton
Leikur 3 Hull - Swindon
Leikur 4 Ipswich - Newcastle
Leikur 5 Oldham - Barnsley
Leikur 6 Oxford - Portsmouth
Leikur 7 Plvmouth - Stoke
Leikur 8 Port Vale - Leicester
Leikur 9 Sunderland - Bournemouth
Leikur 10 Watford - W.B.A.
Leikur 11 West Ham - Leeds
Leikur 12 Wolves - Sheff. Utd.
Símsvari hjá getraunum er 91-84590 og -84464.
LUKKULÍNAN s. 991002
Ath. Tvöfaldur Pottur
Tvímenningur
Stórmót Bridgefélags Akureyrar, minningar-
mót, verður haldið helgina 7. og 8. október
og hefst kl. 13.00 í Félagsborg.
Öllum bridgespilurum
er heimil þátttaka.
★ Vegleg verðlaun.
Uppl. og þátttökutilkynningar í símum 24222 Hörður
og 96-24624 Ormar.
Einnig er hægt að skrá sig á mótsstað.
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna 1100 ár
VÁTRYGGINGAFÉLAC
siováHWai mfnnar w ISLANDSHF
Ferðaskrifstofa
Akureyrar h/f
RAÐHUSTORGI 3 SÍMI 96-25000
slippstödinH
Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra, í viðt
Næsta ár verður ár
þrota á höfuðborgars
Ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar, með
og án Borgaraflokks, hefur nú setið við völd í
rúmt ár. í upphafi stóðu fjórir flokkar að stjórn-
inni en fimmta hjólinu var skotið undir vagn-
inn fyrir nokkrum vikum. Við stýrið er Stein-
grímur Hermannsson og hefur það erfiða hlut-
verk að sætta ólík sjónarmið flokkanna. Dagur
hitti forsætisráðherra að máli í Stjórnarráðinu
á dögunum og ræddi við hann um þjóðmálin.
Svokölluð landsbyggðarmál voru ofarlega á
baugi. Byggðastefnuna bar fyrst á góma og var
forsætisráðaherra inntur eftir því hvort ekki sé
tími til kominn að stjórnmálamenn viðurkenni
að byggðastefnan hafi mistekist og stokka
þyrfti spilin upp á nýtt.
„Ég held mig oft við þá skilgrein-
ingu að í byggðastefnu felist að
halda jafnvægi í byggð landsins.
Hins vegar geta menn spurt sig
hvert jafnvægið sé á hverjum
tíma. Ég segi að það verði að
meta með tilliti til breyttra
aðstæðna í t.d. fjölmiðlun og
samgöngum.
Ég er að skipa nefnd til þess
einmitt að endurskoða áherslurn-
ar í byggðamálum. Þetta hefur
verið rætt í ríkisstjórn og er nú
beðið eftir tilnefningu í nefndina.
Henni er ætlað að svara þeirri
spurningu hvert sé æskilegt og
rétt jafnvægi í byggð landsins
miðað við núverandi aðstæður.“
Guðrún Agnarsdóttir, þing-
maður Kvennalista, setti fram á
fundi á Siglufirði að því er mörg-
um fannst orð í tíma töluð. Hún
sagði einfaldlega að stjórnmála-
menn yrðu að viðurkenna að
landinu væri ekki hægt að halda
öllu í byggð, slíkt væri m.a. of
dýrt. Nær væri að styðja betur við
þau svæði landsins sem hefðu alla
burði til að eflast og dafna. Um
þessi orð Guðrúnar sagði Stein-
grímur: „Þetta á hljómgrunn
sumstaðar og sumstaðar ekki. Ég
hef nýverið fundað með Stefáni
Valgeirssyni og hans mönnum og
þeir mega ekki heyra þetta nefnt.
Ég er hins vegar á þeirri skoðun
að í endurmati á jafnvægi í byggð
landsins hljóti þetta mál að koma
upp. Það er hins vegar mjög snú-
ið að taka á þessu og málið þarf
ítarlegrar skoðunar við.“
Presthólahreppur í eyði?
„Menn geta spurt sig hvort Prest-
hólahreppur eigi að fara í eyði.
Þar eru sagðir hvað mestir mögu-
leikar í fiskeldi hér á landi.
Byggðastofnun er búin að lána
173 milljónir króna þar í fiskeldi.
Töluvert hefur einnig verið sett í
að styðja við sjávarútveginn en
rækjan og útgerðin almennt hefur
brugðist og þá hefur hið dýra
fjármagn sogað til sín allt laust
fjármagn í byggðarlaginu.
Byggðastofnun á engan kost í
þessari stöðu. Hún getur ekki
gefið þessa peninga því hún verð-
ur að standa undir eigin lánum.
Ég fól Byggðastofnun að taka
málefni Presthólahrepps til sér-
stakrar meðferðar og það hefur
verið gert skipulega. Nýlega fékk
ég í hendur greinargerð frá stofn-
unni um málið og verður það
áfram skoðað.
Þetta er vitaskuld stórt mál og
tekur til margra þátta. Til dæmis
er hagræðing í slátrun á svæðinu
liður í þessu og mér hefur þótt
skorta á samstöðu sveitarfélag-
anna um það mál.“
Flutningstregða
ríkisstofnana
í stjórnarsáttmálanum segir m.a
að gerðar verði ráðstafanir til
aukinnar valddreifingar, m.a.
með því að auðvelda flutning
stofnana og svæðisbundinna
verkefna frá miðstjórn ríkisvalds-
ins út í héruð. Mörgum lands-
byggðarmanninum finnst þetta
ganga hægt í meira lagi. Forsætis-
ráðherra viðurkennir að lítið hafi
gerst til þessa. „Eina dæmið er
flutningur aðalstöðva Skógræktar
ríkisins austur á Hérað. Það verð-
ur að segjast eins og er að tilraun-
ir sem gerðar hafa verið til að
flytja höfuðstöðvar stofnana út á
land hafa gengið illa. Ég nefni
Byggðastofnun, sem ýmsir vildu
flytja til Akureyrar og RALA,
sem rætt var um að flytja að
Hvanneyri. í báðum þessum til-
fellum strandaði á því að starfs-
fólk vildi ekki flytja sig um set og
svo hitt að mönnum þótti stofn-
kostnaður við flutning stofnan-
anna of mikill. Þá er því ekki að
neita að í mörgum tilfellum hafa
komið andmæli frá öðrum
landshlutum við að stofnanirnar
flyttust frá höfuðborginni. Ég
taldi lengi vel og sé reyndar ekk-
ert því til fyrirstöðu að Rafmagns-
veitur ríkisins hafi höfuðstöðvar
á Akureyri. Ég man eftir því að
þegar þetta mál bar á góma fékk
ég hörð andmæli frá Vestfjörð-
um. Þeir spurðu hvort einhver
rök væru fyrir því að flækjast um
allt land til að sækja stofnanir
heim. Tregðan við flutning stofn-
ana út á land er því víða en engu
að síður er ætlunin að skoða slíka
flutninga á ný.“
Vara við stóriðju sem
einu lausninni
„Ég hallast mjög að því og tel að
eitt af svörum við að skapa dreif-
býlisverslunni betri afkomu sé að
efla Akureyri sem verslunar-
kjarna,“ sagði Steingrímur, þeg-
ar hann var inntur álits á nauðsyn
þess að efla Akureyri og Eyja-
fjarðarsvæðið sem mótvægi við
höfuðborgarsvæðið. „Nauðsyn-
legt er að þar séu á boðstólum
vörur samkeppnishæfar í verði
við höfuðborgarsvæðið,“ bætti
hann við.
„Til þess að efla Akureyri sem
„Án orkufreks iðnaðar er Blöndu
un mistök“
„Sé fyrir fjölgun gjaldþrota á h
borgarsvaeðinu“
„Kvótakerfið í sjávarútvegi þarf e
skoðunar við“