Dagur - 06.10.1989, Qupperneq 12
Næg atvinna er hjá bygginga-
mönnum á Akureyri um þessar
mundir, og hefur stööugrar
spennu gætt undanfarna mán-
uði. Ennþá er tíðarfar gott til
útivinnu, en hversu lengi það
varir veit enginn. Innan raða
byggingamanna heyrist þeirri
skoðun fleygt að ástandið
verði líkast til með erfiðara
móti eftir áramót, því sam-
dráttur í opinberum fram-
kvæmdum hafi þegar verið
boðaður, en hlutfallslega lítið
hefur verið byggt á vegum
einakaaðila hin síðari ár.
Guðmundur Ómar Guðmunds-
son, formaður Trésmiðafélags
Akureyrar, segir að mikið sé
undir því komið að tíðarfar hald-
ist gott fyrrihluta vetrar. Ef
verktakar ná að steypa nægilega
mikið fyrir áramót verði vinna
fyrir trésmiði fyrstu mánuði
ársins, í innréttingum, þökum
o.s.frv. „Ég get ekki sagt að ég sé
svartsýnn með veturinn. Menn
eiga nóg fram að áramótum en
hvað þá tekur við veit maður
ekki. En ég hef ekki heyrt um
Steingrímur Hermannsson,
forsætisráðherra, hefur skipað
nefnd til að endurskoða áhersl-
ur stjórnvalda í byggðamálum.
Þetta hefur verið kynnt í ríkis-
stjórn en ekki hefur verið
gengið frá tilnefningum í
nefndina.
Samningafundi í Krossanesdeil-
unni var frestað laust eftir
hádegi í gær. Fulltrúar VSÍ
og Krossanesverksmiöjunnar
annars vegar og VMSÍ og Ein-
ingar hins vegar höfðu þá
ræðst við frá því síðdegis á
þriðjudag og fram á nótt og frá
því í gærmorgun og fram yfir
hádegi. Lítið þokaðist í sam-
komulagsátt.
„Það ber enn töluvert á milli
og málið er á viðkvæmu stigi,“
sagði Sævar Frímannsson for-
maður Einingar í gær. Hann
sagði að Eining hefði fallist á að
fresta boðuðu vakta- og yfir-
vinnubanni sem taka átti gildi á
laugardag en í staðinn féllust
forráðamenn Krossanesverk-
smiðjunnar á að fella niður vakta-
vinnu.
neinar unpsagnir," sagði Guð-
mundur Ómar.
Sigurður Jónsson hjá Meistara-
félagi byggingamanna segist vera
svartsýnn á atvinnuástandið
næsta vetur, einkum eftir ára-
mótin. Greiðslustaða margra
þeirra sem eru að láta byggja fyr-
ir sig sé slæm, og valdi það
áhyggjum með hvernig málin
komi til með að þróast. Verktak-
ar þurfi oft á tíðum að kosta fjár-
mögnun framkvæmda sjálfir
lengi vel, en fyrirtækin ekki náð
að setja vaxtabyrðina inn í verk-
kostnað. Vaxta- og fjármagns-
kostnaður hleðst því upp, og get-
ur slíkt sett fyrirtækjum þröngar
skorður.
„Fjármagnið er orðið mjög
dýrt. Undanfarin ár hafa fyrir-
tæki stundum tekið lán til að
hefja framkvæmdir í von um að
geta selt íbúðirnar fljótlega, en
hafa síðan ekki getað komið
vaxtakostnaðinum yfir í verðið.
Það segir sig að eftir eitt til tvö ár
getur verið um háar upphæðir að
ræða. Sum fyrirtækin eiga líka
tugi milljóna króna útistandandi
hjá hinu opinbera og öðrum aðil-
um,“ sagði Sigurður. EHB
Frá þessu greinir Steingrímur í
viðtali við Dag sem birtist á mið-
opnu í dag. Forsætisráðherra seg-
ir að nefndinni sé ætlað að svara
þeirri spurningu hvert sé æskilegt
og rétt jafnvægi í byggð landsins.
„Eg held mig oft við þá skilgrein-
ingu að í byggðastefnu felist að
Ákveðið var að samningsaðilar
hittust aftur á Akureyri nk.
þriðjudag og héldu viðræðum
áfram. VG
Minkaskyttur fara nú um lög-
sagnarumdæmi Dalvíkur og
leita uppi alla þá minka sem
kunna að leynast í gjótum í
bæjarlandinu.
Rafn Arnbjörnsson, kunn
veiðikló á hreindýr, gæs og yfir-
leitt allt kvikt, fékk það verkefni
„Okkur flnnst orðið tímabært
að sveitastjórnir ræði þessi
mál. Ég veit ekki hvort þetta
getur leitt til sameiningar sveit-
arfélaganna. Persónulega er
halda jafnvægi í byggð landsins.
Hins vegar geta menn spurt sig
hvert jafnvægið sé á hverjum
tíma. Ég segi að það verði að
meta með tilliti til breyttra
aðstæðna í t.d. fjölmiðlun og
samgöngum.“
Víða er komið við í viðtalinu
og segir Steingrímur m.a. að
menn megi ekki blindast af stór-
iðju sem eina raunhæfa valkost-
inum í atvinnuuppbyggingu á
Eyjafjarðarsvæðinu. Hins vegar
segir hann að án orkufreks iðnað-
ar hafi bygging Blönduvirkjunar
verið mistök.
Steingrími er tíðrætt um flutn-
ing ríkisstofnana út á land og seg-
ir hann að mikillar tregðu gæti
víða með að flytja höfuðstöðvar
þeirra út á land. Hann nefnir
RARIK í þvf sambandi og telur
ekkert vera því til fyrirstöðu að
höfuðstöðvar þeirrar stofnunar
verði á Akureyri. óþh
að leita að minkunum og nýtur
hann aðstoðar Vilhjálms Jónas-
sonar, minkabana á Sílalæk í
Aðaldal, og hunda hans.
Ætlunin var að þeir félagarnir
hæfu störf í gærkvöld og búist er
við að eltingarleiknum verði fram
haldið í dag. óþh
ég á því að heppilegra sé að
vinna þetta út frá svokölluðum
byggðasamlögum eins og við
höfum raunar gert hér út með
firði,“ segir Kristján Þór
Júlíusson, bæjarstjóri á
Dalvík, en á samráðsfundum
forsvarsmanna Dalvíkur, ÓI-
afsfjarðar, Hríseyjarhrepps,
Svarfaðardalshrepps og Ar-
skógshrepps 15. og 29. sept-
ember var í Ijósi stóraukinnar
samvinnu þessara sveitarfélaga
m.a. rætt hvort raunhæft væri
að stefna að sameiningu þeirra
í framtíðinni í einni eða ann-
arri mynd.
Á undanförnum árum hafa
umrædd sveitarfélög aukið sam-
starf sín í milli og bendir allt til
að það samstarf muni aukast
verulega á næstu árum. í ljósi
þess hafa forsvarsmenn sveitar-
félaganna varpað þessu máli til
viðkomandi sveitarstjórna til
Fjárhagsvandi Presthóla-
hrepps var ræddur í gær á
fundi nefndar sem félagsmála-
ráðherra hefur skipað til þess
að kanna fjárhagsstöðu verst
stöddu sveitarfélaga í landinu.
Ekki voru gerðar neinar tillög-
ur um leiðir til að koma sveita'r-
félaginu til hjálpar en búist ei;
við að þær liggi fyrir í næstu
viku.
Húnbogi Þorsteinsson, for-
maður nefndarinnar, sagði í sam-
tali við Dag í gær að vandi Prest-
hólahrepps væri auðsjáanlega
mikill, burðarásar í atvinnulífinu
væru mjög veikir og það kæmi
illa við lítið sveitarfélag. „Menn
eru að reyna að kortleggja þenn-
an vanda og þá er málið á borði
þess að vekja umræðu um það.
Eins og fram hefur komið hafa
bæjaryfirvöld í Ólafsfirði og á
Dalvík rætt um sameiginlega nýt-
ingu hafnarmannvirkja staðanna
og þá hafa Ólafsfirðingar og Dal-
víkingar auk Svarfdælinga og
Árskógsstrendinga sameinast um
sorpbrennslu norðan Dalvíkur.
Þá hefur komið til tals að Hrísey-
ingar flytji sitt sorp til brennslu
þar.
Menn eru sammála um að jarð-
göng í gegnum Ólafsfjarðarmúla
ýti nú verulega á þessa umræðu
og þá hefur breytt verkaskipting
ríkis og sveitarfélaga um áramót
sitt að segja.
Nefna má samvinnu Dalvíkur
og sveitanna í kring varðandi
Dalbæ, heimili aldraðra, Heilsu-
gæslustöð, Almannavarnir,
Slökkvilið, Tónlistarskóla,
Grunnskóla, Heimavist, Héraðs-
skjalasafn og Byggingaeftirlit í
Svarfaðardal og á Dalvík. óþh
Byggðastofnunar," sagði Hún-
bogi.
Eins og fram kom í frétt Dags í
gær eru uppi efasemdir um að
ábyrgðir hreppsfélagsins vegna
skulda Sæbliks hf. séu nægilega
haldbærar. Húnbogi segir að fyrir
liggi beiðni um að félagsmála-
ráðuneytið geri athugun á gildi
ábyrgðanna og muni lögfræðing-
ar ráðuneytisins annast þá athug-
un.
„Það liggur fyrir beiðni Prest-
hólahrepps hér í ráðuneytinu um
stuðning úr Jöfnunarsjóði sveit-
arfélaga og sömuleiðis hefur ver-
ið leitað eftir fyrirgreiðslu úr
Lánasjóði sveitarfélaga. Að svo
stöddu er ekkert hægt að segja til
um hvaða leið verður farin í
þessu rnáli, “ sagði Húnbogi. óþh
Akureyri, föstudagur 6. október 1989
Píanó - hljómborð - blokkflautur - klassiskir
gítarar - taktmælar - píanóbekkir o.fl., á góðu
£
ð
AKU™
Sérpöntum ef óskað er.
Skipagötu 1 • Sími 96-25611.
Byggingaiðnaðurinn á Akureyri:
Ennþá næg atvinna
hjá húsasmiðum
- en óvissa með atvinnu eftir áramót
„Ég æfla að verða vörubílstjóri þegar ég verð stór.'
Mynd: KL
Sameining sveitarfélaga við utanverðan Eyjafjörð?:
„Viljum vekja umræðu um má]ið“
Forsætisráðherra:
Áherslur í byggdamálum endurskoðaðar
Samningafundi í Krossanesdeilunni frestað:
litið þokaðist
í samkomulagsátt
- vakta- og yfirvinnubanni frestað
Dalvík:
Rafii og Vilhjálmur
leita uppi minka
Presthólahreppur:
Fundað án niðurstöðu
í félagsmálaráðuneyti