Dagur - 10.10.1989, Síða 2
"2 -TD3ÍG13R -"Pflöfird^iir 10: október V989
Heildarupphæö vinninga
07.10 var 8.786.831.-
2 höföu 5 rétta og fær hvor
kr. 2.593.071
Bónusvinninginn fengu 5
og fær hver kr. 106.806.-
Fyrir 4 tölur réttar fær
hver kr. 7.253.- og fyrir 3
réttar tölur fær hver um
sig kr. 473.-
Sölustaðir loka 15 minútum
fyrir útdrátt í Sjónvarpinu.
Sími685111.
Upplýsingasímsvari 681511.
Lukkulína 99 1002
Hlífum
börnum
viö
tóbaksreyk!
LANDLÆKNIR
Útsteinn, stúdentagarður við Skarðshlíð á Akureyri,
vígður sl. laugardag:
„Er góður vitnisburður
um verktaka á Akureyri“
- segir formaður stjórnar Félagsstofnunar stúdenta
Stúdentagaröar viö Skarðshlíð
á Akureyri voru formlega
vígðir við hátíðlega athöfn sl.
laugardag. Meðal gesta við
vígsluna voru Svavar
Gestsson, menntamálaráð-
herra, Gerður G. Óskarsdótt-
ir, ráðunautur menntamála-
ráðherra í skólamálum,
Sigurður Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Húsnæðisstofn-
unar og Sigfús Jónsson, bæjar-
stjóri Akureyrar. Haraldur
Bessason, rektor Háskólans á
Akureyri, afhjúpaði skilti með
nafni garðsins og heitir hann
Utsteinn. Heiður af þessari
nafngift munu eiga þeir Har-
aldur Bessason og Gísli
Jónsson, fyrrv. menntaskóla-
kennari.
Pað voru fyrirtækin Möl og
sandur hf. og S.S. Byggir sf. sem
Svavar Gestsson, menntamálaráðherra, klippti á borða til staðfestingar þess
að Útsteinn væri formlega tekinn í notkun. Myndír: kl
byggðu Útstein, sem er 1534 fer-
metrar á þrem hæðum. Samning-
ur um bygginguna var undirritað-
ur í byrjun maí sl. og hófust
framkvæmdir þann 9. maí. Húsið
var fokhelt 4. ágúst og tilbúið til
notkunar 30. september sl.
„Framkvæmdatími er alls tæpir
fimm mánuðir og má mikið vera
ef ekki er um íslandsmet að
ræða,“ sagði Hólmsteinn Hólm-
steinsson, framkvæmdastjóri
Malar og sands hf. við þetta tæki-
færi. Hann sagði að verkið hefði
gengið eins og smurð vél og í það
heila hefðu 120-130 manns lagt
hönd á plóginn við bygginguna.
Fimm undirverktakar unnu við
bygginguna, Múrprýði sf. sá um
múrverk, pípulagnir voru í hönd-
um Karls og Þórðar sf., um raf-
lagnir sá Glói sf., Stefán og Björn
sf. önnuðust málningavinnu og
Garðtækni sf var lóðaverktaki.
í máli Sigurðar P. Sigmunds-
sonar, formanns stjórnar Félags-
stofnunar stúdenta, kom fram að
byggingin hafi gengið mjög vel og
ekki hafi staðið á fjármögnun.
Hann bar mikið lof á Húsnæðis-
stofnun og sagði að samskiptin
við þá stofnun hafi verið til fyrir-
myndar. Þá sagði hann að bygg-
ingin hljóti að vera góður vitnis-
burður um verktaka á Akureyri.
Kostnaður vegna byggingar
Útsteins er 80 milljónir króna og
fréttir 1
Haraldur Bcssason, rektor Háskól-
ans á Akureyri, dró teppið af nafn-
spjaldi hvar stóð Útsteinn.
er 85% byggingarkostnaðar lán
frá Húsnæðisstofnun. Pess sem
upp á vantar þarf Félagsstofnun
stúdenta að afla. Akureyrarbær
hefur þegar samþykkt að leggja
fram 5 milljónir króna til bygg-
ingarinnar.
Svavar Gestsson, menntamála-
ráðherra, ávarpaði gesti og sagði
m.a. að stúdentagarðurinn væri
hreint kraftaverk og mikilvægur
þáttur í uppbyggingu Háskólans
á Akureyrj sem hann og ríkis-
stjórnin vildi sjá að gæti eflst og
dafnað.
Sigfús Jónsson, bæjarstjóri,
sagði að vígsludagur Útsteins
yrði skráður á spjöld sögunnar
sem mikill gleðidagur. Hann
sagði stúdentagarðinn mikilvæg-
an í að efla Akureyri sem helsta
skólabæ á Norðurlandi.
Sigfús tilkynnti að bæjarstjórn
Akureyrar hefði ákveðið að fela
Ragnheiði Þórsdóttur myndvefn-
aðarkonu að gera verk sem fund-
inn yrði staður í Útsteini. óþh
Bændaskólinn á Hólum settur í 108. sinn:
56 nemendur stunda nám í vetur
Bændaskólinn á Hólum hóf
sitt 108. starfsár á sunnudaginn
var er skólinn var settur.
Skráðir nemendur eru 56 og
komust færri að en vildu. 31
nemandi er skráður á fiskeld-
isbraut og 25 á búfræðibraut.
Að sögn Jóns Bjarnasonar
skólastjóra Bændaskólans er
heimavistarrými skólans orðið of
lítið og nú þurfa 5 nemendur að
búa utan heimavistar. Tveir aka á
milli frá Sauðárkróki þar sem
þeir búa. „Það hefur ekki beint
verið unnið að því að ráða bót á
þessu en þó hefur verið sótt um
stækkun á heimavistinni, en mað-
ur veit aldrei hvernig það fer,“
sagði Jón.
Pó hefur verið unnið að upp-
byggingu heimavistar á þann hátt
að ýmis félagasamtök hafa byggt
svokallaðar Orlofsvistir í sam-
vinnu við skólann, sem þau nýta
svo sem orlofshús fyrir félags-
menn sína á sumrin.
Aðspurður um nýjungar sagði
Jón að tekin hefði verið upp sjálf-
stæð og nokkuð stór kennslu-
grein í umhverfisfræðum þar sem
kennd eru umhverfisfræði og
vistfræði og nemendur læra um
áhrif mannsins á umhverfið.
„Einnig batnar aðstaðan til
verklegrar kennslu í matfiskeldi
og hrossarækt og svo er aukin
áhersla lögð á kennslu í tölvu-
fræði, bókhaldi og rekstrargrein-
um, svona í takt við tímann,"
sagði Jón.
Starfandi kennarar við skólann
eru 6, en þeir stunda einnig önn-
ur störf s.s. rannsóknarstörf,
kennsluefnisgerð og fleira. Vel
hefur alltaf gengið að fá kennara
til starfa og reyndar allt annað
starfslið líka.
í vor verða 26 nemendur
brautskráðir frá skólanum og er
það aukning frá síðasta skólaári.
kj
Gunnar Ragnars endurkjörinn í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins:
„Flokkurmn styrktist viö landsfimdinn'
„Tvennt er mér minnisstæð-
ast af þessum landslundi,
annars vegar að Davíð Odds-
son skuli koma formlega inn í
forystuna og hins vegar mjög
Iíflegar umræður um sjávar-
ótvegsmál og stefnu flokksins
í þeim,“ sagði Gunnar
Ragnars, framkvæmdastjóri
Útgeröarfélags Akureyringa
hf, um nýafstaðinn landsfund
Sjálfstæðisflokksins. MiIIi 30
og 40 fulltrúar frá Akureyri
fóru á fundinn.
Gunnar Ragnars var endur-
kjörinn í miðstjórn Sjálfstæðis-
flokksins í þriðja sinn á lands-
fundinum. Landsfundur er
haldinn annað hvert ár, en þess
á milli fundar flokksráðið, sent
er auk þess kallað saman þegar
meiriháttar ákvarðanir eru
teknar, t.d. ríkisstjórnarþátt-
taka. Fulltrúar eru kosnir á
fundum kjördæmisráða, full-
trúaráða og almennra flokksfé-
laga urn land allt, og voru þeir
um ellefu hundruð talsins nú.
Gunnar var spurður um
stefnu flokksins í sjávarútvegs-
málum og sagði hann þá að
meginlínurnar væru ekki mikið
breyttar. „Ég tel að málið sé
þannig vaxið að það nái út fyrir
flokksbönd, þvf ljóst er að fisk-
urinn í sjónum er takmarkaður
og eftirspurn eftir honum er
miklu meiri en unnt er að svara.
Þetta hlýtur að leiða til misntun-
andi sjónarmiða og að rnenn
séu ekki á eitt sáttir um leiðir.
Sjónarmiðin skiptast jafnvel
eftir byggðarlögum. Hér er um
gríðarlega hagsmuni að ræða,
og inn í þetta blandast umræða
um byggðamál. Ég tel því að
niðurstaða landsfundarins í
þessum málum sé viðunandi,
þegar tiílit er tekið til þess
hversu breið fylking Sjálfstæðis-
flokkurinn er og hversu ólík
sjónarmið rúmast innan hans,“
sagði Gunnar.
- En ert þú persónulega sam-
mála þeirri skoðun að kvóta-
kerfið hafi gengiö sér til húðar?
„Ég held að mikið megi Iæra af
reynslunni af kvótakerfinu, en
ekki er raunhæft að kasta því
fyrir róða, a.m.k. ekki meðan
ekki liggur ljósar fyrir hvað eigi
að koma í staðinn. Menn verða
að sníða einhverja agnúa af
kerfinu, en við verðum að búa
við einhvers konar kvótakerfi
meðan annað og betra fyrir-
kontulag er ekki borðliggj-
andi.“
Gunnar segir að bjartsýni
hafi einkennt landsfundinn. Það
sjónarmið að flokkurinn væri að
splundrast út og suður vegna
ólíkra skoðana innan hans væri
ekki í samræmi við reynsluna,
því hún sýndi að mönnum tæk-
ist að komast að sameiginlegum
niðurstöðum. Aö sínu mati
hefði Sjálfstæðisflokkurinn því
stýrkst við landsfundinn. EHB