Dagur - 10.10.1989, Síða 3
Þriðjudagur 10. október 1989 - DAGUR - 3
Ráðstefna um konur í iðn- og tæknigreinum:
Tökunámskdð
Stýrikerflð MS-DOS
Kennd verður almenn notkun MS-DOS
stýrikerfisins og farið í helstu sldpanir þess.
Námskeiðið hefst 24. október
og er haldið á kvöldin.
Allar nánari upplýsingar eru veittar í síma
27899.
Töhníræðslan Akureyci h£
Glerárgötu 34, IV. hæð, sími 96-27899.
'
...kjörin leið til sparnaðar
er Kjörbók Landsbankans
„Söknuðum verkmenntakeimara
og yfirmanna skólanna“
- segir Valgerður Bjarnadóttir, verkefnisfreyja
„Ráðstefnan tókst í alla staði
með miklum ágætum. Á hana
mættu um 40 manns, alit ágæt-
is fólk og mjög áhugasamt.
Hins vegar verður að segja
eins og er að við söknuðum
þess sártað sjá ekki fleiri verk-
menntakennara,“ segir Val-
gerður Bjarnadóttir, verkefn-
isfreyja „Brjótum múrana“
um ráðstefnu um konur í iðn-
og tæknigreinum sem haldin
var á Akureyri um helgina.
„Þá vantaði líka námsráðgjafa
og ekki síst yfirmenn skólanna.
Það mætti aðeins einn skóla-
meistari á ráðstefnuna og stopp-
aði í hálftíma til að halda stutt
erindi. Það er mikil synd að þetta
fólk skyldi ekki koma en auðvit-
að má bara bæta úr því seinna
með annarri ráðstefnu sem tryggt
yrði að þetta fólk mætti á.“
Valgerður segir að umræðan
hafi verið mjög málefnaleg og
hana hafi einkennt að vandamál-
unum hafi ekki verið velt upp
heldur fundarmenn verið sam-
taka í að einbeita sér að lausnum
og því hvernig hægt væri að nýta
það jákvæða í þessum málum.
„í framhaldinu kemur út
skýrsla þar sem erindi af ráð-
stefnunni verða birt ásamt niður-
stöðum ráðstefnunnar. Loks mun
„Brjótum múrana“ gera tillögur
til ýmissa aðila um aðgerðir í
þessum málum. Þannig ætlum við
að nota þær umræður og þá vinnu
sem fram fór um helgina," segir
Valgerður. JOH
Betri, einfaldari og öruggari leið til ávöxtunar sparifjár er vand-
fundin. Háir grunnvextir og verðtryggingarákvæði tryggja góða
ávöxtun. Að auki koma afturvirkar vaxtahækkanir eftir 1 6 og 24
mánuði. Samt er innstæða
Kjörbókar alltaf laus.
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
Krabbameinsfélag
íslands:
Rætt um
nýjar flár-
öflunarleiðir
Formannaráðstefna Krabba-
meinsfélags íslands var haldin
á Akureyri sl. föstudag, en þar
komu saman fulltrúar allra
aðildarfélaga félagsins frá öll-
um landshlutum. „Það eru
timamót að fundurinn skuli
haldinn á Akureyri, en það er
kominn tími til að undirstrika
að Krabbameinsfélag íslands
er ekki bara í Reykjavík,“
sagði Almar Grímsson for-
maður félagsins í setningar-
ávarpi til gesta.
Almar lýsti ánægju sinni með
störf Krabbameinsfélags Akur-
eyrar og nágrennis og sagði það
mjög virkt félag sem ræki öflugt ■
starf, en ákveðið hefur verið að
starfsmaður félagsins sem hingað
til hefur verið í hálfu starfi verði
framvegis í fullu starfi í samstarfi
við Krabbameinsfélag íslands.
Á fundinum hélt Almar erindi
um þróun og skipulag krabba-
meinssamtakanna og Ólafur Har-
aldsson um fjáröflunarleiðir, en
hann hefur nýverið kynnt sér
fjáröflunarleiðir krabbameins-
samtaka í Bandaríkjunum.
Skýrði hann gestum frá ýmsum
leiðum sem þar eru viðhafðar og
heimfæra mætti upp á ísland.
Tók hann dæmi um kerfisbundna
sjálfboðavinnu, bein fjárframlög
og óvæntar uppákomur en undir
þeim lið komu fram mjög athygl-
isverðar hugmyndir.
Rætt var um væntanlegt „Þjóð-
arátak gegn krabbameini“ sem
síðast var framkvæmt 1986 og
stefnt er að á næsta ári. Ólafur
Þorsteinsson framkvæmdastjóri
félagsins sagði fé það er safnaðist
í „Þjóðarátaki“ 1986 væri upp-
urið og kæmi þar aðallega til
rekstrarkostnaður rannsóknar-
stofu í þágu baráttunnar gegn
krabbameini sem miklar vonir
eru bundnar við.
Lögð var áhersla á það á fund-
inum að framlag ríkisins til
Krabbameinsfélags íslands væri í
raun ekki styrkur heldur aðeins
greiðsla fyrir þjónustu sem félag-
ið sinnir fyrir ríkið, þ.e. krabba-
meinsleitina. Að öðru leyti nýtur
félagið engra fjárframlaga frá
ríkinu en rekur þó aðra mjög
öfluga starfsemi. Starfsmenn
félagsins eru nú um 70 í 55
stöðum. VG