Dagur - 10.10.1989, Side 16

Dagur - 10.10.1989, Side 16
Vikulega að sunnan. Vörumóttaka í Reykjavík til kl. 16:00 á mánudögum. Vörumóttaka á Akureyri til kl. 12:00 á fimmtudögum. Allar nánari upplýsingar hjá EIMSKIP Akureyri, sími 24131. EIMSKIP Dauf helgi hjá lögreglu á Króknum en: Fangageymslur Mar Frekar róleg helgi var hjá lög- reglunni á Blönduósi og Sauð- árkróki. í Miðgarði fór fram frekar fámennur dansleikur, um 180 manns munu hafa ver- ið þar. Dansleikurinn, sem var á Tjömes: Ilrútur inn í eilífðina Hrútur drapst og bíll skemmd- ist mikið í umferðaróhappi á Tjörnesi um helgina. Einnig var ökumaður tekinn á Húsvík, grunaður um ölvun við akstur aðfaranótt laugar- dags. Um kl. hálf átta á sunnudags- morgun var bifreið, á leið að norðan, stödd á móts við Ytri- Tungu á Tjörnesi er stór hrútur birtist skyndilega á veginum. Hrúturinn varð fyrir bílnum og varð að aflífa hann eftir ákeyrsluna. Bíllinn valt út af veg- inum, skemmdist mikið og er tal- inn ónýtur. Ökumaður bílsins fann til eymsla eftir óhappið og fór í læknisskoðun, en mun ekki hafa hlotið alvarleg meiðsli. IM föstudagskvöldið, fór í alla staði vel fram að sögn lögreglu. Samt sem áður voru fangageymslur lögreglunnar á Sauðárkróki fullar en gestir þar sátu flestir inni vegna einhverra smá afbrota. Pá var nokkur ölvun í bænum sjálf- um en ekki teljandi vandræði vegna hennar. Þess má að lokum geta að ekki var ekið á hross um helgina, en það þykir nokkrum tíðindum sæta. kj Dalvík: BaUg[estur í steininn Einn gestur á réttardansleik á Þinghúsinu Grund í Svarfað- ardal fékk að gista geymslu lögreglunnar á Dalvík aðfara- nótt sunnudags. Dansleikur þessi var haldinn eftir stóðrétt- ir á Tungurétt á laugardaginn. Að sögn lögreglunnar á Dalvík var einnig haldinn fjörmikill dansleikur á Dalvík um helgina en ekki þurfti að hafa nein afskipti af gestum á þeim dans- leik. Umferð gekk hið besta fyrir sig á Dalvík og í nágrenni um helg- ina. JÓH ingarsamtökum Norðlendinga; Bragi V. Bergmann, ritstjóri Dags og Sverrir Páll Erlendsson, kennari við Menntaskólann á Akureyri, sem aðilar keppninnar komu sér saman um sem odda- mann og formann dómnefndar. Dómnefndin mun ljúka störfum eigi síðar en 9. desember nk. Úrslit í samkeppni þessari verða tilkynnt í hófi sem haldið verður í Gamla Lundi við Eiðs- völl á Akureyri, sunnudaginn 10. desember. Verðlaunasagan mun síðan birtast í jólablaði Dags en fréttabréf MENOR áskilur sér einnig rétt til birtingar, ef tök verða á og ástæða þykir til. Einig er áskilinn hliðstæður réttur til birtingar á þeirri sögu, sem viður- kenningu hlýtur. Nánara fyrirkomulag keppn- innar verður kynnt í Degi og fréttabréfi MENOR einhvern næstu daga. BB. Áskell Þórisson, blaðafulltrúi KEA og Stefán Baldursson, forstöðumað- ur SVA, virða fyrir sér fyrsta auglýsingaborðann á strætisvagni á Akur- eyri. „íslenskir dagar“ á strætó Um helgina voru settir aug- lýsingaborðar á strætisvagna á Akureyri. Þetta er í fyrsta skipti sem SVA heimilar fyrirtækjum að auglýsa á vögnum en KEA hefur gert samning við SVA um auglýs- ingar út þetta ár og allt það næsta. Eins og sjá má á meðfylgj- andi mynd eru fyrstu borðarnir helgaðir „íslenskum dögum hjá KEA“, sem hefjast nk. fimmtu- dag og standa út næstu viku. Þegar umræddum dögum er lokið, verða settir nýir borðar á strætisvagnana og skipt reglu- lega um auglýsingar út samn- ingstímabilið. vöruverð Saltað hrossakjöt........ 262 kr. kg Lambahangiframpartur..... 824 kr. kg Saltað folaldakjöt....... 292 kr. kg Reykt folaldakjöt........ 292 kr. kg Saltkjöt................. 448 kr. kg Londonlamb............... 743 kr. kg 1 Vínarpylsur............. 535 kr. kg Coca Cola 2 lítrar...........99 kr. Coca Cola Vh lítri...........91 kr. Verslunin ÞDRPIB Móasíöu 1 • Sími 27755. OpiÖ alla daga vikunnar frá kl. 8-23.30. Heimsendingar- þjónusta. Menningarsamtök Norðlendinga og Dagur: A AKUREYRI ALLA FIMMTUDAGA! Akureyri, þriðjudagur 10. október 1989 Dæmi um Lítil Kjarnafæði pizza.........319 kr. Stór Kjarnafæði pizza.......... 399 kr. Borgarnes pizzur ..............199 kr. Nýjar kartöflur 2 kg...........158 kr. Sykur 2 kg.....................138 kr. Egg........................ 356 kr. kg Harðfiskur............... 1.725 kr. kg Hrossabjúgu................ 252 kr. kg Léttreyktur lambahamborgarhryggur ... 575 kr. kg Menningarsamtök Norðlend- inga og dagblaðið Dagur hafa ákveðið að efna til samkeppni um frumsamda smásögu. Skilafrestur handrita er til 24. nóvember nk. Til nokkurs er að vinna því veitt verða 60 þús- und króna verðlaun fyrir þá sögu sem dómnefnd metur besta en auk þess verður veitt 20 þúsund króna viðurkenning fyrir þá sögu sem næstbest þykir. Sögur í keppninni mega að hámarki vera 6-7 síður í A-4 stærð, vélritaðar í aðra hverja línu. Skilafrestur handrita er sem fyrr segir til 24. nóvember nk., sem er síðasti póstlagningardag- ur. Senda á sögurnar til formanns Menningarsamtaka Norðlend- inga, Hauks Ágústssonar, Gils- bakkavegi 13, 600 Akureyri. Sögurnar skal senda undir dul- nefni, en með skal fylgja rétt nafn, heimilisfang og símanúmer í lokuðu umslagi, auðkenndu dulnefninu. Þriggja manna dómnefnd mun fjalla um sögurnar. í henni eiga sæti þeir Hjalti Pálsson, bóka- vörður á Sauðárkróki, frá Menn- Síldarsöltun hófst fyrir austan í gær: „Alltaf sama rómantíkin“ „Já eigum við ekki að segja að það sé alltaf sama rómantíkin í kringum þetta. Það lifnar að minnsta kosti vel yfír athafna- svæðinu hér þegar söltunin byrjar,“ sagði Hallgrímur Bergsson, framkvæmdastjóri Pólarsfldar á Fáskrúðsfírði í gær en þar hófst sfldarsöltun síðdegis í gær. Pað var Guðmundur Kristinn SU 404, sem er í eigu Pólarsíldar, sem kom með fyrsta síldarfarm- inn til Fáskrúðsfjarðar. Ekki hafði heyrst af veiðum annarra báta en síldarbátarnir eru nú að einn af öðrum að fara á miðin. „Petta er ágætis síld. Hún er jöfn að stærð en það vantar stóru síld- ina,“ sagði Hallgrímur. Hann kvaðst búast við að um 70 manns ynni í ár við síldarsöitun og kem- ur hluti starfsmanna að. Til dæm- is fara þrír Akureyringar austur og leggja sitt af mörkum við söltunina. óþh Eftia tíl samkeppni um frumsamda smásögu - 80 þúsund króna verðlaun í boði 1

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.