Dagur - 13.10.1989, Blaðsíða 3
Föstudagur 13. október 1989 - DAGUR - 3
fréttir
F
Bæjarstjórn SigluQarðar samþykkir aðhaldsaðgerðir:
Ilníínum brugðiö á loft á yfir-
standandi ári og á því næsta
„Það er matsatriði hvort þetta
séu harkalegar aðgerðir. Að
minnsta kosti má orða það svo
að þetta séu nauðsynlegar
aðgerðir,“ segir Sigurður
Hlöðversson, formaður bæjar-
ráðs Siglufjarðar, um sam-
þykktir bæjarráðs og bæjar-
stjórnar Siglufjarðar um niður-
skurð og aðhald í rekstri.
A undanförnum vikum og
mánuðum hafa bæjaryfirvöld á
- „nauðsynlegar aðgerðir,“ segir formaður bæjarráðs
Siglufirði fjallað um leiðir til að
draga úr útgjöldum bæjarsjóðs
og ná frarn sparnaði í rekstri
bæjarins. Greiðslustaða bæjar-
sjóðs hefur verið erfið og því
ljóst að grípa yrði til aðgerða. Nú
hefur bæjarstjórn komist að
niðurstöðu um málið og má segja
að aðgerðir skiptist í þrjá megin
þætti. I fyrsta lagi er um að ræða
niðurskurð framkvæmdaliða fjár-
hagsáætlunar 1989, í öðru lagi
endurskoðun rekstrarliða fjár-
hagsáætlunar fyrir 1989 þegar 8
mánaða bókhaldsútskrift liggur
fyrir og í þriðja lagi breytingar á
rekstri bæjarins árið 1990.
Skorið hér og þar
Ef litið er fyrst til niðurskurðar á
fjárhagsáætlun þessa árs kemur í
Ijós að hnífnum er víða brugðið á
loft. Fyrst skal nefndur niður-
skurður í leikskóla upp á hálfa
aðra milljón króna. Hætt er við
að setja upp færanlegan „hljóð-
Um 4000 tirnnur af söltuðum
grásleppuhrogmun óseldar
Um þessar mundir eru a.m.k.
4000 tunnur af söltuðum grá-
sleppuhrognum óseldar í land-
inu. Þetta kemur fram í
nýjasta fréttabréfi Landssam-
bands smábátaeigenda og þar
kemur einnig fram að ástæða
er til að hafa af þessu áhyggj-
ur, þar sem lítil sem engin
hreyfing hefur verið á þessum
birgðum undanfarnar vikur,
Myndbandaleiga
kvikmyndahúsanna:
Opnar á ný
á Akureyri
Á morgun mun Myndbanda-
leiga kvikmyndahúsanna opna
að nýju á Akureyri en rekstur
hennar hefur legið niðri um
þriggja mánaða skeið. Leigan
verður áfram til húsa í Gler-
árgötu 26 en nýr aðili hefur
tekið við rekstri hennar.
Blómaskeið myndbandaleiga á
Akureyri virðist nú hafa gengið
yfir því leigurnar verða á morgun
orðnar fimm að nýju en þegar
best lét voru leigurnar alls 14 tals-
ins á Akureyri. Myndbandaleiga
kvikmyndahúsanna á Akureyri
verður áfram rekin sem útibú frá
samnefndri leigu í Reykjavík.
JÓH
þó eitthvað hafi verið um fyrir-
spurnir til einstakra útflytj-
enda.
Stjórn LS fjallaði um þetta mál
á síðasta stjórnarfundi og þar
kom m.a. fram, að ef til verð-
lækkunar komi, sé rétt að bjóða
þeim aðilum sem keypt hafa
hrogn á 1.100 DM, forkaupsrétt.
Þetta telur stjórn LS nauðsynlegt
svo hægt sé að halda áfram sam-
starfi við þá aðila á næsta ári.
Þá telur stjórnin að ef upp
kemur að hægt verði að losna við
umtalsvert magn í einum pakka,
(1000-2000 tunnur) á eitthvað
lægra verði, þá eigi að skoða það
mál með jákvæðu hugarfari ekki
síst að reyna þá' að ná um leið
fyrirframsamningi fyrir næsta ár.
Örn Pálsson framkvæmdastjóri
LS leggur áherslu á að sala þess-
ara birgða er mjög vandasöm og
málið ekki svo einfalt að LS losi
sig við umframveiði þessa árs til
Péturs og Páls á stórlækkuðu
verði og menn hefji svo vertíð á
næsta ári fullir bjartsýni, eins og
ekkert hafi gerst á markaðnum.
Örn telur það ennfremur mikinn
ábyrðgarhlut að selja verðlækk-
unarfyrirtækjum hrogn, aðilum
sem reynt hafa í áraraðir að kom-
ast inn á hinn þrönga markað
með því að selja framleiðslu sína
á stórlækkuðu verði. Sem betur
fer hefur þessum fyrirtækjum
ekki tekist að ná í þær birgðir
íslenskir dagar hjá KEA:
Mikið um að vera
í ölliim verslimum
íslenskir dagar hófust í gær í öll-
um verslunum KEA. í dag held-
ur dagskráin áfram og stemmn-
ingin verður með léttara móti.
Kl. 16.00 í dag sér Módel ’79
um tískusýningu í Vöruhúsi
KEA og að henni lokinni verða
tónlistaratriði á dagskrá. Fram-
leiðslufyrirtæki KEA munu
kynna vörur sínar og bjóða við-
skiptavinum að smakka á ýmsu
góðgæti.
í Byggingavörudeild hefst
skemmtidagskrá kl. 17.00 og þar
verður boðið upp á kaffi og með-
læti. Raunar verður heitt á könn-
unni allan daginn í Bygginga-
vörudeild og margir sýnenda
verða þar til staðar frá morgni til
kvölds. í Sunnuhlíð munu Sam-
landsstrákarnir spila kl. 17.30. í
Véladeild verða sýnd tæki og
vélar.
í Svarfdælabúð á Dalvík hefst
dagskráin kl. 17.30 með inn-
kaupakeppni milli þeirra Kristjáns
Ólafssonar, fulltrúa og Kristjáns
Júlíussonar, bæjarstjóra. Um kl.
18.00 verður Módel ’79 síðan
með sprellfjöruga tískusýningu.
í verslunum KEA í Ólafsfirði
og Siglufirði verða tónlistaratriði
á dagskrá kl. 16.00. Vörukynn-
ingar hefjast í öllum verslunum
KEA kl. 15.00. í Hrísalundi
verður sérstakt „sprengitilboð“
frá Sana kl. 16.30. Viðskiptavin-
um verður þá boðið að kaupa
takmarkað magn af drykkjar-
föngum á stórlækkuðu verði.
sem til þarf svo að aðstaða skap-
ist fyrir þau til að komast inn á
markaðinn.
Þá er einnig á það minnt að
það verð sem birgðir þessa árs
verða seldar á, verður að öllum
líkindum það verð sem lagt verð-
ur til grundvallar á næsta ári. Þá
telur Örn ekki rétt að hefja næstu
vertíð fyrr en búið er að ljúka
þeirri grásleppuvertíð sem nú
stendur enn yfir. -KK
vegg“ í Tónskóla fyrir 500
þúsund. Framkvæmdum við gang-
stéttir upp á hálfa þriðju mjíljón
er slegið á frest og sömuleiðis
nýbyggingu við grunnskóla upp á
hálfa milljón. Þá er hætt við einn-
ar milljón króna fjárveitingu til
Flata, nýs byggingarsvæðis, og
600 þúsund króna gatnagerð á
þessu svæði. Samtals nemur því
niðurskurður á framkvæmdum á
yfirstandandi ári 6,4 milljónum
króna.
Bæjarstjórn hefur samþykkt að
herða ólina á næsta ári og ná
þannig fram sparnaði. Skorið
verður niður í rekstri leikskólans,
íþróttahússins og Sundhallarinn-
ar. Meðal annars verður opnun-
artími styttur og leitast við að ná
fram sparnaði með samnýtingu
þessara íþróttamannvirkja þegar
nýja íþróttahúsið kemst í gagnið.
Þá er ákveðið að skera niður
styrk til íþróttabandalagsins og
rekstur æskulýðsheimilis verður
stokkaður upp til að ná fram
sparnaði. Niðurskurðarhnífurinn
kemur einnig við sögu í áhalda-
húsi því gert er ráð fyrir að bær-
inn hætti ákveðnum þjónustu-
störfum sem hann hefur sinnt
og gert reikning fyrir. Einnig hef-
ur verið ákveðið að fækka störf-
um á Bókasafni og stytta opnun-
artíma þess.
Stefnt að sölu eigna
Auk þessa segir formaður bæjar-
ráðs að kannaður verði mögu-
leiki á sölu húseigna bæjarins.
„Þetta eru húseignir sem bærinn
hefur keypt og var ætlað að nýta
til ákveðinna hluta sem fyrirsjá-
anlega verður ekkert af. Þá kem-
ur til greina aö selja leiguíbúðir í
eigu bæjarins."
Varðandi tekjuöflun bæjarins
segir Sigurður að stefnt skuli að
því að ná samstöðu um hækkun á
aðstöðugjaldi á atvinnurekstur
og við ákvörðun um það verði
tekið mið af álögðu aðstöðugjaldi
í nágrannasveitarfélögúm. „Með
breyttum tekjustofnalögum er
heimilt að hækka aðstööugjald
sveitarfélaga," segir Sigurður.
Hann segir eníjfremur að ætl-
unin sé að endurskoða þjónustu-
gjöld bæjarins og hraða endur-
mati fasteigna, sem þegar er
hafið. Einnig verði reynt að bæta
innheimtu bæjar- og þjónustu-
gjalda og orkureikninga og herða
innheimtuaðgerðir. Þá verði
aðhald á yfirvinnu og tækjaleigu
aukiö. óþh
Smásagnasamkeppni
Dags og MEHÖR
★ MenningarsamtöK horðlendinga og dagblaðið Dagur
hafa ákveðið að efna til samkeppni um bestu frum-
sömdu smásöguna.
★ Veittverða 60 þúsund króna v/erðlaun fyrir þá sögu sem
dómnefnd telur besta. Auk þess verður veitt 20 þúsund
króna viðurkenning fyrir þá sögu sem næstbest þykir.
★ Verðlaunasagan mun birtast í jólablaði Dags en frétta-
bréf MEMOR áskilur sér einnig rétt til birtingar. Einnig er
áskilinn hliðstæður réttur til birtingar á þeirri sögu, sem
viðurkenningu hlýtur.
★ 5ögur í keppninni mega að hámarki vera 6-7 síður í
A-4 stærð, vélritaðar í aðra hverja línu.
5ögurnar skal senda undir dulnefni, en með skal fylgja
rétt nafn, heimilisfang og símanúmer í lokuðu umslagi,
auðkenndu dulnefninu.
★ Skilafrestur handrita er til 24. nóvember nk.,
sem er síðasti póstlagningardagur.
Utanáskriftin er:
Menningarsamtök Morðlendinga
b/t Hauks Ágústssonar
Gilsbakkavegi 13, 600 Akureyri
Menningarsamtök Horðlendinga - Dagur