Dagur - 13.10.1989, Síða 4
4 - DAGUR - Föstudagur 13. október 1989
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 1000 Á MÁNUÐI
LAUSASÓLUVERÐ 90 KR.
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 660 KR.
RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI: EGILL H. BRAGASON
BLAÐAMENN:
ANDRÉS PÉTURSSON (íþróttir),
KARL JÓNSSON (Sauðárkróki vs. 95-35960),
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON,
STEFÁN SÆMUNUSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR,
LJÓSMYNDARI: KRISTJÁN LOGASON
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRlMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI:
HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
SÍMFAX: 96-27639
Gjaldþrot Híbýlis hf.
Þau stórtíðindi hafa gerst að eitt elsta og
stærsta byggingafyrirtækið á Akureyri, Híbýli
hf, er orðið gjaldþrota. Hér er um hörmulegan
atburð að ræða, byggingariðnaðurinn og
atvinnulífið á Akureyri hafa orðið fyrir þungu
áfalli.
Gjaldþrot Híbýlis vekur margar spurningar
um verktaka- og útboðsmarkaðinn á undanförn-
um árum. Þeir sem kynnt hafa sér þessi mál vita
að fyrirtækin í byggingariðnaði hafa oftar en
ekki boðið verk niður hvert fyrir öðru, og al-
gengt hefur verið að tilboð hafi hljóðað upp á 60
til 70 prósent af útreiknaðri kostnaðaráætlun.
Byggingaverktakar hafa iðulega farið með
skuldir á bakinu frá verkum sínum, og þegar
markaðurinn einkennist af sífelldum undirboð-
um geta þessar skuldir hæglega safnast saman,
ár frá ári, án þess að nokkuð sé hægt að gera til
bjargar.
Það er auðvelt að segja við menn að þeir geti
hætt sinni starfsemi áður en í óefni er komið. En
það er ekki auðvelt að leggja niður fyrirtæki sem
menn byggja á afkomu sína og fjölmargra
starfsmanna, fyrirtæki sem eigendurnir hafa oft
á tíðum lagt ævistarf sitt í að byggja upp. Og þá
er sú hugsun auðvitað til grundvallar að fram-
undan sé betri tíð, því gott fyrirtæki er byggt á
bjartsýni, ekki bölsýni.
Margir aðilar í atvinnurekstri hafa á undan-
förnum árum þakkað fyrir að geta rekið fyrirtæki
á núllinu, sem kallað er. Staðreyndin er þó sú að
fyrirtæki þurfa að skila arði til að geta þróast og
sinnt viðhaldi tækja og mannvirkja, svo ekki sé
talað um möguleika á að leggja í sjóð til mögru
áranna. Þetta er einföld hagfræði, en hún hefur
verið fótum troðin vegna samkeppni milli verk-
taka.
Gjaldþrot Híbýlis er um leið gjaldþrot þeirrar
stefnu að verktakar troði skóna hver niður af
öðrum með undirboðum sem eru jafnvel tugi
prósenta undir raunverulegu kostnaðarverði.
Til lengdar hefur slíkt ekkert annað í för með sér
en tap og atvinnumissi.
Undirverktakar og aðrir sem eiga inni hjá hinu
gjaldþrota fyrirtæki geta hæglega orðið fyrir til-
finnanlegu tjóni, en slíkt er áhætta sem fyrirtæki
taka í heimi harðnandi samkeppni. Undirverk-
takar hafa bent á að stærri fyrirtækin noti þá
gjarnan sem fjármögnunaraðila, og eina svarið
við því sé að bindast samtökum um að ekki
verði hafður annar háttur á en að hver verkþátt-
ur fyrir sig, t.d. raflagnir og loftræstikerfi, verði
boðinn út sérstaklega. Vonandi verða undir-
verktakar og aðrir fyrir sem minnstu tjóni af
völdum gjaldþrotsins, en eftir stendur sú stað-
reynd að hér er um mikið áfall fyrir atvinnulíf
bæjarins að ræða. EHB
Bridds:
Ólafur og Hörður unnu Bautamót B A.
Síðastliðinn þriðjudag lauk
Bautamóti Bridgefélags Akur-
eyrar, sem var tveggja kvölda
tvímenningskeppni með Mitc-
hell-fyrirkomulagi. Ólafur
Agústsson og Hörður Blöndal
sigruðu eftir jafna og tvísýna
keppni, hlutu 13 stigum meira
en parið í 2. sæti.
Röð efstu para varð annars
þessi:
Stig
1. Ólafur Ágústsson -
Hörður Blöndal: 531
2. Pétur Guðjónsson -
Anton Haraldsson: 518
3. Stefán Ragnarsson -
Hilmar Jakobsson: 496
4. Frímann Frímannsson -
Grettir Frímannsson: 484
5. Hörður Steinbergsson -
Örn Einarsson: 480
6. Jóhann Sigvaldason -
Skúli Jóhannesson: 469
7. Kristinn Kristinsson -
Sigfús Hreiðarsson: 453
8. Ásgeir Stefánsson -
Hermann Tómasson: 450
9. Ragnhildur Gunnarsdóttir -
Alfreð Jónsson: 445
10. Ármann Helgason -
Sveinbjörn Sigurðsson: 444
Eigendur Bautans/Smiðjunnar
á Akureyri gáfu öll verðlaun
vegna mótsins, m.a. veglegan
farandbikar.
Keppnisstjóri var Albert Sig-
urðsson en tölvuútreikning ann-
aðist Margrét Pórðardóttir.
Næsta þriðjudag verður spilað-
ur landstvímenningur, eitt kvöld,
en þriðjudaginn 24. október hefst
Akureyrarmótið í sveitakeppni.
Bridgefélag Akureyrar hvetur
alla spilara á félagssvæðinu til að
fjölmenna á spilakvöld félagsins í
vetur.
Félagsmiðstöð æskulýðsráðs í Lundarskóla:
Kynnmgamt um tómstunda-
námskeið vetrarins komið út
© Námskeið
í fclagsmiðstöd Lundarskóla vetiuirm 1989*90 /EskwJýðsróð.
. ;ó;
Æskulýðsráð Akureyrar hefur
sent frá sér kynningarbækling
um námskeið sem haldin verða
í félagsmiðstöð Lundarskóla
veturinn 1989-1990. í bækl-
ingnum kemur fram að boðið
verður upp á 9 mismunandi
námskeið í félagsmiðstöðinni í
vetur, ef næg þátttaka fæst.
Þessi námskeið eru:
„Saumanámskeið 1“. Þetta
námskeið er fyrir byrjendur og
verður lögð áhersla á að sauma
aðeins einfaldar flíkur. Nám-
skeiðið verður haldið á mánu-
dögum kl. 20.00-22.00, leiðbein-
andi verður Ásdís Jóhannsdóttir.
„Saumanámskeið 2“. Þetta
námskeið er fyrir þá sem lengra
eru komnir og treysta sér til að
sauma flóknari flíkur. Undir-
stöðuatriði í fatahönnun verða
kennd. Námskeiðið er á þriðju-
dögum kl. 20.00-22.00, leiðbein-
andi verður Ásdís Jóhannsdóttir.
„Myndlistarnámskeið“. Þetta
námskeið er upplagt fyrir þá sem
áhuga hafa á að teikna, mála eða
gera grafíkmyndir. Námskeiðið
er á miðvikudögum kl. 20.00-
22.00, leiðbeinandi verður
Bryndís Arnarsdóttir, myndlist-
armaður.
„Keramiknámskeið“. Á þessu
námskeiði er hver og einn frjáls
að búa það til sem hann langar,
með aðstoð leiðbeinandans,
Margrétar Jónsdóttur, leirlistar-
manns. Námskeiðið er á miðviku-
dögum kl. 20.00-22.00.
„Stund í leikfimisalnum“. Á
þessu námskeiði verður hlaupið
og hoppað til þess að efla þol og
þrek. Síðan verður teygt og slak-
að á öllum vöðvum og eftir gott
bað setjast þátttakendur niður og
spjalla saman yfir léttri hress-
ingu. Námskeiðið verður haldið á
þriðjudögum kl. 20.00-21.00,
leiðbeinandi verður Ingibjörg
Harðardóttir, íþróttakennari.
„Jólin“. Á þessu námskeiði er
hugmyndin að undirbúa komu
jólanna, m.a. með því að búa til
jólaskraut og/eða litlar gjafir.
Námskeiðið hefst 21. nóvember,
leiðbeinendur verða Svanhvít
Jósepsdóttir og Bryndís Arnars-
dóttir.
„Skartgripanámskeið". Á
þessu námskeiði verður kennd
einföld skartgripagerð. Unnið
verður úr ýmsum ólíkum efnum
og hugmyndaflugið óspart notað.
Námskeiðið verður á miðviku-
dögum kl. 20.00-22.00 (eftir ára-
mót), leiðbeinandi verður Kristín
P. Guðmundsdóttir, gullsmiður.
„Bifhjólapróf". Þetta er nám-
skeið fyrir þá sem áhuga hafa á
að undirbúa sig fyrir bifhjólapróf
(skellinöðrupróf). Leiðbeint
verður um minniháttar viðgerðir
bifhjóla og aðstaða er fyrir klúbb
ef áhugi reynist fyrir slíkri starf-
semi. Námskeiðið er á miðviku-
dögum kl. 20.00-22.00.
Rétt er að taka það fram að öll
þessi námskeiðstilboð eru að
sjálfsögðu háð því að næg þátt-
taka verði. Þátttökugjaldi er í öll-
um tilfellum mjög stillt í hóf en
það er 1.000 krónur. Efniskostn-
aður er þó ekki innifalinn í því
verði. Innritun í námskeiðin er
Kaupmannafélag Akureyrar
heldur fund um áhrif og frani-
kvæmd virðisaukaskattsins, á
Hótel KEA á morgun laugar-
dag kl. 14.
Á fundinn mæta þeir Guð-
jón Oddsson formaður Kaup-
Taflfélag Dalvíkur stendur
fyrir hinu árlega Sveinsmóti í
skák laugardaginn 14. og
sunnudaginn 15. október.
Mótið hefst á laugardaginn kl.
13.30 og teflt verður í Víkur-
Eldridansa-
klúbburinn:
Dansleikur
í Lóni
Eldridansaklúbburinn heldur
dansleik í Lóni, Hrísalundi,
laugardaginn 14. október frá
kl. 22-03. Fjórir félagar sjá um
fjörið. Gestur kvöldsins verð-
ur Aðalstcinn ísfjörð, sem
tekur nikkuna af sinni alkunnu
snilld.
þegar hafin í síma 22722. Þar fást
einnig allar nánari upplýsingar
svo og í félagsmiðstöðinni í
Lundarskóla á „Opnu húsi“.
Þess má að lokum geta að
kynningarbæklingi Æskulýðsráðs
Akureyrar um námskeiðin hefur
þegar verið dreift í Gagnfræða-
skólanum og Lundarskóla, auk
þess sem hann liggur frammi í
félagsmiðstöðinni í Lundarskóla.
mannasamtaka fslands og
Magnús Finnsson fram-
kvæmdastjóri Kaupmanna-
samtaka íslands og munu þeir
flytja ávörp og svara fyrir-
spurnum fundargesta.
röst á Dalvík. Nánari upplýs-
ingar gefur Rúnar í síma
61133.
Nýjung frá
Bautanum:
Fjölskylduborð
Sunnudaginn 15. október
kynnir Bautinn nýtt fjölskyldu-
borð. Hér er um að ræða hlað-
borð með alls kyns krásum,
heitum og köldum, á aðeins
1200 krónur. Maki ogbörn 11-
13 ára greiða 600 kr. og börn
yngri en 11 ára 300 kr. Þá er
boðið upp á Batman ís frá
ísbúðinni fyrir börnin. Sunnu-
dagsmaturinn ætti því ekki að
verða neinn höfuðverkur.
Hvað er að gerast
Kaupmannafélag Akureyrar:
Fundur um áhrif og fram-
kvæmd virðisaukaskattsins
Dalvík:
Sveinsmót í skák