Dagur - 13.10.1989, Side 10
10 - DAGUR - Föstudagur 13. október 1989
myndasögur dags
ÁRLAND
ANDRÉS ÖND
HERSIR
V Eg er svo
smeykur við ykkur
læknana!
Hvaða grænu kúlur eru þetta sem þú
geymir í alkahóli?
Þetta eru ólífur. Ég fæ mér oft kokteil
eftir vinnu.
BJARGVÆTTIRNIR
# Rósir í
baðherbergi
Konu einni á Norðurlandi
brá talsvert þegar hún sá
hina margumræddu mynd
framan á tímariti af Rósu
með rósablöðin í baðinu.
Kona þessi er með fallega
kristalsskál á baðherberg-
inu sínu og í henni geymir
hún þurrkaðar rósir, en þó
ekki til að baða sig í þeim.
Konan er ákaflega lagin við
aö rækta rósir og karlinn
hennar er svona eins og svo
margir menn, hann kemur
nokkuð oft heim með rósa-
vendi - á mánudögum. Því
fellur talsvert til af notuðum
rósum á heimilinu og af því
að vinkona okkar er nýtin,
og hin mesta myndarhús-
móðir þegar hún má vera
að, þá hugsaði hún talsvert
um að hvaða gagni þurrkað-
ar rósir gætu komið á heim-
ilinu. Og hún fékk hugmynd
og náði i kristalsskálina
sem nú puntar baðherberg-
ið full af dauðum rósum, en
rósablöðin notar vinkona
okkar tii að strá innan í
klósettskálina þegar hún er
búin að þrífa og allt á að
vera hreint, fínt og ilmandi.
• Regnboginn
Húsvíkingar hafa talið sig
nokkuð vel í sveit setta
hvað varðar athygiisverða
skoðunarstaði fyrir ferða-
menn sem til bæjarins
koma. Vissulega má finna
margar perlur íslenskrar
náttúru í Þingeyjarsýslu, t.d.
má nefna Mývatn, Ásbyrgi,
Goðafoss, Dettifoss, Jökuls-
árgljúfur og Laxá. Auk
þessa er margt sem má
finna á Húsvík til að gleðja
gests augað: t.d. kirkjan,
skrúðgarðurinn og Safna-
húsið. Húsvíkingar ættu því
ekki að hafa neina minni-
máttarkennd gagnvart íbú-
um annarra bæja þegar
gesti ber að garði og til-
hlýðilegt þykir að skreppa
með þá í smáskoöunarferð.
Það runnu þó tvær grímur á
nokkrar konur frá Húsavík
sem heimsóttu Sauðárkrók
í vor og komust þær að því
að Sauðkrækingar ráða yfir
tækniþekkingu sem Húsvik-
ingar þekkja ekki enn. Kon-
ur þessar nutu um stund
gestrisni og leiðsagnar
Hilmis Jóhannessonar, sem
er gamall Húsvikingur og
landsfrægur húmoristi.
Hilmir benti Húsvíkingunum
á Steinullarverksmiðjuna en
sagði síðan: „Sjáiði þarna
er regnboginn, við kveikjum
stundum á honum þegar
ferðamenn koma í bæinn.“
dagskrá fjölmiðla
Sjónvarpið
Föstudagur 13. október
17.50 Gosi.
18.25 Antilópan snýr aftur.
(Return of the Antilope.)
18.50 Táknmálsfréttir.
18.55 Yngismær (15).
19.20 Austurbæingar.
19.50 Tommi og Jenni.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Þátttaka í sköpunarverkinu.
Þriðji hluti.
íslensk þáttaröð í þremur hlutum um
sköpunar- og tjáningarþörfina, og leiðir
fólks til að finna henni farveg.
í þessum þætti verður fylgst með þema-
vinnu á leikskólanum Hlíðaborg og Æf-
ingadeild KHÍ.
21.15 Peter Strohm.
22.05 Meistaramót.
(That Championship Season.)
Bandarísk bíómynd frá 1982.
Aðalhlutverk: Bruce Dern, Stacy Keach,
Robert Mitchum og Martin Sheen.
Fjórir félagar hittast árlega ásamt þjálf-
ara sínum til að halda upp á sigur í körfu-
knattleikskeppni framhaldsskólanna.
Árin hafa sett sitt mark á þá og ekki er
allt sem sýnist hjá þeim félögum.
00.35 Útvarpsfréttir í dagskrárlok.
Stöð 2
Föstudagur 13. október
15.30 Börn á barmi glötunar.
(Toughlove.)
17.05 Santa Barbara.
17.50 Dvergurinn Davíð.
(David the Gnome.)
18.15 Sumo-glíma.
18.40 Heiti potturinn.
(On the Live Side.)
19.19 19.19.
20.30 Geimálfurinn.
(Alf.)
21.00 Fallhlifastökk.
21.30 Sitt lítið af hverju.
(A Bit Of A Do.)
Fjórði þáttur.
22.25 í hamingjuleit.#
(The Lonely Guy.)
Steve Martin er hér í hlutverki hins ólán-
sama rithöfundar Larry sem er sagt upp
af kærustunni sinni og vafrar um götur
borgarinnar vansæll og armæðulegur. Á
vegi hans verður einstæðingurinn
Warren, sem er sérfræðingur í því að vera
einmana og tekur að sér að kenna Larry
þá kúnst að vera einn í stórborg.
Aðalhlutverk: Steve Martin, Charles
Grodin, Judith Ivey, Steve Lawrence og
. Robyn Douglass.
23.55 Dagur sjakalans.#
(The Day of the Jackal.)
Hér segir frá tilraunum hægri vængs OAS
(samtökum undir forystu franskra liðs-
foringja í Alsír í byrjun 7. áratugarins er
börðust gegn sjálfstæði landsins) til að
ráða De Gaulle hershöfðingja af dögum.
Til verksins er ráðinn harðsvíraður maður
sem starfar undir dulnefninu „Jackal“.
Aðalhlutverk: Edward Fox, Michel Lons-
dale, Alan Badel, Eric Porter og Cyril
Cusack.
Stranglega bönnuð börnum.
02.15 í viðjum þagnar.
(Trapped in Silence.)
Sextán ára gamall drengur, sem í æsku
varð fyrir tilfinningalegri röskun, er nú
óviðráoanlegur unglingur sem er fullur
ótta og neitar að tala við nokkurn mann.
Sálfræðingur leggur sig allan fram um að
hjálpa honum en erfitt reynist að komast
að ástæðunni fyrir hegðan drengsins.
Aðalhlutverk: Marsha Mason og Kiefer
Sutherland.
03.45 Dagskrárlok.
Rás 1
Föstudagur 13. október
6.45 Veðurfregnir • Bæn.
7.00 Fréttir.
7.03 í morgunsárið
9.00 Fróttir.
9.03 Pottaglamur gestakokksins.
Jón X.T. Bui frá Víetnam eldar.
9.20 Morgunleikfimi.
9.30 Að hafa áhrif.
10.00 Fréttir.
10.03 Þingfréttir.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Kíkt út um kýraugað.
11.00 Fréttir.
11.03 Samhljómur.
11.53 Á dagskrá.
12.00 Fréttayfirlit • Tilkynningar.
12.15 Daglegt mál.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir • Tilkynningar •
Tónlist.
13.00 í dagsins önn - í þættinum verður
meðal annars fjallað um Hvalavinafé-
lagið
Umsjón: Bergljót Baldursdóttir.
13.30 Miðdegissagan: „Myndir af Fidel-
mann" eftir Bernard Malamud.
Ingunn Ásdísardóttir lýkur lestri þýðing-
ar sinnar.
14.00 Fréttir.
14.03 Ljúflingslög.
15.00 Fréttir.
15.03 Bókmenntaþáttur.
Fyrsti þáttur af fjórum.
15.45 Pottaglamur gestakokksins.
16.00 Fréttir.
16.03 Dagbókin.
16.08 Á dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið.
17.00 Fréttir.
17.03 „Tréprinsinn", ballet eftir Béla
Bartók.
18.00 Fréttir.
18.03 Að utan.
18.10 Á vettvangi.
18.30 Tónlist • Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir • Tilkynningar.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Tilkynningar.
19.32 Kviksjá.
20.00 Litli barnatíminn: „Lítil saga um
litla kisu" eftir Loft Guðmundsson.
Sigrún Björnsdóttir les (10).
20.15 Ljóðasöngur.
21.00 Kvöldvaka.
a. Strandsaga úr Meðallandi.
Frásöguþáttur eftir Jóhann Gunnar
Ólafsson, Pétur Pétursson les.
b. Ólöf Kolbrún Harðardóttir og Egill
Ólafsson syngja
lög eftir Jóhann Helgason.
c. Straumur örlaganna.
Smásaga eftir Guðrúnu Jónsdóttur frá
Prestbakka. Arnhildur Jónsdóttir les.
Umsjón: Gunnar Stefánsson.
22.00 Fréttir.
22.07 Að utan.
22.15 Veðurfregnir • Orð kvöldsins
Dagskrá morgundagins.
22.30 Dansiög.
23.00 Kvöldskuggar.
24.00 Fréttir.
00.10 Ómur að utan.
Umsjón: Signý Pálsdóttir.'
01.00 Veðurfregnir.
Rás 2
Föstudagur 13. október
7.03 Morgunútvarpiö.
Leifur Hauksson og Jón Ársæll Þórðarson
hefja daginn með hlustendum.
08.00 Morgunfréttir.
- Bibba í málhreinsun og leiðarar dag-
blaðanna kl. 8.30.
9.03 Morgunsyrpa.
12.00 Fréttayfirlit • Auglýsingar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Umhverfis landið á áttatíu
með Gesti Einari Jónassyni. (Frá Akur-
eyri.)
14.03 Hvaö er að gerast?
Lísa Pálsdóttir kynnir allt það helsta sem
er að gerast í menningu, félagslífi og fjöl-
miðlum.
Milli mála.
Árni Magnússon leikur nýju lögin.
- 15.03 Stóra spurningin. Spurninga-
keppni vinnustaða, stjórnandi og dómari
Flosi Eiríksson.
16.03 Dagskrá.
Dægurmálaútvarp.
Stefán Jón Hafstein, Guðrún Gunnars-
dóttir, Sigurður Þór Salvarsson, Þorsteinn
J. Vilhjálmsson og Sigurður G. Tómasson.
- Kaffispjall og innlit upp úr kl. 16.00.
- Stjórnmál dagsins á sjötta tímanum.
18.03 Þjóðarsálin, þjóðfundur í beinni
útsendingu, sími 91-38500.
19.00 Kvöldfréttir.
19.32 „Blítt og létt...“
Gyða Dröfn Tryggvadóttir rabbar við sjó-
menn og leikur óskalög.
20.30 Á djasstónleikum.
21.30 Fræðsluvarp: Enska.
Fyrsti þáttur enskukennslunnar „í góðu
lagi" á vegum Málaskólans Mímis.
(Endurtekið frá þriðjudagskvöldi).
22.07 Kaldur og klár.
Óskar Páll Sveinsson með allt það nýjasta
og besta.
02.00 Næturútvarp á báðum rásum til
morguns.
Fréttir kl. 7, 7.30, 8, 8.30, 9, 10, 11, 12,
12.20, 14, 15, 16, 17, 18, 19, 22 og 24.
Næturútvarpið
2.00 Fréttir.
2.05 Rokk og nýbylgja.
3.00 „Blítt og létt..."
4.00 Fréttir.
4.05 Undir værðarvoð.
4.30 Veðurfregnir kl. 4.30.
5.00 Fréttir af veðri og flugsamgöngum.
5.01 Áfram ísland.
6.00 Fréttir af veðri og flugsamgöngum.
6.01 Ur gömlum belgjum.
7.00 Úr smiðjunni.
Rikisútvarpið á Akureyri
Föstudagur 13. október
8.10-8.30 Svæðisútvarp Norðurlands.
18.03-19.00 Svæðisútvarp Norðurlands.
Bylgjan
Föstudagur 13. október
07.00 Páll Þorsteinsson.
Stírumar þurrkaðar úr augunum og
gluggað í landsmálablöðin og gömlu slag-
ararnir spilaðir.
10.00 Valdís Gunnarsdóttir.
Lætur daginn líða fljótt með góðri tónlist,
það er nú einu sinni föstudagur í dag ...
14.00 Bjami Ólafur Guðmundsson.
Tónlist, afmæliskveðjur og óskalög í
massavís.
18.10 Hallgrímur Thorsteinsson - Reykja-
vík síðdegis.
Fréttir og fréttatengd málefni.
Einn vinsælasti útvarpsþátturinn í dag,
því hér fá hlustendur að tjá sig. Síminn er
611111.
19.00 Snjólfur Teitsson.
Kominn í dansdressið og hitar upp fyrir
kvöldið.
24.00 Næturvakt Bylgjunnar.
Fréttir kl. 8, 9, 10, 11, 12, 13, 14, 15, 16,
17 og 18.
Hljóðbylgjan
Föstudagur 13. október
17.00-19.00 Fjallað um það sem er að ger-
ast í menningu og listum um helgina á
Akureyri.
Stjórnendur em Pálmi Guðmundsson og
Axel Axelsson.
Fréttir kl. 18.00.