Dagur - 21.10.1989, Qupperneq 7
OOOh vr* Í Cfi'^4/1 P
Laugardagur 21. október 1989 - DAGUR - 7
Jón Hjaltason
Gary Cooper, imynd fyrirniyndar Bandaríkjamannsins.
Aldagömul menningararfleifð
Evrópu hefur löngum vakið
blendnar tilfinningar með frænd-
um okkar vestanhafs. Nær sögu-
lausir, og þó búsettir í stórveldi,
horfa þeir með virðingu og öfund
yfir Atlantshafið. Sjálfir hafa þeir
ekki nema úr fáeinum öldum að
nroða en þær hafa reynst þeim
notadrjúgar. Kúrekahetjan situr
orðið á sama bekk, ef ekki skör
hærra, og Hómer, Platón, Snorri
Sturluson og Shakespear, að
minnsta kosti hvað frægð og vin-
sældir snertir. Og auðkýfingar
vestra bera númer í rómönskum
tölum líkt og blóðbláir þjóðhöfð-
ingjar Evrópu. Það er heldur
ekki alveg laust við að bandarísk-
ir sneyði að Evrópubúum í litlu
og stóru og eru þá raunar að
gjalda líku líkt. Hinum snobbaða
og stundum tilfinningalitla
Evrópumanni er stillt upp
andspænis heiðarlegum og
hreinskilnum Bandaríkja-
manninum. Annar er óáreiðan-
legur, fer í felur með álit sitt og
skoðanir, hinn er hreinskiptin og
sannur vinur í raun.
Gary Cooper var þessi goð-
sögn um Bandaríkjamanninn
gegnsýrður karlmennsku og
gjörsneyddur öllu fláræði, „the
damn true man“. í honum endur-
spegluðust allar hetjur vesturs-
ins, frá Daniel Boone til Davy
Crocketts. Hann þurfti ekki að
leika, það var nóg fyrir Cooper
að vera Cooper.
I kvikmyndir fyrir tilviljun
Maðurinn, sem átti eftir að fylla
upp í ímynd hins fullkomna
Bandaríkjamanns, var Evrópu-
búi í báðar ættir. Foreldrar hans
voru enskir vesturfarar. Árið
1901 hafði þeim fæðst sonur vest-
ur í Montanaríki sein nefndur var
Frank J. Cooper. Síðar átti
ónefndur umboðsmaður eftir að
breyta skírnarnafninu í Gary til
að forða skjólstæðingi sínum frá
ruglingi við annan leikara sem
bar nafnið Frank Cooper.
Faðir Coopers, Charles, komst
til metorða í Montana, auðgaðist
og keypti búgarð við Missouri-
fljótið. Þar lærði Cooper, sem þá
var á táningsaldri, að sitja hross
og skjóta úr byssu. Jafnhliða
þroskaðist með honum, fyrir
áhrif frá foreldrunum, áhugi fyrir
listum. Hann gekk þó ekki beina
braut í gegnum skólakerfið, því
olli bæði alvarlegt bílslys og
áhugaleysi Coopers sjálfs um
námið. Hálfþrítugur ákvað hann
að við svo búið mætti ekki sitja
og sótti um inngöngu í listaskóla.
Rétt fyrir upphaf skólaársins
ákvað Cooper að kasta kveðju á
foreldra sína sem þá voru fluttir
til Los Angeles. Þar hitti Cooper
gamla æskufélaga sem unnu fyrir
sér með því að ríöa hrossum í
bíómyndum. Cooper slóst í
hópinn og 1925 til ’26 reið hann
nafnlaus í um það bil 30 kvik-
myndum.
En frægðin beið á næsta götu-
horni. Cooper.byrjaöi að fá smá-
hlutverk, sitt fyrsta í The
Winning of Barbara Worth 1926.
Árið eftir fékk hann stærri hlut-
vcrk og 1928 byrjaði hann að
leika í stórmyndum hjá stóru
kvikmyndarisunum. Cooper var
orðinn frægur.
Vinsælasti leikari síns tíma
Cooper var stjarna nýs tíma.
Hollywood stóð á tímamótum. í
október 1927 birtist A1 Jolson á
hvíta tjaldinu, syngjandi og tal-
andi í The Jazz Singer. Þessi við-
burður markaði upphafið að
endalokum þöglu myndanna.
Nýjar stjörnur, að þessu sinni
altalandi, stigu fram á sviðið.
Engin þeirra átti þó eftir að njóta
jafnlangvinnra vinsælda og Gary i
Cooper.
Allt frá því 1932 hafa kvik-
myndaframleiðendur sett árlega
saman lista yfir þá leikara sem
mest aðdráttaraflið hafa haft á
bíófara það árið. í alls 18 skipti
hefur nafn Coopers verið að
finna á þessum lista. Engin af
stjörnum hans tíma, mcnn eins
og Clark Gable, Gary Grant,
Spencer Tracy og Humprey
Bogart, hafa átt slíkum vinsæld-
um að fagna. Og til þessa dags
hefur aðeins John Wayne átt
nafn sitt oftar á títtnefndum
vinsældalista kvikmyndaveranna.
Af stjörnum dagsins í dag virðist
Clint Eastwood sá eini sem liugs-
anlega gæti ógnað þeim félögum
og fengið nafn sitt skráð í annál
sem leikarinn með lengstan
vinsældaferilinn að baki.
Út úr þessu má lesa að minnsta
kosti tvennt: í fyrsta lagi virðist
smekkurfólks á kvikmyndir vera
svolítið umdeilanlegur því eng-
inn þeirra þriggja, Coopers,
Waynes eða Eastwoods, hefur
verið svo mikið sem grunaður um
stórbrotna leikhæfileika. Cooper
var til dæmis frægur fyrir kæru-
leysi, ef ekki áhugaleysi, við
kvikmyndatökur. Ósjaldan fékk
hann sér blund á milli atriða.
Einnig var hann umtalaður fyrir
að „frjósa" við tökur, einkum og
nær eingöngu þegar hann þurfti
að túlka miklar tilfinningar. Allir
þrír fengu þó óskarsverðlaun oft-
ar en einu sinni, Cooper og
Eastwood tvisvar (og líklega er
fullsnemmt að fullyrða að sá síð-
ari eigi ekki eftir að fá þau enn
einu sinni) en John Wayne fékk
styttuna alls fjórum sinnum.
Tvenn óskarsverðlaun
í öðru lagi skín út úr niðurstöð-
um vinsældalista kvikmynda-
heimsins að erfitt er að marka
Cooper blómatíma í kvikmynda-
sögunni. Líklegast yrði þó fjórði
áratugurinn og öndverður sá
fimmti fyrir valinu. Á þessum
árum var Cooper mikið í sviðs-
ljósinu. Hann gerði sér dælt við
kvenfólk, sumt jafnvel harðgift
sem varð náttúrulega ekki til að
draga vitundarögn úr áhuga
blaðamanna, hann vingaðist við
rithöfundinn Ernest Hemingway
og lék í myndum eins og A
Farewell to Arms (1932), For
Whom The Bell Talls (1943),
báðar byggðar á sögum Heming-
ways, The General Died at Dawn
(1936) og Sergeant York (1941).
Fyrir þá síðasttöldu fékk Cooper
sín fyrstu óskarsverðlaun.
í Sergeant York leikur Cooper
goðsögnina um Bandaríkja-
manninn, heiðarlega og friðelsk-
andi bóndann Alvin York, sem
neyðist til að láta hugsjónina fyrir
róða og verður annálaðasti
bandaríski hermaðurinn í fyrra
stríði. Örlítil breyting er hér orð-
in á persónu Coopers og um leið
fyrirmyndar-Bandaríkjamannin-
um. Alvin York breytir út af
sannfæringu sinni. En það þarf
ekkert minna en guð sjálfan til að
valda þessum sinnaskiptum. Þar
sem York er að hugleiða hvort
hann eigi að fara í stríðið flettir
vindurinn upp á miklum oflieldis-
kafla í Biblíu hans. Þar með
verður grundvallarhugsjón cin-
staklingsins Alvins að víkja fyrir
hagsmunum heildarinnar. fyrir
þjóðarheill.
1952, eða ellefu árum eftir
Sergeant York, fékk Cooper
seinni óskarinn, að þessu sinni
fyrir High Noon en í henni lék
hann lögreglustjórann Will
Kane. High Noon var á yfirborð-
inu ósköp venjulegur vestri, um
i góða manninn sem á í vandræð-
I um við að fá hjálp til að reisa
skorður við yfirtroðslum vondu
mannanna. Tilbreytingin er sú að
hann fær enga hjálp og þó enn-
frekar að Kane lögreglustjóri læt-
ur í ljósi efasemdir um réttmæti
gerða sinna, sem jafnvel má túlka
sem ótta við væntanlegt uppgjör
við vondu mennina.
Cooper, sem nú átti níu ár eftir
ólifuð, hélt áfram að leika alveg
fram í andlátið. Á þessum níu
árum birtist hann í 15 kvikmynd-
um. Hann andaðist 1961, sextug-
ur að aldri.
3. ogr 4. nóvexnber
Vinsælustu dægurlög síðustu áratuga þar sem Jón Sigurðsson hefur
komið við sögu sem lagasmiður eða textahöfundur. Jón í bankanum
heldur um þessar mundir upp á 50 ára glæsilegan tónlistarferil.
Stjórn tónlistar og sviðsetningnar: Ingimar Eydal og Saga Jónsdóttir •
Handrit: Þorsteinn Eggertsson • Söngvarar: Ellý Vilhjálms, Pálmi Gunnarsson,
Þorvaldur Halldórs, Þuríður Sigurðardóttir, Trausti Jónsson og Hjördís Geirs •
Kynnir hinn síkáti Bjarni Dagur Jónsson
Fluttar verða perlur dægurlaga síðustu ára svo sem:
Meira fjör • Upp undir Eiríksjökli • Kom heim, vinur, kom heim • Bel Ami • Ég er kominn heim •
í grænum Edens garði • Senn fer vorið á vængjum yfir flóann • Óli rokkari • Út i Hamborg •
Hvað varstu að gera í nótt • Nina og Geiri • Einsi kaldi úr Eyjunum • Ó nei • Ég fann þig •
Fjórir kátir þrestir • Ég vil fara upp i sveit • Komdu í kvöld • Vertu ekki að horfa svona alltaf •
Lóa litla á Brú • Auk fjölda annarra laga
/SÍSIsi •=;!=■
/<a c: ::: r: : s
c: !i i! Í! ilifi! i
c: s', “■:: si: s: ■
s: cv st sv s:
1 c; £1 5cGs!~T
Hljómsveit Ingimars
Eydal leikur fyrir
dansi til kl. 03.00.
Verð á Dægurlagakeppnina með kvöld-
verði ög dansleik aðeins kr. 3000.
Miðasala og borðapantanir í Sjallanum
daglega í síma 22770.
Pantið borð tímalega ogtryggið ykkur
góð sæti strax í dag.
Matseðill
Forréttu
„Tónar hafsim
Grafinn og reyktur le
i hunangsdillsói
Aðalréttu
Ofngljáð hnetupiparste.
með paprikubættri dijonsós
hasselbackkartöflum, rósinká
og súrsætu meðlæi
SjóMúut