Dagur - 21.10.1989, Page 16
Skólaskinka
Lítil Kjarnafæði pizza
Stór Kjarnafæði pizza
Nýjar kartöflur 2 kg..........158 kr.
Valdorfsalat ..................95 kr.
Egg 1. verðflokkur ........ 356 kr. kg
Egg 2. verðflokkur ........ 259 kr. kg
Harðfiskur............... 1.650 kr. kg
Hrossabjúgu............... 252 kr. kg
Hamborgarar 2 stk.............111 kr.
Lambahamborgarhryggur... 575 kr. kg
Saltað hrossakjöt........... 262 kr. kg
Lambahangiframpartur....... 824 kr. kg
Saltað folaldakjöt.......... 292 kr. kg
Reykt folaldakjöt........... 292 kr. kg
Saltkjöt.................... 448 kr. kg
Londonlamb.................. 743 kr. kg
Vínarpylsur................. 535 kr. kg
Coca Cola 2 lítrar..............99 kr.
Coca Cola 1V4 lítri.............91 kr.
Dæmi um
943 kr. kg
319 kr.
399 kr.
vöruverð
Verslunin
ÞDEFIÐ
Móasíðu 1 • Sími 27755.
Opiö alla daga vikunnar frá kl. 8-23.30.
Heimsendingar-
þjónusta.
Dauft yfir loðnubræðslum:
„Við bíðum og vonmn“
„Við bíðum bara og vonum,“
segir Þórður Andersen, verk-
smiðjustjóri Síldarverksmiðja
ríkisins á Siglufírði. Loðnan
hefur eins og kunnugt er lítið
gert vart við sig og eru for-
svarsmenn loðnuverksmiðja af
þeim sökum mjög kvíðafullir
um afkomu verksmiðjanna.
Hjá Síldarverksmiðjum ríkis-
ins vinna nú um 30 manns og seg-
ir Þórður að þrátt fyrir loðnuleys-
ið sé nóg að gera. Dytta þarf að
vélum og sjá til þess að þær séu
tilbúnar í slaginn þegar þar að
kemur.
Þórður segir það auðvitað Ijóst
að rekstrartap sé umtalsvert á
meðan engin loðna fáist til
bræðslu en of snemmt sé að vera
með miklar hrakspár. Hann
bendir á að loðnan hafi áður
komið seint til bræðslu, árið 1987
hafi t.d. bræðsla fyrst hafist í
nóvember. óþh
Bakkaíjörður:
Langþráðum hafnar-
bótum að ljúka
Ncmendur í fyrsta bekk Menntaskólans á Akureyri fengu sína skírn í gærmorgun þegar fram fór busavígsla í skólan-
um. I þetta sinn var tekin ákvörðun um að busavígslan yrði með svipuðu sniði og var fyrr á árum og nemendur voru
því teknir og tolleraðir. Að því loknu var gengið um miðbæ Akureyrar og að síðustu upp Mcnntaveginn. Mynd: kl
....................................................................................................... '
- bátar mun öruggari í höfninni en áður
Húsavík:
Rjúpnaskyttur með reytingsveiði
- Jónas Hallgrímsson kominn með 173
Þessa dagana er veriö að Ijúka
viö hafnarbætur á Vopnafírði
og Bakkafírði sem unnar hafa
verið í sumar. Þessi verkefni
voru unnið samhliða og reynt
að samnýta mannskap eins og
kostur var. Með grjótgarði og
trébryggju á Bakkafírði hefur
verið skapað mun meira öryggi
í höfninni en hingað til liefur
verið og á Vopnafirði var höfn-
in bætt með grjótgarði.
Að sögn Gísla Viggóssonar hjá
Vita- og hafnamálastofnun var
höfnin á Bakkafirði sett upp í lík-
anprófun í vor. Miðað var við að
finna góða lausn miðað við þróun
síðustu ára, bátastærð á staðnum
og líklega þróun næstu ára. „Við
komumst að því að þarna voru
„Það er gífurlegur áhugi fyrir
þessu og hann hefur farið fram
úr björtustu vonum. Ég reikna
með að um 180 manns verði í
mat,“ segir Ólafur Árnason,
umsjónarmaður Víkurrastar á
Dalvík, en þar verður mikið
um dýrðir í kvöld. Um leið og
Dalvíkingar fagna vetri krýna
þeir Ungfrú Dalvík með pompi
og pragt.
Sex blómarósir frá Dalvík eru
skráðar til leiks en hugsanlega
bætast tvær stúlkur í hópinn. Það
var ekki ljóst í gær þegar Dagur
hafði spurnir af gangi mála.
Þær sex stúlkur sem örugglega
taka þátt í keppninni eru: Frey-
dís Baldrún Antonsdóttir, Berg-
þóra Rós Lárusdóttir, Ragnheið-
ur Valdimarsdóttir, Kristín
Sveinbjörnsdóttir, Björk Sturlu-
dóttir og Árndís Guðný Grétars-
dóttir.
Að sögn Ólafs er ráðgert að
fyrir liggi laust eftir kl. 23 hver
stúlknanna hlýtur sæmdarheitið
Ungfrú Dalvík.
ákveðnar þarfir sem þurfti að
uppfylla fyrir utan að skapa skjól
í höfninni og betra pláss. Lausnin
sem við fundum var þessi grjót-
garður ásamt 20 m. langri
bryggju sem nú er verið að Ijúka
við. Þessi bygging hefur kostað
um 26 milljónir króna og verkið
staðist að öllu leyti. Þetta er
nokkurn veginn verðið á bátnum
sem fór niður á Bakkafirði í
óveðri í fyrravetur. íbúar á
Bakkafirði ættu því ekki að þurfa
að kvíða vetrinum," segir Gísli.
Kostnaður við grjótgarðinn á
Vopnafirði eru 35-40 milljónir
króna. Grunnur að þessum garði
er líkan sem gert var á vegum
Vita- og hafnamálastofnunar fyr-
ir um 10 árum. JOH
Stúlkurnar munu kynna fatnað
frá verslunum á Dalvík og þá
munu þær koma fram í fatnaði
frá Álafossi. Síðan munu þær
koma fram í eigin kvöldklæðnaði
og er víst að þar verður ekkert til
sparað.
Hátíðin hefst kl. 19.30 í kvöld
og verður tekið á móti gestum
með fordrykk og að því búnu
verður borin fram þrírétta
máltíð. Meðal skemmtiatriða má
nefna að Rúnar Þór Pétursson,
mun kynna efni af væntanlegri
hljómplötu og dalvísk Bibba á
Brávallagötunni ræðir málin við
gesti. óþh
Rjúpnaveiði hefur verið held-
ur dræm í Suður-Þingeyjar-
sýslu en mesta veiði hafa menn
fengið í Búrfellshrauni. Besta
veiðin var á þriðjudag en á
miðvikudag og fímmtudag var
veiðin mun niinni. „Ég hugsa
að rjúpan sé komin til fjalla og
úr kallfæri,“ sagði Árni Logi
Sigurbjörnsson hjá Skotfæra-
þjónustunni í samtali við Dag.
Mesta veiði einstaklings á ein-
um degi, sem Dagur hefur haft
fregnir af, eru 55 rjúpur sem Jón-
as Hallgrímsson fékk á þriðju-
dag. Jónas var við rjúpnaveiðar
fyrstu fjóra veiðidagana og fékk
samtals 173 rjúpur. Hann fór
ekki í rjúpur á fimmtudag og
föstudag, mun þó ekki hafa verið
orðinn leiður á veiðiferðunum
heldur þurft að sinna vinnu sinni.
Á þriðjudag fór Jón B. Gunn-
arsson frá Húsavík til rjúpna
ásamt tveim sonum sínum og
fengu þeir samtals 124 rjúpur yfir
daginn.
Á Hótel Reynihlfð í Mývatns-
Veðurspá hclgarinnar fyrir
Norðurland er lieldur hrá-
slagaleg. Ríkjandi verður
norðaustan- eða norðanátt og
vestan til má gera ráð fyrir tals-
verðum strekkingi.
Talsverð rigning mun fylgja
þessu veðri, sérstaklega á N-
sveit hafi lítið frést af rjúpna-
skyttum og árangri þeirra. Á
hótelinu eru seld veiðileyfi í
Reykjahlíðarlandi, eru þau talin
á hagstæðu verði - 600 kr. dagur-
inn eða 2.400 kr. allt veiðitímabil-
ið - og eru gefnar upplýsingar um
veiðisvæðið um leið og leyfin eru
„Eg hygg að útboð á hús-
gögnunum hafí farið fram.
Innkaupastofnun hefur annars
með þetta að gera,“ sagði Þor-
leifur Pálsson, í dómsmála-
ráðuneytinu, þegar Dagur náði
tali af honum í gær.
Eins og fram kom í Degi sl.
miðvikudag stendur nýbyggð lög-
reglustöð auð vegna þess að ekki
Vesturlandi, hitastig mun lækka
þegar líður á helgina, svo mikið
að búast má við slyddu í byggð.
Snjóa mun í fjöll svo þeir sem
ætla landleiðis í helgarferðina
ættu að athuga hjólabúnað sinn
vel. Hiti nálgast frostmark á
sunnudag en að öðru leyti á spáin
við alla helgina. VG
afhent. Enginn hefur keypt veiði-
leyfi hjá hótelinu í haust og dræm
sala hefur einnig verið á sams-
konar veiðileyfum hjá Eldá.
Rjúpnaskyttur á Héraði munu
lítið vera farnar að róta sér, að
sögn lögreglunnar á Egilsstöðum.
IM
fást húsgögn í hana. Ríkið stóð
sig ekki í stykkinu og iét fara
fram útboð á húsgögnum í stöð-
ina um það leyti sem lokið var við
frágang stöðvarinnar.
„Ég veit ekki nákvæmlega hve-
nær húsgögnin verða tilbúin til
afgreiðslu. Ég vona að það verði
fljótlega," sagði Þorleifur. Hann
sagði að skýringin á því hve seint
væri farið af stað með útboðið
væri skortur á fjármagni til þessa
verkefnis á fjárlögum yfirstand-
andi árs. „Þessum lið verður
fundinn staður á fjárlögum næsta
árs til uppgjörs.“
Þorleifur sagðist geta tekið
undir þá gagnrýni að of seint hafi
verið hugsað fyrir kaupum á hús-
gögnum. „Auðvitað er það hand-
vömm í kerfinu að láta lögreglu-
stöðina standa auða í röskan
hálfan mánuð. En það er nú ekki
langur tími í eilífðinni," sagði
Þorleifur. óþh
ISLENSKIR DAGAR HJA KEA
DAGANA 12.-21. OKTÓBER
Vörukynningar ★ Skemmtilegar uppákomur
Ungfrú Dalvík krýnd í kvöld:
Áhuginn farið fram
úr björtustu vonum
- segir Ólafur Árnason
Norðurland:
Hráslagalegt helgarveður
Ný lögreglustöð á Siglufirði:
„Seint hugsað fyrir
húsgagnakaupum“