Dagur - 24.11.1989, Síða 2
2 - DAGUR - Föstudagur 24. nóvember 1989
fréttir
F
Hagnaður fyrirtækja sem hlutfall af veltu:
Akureyrarhöfii langefst norðlenskra fyrirtækja
- eiginfjárhlutfall Akureyrarhafnar einnig mjög gott
Akureyrarhöfn er hvergi aö
finna á lista Frjálsrar verslunar
yfir stærstu fyrirtæki landsins
en þegar fyrirtæki eru flokkuð
eftir hagnaði sem hlutfalli af
veltu er höfnin hins vegar ofar-
lega á blaði, eða í 10. sæti.
Hagnaður Akureyrarhafnar á
árinu 1988 nam 20,8% af
veltu. ÁTVR er langefst á
þessum lista með hagnað upp á
54,6% af veltu, en síðan koma
Viðlagatrygging íslands,
íslensk getspá, Fríhöfnin,
Kaupþing, Hitaveita Suður-
nesja, VISA-ísland, Hitaveita
Reykjavíkur og Lánastofnun
sparisjóðanna.
Akureyrarhöfn er einnig ofar-
lega á lista yfir eiginfjárhlutfall
fyrirtækja. Þar eru fyrirtæki
Reykjavíkurborgar mest áber-
andi með eiginfjárhlutfall allt
upp í 100, þ.e. skuldlaus með
öllu, en Rafveita Akureyrar
kemur sér fyrir í 8. sæti með eig-
infjárhlutfallið 96 og Akureyrar-
höfn er í 14. sæti með 86.
Rafveitan og Akureyrarhöfn
eru líka ofarlega á lista yfir veltu-
fjárhlutfall fyrirtækja og eru
ásamt Kísiliðjunni einu fyrirtæk-
Heildaraflinn til októberloka:
Samdrátturiim á Norðurlandi
er fimmfalt landsmeðaltal
í lok október var heildarafli
landsmanna orðinn 1.218.400
tonn á móti 1.298.700 tonnum
Akureyrarbær:
Tíu mánaða
reikningsyfir-
lit lagt fram
Á fundi Bæjarráðs Akureyrar
16. nóvember var lagt fram
reikningsyfirlit, þ.e. rekstrar-
og framkvæmdayfirlit bæjar-
sjóðs eins og það var 31. októ-
ber.
Sigurður J. Sigurðsson, forseti
Bæjarstjórnar Akureyrar, segir í
þessu sambandi að rekstur bæjar-
ins sé á því róli sem fjárhagsáætl-
unin gerði ráð fyrir, í langflestum
tilvikum. „Segja má að fjárhags-
staðan sé viðunandi og í samræmi
við það sem áætlað var. Hvað
endanlega kemur í ljós um ára-
mót er ekki hægt að segja til um á
þessu stigi, en ekkert bendir til
annars en að allt sé í böndum.
Það eru að vísu nokkrir þættir
sem við vissum um síðari hluta
vetrar og gerðum þá ráðstafanir
gagnvart, og fjárhagsáætlun var
breytt til að laga hana gagnvart
þeim liðum, en að öðru leyti er
þetta nokkurn veginn í böndum.
Ekki er annað urn þetta að
segja en að bæði tekju- og gjalda-
liðirnir virðast standast," sagði
Sigurður. EHB
í fyrra. Þetta er 6,5% sam-
dráttur milli ára. Loðnuaflinn
er rúmum 50 þúsund tonnum
minni, þorskaflinn 17.000
tonnum minni, karfaaflinn
8.300 tonnum, síldaraflinn
7.700 tonnum og rækjuaflinn
4.400 tonnum minni. Grálúðu-
afli hefur hins vegar aukist um
11.300 tonn, ýsuafli um 2.500
tonn og ufsaafli um 1.500 tonn.
Heildaraflasamdrátturinn er
um 80.000 tonn og er hann hlut-
fallslega mestur á Norðurlandi.
Þar voru komin 200.285 tonn að
landi í lok október á móti
267.684 tonnum á sama tíma í
fyrra. Þetta er33,5% samdráttur,
eða fimmfalt landsmeðaltal.
Verulegur samdráttur er einnig á
Austfjörðum, 334.241 tonn á
móti 384.993 tonnum.
Á hinn bóginn hefur afli aukist
nokkuð á Suðurlandi og Vestur-
landi og verulega á Reykjanesi.
Eilítill samdráttur er á Vestfjörð-
um og svipað aflamagn hefur far-
ið til löndunar erlendis og í fyrra.
Skemmst er frá því að segja að
þennan mikla samdrátt á
Norðurlandi er að finna í nær öll-
um tegundum. Þó hefur ívið
meira af ýsu, ufsa og hörpudiski
borist á land miðað við sama
tímabil í fyrra. Togararnir hafa
veitt 87.115 tonn á móti 94.238
tonnum og bátarnir 106.673 tonn
á móti 167.721. Hins vegar hefur
afli smábáta á Norðurlandi aukist
nokkuð, er nú 6.497 tonn en var
5.725 tonn í lok október á síðasta
ári. SS
in á Norðurlandi sem komast
meðal 30 efstu fyrirtækja á þess-
um lista. Kísiliðjan kemur reynd-
ar mjög vel út og er í 4. sæti.
Akureyrarhöfn hefur staðið í
miklum framkvæmdum á þessu
ári og má benda á yfirlit Guð-
mundar Sigurbjörnssonar, hafn-
arstjóra, í fréttabréfi Akureyrar-
bæjar. Þar kemur m.a. fram að
steyptur var 210 metra langur
kantur ofan á stálþilið í nýju
fiskihöfninni og byggð 4 lítil hús
á uppfyllingunni og verður komið
fyrir ljósamöstrum á þeim. í hús-
unum verður einnig aðstaða fyrir
afgreiðslu á rafmagni og vatni til
skipa, tengingar fyrir snjóbræðslu-
kerfi og tenglar fyrir frystigáma.
„Lagðar voru vatns- og raf-
lagnir í jörð, en alls eru 6 vatns-
brunnar og 3 rafmagnsbrunnar
við kantinn. Snjóbræðslukerfi
verður lagt í 10 metra breitt
svæði meðfranj viðlegukantinum,
sem er um 180 metra langur. Síð-
an verður steypt yfirborð á 15
metra breiðu svæði innan
kantsins, alls um 2700 fermetrar.
Stigar eru með 15 metra milli-
bili utan á stálþilinu og verða þeir
upplýstir. Pessi lýsing ásamt
snjóbræðslukerfinu er hvort
tveggja nýjung í hafnargerð hér á
Akureyri,“ segir í Bæjarpóstin-
um, fréttabréfi Akureyrarbæjar.
SS
Akureyri:
Viðræður viö ráðimeytið um
rekstur íþróttamannvirkja
„Það liggur ekki Ijóst fyrir að
hve miklu leyti ríkið er tilbúið1
Húsbyggingar aldraðra við Víðilund:
Unnið við þakið á
síðara fjölbýlishúsinu
Staða framkvæmda við síðara
fjölbýlishúsið sem byggt er á
vegum aldraðra við Víðilund á
Akureyri er þokkaleg, að sögn
Magnúsar Garðarssonar, bygg-
ingaeftirlitsmanns. Nú er verið
að vinna við þak hússins og
Höepfner
KEA, Hafnarstræti 20.
Halló — Halló
Nú eru jólatilboðin byrjuð á
bökunarvörum, ávöxtum og vörum
frá K. Jónssyni.
Það er gott að versla í lítilli búð.
Næg bílastæði.
KEA Hafnarstræti 20
uppsteypu er lokið.
„Húsið er mjög nálægt því að
vera á áætlun,“ segir Magnús.
Um þetta leyti í fyrra var Híbýli
hf. í svipuðunt sporum með fyrra
húsið, en eftir að þeir fóru af stað
með gipspússningu kom tímabil
sem lítið virtist gerast, að sögn
Magnúsar, og tafðist verkið
nokkuð.
Magnús segir að Fjölnismenn,
verktakarnir að síðara húsinu,
hafi fengið slæmt vor í ár og tafist
um tíma, en starfsmenn lögðu á
sig mikla aukavinnu og náðu að
vinna upp tafirnar.
Vel hefur gengið að selja íbúð-
ir í húsinu, og eru þær allar farn-
ar ef tvær eða þrjár eru undan-
skildar. EHB
til að samþykkja íþróttahöllina
á Akureyri sem skólamann-
virki. Hún er mun stærri en
kröfur eru gerðar til íþrótta-
iðkana nemenda,“ segir Val-
garður Baldvinsson, bæjarrit-
ari á Akureyri, en nú standa
yfír samningaviðræður milli
Akureyrarbæjar og fjármála-
ráðuneytisins um hlut ríkis og
bæjarins í rekstri íþróttahallar-
innar og sundlaugar í Glerár-
hverfi.
Valgarður segir að ekki liggi
fyrir nein ákveðin hlutfallsskipt-
ing ríkis og Akureyrarbæjar í
rekstri íþróttahallarinnar og því
sé áhersla lögð á það nú að koma
henni á hreint. „Ríkið hefur veitt
á fjárlögum hvers árs ákveðinni
upphæð til íþróttahallarinnar án
þess að gengið hafi verið frá
endanlegri skiptingu,“ segir Val-
garður.
Auk íþróttahallarinnar er ver-
ið að semja um hlut ríkis og
Akureyrarbæjar í rekstri sund-
laugar í Glerárhverfi. Valgarður
segir að þeir samningar séu ekki í
höfn en vonir standi til að úr ræt-
ist á næstunni. óþh
Höldur sf.
Arctic vélsleðasýning
Á laugardag og sunnudag verður
vélsleðasýning í sýningarsal
Hölds sf. við Tryggvabraut á
Akureyri, og einnig útimarkaður
með vélsleða og vélsleðavörur.
Sýndar verða 1990 árgerðir af
Arctic Cat vélsleðum milli kl.
13.00 og 18.00 báða dagana.
Aðstandendur sýningarinnar
hvetja alla vélsleðaáhugamenn
um að koma og kynna sér það
nýjasta frá Arctic, en fyrirtækið
nýtur nú mestu söluaukningar
allra vélsleða á markaðnum.
Á útimarkaðnum verða seldir
notaðir sleðar, kerrur o.fl. og
geta eigendur komið með tæki
sín og látið skrá þau til sölu á sýn-
ingarsvæðinu við Tryggvabraut.
Siglufjörður:
Bæjarmála-
punktar
■ Öm Orri Einarsson yfir-
Iæknir, hefur sent bæjarráði
bréf, þar sem kvartað er yfir
mikilli og hættulegri mengun
frá sorpbrennsluþró bæjarins.
Með bréfinu fylgja undir-
skriftalistar margra íbúa í
norðurhluta bæjarins þar sem
þess er krafist að sorpbrennsl-
unni verði fundinn annar
staður, „svo að okkur sjálfum
og börnum okkar stafi ekki
hætta af sorpbrennslu hér
lengur."
■ Iþróttafélagið Snerpa hefur
skorað á bæjarstjórn og bæjar-
stjóra Siglufjarðar til keppni í
boccía á jólamóti Snerpu 2.
desember n.k. og hefur
bæjarráð samþykkt að taka
þessari áskorun.
■ Bæjarráði hefur borist bréf
frá Háskólanum á Akureyri,
undirritað af Haraldi Bessa-
syni, þar sem óskað er eftir að
bæjaryfirvöld lýsi yfir stuðn-
ingi við rekstur skólans, „við
þingmenn, ráðherra og aðra
þá sem þessa stundina fjalla
um andlegt og veraldlegt gengi
íslensku þjóðarinnar."
■ Fcrlinefnd fatlaðra kom á
fund bæjarráðs nýlega, ásamt
Carli Brand frá samstarfs-
nefnd um ferlimál fatlaðra á
vegum Félagsmálaráðuneytis-
ins. Carl fór m.a. yfir lög og
reglugerðir um eftirlits- og
framkvæmdaskyldu bæjaryfir-
valda í þessum málefnum og
sýndi margar myndskyggnur
máli sínu til stuðnings. Þar
voru m.a. myndirfrá Siglufirði
sem sýndu ýmislegt sem er
ábótavant fyrir aðgengi fatl-
aðra. Bæjarráð samþykkti að
tilnefndir yrðu varafulltrúar í
ferlinefnd fatlaðra á Siglufirði,
þar af þrír kosnir af bæjar-
stjórn.
■ Á fundi bæjarráðs nýlega,
var lagður fram samstarfs-
samningur milli bæjarstjórans
og Félags áhugamanna um
minjasafn á Siglufirði.
■ Bæjarráð samþykkti nýlega
að verða við óskum sent lágu
fyrir um 2 byggingarlóðir.
Onnur var frá Jóni Dýrfjörð
v/fiskverkunar við Vestur-
tanga 6 en hin frá Vélaleigunni
Bás sf. v/iðnaðarhúsnæðis við
Egilstanga 1.
■ Á fundi skólanefndar fyrir
skömmu, var skýrt frá gjöf til
Grunnskólans, sem Lionessu-
klúbbur Siglufjarðar afhenti í
byrjun skólastarfs í haust. Um
var að ræða gólfsessur til nota
fyrir yngstu nemendur skólans
í upphafi náms og skólagöngu.
■ Á sama fundi var Vigfús
Þór Árnason kvaddur sérstak-
lega en hann hefur setið í
skólanefnd í 13 ár en er horf-
inn til nýrra verkefna í Reykja-
vík. Einnig þakkaði skóla-
stjóri Grunnskólans þeim
hjónum Vigfúsi Þór og Elínu
konu hans, fyrir störf þeirra í
þágu Grunnskóla Siglufjarðar.