Dagur - 24.11.1989, Blaðsíða 11
hér & þar
KA hefiir jafiian spilað áferðar-
fallegri knattspymu en Þór
- sagði Jóhannes Sigurjónsson ritstjóri Víkurblaðsins
m.a. í ræðu sinni og hafði hann sínar ástæður fyrir því áliti
Herrakvöld KA:
Stefán Gunnlaugsson hlaut Lille-hammerinn til varðveislu í eitt ár. Þórarinn
E. Sveinsson veislustjóri afhenti Stefáni gripinn og hann þakkaði fyrir sig
með kossi.
Herrakvöld KA, hiö fjórða í
röðinni, var haldið með pompi
og prakt í KA-heimilinu síðast-
liðið laugardagskvöid. Þar
voru saman komnir um 80 KA-
menn og í það minnsta einn
Þórsari og skemmtu þeir sér
hið besta, enda heppnaðist
þetta kvöld virkilega vel.
Veislustjóri var Þórarinn E.
Sveinsson samlagsstjóri Mjólk-
ursamlags KEA og að hans sögn,
komst hann í það embætti með
nokkrum krókaleiðum. Þórarinn
stóð sig mjög vel sem veislustjóri
og stjórnaði kvöldinu af miklum
myndarskap.
Jóhannes ritstjóri
fór á kostum
Dagskráin hófst með fordrykk en
síðan hófst borðhald. Boðið var
upp á hlaðborð með fjölda rétta
frá Bautanum og var greinilegt
að gestir kunnu vel að meta það
sem á borðum var.
Því næst flutti aðalræðumaður
kvöldsins, Jóhannes Sigurjóns-
son ritstjóri Víkurblaðsins á
Húsavík ræðu sína og fór hann
þar á kostum. Að lokinni ræðu
Jóhannesar, fluttu þrír KA-félag-
ar skemmtidagskrá, þar sem gert
var grín að mönnum og málefn-
um og var engum hlíft.
Að loknum skemmtiatriðum
þeirra félaga, var komið að
keppni á milli fulltrúa einstakra
deilda í félaginu. Keppnin var í
því fólgin, að keppendur fengu
eitt egg hver og áttu þeir að
hlaupa með það frá KA-heimil-
inu og fá eggið spælt í einhverri
íbúð í næsta nágrenni og koma
með það þannig til baka. Síðan
áttu þeir að lýsa fyrir gestum
hvernig þeim hefði gengið að fá
eggið spælt og vöktu þær frásagn-
ir mikla kátínu.
Stefán fékk
Lille-hamerinn
Hefðbundinni dagskrá lauk síðan
með bögglauppboði þar sem stór-
ir og fallegir pakkar voru seldir á
„góðu“ verði.
Á þessu fjórða herrakvöldi,
var Lille-hammerinn afhentur
öðru sinni en um er að ræða far-
andgrip sem veittur er þeim KA-
manni til varðveislu, er þykir
hafa staðið sig „sérstaklega“ vel á
árinu. Að þessu sinni hlaut Stefán
Gunnlaugsson formaður knatt-
spyrnudeildar KA gripinn til
varðveiðslu, fyrir málefnalega
Jóhannes Sigurjónsson ritstjóri Vík-
urblaðsins var aðalræðumaður
kvöldsins og hann brást ekki frekar
en fyrri daginn.
umræðu í þættinum Hringiðan á
Stöð 2 fyrir skömmu.
Enn með sár á stóru tánni
eftir Gunnar Austfjörð
Ekki er hægt að ljúka umfjöllun
um þetta skemmtilega kvöld, án
þess að minnast örlítið á innihald
ræðu Jóhannesar Sigurjónssonar.
Jóhannes kom víða við og rakti
m.a. samskipti sín með Völsungi
á Húsavík við Akureyrarfélögin
KA og Þór. Hann sagði að KA
hefði jafnan spilað áferðarfallegri
knattspyrnu en Þór og því væri
KA-liðið í meiri metum á Húsa-
vík, ef hægt væri að tala um slíkt.
Sem dæmi um leik Þórsara, sagði
Jóhannes að hann bæri þess enn
merki að hafa leikið á móti leik-
mönnum liðsins fyrir nokkrum
árum. Til að mynda væri hann
enn með opið sár á annarri stóru
tánni, eftir að Gunnar Austfjörð
hafði staðið á henni stanslaust í
90 nrín. og auk þess með mar aft-
an við annað eyrað, eftir hnéð á
Magnúsi Jónatanssyni. Hins veg-
ar bæri hann enginn merki þess
að hafa leikið gegn KA á sfnum
tíma.
Þingeyingar staðið sig
vel á landsmótum
Þá talaði Jóhannes um árangur
KA í knattspyrnu, blaki og judó
á árinu, sem hann taldi mjög
góðan. Þó vildi hann ekki láta hjá
líða að minnast á að Þingeyingar
hafi einnig staðið sig á íþrótta-
sviðinu og nefndi sem dæmi
Landsmót ungmennafélagana.
Árið 1960 hafi þeir t.d. unnið gull
í línubeitinu og að leggja á borð.
- Og næsta landsmóti á eftir, hafi
Þingeyingar unnið þrefaldan sig-
uí' f dráttarvélaakstri og auk þess
unnið gull í sömu greinum og á
mótinu á undan. Þrátt fyrir þetta
hafi þeir ekki verið með nein
veisluhöld kvöld eftir kvöld eins
og sumir, enda Þingeyingar
þekktir fyrir hógværð. -KK
Á meðal gesta á herrakvöldinu, voru þeir Haukur Halldórsson formaður
Stéttarsambands bænda, Hákon Hákonarson formaður Félags málmiðnað-
armanna á Akureyri og Ólafur Ólafsson fulltrúi hjá bæjarfógetanum á
Akureyri.
Föstudagur 24. nóvember 1989 - DAGUR - 11
S (*=$$=
Laugardagur kl. 14:25
47. LEIKVIKA- 25. nóv. 1989 1 X 2
Leikur 1 NQrnberg - B. MQnchen
Leikur 2 Charlton Man. City
Leikur 3 Coventry - Norwich
Leikur 4 Man. Utd. - Chelsea
Leikur 5 Nott. For. - Everton
Leikur 6 Q.P.R. - Miliwall
Leikur 7 Shefl. Wed. - C. Palace
Leikur 8 Southampton - Luton
Leikur 9 Tottenham - Derby
Leikur 10 Wimbledon - Aston Villa
Leikur11 Blackburn - West Ham
Leikur 12 Newcastie - Sheff. Uta. i
Símsvari hjá getraunum er 91-84590 og -84464. LUKKULÍNAN s. 991002 Tvöfaldur pottur!!