Dagur - 24.11.1989, Page 15
Föstudagur 24. nóvember 1989 - DAGUR - 15
-4
íþróttir
í-
íþróttir helgarinnar:
Mikið um að vera
- handbolti, blak, karfa og badminton
Það er heilmikið um að vera á
íþróttasviðinu á Norðurlandi
þessa helgina. Stórleikir í
körfuknattleik, handknattleik,
blaki og svo er borðtennis og
badminton á dagskránni.
Þórsliðið í handknattleik spilar
mikilvægan leik gegn Breiðabliki
í 2. deildinni á föstudagskvöldið.
Ef Þórsliðið sigrar er það komið í
toppbaráttuna í deildinni en
Blikarnir verða að sigra til að
komast úr kjallaranum. Leikur-
inn er í kvöld kl. 20.00 í íþrótta-
höllinni á Akureyri.
Strax á eftir leik Þórs og
Breiðabliks leika Þórsstelpurnar
gegn Aftureldingu í 2. deild
kvenna. Reyndar leika liðin aftur
saman á laugardag en þá í
Skemmunni kl. 16.00.
Blakstrákarnir í KA verða á
Karfa:
Sverrir ekki með
- breyttur leiktími á Akureyri
Leikur Þórs og Tindastóls í
Úrvalsdeildinni í körfuknatt-
leik verður á sunnudaginn í
íþróttahöllinni á Akureyri kl.
16.30. Leikurinn átti að vera
kl. 20.00 um kvöldið en var
breytt vegna þess að dómar-
arnir koma frá Keflavík og það
kemur betur út fjárhagslega
fyrir Þórsara að hafa ieikinn
fyrr um daginn.
Það er skarð fyrir skildi fyrir
bæði liðin að það vantar tvo lykil-
menn í þennan leik; Þórsarinn
Dan Kennard hefur hirt flest frá-
köstin í Úrvalsdeildinni.
Jón Örn Guðmundsson og Tinda-
stólsmaðurinn Sverrir Sverrisson
eru báðir í leikbanni og veikir
það að sjálfsögðu bæði liðin.
Sverrir fékk tvær tæknivillur í
leik Tindastóls og UMFG 28.
okt. s.l. og verður því að láta sér
nægja að horfa á leikinn. Hánn
verður hins vegar ekki í banni í
kvöld er unglingaflokkur Tinda-
stóls mætir Haukum á Sauðár-
króki í kvöld kl. 20.00.
Ef Eyjólfur Sverrisson verður
kominn til landsins, en hann
dvelur nú við knattspyrnuæfingar
hjá Brann í Noregi, í tæka tíð
fyrir leikinn er líklegt að hann
taki við bakvarðarstöðunni af
bróður sínum.
Bandaríkjamennirnir í liðun-
um munu örugglega verða áber-
andi í leiknum. Bo Heyden hjá
Tindastóli er annar stigahæsti
maður deildarinnar með 259 stig,
sem gerir að meðaltali 28,7 körf-
ur í leik. Dan Kennard er í átt-
unda sæti með 20,7 körfur í leik.
Kennard er aftur á móti sterkasti
varnarmaður deildarinnar og hef-
ur hann hirt að meðaltali 12,8
fráköst í leik.
Rútuferðir eru frá Sauðárkróki
á leikinn á Akureyri á sunnudag-
inn og verður því örugglega mik-
ið fjör á leiknum. Vert er að
minna aftur á breyttan leiktíma,
þ.e. kl. 16.30 í íþróttahöllinni á
Akureyri á sunnudaginn. kj/AP
1X21X21X21X21X21X21X21X21X2
Skapti á sigurbraut
Skapti Ingimarsson lagði Gylfa Þórhallsson að velli í síðustu
viku og þar með hafa Liverpool-menn yfirhöndina aftur. En
gamla keppnin er ekki búin því Skapti hefur skorað á skák-
félaga sinn, Rúnar Sigurpálsson, en hann er mikill Man. Utd. að-
dáandi. Reyndar ber Rúnar einnig taugar til Crystal Palace
vegna þess að Steve Coppel, fyrrverandi leikmaður Man. Utd.
er nú framkvæmdastjóri hjá þessu fornfræga Lundúnaliði.
Sjónvarpað verður frá leik Nurnberg og B. Munchen í v,-
þýsku knattspyrnunni og verður sá leikur vonandi fjörugri en
leikur Werder Bremen og B. Leverkusen sem sýndur var á laug-
ardaginn.
Skapti:
Nurnberg-B. Munchen 2
Charlton-Man. City 1
Coventry-Norwich 2
Man. Utd.-Chelsea 1
Nott. For.-Everton 1
QPR-Millwall x
Sheff. Wed.-C. Palace 1
Southampton-Luton 1
Tottenham-Derby 1
Wimbledon-Aston Villa 1
Blackburn-West Ham x
Newcastle-Sheff. Utd. x
Rúnar:
Nurnberg-B. Munchen 2
Charlton-Man. City 1
Coventry-Norwich x
Man. Utd.-Chelsea 1
Nott. For.-Everton 1
QPR-Millwall 1
Sheff. Wed.-C. Palace x
Southampton-Luton 1
Tottenham-Derby 1
Wimbledon-Aston Villa 2
Blackburn-West Ham x
Newcastle-Sheff. Utd. 1
1X21X21X21X21X21X21X21X21X2
fullu á laugardag. Framarar
koma með karlalið sitt í heimsókn
og leika gegn KA í Glerárskóla
kl. 13.30. Þeir bláklæddu komu
nokkuð á óvart og sigruðu Þrótt-
ara 3:2 í fyrrakvöld þannig að
þeir eru sýnd veiði en ekki gefin
fyrir íslandsmeistara KA.
Opið badmintonmót TBA í A
og B flokki fer fram á Akureyri á
laugardag. Það hefst í Höllinni
kl. 11.00 og eru mótsstjórar þeir
Finnur Birgisson og Haukur
Jóhannsson.
Stórt borðtennismót fer fram á
Hrafnagili alla helgina og er það í
umsjóri Magna. Keppendur
verða um 90 og er þetta eitt
stærsta borðtennismót sem hald-
ið hefur verið á Norðurlandi.
Meistaraflokkslið KA í 1.
deildinni í handknattleik fer suð-
ur og keppir erfiðan leik gegn
KR-ingum á sunnudaginn kl.
20.30 í Laugardalshöll.
Punktamót KSÍ í innanhúss-
knattspyrnu fer fram á Akranesi
og þar keppa m.a. KA, Þór,
Leiftur og Tindastóll.
Sigurður Pálsson og Páll Gíslason verða í sviðsljósinu þegar Þór mætir UBK
í 2. deildinni í kvöld kl. 20. Stelpurnar í Þór keppa vid UMFA strax á eftir.
Knattspyrna:
Kem líklega norður
- segir Friðrik Friðriksson tilvonandi Pórsari
Friörik Friðriksson landsliðs-
markvörður mun að öllum
líkindum leika með Þórsliðinu
í 1. deildinni í knattspyrnu
næsta sumar. Friðrik klárar
tæknifræðinám í Danmörku
um áramótin og er þá væntan-
legur aftur til landsins.
Friðrik sagði reyndar í samtali
við Dag að mál hans væru ekki
alveg komin á hreint en „það
stefnir þó allt í að ég komi norð-
ur,“eins og hann orðaði það
sjálfur.
Friðrik er fæddur árið 1964 og
er því 25 ára gamall. Hans fyrsta
félag var Ármann en eins og
margir Ármenningar skipti hann
fljótlega yfir í Fram og lék með
þeim upp yngri flokkana. Hann
var varamarkvörður Framliðsins
1982 en skipti þá yfir í Breiðablik
og lék með Kópavogsliðinu í 1.
deildinni í tvö ár. Hann fór þá
aftur yfir í sitt gamla félag Fram,
og tryggði sér fljótlega landsliðs-
sæti. Undanfarin tvö ár hefur
hann leikið með danska liðinu
Friðrik Friðriksson markvörður.
B 1903 við góðan orðstýr. Það
sem vegur þungt í ákvörðun
Friðriks að koma norður er að
unnusta hans er frá Akureyri.
Það er skíðakonan góðkunna,
Nanna Leifsdóttir. Hún er hörð
KA-manneskja en verður víst að
sætta sig við að sjá unnustann
leika í rauðum búningi næsta
sumar.
Ef að Friðrik kemur í Þór má
búast við Þórsliðinu mjög sterku
næsta sumar. Þegar hefur Sigur-
óli Kristjánsson skipt aftur í sitt
gamla félag en óvíst er hvað Hall-
dór Áskelsson gerir. Síðan munu
ungu piltarnir banka duglega á
dyrnar hjá meistaraflokknum
næsta sumar, en þeir sýndu það
síðasta sumar að þeir geta staðið
sig vel í hinni hörðu 1. deildar-
baráttu.
Knattspyrna/KSÍ-þing:
Magni og Kormákur
halda sætum sínum
- Völsungar styðja tillöguna
Frétt Dags í gær, um þá tillögu
sem Iögð verður fram á KSÍ-
þinginu í Reykjavík um aðra
helgi, að spila 3. deildina í
tvennu lagi hefur vakið tölu-
verða athygli meðal knatt-
spyrnuáhugamanna á Norður-
landi.
Völsungar hafa lýst yfir stuðn-
ingi við þessa tillögu og það hafa
TBA-menn einnig gert. Ekki er
ólíklegt að bæði Magni og
Kormákur séu þessu hlynntir.
Ef tillagan nær fram að ganga
munu eftirtalin félög leika í
Norð-austurlandsriðli 3. deildar:
Völsungur
Einherji
Dalvík
Reynir Á.
Magni
Kormákur
TBA
Þróttur N.
Leiknir F.
Huginn
Staðan
2. deild kvenna
Selfoss 5 5-0-0 116: 83 10
ÍBK 6 3-1-2 104: 98 7
ÍR 6 3-1-2 132:127 7
UMFA 6 3-0-3 105:101 6
ÍBV 4 1-1-2 70: 79 3
Þróttur 5 1-0-4 87:107 2
Þór 4 0-1-3 59: 78 1
Iþróttir
helgariimar
Handknattleikur
Fustudagur:
2. deild karla...Þór-UBK í íþróttahöll-
inni á Akurcyri kl. 20.30.
2. deild kvenna...Þór-UMFA í íþrótta-
höllinni kl. 21.45
Laugardagur:
2. deild kvenna..Þór-UMFA í Skemm-
unni á Akureyri kl. 16.00
Sunnudagur:
1. deild karla...KR-KA í Reykjavík kl.
20.30.
Körfuknattleikur
Sunnudagur:
Úr,valsd...Þór-Tindastóll í íþróttahöll-
inni á Akureyri kl. 20.00
Blak
Laugardag:
1. deild karla...KA-Fram (Glerárskóla
kl. 13.30
1. deild kvenna..KA-Fram í Glerár-
skóla kl. 14.45
Badminton
Laugardag:
Opið mót f A og B flokki í íþróttahöll-
inni kl. 11.00