Dagur - 25.11.1989, Blaðsíða 16

Dagur - 25.11.1989, Blaðsíða 16
V IRÐISAUK ASKATTU R Betri skattskil koma öllum tilgóða Virðísaukaskaltur tekur við af söluskatti um næstu áramót. Hann tryggir ákveðið sjálfseftírlit í skattkerfinu sem verður til þess að treysta skattskil í landinu. Með virðisaukaskattinum verður skattkerfið heilsteyptara og rökréttara. Reglur um skattskyldu verða skýrari, undanþágum fækkar og uppgjör og innheimta verður auð- veldari. Virðisaukaskattur er talinn öruggari en söluskatt- ur vegna þess sjálfseftirhts sem myndast í kerfinu með frádráttarheimildinni. Undandráttur ætti að minnka því hvert fyrirtæki hefur hag af því að telja fiam öll innkaup og fá innskattinn af þeim dreginn ffá. Innheimta skattsins dreifist á fleiri aðila en verið hefur þannig að lægri fjárhæð kemur til innheimtu hjá hveijum og einum og ætti það að bæta skattskil. Stór hluti virðis- aukaskatts verður og innheimtur í tohi og þannig fá skatt- yfirvöld glöggar upplýsingar sem auðvelda aht eftirlit. Virðisaukaskatturinn er því traustara kerfi sem leiðir af sér betri skattskil — sem koma öllum til góða. yskífo FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.