Dagur - 25.11.1989, Blaðsíða 8

Dagur - 25.11.1989, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - Laugardagur 25. nóvember 1989 af erlendum veltvangi Haldið á barninu á daginn og losnið við hávaða á nóttunni Besta ráðið við iðrakveisu hjá smábörnum er, að foreldrarnir haldi sem mest á börnunum á daginn. Sú er niðurstaða rannsóknar, þar sem 99 ungbörnum á aldrinum þriggja til tólf vikna var skipt af handahófi í tvo hópa. Foreldrum Litlu könnuðirnir ná bestum þroska Látið börnin bara fitla við skraut- muni heimilisins. Þá ná þau betri þroska en börn, sem fá hegningu að launum, þegar þau fara að kanna umhverfi sitt. Þetta er niðurstaða 14 mánaða rannsóknar, þar sem fylgst var með 16 mæðrum og börnum þeirra að leik. Stjórnandi rannsóknarinnar, Thomas G. Lynne, skráði hjá sér hvaða hluti börnin leituðust við að snerta og hver viðbrögð mæðranna voru. Hann ræddi einnig við mæðurnar til að komast að því hvaða upp- eldisaðferðum þær beittu, svo sem hvort þær notuðu líkamlega hegningu eins og t.d. að slá á fingurna á börnunum. í ljós kom, að líkamleg hegning hafði mjög lítið að segja, hvort sem litið var til lengri eða skemmri tírna. Þau börn, sem hegnt var, snertu fleiri hluti og brutu fleiri bönn en þau börn, sem ekki var hegnt. En þegar Lynne prófaði börnin aftur sjö mánuðum síðar, komst hann að því, að þau börn, sem hlotið höfðu hegningu, höfðu ekki þroskast jafnvel og hin börnin. Þau áttu t.d. erfiðara með að raða saman púsluspili eða ráða fram úr öðrum þrautum. Auk þess höfðu börnin, sem hegnt hafði verið, nú hönd á færri hlutum en hin, og átti það eins við um hluti, sem ekki var hætta á að brotnuðu eða slösuðu barnið. Thomas G. Lynne telur, að þar kunni meðal annars að vera að finna ástæðurnar til þess, að þessi börn höfðu ekki náð jafnmiklum þroska og hin. Þau höfðu færri tækifæri til að kanna umhverfi sitt og urðu þess vegna ekki jafnfær til að leysa úr þrautum eða fást við stærri verk- efni. (111. Videnskab 2/89. - Þ.J.) annars hópsins var sagt að bera börn sín í fanginu eða í burðar- ólum eigi skemur en þrjá tíma á degi hverjum. Þeir áttu ekki bara að halda á börnunum, ef þau fóru að skæla, heldur líka þegar þau voru ánægð eða sváfu. Hinum foreldrahópnum voru ekki gefin þessi fyrirmæli, en var af og til beðinn að skrifa eins konar sólarhrings-dagbók um hegðun barnanna, hvenær þau voru ánægð, hlógu, skældu, sváfu o.s.frv. Niðurstaðan varð sú, að því meiri líkamssnertingu, sem börnin fengu á daginn, þeim mun minna grétu þau. Einkum átti þetta við um versta skælutímabilið í kring- um sex vikna aldurinn. Ef foreldrarnir héldu á barninu tvo tíma á dag að meðaltali, skældu þau 43 prósent minna. Ráð rannsóknarmannanna er því þetta: Haldið eins mikið og þið getið á barninu á daginn, þá losn- ið þið við að halda á því á næt- urnar til að fá það til að hætta að öskra. (111. Videnskab 2/89. - Þ.J.) Ungbörn gráta hclniingi minna en ella, ef foreldrarnir halda á þeim tvo tíma á dag. Er hægt að syngja svo hátt að gler brotni? FíltteppÍ 385 kr. fm Mikið úrval af mottum Teppi á stigaganga frá 1.145 kr. fm Úrval af dúkum í 2, 3, 4 m breiddum Munið afslátt á innimálningu til 30. nóv. Opið laugardaga 9.00-12.00 Iferid velkomin Byggingavömr Lónsbakka Sími 96-21400 Það er stundum sagt, að hægt sé að syngja svo hátt, að gler hrökkvi í inola. Er þetta rétt, og hvað er það þá, sem gerist? Hvað þarf að fara hátt upp í tónskalanum til þess að þetta gerist við söng - eða öskur? Við skulum líta á síðari spurning- una fyrst. Á síðustu áratugum hefur ýmsum söngvurum, sent stundað hafa óhcfðbundið söngnám, tekist að ná tónum, sem talið var útilokað, að radd- bönd manna gætu gefið frá sér. Einkum er það söng- og radd- beitingarkennarinn Alfred Wolfsohn, sem náð hcfur undra- verðum árangri með nemendur sína. Manni að nafni Barry Girard, frá Ohio-ríki í Bandaríkjunum, tókst um miðjan áttunda áratug- inn að ná tóninum e fyrir ofan hæstu tóna píanósins. Það svarar til tíðni, sem er 4.340 sveiflur á sekúndu (Hz). Kona, sem Marita Gúnther heit- ir, hefur náð svo breiðu raddsviði að það jafnast á við allt tónsvið píanósins! Marita getur sungið alla tóna frá lægsta a í subkontra- áttund og upp á háa c-ið - raddbil, sem tekur yfir sjö átt- undir. Bæði þessi dæmi eru tekin af syngjandi fólki, en hugsanlega er hægt að ná ennþá hærri tíðni með einstöku öskri, en á því hafa eng- ar ábyggilegar mælingar verið gerðar. Þá er það fyrri spurningin, hvort hægt sé að brjóta gler með rödd- inni: Jú, það er satt. Það er hægt að brjóta gler nteð röddinni. Þekkt dæmi um það er frá lokum fjórða áratugarins, þegar BBC- útvarpið sendi út konsert sopran- einsöngvara. Konan söng af hjartans lyst og allt var gleði og gaman, en eftir að konsertinum lauk hringdu margir öskureiðir hlustendur til BBC. Þeir kvört- uðu yfir því, að skrautmunir, drykkjarglös og borðbúnaður hefði splundrast fyrir augunum á þeim. Söngkonan hafði nefnilega, með aðstoð útvarpsins, maskað bolla og glös úti um allt land. Höfðað var mál gegn BBC, en það slapp við bótagreiðslur með því að benda á, að hlustendur hefðu bara getað skrúfað fyrir viðtækin sín. Dómararnir féllust á það sjónarmið. En hvernig má það þá vera, að gler sé svona viðkvæmt? Jú, skýringin er sú, að efnablandan í glerinu er þannig gerð, að í því er mjög mikil statisk (bundin) spenna. Því meiri sem spennan er, því meiri hætta er á, að glerið eyðileggist. Þegar efnin í glerinu titra, gefur glerið frá sér tón, sem mannlegt eyra heyrir ekki. Hvert glas hefur sinn sérstaka tón eða titrings- tíðni, sem mótast af ýmsum atriðum: þykkt, efnasamsetningu glerleðjunnar og frantleiðsluað- ferðinni, svo að nokkuð sé nefnt. Með mannsröddinni eða með aðstoð hljóðfæra er hægt að frantkalla tóna, sent eru á sama sviði og í glerinu. Afleiðingin verður sú, að glerið fer að titra, ef það er nægilega nálægt upp- tökum hljóðsins. Hversu mikið glerið titrar veltur að nokkru á því, hve öflugur tónninn er. Sérfræðingar tala um sveifluvídd og tíðni tónanna. Tíðnin mælist í Herz (Hz) og segir til um hvað margar sveiflur á sekúndu mynda tóninn. Því hærri sem Hz-talan er, því ofar á skalanum er tóninn að finna. Sveifluvíddin segir aftur á móti til um styrkleika tónsins: Öflugur tónn hefur ntikla sveiflu- vídd en veikur tónn litla. Til þess að brjóta gler, þarf tónninn bæði að hafa sömu sveiflutíðni og gler- ið og nægjanlega mikla spennu- vídd. Vegna hinnar innri spennu getur gler brotnað af sjálfu sér. Það er alltaf að koma fyrir, að glermunir springa, enda þótt þeir standi ósnertir inni í skáp. Víst kemur það þó oftar fyrir með borðbún- að, sem oft hefur verið setlur í uppþvottavélina, því að vélarnar fara ómjúkum höndum um hlut- ina og þeir verða þar fyrir snögg- um hitabreytingum. Málmar geta líka titrað svo að þeir hrökkvi í sundur. Þess verð- ur oftast vart í stórum mannvirkj- um gerðum af málmi, eins og t.d. brúm. Þess eru dæmi, að brýr hafa hrunið fyrir áhrif hljóðs. I kennslubókunt um bygginga- tækni er oft getið brúar einnar í Belgíu. Sunnudagskvöld eitt að vetri til hrundi brúin, þegar farið var að hringja klukkunuin í nær- liggjandi kirkju. Vissulega var mjög kalt þennan dag, og flestir vita víst, að málrnar verða brot- hættari í kulda, en eigi að síður sýnir þetta dæini, hversu miklu titringurinn getur komið til leið- ar, ef óheppnin er með í för. Annað alþekkt kennslubóka- dæmi er frá Frakklandi, en sá atburður varð um miðja fyrri öld. Fylking hermanna átti að ganga yfir brú, en taktfast göngulagið varð til þess að brúin fór að titra og titringurinn fór sívaxandi. Að lokum brast brúin og her- mennirnir fylgdu henni niður. Kannski er líka sannleikskorn í göntlu biblíufrásögnnni um múra Jeríkó. Þegar prestarnir blésu í lúðrana sjö, gerða af hrútshorn- um, hrundu múrar Jeríkó. Að því búnu gátu ísraelsmenn hogg- ið með sverðum sínum „allt, sem í borginni var, bæði karla og konur, unga og gamla, naut og sauði og asna“. En eitt er þó óhætt að fullyrða: Ef íbúar Jeríkó hefðu farið eftir núgild- andi byggingareglugerðum Norðurlanda, hefði frásögn biblí- unnar orðið á allt annan veg. (Bengt Bengtsson í Fakta 1/89. - Þ.J.)

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.