Dagur - 25.11.1989, Blaðsíða 20

Dagur - 25.11.1989, Blaðsíða 20
Akureyri, laugardagur 25. nóvember 1989 Lækkum matarreikninginn! KEA NETTÓ Höfðahlíð 1 Fyrstu bjór-jólin framundan: Mun bjórinn breyta vínlausri jóla- hefð íslendinga? - innlendir framleiðendur ekki á sama máli um það Næstu jól verða þau fyrstu eft- ir að bjór var leyfður á Islandi og því vaknar sú spurning hvort um bjór-jól verði að ræða. Samkvæmt upplýsingum frá innlendum bjórfram- leiðendum, verður ekki á markaðnum íslenskt jólabrugg líkt og tíðkast í Danmörku, m.a. vegna þess að jólabrugg Dana er mun sterkara en hefð- bundinn bjór en íslensk lög leyfa ekki bruggun öls nema að vissum styrldeika. „Okkur langar mjög að vera með jóla- og páskabrugg en vegna íslenska löggjafans getum við það ekki. f>að strandar sem sagt ekki á okkur,“ sagði Magnús Þorsteinsson framkvæmdastjóri Sanitas á Akureyri. Hann sagði að um þessar mundir væri að koma á markað dökkur Víking bjór og mætti e.t.v. iíta á hann sem nokkurs konar jólabjór frá Sanitas. Sanitas mun selja hefð- bundið jólaöl eins og undanfarna áratugi. „Þetta verður gamalt öl á nýjum belgjum ef svo má segja, því framleiðsla ölsins hefur verið bætt og það sett á nýjar umbúðir sem taka 2,5 og 5 lítra.“ Magnús sagði að reiknað væri með nokkurri söluaukningu í bjór fyrir jólin. „Við vitum auð- vitað ekkert hvernig þetta verður en ef þetta fylgir sömu línu og gosdrykkirnir eigum við von á mikilli sölu og við höfum búið okkur undir það.“ Lárus Berg Sigurbergsson framkvæmdastjóri hjá Ölgerð Egils Skallagrímssonar hf. sagði að á meðan sala sterks öls fari fram í gegnum Áfengisversiunina og framleiðendur eru ekki sjálf- ráðir með hvað þeir selja og hvað ekki, myndu þeir ekki fara út í að brugga sérstakt jóla- eða páska- öl. Aðspurður um hvort þeir reiknuðu með söluaukningu á bjór fyrir jólin sagðist Lárus ekki gera það. „Ég er jafnvel að vona að fólk fái sér ekki bjór með jóla- matnum. Jólin hafa ekki verið mikil vínhátíð til þessa og ég vona að það verði ekki breyting þar á. Auðvitað getur verið að bjórinn komi til með að breyta þessari hefð, en við höfum ekki gert ráð fyrir því.“ Ölgerð Egils verður með hefðbundið jólaöl á markaðnum, í 2,5, 5 og 10 lítra umbúðum. VG Mynd: KL Örn KE siglir að bryggju í Krossanesi í gær með 750 tonn af loðnu. Loðnan: Öra með 750 tonn í Krossanes Bræðsla á loðnu er nú hafín í Krossanesverksmiðjunni en Örn KE-13 landaði þar 750 tonnum af loðnu í gær. Veið- in var treg á miðunum í fyrri- nótt. Samkvæmt upplýsingum frá loðnunefnd tilkynntu þrjú skip, auk Arnar, um loðnu í fyrri- nótt. Víkingur AK-100 sneri til heimahafnar á Akranesi með 1000 tonn, Hilmir SU-171 fór til Siglufjarðar með 700 tonn og þangað fór sömuleiðis Fífill GK-54 með 180 tonn. Alls bárust því rúm 2600 tonn á land í gær. JÓH Vörur frá Sanitas í Plúsmarkaðinum en ekki frá Vífilfelli: „Hér er ekkert gosdrvkkjastríð á ferð“ - segir Hrafn Hrafnsson „Já, það er rétt að hér fást ein- göngu vörur frá Sanitas en ekki frá Vífílfelli. Það er hins vegar ekkert gosdrykkjastríð hér á ferð. Við ætlum að leggja meiri áherslu á vörur sem framleiddar eru hér á Akur- eyri, Sanitas er með verk- smiðju hér á Akureyri og veitir fjölda manns vinnu og því er eðlilegt að hjálpa henni,“ segir Hrafn Hrafnsson, eigandi Piús- markaðar Matvörumarkaðar- ins. Hrafn segir að það hafi einnig ráðið ákvörðun um að taka vör- Heilsufar í október: 300 manns með kvef og hálsbólgu eiginleg inflúensa ekki komin til Evrópu Heilsufar á þjónustusvæði Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri var þokkalegt í októ- ber burtséð frá um 300 manns sem þjáðust af kvefí og háls- bólgu. Talað hefur verið um flensu í þessu tilfelli meðal manna en svo mun ekki vera. „Hér er um inflúensulík ein- kenni að ræða en ekki inflúensu- veiru,“ sagði Ingvar Þóroddsson yfirlæknir á Heilsugæslustöðinni á Akureyri. Ingvar segir einkenni pestarinnar sem nú gengur vera hita, beinverki og hálssærindi sem vissulega séu svipuð ein- kenni og þegar um inflúensu er að ræða. Hann gat þess jafnframt að þó verið sé að bólusetja gegn inflú- ensu hjá Heilsugæslustöðinni á Akureyri um þessar mundir, sé engin ástæða til að óttast því um er að ræða fyrirbyggjandi aðgerð- ir. „Við vitum ekki til þess að inflúensa sé komin til Evrópu ennþá, þó alltaf megi eiga von á henni. Spurningin er bara hvenær er venjan er að veiran berist ein- hvern tímann á tímabilinu eftir áramót og fram að páskum." Af öðrum sjúkdómum sem skráðir eru í farsóttaskýrslu októ- bermánaðar má nefna að sex fengu lungnabólgu, tólf streptó- kokka-hálsbólgu, þrír voru með hlaupabólu, einn hettusótt, sjötíu og átta magakveisu, sex kláða- maur og sjö flatlús. Þá fengu fjór- ir þvagfærasýkingu og einn sjald- gæfan veirusjúkdóm sem veldur útbrotum á iljum, lófum og í slímhúð í munni. Þess ber að geta að upplýsingarnar skal taka með fyrirvara um að það er mat hvers læknis hvort og sjúkdómar eru skráðir. hvenær VG ur frá Sanitas inn í Piúsmarkað- inn að salan á þessum vörum hafi verið meiri en salan á vörum frá Vífilfelli í Matvörumarkaðin- um. „Ég hef ekki pláss fyrir fjölda aðila hér inni og því beini ég viðskiptunum inn á þær vörur sem eru hraðgengari enda er þetta hraðsöluverslun. Ef óskir verða hins vegar miklar um að fá vörur frá Vífilfelli inn í Plús- markaðinn þá verða þær teknar inn enda óskir viðskiptavinanna látnar sitja í fyrirrúmi.“ Pétur Ringsted, sölu- og dreif- ingarstjóri Vífilfells á Akureyri, segist ekki sjá að pláss í Plúsmark- aðnum geti ráðið úrslitum um að fyrirtækin fái ekki bæði að selja þar vörur sínar. Auk þess eigi það ekki að kosta eigendurna neitt að taka Vífilfellsvörurnar inn þar sem dreifingaraðilarnir sjái sjálfir um áfyllingu í búðinni. „Coke er þekktasta vörumerki í heimi og það hefur ekki sýnt sig að vera ávinningur fyrir verslanir að útiloka það. í sjálfu sér er hægt að segja að þetta sé armur af gosdrykkjastríðinu, Hrafn gef- ur okkur sjálfum ekki kost á ein- víginu. En hvað verksmiðju Sanitas á Akureyri varðar þá vil ég líka benda á að hér er ekkert gos framleitt, einungis maltöl, pilsner og bjór. Verksmiðjan er umboðsaðili fyrirtækisins á Akureyri á gosdrykkjum og það er nákvæmlega það sama og við erum hér,“ sagði Pétur. JÓH Hjálmar Hjálmarsson, sjómaður á Bakkafirði: Ættí að banna róðra niiinistii trillanna í desember og janúar „Fiskeríið hefur verið heldur tregt að undanförnu. Þess eru dæmi að menn séu búnir með kvótann en sumir trillukarlar sem stoppuðu sl. sumar byrj- uðu á línu 1. nóvember sl. og hafa aflað heldur lítið,“ segir Hjálmar Hjálmarsson, sjó- maður á Bakkafírði. Frá Bakkafirði eru nú gerðar út 7-8 trillur og er sú stærsta um 10 tonn að stærð. Hjálmar tekur undir þau orð Haraldar Jóhanns- sonar, trillukarls í Grímsey, í Degi fyrir skömmu að hæpið sé að stunda trilluróðra stíft á tímabilinu nóvember til febrúar. Eins og fram kom í máli Har- aldar er helmingur af línufiski á þessu tímabili utan kvóta. Áf þeim sökum róa sumir trillukarl- ar stíft á þessum árstíma. Hjálm- ar telur fulla ástæðu til að banna með öllu róðra minnstu trillubát- anna í desember og janúar. Trillukarlar á Bakkafirði leggja vel flestir upp hjá Útveri hf. og er fiskurinn verkaður í salt. Vegna fremur lítils hráefnis hefur vinna þar verið stopul að undanförnu. óþh

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.