Dagur - 25.11.1989, Blaðsíða 10

Dagur - 25.11.1989, Blaðsíða 10
10 - DAGUR - Laugardagur 25. nóvember 1989 Girish B. Hiriekar svœfingalœknir í helgarviðtali Veðrið var eins og það gerist fallegast á vetrarkvöldum þegar við bönkuðum uppá í húsi við Kotárgerði á Akureyri í vikunni. Þar býr Girish B. Hirlekar svæfingalæknir ásamt fjölskyldu sinni en við höfðum mælt okkur mót með helgarviðtal í huga. Það var ósköp gott að komast inn úr kuldanum, sérstaklega þar sem hlýtt og nota- legt var inni við. Girish er fæddur og uppalinn á Indlandi og því mætti ætla að hann hafi kynnst tveimur ólíkum heimum. Við nán- ari eftirgrennslan kemur hins vegar í ljós að ýmislegt er líkt með þessum tveimur þjóðum. Ætlunin var að komast að því hvað það er og þegar við höfðum komið okkur fyrir í stofunni með nýlagað kaffi og gómsæta heimabakaða snúða var okkur ekkert að vanbún- aði. Það lá beinast við að spyrja Girish fyrst um ættland hans, Indland. Fjölskyldan saman komin á heimili sínu á Akureyri. Frá vinstri, Girish meö soninn Geir, þá kemur Sigyn, og Anna með Anitu litlu. „Ég er fæddur og uppalinn í smábæ rétt utan við bæinn Pune, um 50 þúsund manna bæ suðaustur af Bombay sem er í vestur- hluta Indlands. Bærinn stendur í tvö þúsund metra hæð yfir sjávarmáli, þar er mikill gróður, vætusamt veður og hitinn er á bilinu 20-25 gráður á sumrin en getur farið niður í 10 gráður á veturna. Að vísu er þetta að byrja að breytast núna varðandi gróðurinn, því Bombay er að stækka svo mikið og skógarnir að hverfa." Girish er greinilega ljúft að segja okkur frá „móðurlandi“ sínu eins og hann kallar það, en Indverjar kalla land sitt móðurland á meðan íslendingar kalla land sitt föðurland. Bombay segir Girish vera með efnuðustu borgum Indlands. Hún er mikil samgöngu- borg vegna hafnarinnar og þar hafa mörg erlend iðnaðarfyrirtæki tekið sér bólfestu. Framleiddar eru mótorhjóla-skutlur í miklu magni, útvarpsframleiðsla er sömuleiðis mikil og hitabrúsaframleiðsla svo eitthvað sé nefnt. Það eru ekki aðeins íbúar Bombay sem njóta góðs af atvinnutækifærunum í Bombay, heldur einnig íbúar í nærliggjandi bæjum. Skrifaði frænda sínum bréf 6 ára gamall Girish kemur ekki frá stórri fjölskyldu á indverskan mælikvarða. Hann er annar tveggja bræðra, móðir hans var hjúkrunar- kona og ljósmóðir en faðir hans var lengst- um atvinnuhermaður í sjóher landsins. Fjöl- skyldan hafði það ágætt; hún var ekki talin meðal efnuðustu fjölskyldnanna og segir Girish að efnahagurinn hafi verið í meðal- lagi. Við báðum Girish að nefna okkur dæmi um eitthvað sem er frábrugðið í venjum Indverja annars vegar og Islendinga hins vegar. „Þegar ég var lítill byrjuðu börn skólagöngu sína þegar þau voru á fimmta aldursári. Nú hefur þetta breyst og börnin Sg, byrja sex ára gömul. Sem dæmi get ég sagt ykkur að árið 1985 fórum ég og konan mín í heimsókn til Indlands. Þá var sonur minn fjögurra ára en bróðursonur minn tæplega sex ára. Hann hafði aldrei séð Geir son minn en langaði til að skrifa honum bréf. Og þetta gerði hann aleinn, tók blað og penna og skrifaði honum nokkrar línur. Þetta þótti mér mjög sérstakt, að svona ungt barn settist niður og skrifaði bréf án aðstoð- ar. Ég tek það fram að hann er ekkert gáf- aðari en gengur og gerist með jafnaldra hans. Börn á þessum aldri á Indlandi læra rnikið og eins og krakkar á íslandi, læra þau mjög mikið af lögum til að syngja, jafnvel meira en krakkar á íslandi." Strangari uppeldisreglur Að sögn Girishar, hvetja indverskir foreldr- ar börn sín mjög hvað menntun snertir. Á heimili hans skapaðist t.d. sú hefð að börnin settust ekki að kvöldverðarborði fyrr en þau höfðu farið með ljóðabálk sem jafnast á við íslensku Hávamálin og þegar hann varð eldri, var margföldunartaflan þulin. „Þetta var auðvitað ekki skilyrði fyrir þvf að fá að borða en var hefð. Það giltu ekki mjög strangar uppeldisreglur hjá okkur, þótt þær hafi verið strangari en gengur og gerist á ís- landi. Ég held að þetta hafi m.a. átt sér skýringu í því að þegar foreldrar mínir voru ungir var Indland nýlenda Breta og þá var eina leiðin til að komast áfram sú að mennta sig. Þennan hugsunargang færðu þau yfir á börn sín og við vorum bæði hvattir til að mennta okkur og eins var útskýrt fyrir okk- ur hvers vegna það væri betra.“ Girish segir að þegar hann hafi verið að alast upp á Ind- landi, hafi það verið algengara meðal barna í millistétt að mennta sig. Börn efnaða fólksins gerðu ekki eins mikið af að ganga í skóla vegna þess einfaldlega að þau þurftu þess ekki. En Girish fannst það engin kvöð að ganga í skóla. „Þegar ég var kominn í 7.-8. bekk fannst mér mjög gaman í skólan- um. í bekknum mínum ríkti mikil keppni meðal nemendanna um hver stæði sig best á prófum. Bestu nemendurnir fengu líka mjög góða styrki frá skólunum svo það var að miklu að keppa.“ Notkun tóbaks og áfengis engin í prófi sem sambærilegt er gamla landspróf- inu á íslandi, náði Girish þeim árangri að verða efstur af 200 þúsund nemendum í heilu fylki. Hann fékk medalíu til minningar um árangurinn, en árið 1983 átti gamli skól- inn hans 100 ára afmæli og að því tilefni fengu afbragðs nemendur senda minningar- gjöf frá skólanum. Sú gjöf skipar heiðursess á heimili Girishar. Áfram héldum við að ræða menntamál og sagðist Girish m.a. ekki minnast þess að kennarar hafi farið í verkfall á meðan á skólagöngu hans stóð nema einu sinni á fjórtán árum. Þá segir hann sömuleiðis að á unglingsárum sínum hafi jafnaldrar hans ekki notað áfengi eða tóbak. „Það var eng- inn áhugi á þessu og það hugsaði enginn um þetta. Auðvitað hefur það hjálpað til að

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.