Dagur - 08.12.1989, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Föstudagur 8. desember 1989
fréttir
Bifreiðaskoðun íslands:
Bílafloti landsmanna minnkar
Bílum landsmanna hcfur fækk-
að um 2800 frá síðustu áramót-
um. Um 9800 bílar hafa vcrið
afskráðir á árinu en á sama
tíma verið nýskráðir um 7000
bílar. Fækkunin er því 2800
bílar.
Forsvarsmenn Bifreiðaskoðun-
ar íslands telja að bílum geti
fækkað nokkuð enn þar sem enn
leynist víða ónýtir bílar sem eig-
endur hafi ekki enn afskráð.
Um síðustu mánaðamót höfðu
74.600 bílar komið til aðal-
skoðunar. Aukaskoðanir voru
1300 og fjöldi endurskoðana
9500. í 2100 tilfellum fór endur-
skoðun fram á verkstæðum sem
viðurkenningu hafa hlotið til að
skoða bíla. JÓH
Osta- og smjörsalan:
MarkaðshlutfaU
fyrirtækisins nú 82,2%
flestir nota Smjörva á brauðið
Hagvangur kannaði notkun
feitmetis ofan á brauð sl. haust
fyrir Osta- og smjörsöluna og
kom í Ijós að markaðshlutfall
fyrirtækisins hefur enn aukist
og er nú orðið 82,2%. Þetta
kemur fram í nýjasta tölublaði
Mjólkurfrétta sem gefíð er út
af Osta- og smjörsölunni og
Samtökum afurðastöðva í
mjólkuriðnaði.
Þetta er í þriðja skipti sem
könnun af þessu tagi er gerð
meðal íslenskra neytenda og
reyndist hækkunin milli ára nú
nema 4,4%.
Hvað einstakar tegundir varð-
ar virðist sala á Smjöri hafa
minnkað, en sala á Smjörva og
Léttu og laggóðu hefur aukist.
Smjörvinn hefur þó vinninginn
en hann segjast 36,5% alltaf nota
á brauð.
í könnuninni var spurt hvort
neytendur hefðu prófað innflutt
smjörlíki og reyndust um 22%
hafa gert það. Aðspurðir um
hvers vegna það hefði ekki verið
gert áfram sögðu 58% að það
væri vont á bragðið, 6% töldu
gæðin ekki nægjanleg, 13% sögð-
ust ekki fá það þar sem þeir
gerðu innkaup sín og 8% kváðust
vilja styðja íslenskan iðnað.
Á verðlagsárinu 1988/89 jókst
sala á ostum og viðbiti um liðlega
5%. Sala á ostum jókst um
5,22% oj> sala á viðbiti um
5,41%. I framleiðslu þessarar
vöru fór alls um 45% af allri inn-
veginni mjólk verðlagsársins.
VG
Á stofnfund Landssamtnka psoriasis og exemsjúklinga mættu 14 manns en stofnfélagar voru skráðir rúmlega 20.
Húsavík:
Spoex-defld stofnuð
Deild í Spoex, fyrir Húsavík og
nágrenni, var stofnuð á fundi í
Snælandi í síðustu viku. Spoex
er landssamtök psoriasis og
exemsjúklinga. A stofnfund-
inn mættu 14 manns, en 22
stofnfélagar voru skráðir. í
stjórn deildarinnar voru
kjörin: Anna Ragnarsdóttir,
Jón Ásberg Salomonsson og
Sauðárkrókskirkja
bráðtmt 100 ára
- Hugmyndir um stækkun hennar kynntar
Safnaðarnefnd Sauðárkróks-
kirkju, ásamt sóknarpresti,
kynnti á blaðamannafundi sl.
miövikudag hugmyndir um
stækkun Sauðárkrókskirkju.
Um er að ræða lengingu henn-
ar til vcsturs.
Það kom fram í máli sr.
Hjálmars Jónssonar sóknarprests
að við um 30 athafnir á þessu ári
hefði komið í Ijós að kirkjan væri
of lítil. Einnig drægi úr áhuga
fólks á að sækja kirkjuna þegar
það vissi um þrengslin í henni.
Jón Karlsson formaður sóknar-
nefndar kynnti svo breytingarnar
sem í aðalatriðum verða þær að
kirkjuskipið sjálft verður lengt
um sem nemur 3.6 metrum. Við
þessa lengingu eykst sætafjöldinn
um rúmlega 100, úr 200 í rúmlega
300.
samkvæmt niðurstöðum hans er
heppilegast að lengja kirkjuna til
vesturs eins og áður hefur komið
fram.
Sóknarnefndin hefur samþykkt
þessar teikningar fyrir sitt leyti,
en næst á dagskrá er að leggja
málið fyrir safnaðarfund sem hef-
ur endanlegan ákvörðunarrétt.
Hann verður trúlega haldinn um
miðjan mánuðinn.
Sauðárkrókskirkja var vígð 18.
desember 1892 og er því komið
fast að eitthundrað ára afmæli
hcnnar. Yfirsmiður kirkjunnar
var Þorsteinn Sigurðsson scm
getið haföi sér gott orð vegna
kirkjubygginga sinna, en hann
byggði fjöldan allan af kirkjum í
Húnavatnssýslu og Skagafirði.
Þær lagfæringar sem nú standa
yfir á kirkjunni að utan koma til
með að taka lengri tíma en áætl-
að var í upphafi vegna þess að
komið hafa í ljós fleiri skemmdir
en í upphafi var talið. Fullvíst
þykir að þeim viðgerðum verði
ekki lokið fyrir áramót. Leifur
Blumenstein byggingafræðingur
hefur verið ráðgefandi við þessar
lagfæringar, en hann er sér-
fræðingur í viðhaldi gamalla
húsa. kj
Guðrún Björnsdóttir.
Anna sagði í samtali við Dag
að mikill áhugi virtist vera hjá
fólki að fara að vinna að hags-
munamálum félaga, en þá skorti
tilfinnanlega ýmsa aðstöðu.
Helstu markmið deildarinnar
eru; að stuðla að því að komið
verði upp göngudeild fyrir psori-
asis og exemsjúklinga á Húsavík;
að eiga og reka UVB ljósalampa
til útleigu: standa fyrir a.m.k.
einum fræðslufundi á ári um við-
komandi sjúkdóma; stuðla að því
að fá húðsjúkdómafræðing
a.m.k. einu sinni á ári að Heilsu-
gæslustöðinni á Húsavík og
sinna, eftir því sem við verður
komið, þörfum psoriasis og
exemsjúklinga á félagssvæðinu.
Líflegar umræður voru á fund-
inum og bar margt á góma. Rætt
var um að athuga vatn í borholu
sem boruð var á Húsavíkurhöfða
fyrir nokkrum árun, reyndist
vatnið í henni það steinefnaríkt
að það var ónothæft, en slíkt vatn
gæti hugsanlega hentað vel til
baða við húðsjúkdómum. Rætt
var um að reyna að fá aðstöðu í
Heilsugæslustöðinni, m.a. fyrir
ljósabekkinn sem deildin hefur
hug á að deildin, eða Heilsu-
gæslustöðin, eignist. Fram kom
að víða um land, þar sem stofn-
aðar hafa verið Spoex deildir,
hafa ýmis félög, t.d. Lions og
Kiwanis, styrkt Spoex deildirnar
og gefið þeim Ijósalampa. Þau lyf
sem psoriasissjúklingar þurfa að
nota eru mjög dýr og það mun
því skipta miklu, kosnaðarlega
séð, að sjúklingarnir hafi aðstöðu
til að nota ljósaböð frekar en
áburð. Á fundinum kom fram, að
þrem af fjórtán fundarmönnum,
hafði verið neitað um uppáskrift-
ir húðsjúkdómafræðings um
viðurkenningu á að þeir ættu rétt
á lyfjum frá tryggingakerfinu, og
töldu fundarmenn misbrest á að
sjúklingar fengu rétt sinn viður-
kenndan.
Ekki er vitað um tölu psoriasis-
sjúklinga á félagssvæðinu en talið
er að um 2% fólks fái psoriasis,
einhvertíma á ævinni, þannig að
40-50 manns á félagsvæðinu eru
líklega með þennan sjúkdóm.
Nýir félagar eru velkomnir í
deildina og geta þeir látið skrá sig
hjá Önnu í síma 41724 eða Jóni
Ásberg í síma 41771.
Golfklúbburinn og íþróttafélagið Þór:
Erindi ekki borist bæjarstjóm
- segir Sigurður J. Sigurðsson, forseti bæjarstjórnar
Eins og Dagur greindi frá í
fyrri viku hefur Golfklúbbur
Ákureyrar átt við fjárhags-
erfíðleika að stríða undanfarin
misseri. Skuldastaðan er erfið
vegna fyrst og fremst kostnað-
arsamra viðgerða á skála
klúbbsins að Jaðri. Að sögn
forseta bæjarstjórnar Akur-
eyrar hefur ekki borist erindi
til bæjarstjórnar vegna þessa
vanda.
Atvinnumálanefnd Akureyrar:
Viðrædur við flögur fyrirtæki
um úrvumslu á sjávarafurðum
- aðild erlends aðila að úrvinnsluverksmiðju?
Jón sagði að núverandi við-
gerðir á kirkjunni hefðu veriö
það umfangsmiklar að ákveðið
heföi verið í kjölfar þeirra að
leita eftir hugmyndum um stækk-
un hennar. Leitað var til Þor-
steins Gunnarssonar arkitekts og
DAGUR
AkurejTi
S96-2IB22
Norðlenskt dagblað
Stefnt er að fundi atvinnu-
málanefndar Akureyrar ineð
fulltrúum fyrirtækja sem tengj-
ast sjávarútvegi á Akureyri,
Samherja hf., Útgerðarfélagi
Akureyringa, KEA og Niður-
suðuverksmiðju K. Jónssonar
í dag, föstudag. Fundarcfnið er
úrvinnsla sjávarafurða á Akur-
eyri.
„Við höfum verið í nokkrar
vikur að undirbúa þetta mál en
nú liggja fyrir allar tiltækar upp-
lýsingar sem við munum leggja
fyrir fund með þessum aðilurn,"
sagði Hólmsteinn Hólmsteins-
son, formaður atvinnumála-
nefndar í samtali við Dag.
„Ég tel að þetta sé mjög
athyglisverður möguleiki sem
kanna verði gaumgæfilega. Okk-
ar hugmynd er að leita samstarfs
við erlendan aðila um málið. Við
gerum okkur þó grein fyrir að
ýmis ljón eru í veginum, s.s. tolla-
múrar o.fl. Hugsanlega myndi
þessi erlendi aðili kaupa fram-
leiðslu úrvinnsluverksmiðj’u og
ætti aðild að henni. Ég tek fram
að þetta er hugmynd sem á eftir
að ræða en fyrsta skrefið er fund-
ur með þessum fjórum aðilum
fyrir næstu helgi,“ sagði Hólm-
steinn. óþh
Sigurður J. Sigurðsson segir að
hins vegar hafi bæjarfulltrúar
fulla vitneskju um fjárhagsvanda
Golfklúbbsins. Þá segir hann
menn vita af því að íþróttafélagið
Þór hafi sem stendur ekki fjár-
hagslegt bolmagn til að halda
áfram byggingu félagsheimilisins
Hamars. „Þessir aðilar horfa til
bæjarins með úrlausn sinna mála
en formlegt erindi frá þeim hefur
mér vitanlega ekki borist," segir
Sigurður. óþh