Dagur - 08.12.1989, Blaðsíða 6

Dagur - 08.12.1989, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - Föstudagur 8. desember 1989 bœkur Ævars saga Kvarans Hjá Erni og Örlygi er komin út Ævars saga Kvarans skráð af Baldri Hermannssyni. Ævar R. Kvaran var um hálfrar aldar skeið einn dáðasti leikari Iandsins, söngvari, rithöfundur og skeleggur baráttumaður fyrir fagurri framsögn íslenskrar tungu. Hann er fjölhæfur maður, hefur víða komið við á langri ævi, kynnst mörgu fólki og gefið gaum að lífi þess og örlögum. Minning- ar hans leiftra af málsnilld og sjaldgæfri frásagnargleði. Ævar segir frá bernsku sinni í Bergstaðastræti, knattspyrnu- ferli, ástum og æskudögum, frama fullorðinsáranna, kjarn- miklu fólki, fyrsta miðilifundin- um, kynnum af Hafsteir>' miðli, lækningum að handan og hvernig það vildi til að hann ákvað í broddi lífsins að helga líf sitt öðrum. í sögu hans stíga ljóslifandi fram á sviðið frægir leikarar og listamenn, þjóðkunnir stórbokk- ar og stjórnmálamenn, gleði- menn og góðar konur, undir- heimafólk og smælingjar þjóðfé- lagsins. Sagan gleymir engum Bókaútgáfan Skuggsjá, Hafnar- firöi, hefur sent frá sér bókina Sagan gleymir engum eftir Ásgeir Jakobsson. I Sagan gleymir engum, segir Ásgeir sögur af sjómönnum og fiskiskipstjórum, sem voru miklir aflamenn og sjósóknarar á árun- um 1924-50, bátaformönnum, skútuskipstjórum og togaraskip- stjórum, að ógleymdri sögunni af skipherra landhelgisgæslunnar, sem Englendingar létu íslenskan forsætisráðherra reka, vegna þess að Englendingar þoldu hann ekki; það var enginn friður í landhelginni fyrir þessum skip- herra. Þeir menn, sem hér segir frá, eru allir gengnir til feðra sinna, en þóttu afreksmenn á sinni tíð, þegar aflaskipstjórar og formenn voru metnir mest allra manna af almenningi, sem vissi þá að björ^in kom úr sjónum. Fyrirheitna landið Út er komin hjá Máli og menn- ingu skáldsagan Fyrírheitna land- j'ð eftir Einar Kárason. Þessi saga er sjálfstætt fram- hald bókanna Þar sem djöflaeyj- an rís og Gulleyjan. Hún gerist nokkru síðar en þær, sögusviðið er ekki lengur Thulekampurinn heldur segir hér frá för til fyrir- heitna landsins, Ameríku. Sögu- maður er Mundi, sonur Dollíar, og með honum í för er bróðir hans, billjardséníið Bóbó og skáldið og sérvitringurinn Manni, sonur Fíu og Tóta. Þeir halda á slóðir frumherja rokksins, endur- lifa gömlu sögurnar, goðsagnirn- ar, fjörið og lætin. Þeir hitta um síðir gömlu hetjuna, Badda, sem býr í hjólhýsi með móður sinni Gógó. Þetta er saga um hetju- myndir, sársauka, draumóra og uppgjör. Þess má geta að nú er verið að gefa fyrri bækurnar tvær út í þýð- ingum á Norðurlöndum og hafa þær hlotið góðar viðtökur. Fyrírheitna landið er 234 bls. Guðjón Ketilsson hannaði kápu. Dulræn reynsla Bókaútgáfan Skuggsjá, Hafnar- firði, hefur sent frá sér bókina Dulræn reynsla Frásagnir af dul- skynjunum sjö íslenskra kvenna eftir Guönýju Þ. Magnúsdóttur. Áhugi á dulrænum fræðum hefur alltaf verið mikill. Hér segja sjö íslenskar konur frá reynslu sinni í þessum efnum, greina frá því sem fyrir þær hefur borið í lífinu á þessu sviði og ‘svara um leið ýmsum áleitnum spurningum. Hvað ber að gera, ef við finnum fyrir auknum dul- rænum skynjunum? Hvers vegna verða sumir miðlar en aðrir ekki? Hvernig líður þeim, sem sjá fyrir óhugnanlega atburði, eins og slys, áður en atburðirnir gerast? Höfum við lifað áður og þá ef til vill oft? Um framangreind atriði og ýmislegt fleira er fjallað í þess- ari bók. Dulræn reynsla er 192 bls. með myndum. (SLENSKIR ATHAFNAMENN III ÞEIR SETTUSVIPÁ ÖLDINA Þeir settu svip á öldina - íslenskir athafna- menn III Komið er út hjá Iðunni þriðja og síðasta bindi bókaflokksins Þeir settu svip á öldina - íslenskir athafnamenn III. Gils Guð- mundsson ritstýrði. Bókaflokkur þessi hefur hlotið mjög góðar viðtökur hjá lesendum, enda eru hér á ferðinni vandaðar, skemmtilegar og fjölskrúðugar frásagnir af mönnum og málefn- um fyrr á öldinni. Athafnamennirnir sem hér segir frá eru: Alexander Jóhann- esson, August Flygenring, Baldur Eyþórsson, Björn Kristjánsson, Geir G. Zoéga, Gunnar Ólafs- son, Haraldur Böðvarsson, Há- kon Bjarnason, Jón Gunnarsson, Loftur Bjamason, Magnús Th. S. Blöndal, Marsellíus Bernharðs- son, Ragnar Ólafsson, Vilhjálm- ur Þór, Þorsteinn Jónsson, Þor- steinn Guðmundsson og Þor- varður Þorvarðarson. Flestir voru þessir menn þjóð- kunnir á sinni tíð, og nöfn sumra eru enn alþekkt, en önnur láta ekki eins kunnuglega í eyrum. En allir eiga þeir sameiginlegt að hafa látið til sín taka á ýmsum sviðum þjóðlífsins, og lagt sitt af mörkum til mótunar íslensks nú- tímaþjóðfélags. Orrustuskipiö Bismarck - Frásögn skipverja sem komst lífs af úr viðureigninni Hjá Almenna bókafélaginu erl komin út bókin Orrustuskipið Bismarck en fyrr á árinu fannst flak þessa mikla skips. Sigling ormstuskipsins Bis- marcks frá Póllandi norður fyrir ísland og síðan suður vestan við landið til síns endanlega loka- staðar er einn af áhrifamestu við- burðum síðari heimsstyrjaldar og raunar sjóhernaðarins fyrr og síðar. Vestur af Reykjavík skaut Bismarck í kaf orrustuskipið Hood, stærsta og best búna skip breska flotahs og heyrðust drun- urnar frá þeirri viðureign til Reykjavíkur. Síðan sendu Bretar 32 herskip á vettvang ásamt flug- vélum til þess að ráða niðurlög- um þessa stærsta herskips verald- ar. Það tókst að lokum og mun- aði þá hársbreidd að Bismarck slyppi til hafnar í Brest á Bret- agneskaga, sem Þjóðverjar réðu. Af 2200 manna áhöfn komust 115 menn lífs af úr viðureignini. Um 40 ámm seinna tók einn þeirra, von Múllenheim - Rech- berg barón, foringi á skipinu, sér fyrir hendur að rita sögu þessarar stórbrotnu siglingar. Þýðandi bókarinnar er Halldór Vilhjálmsson. ---------------j Þytur í laufi Bókaútgáfan Örn og Örlygur hefur gefið út eitt af þekktustu listaverkum sígildra barnabók- mennta, þ.e.a.s. bókina Þytur í laufi eftir Kenneth Grahame. Mörg íslensk börn munu kann- ast við sögupersónur eins og Molda moldvörpu, Rabba rottu, Fúsa frosk og fleiri dýr í Villi- skógi úr hinum vinsælu sjón- varpsþáttum sem báru sama nafn og bókin. Á hverri blaðsíðu bókarinnar eru stórar litmyndir. Þær teiknaði Rene Cloke. Þorbjörg Jónsdóttir íslenskaði. Hvíslandi lundurinn Hvíslandi lundurinn nefnist nýjasta skáldsaga Söru Hylton. Fyrsta bók Söru Hylton, sem þýdd var á íslensku, Dumbrauði fálkinn, kom út fyrir síðustu jól og naut þegar mikilla vinsælda. Óhætt er að fullyrða að í þessari nýju bók höfundar er viðburða- rík atburðarás ekki síður spenn- andi en í hinni fyrri. Ég heiti ísbjörg Ég er ljón Komin er út hjá Iðunni ný skáld- saga eftir Vigdísi Grímsdóttur. Ég heiti ísbjörg Ég erljón nefnist hún. Vigdís Grímsdóttir er meðal okkar fremstu samtímahöfunda. Hún vakti fyrst á sér athygli með smásagnasöfnum sínum Tíu myndir úr lífi þínu og Eldur og regn, og síðan með skáldsögunni Kaldaljós sem út kom fyrir tveimur árum. í þessari nýju bók Vigdísar er sögð óvenjuleg saga þar sem áhrifaríkur frásagnarstíll höfund- ar nýtur sxn til fulls. Ung stúlka sem ratað hefur í ógæfu bíður dóms. Á tólf stundum rekur hún sögu sína fyrir lögfræðingi og um leið fær lesandinn að kynnast því stig af stigi hvaða áhrifavaldar í lífi hennar ráða ferðinni, hver viðbrögð hennar við heiminum eru, hvað veldur því að hún verð- ur viðskila við samfélag manna, hver glæpur hennar er. Iifsþræðir Út er komin verðlaunaskáldsag- an Lífsþræðir, eftir Sigríði Gunn- laugsdóttur. Þetta er fyrsta bók höfundar en áður hefur birst eftir hana smásaga í safninu Haukur í horni. Sigríður hlaut 1. verðlaun í smásagnasamkeppni IOGT fyrir þessa athyglisverðu sögu. I umsögn dómnefndar var lögð áhersla á frumlegan stíl og já- kvætt lífsviðhorf höfundar. í kynningu útgefanda segir m.a.: ,,„Átturnar“ voru þær kall- aðar, átta skólasystur á Laugar- vatni. Samheldinn hópur en leið- ir skildu eftir stúdentspróf. Hver hélt í sína átt. Síðan eru liðin 20 ár. Ein úr hópnum býður hinum heim. Minningar vakna. Ýmis- legt hefur á daga drifið; margt farið öðruvísi en ætlað var; ann- að eins og að var stefnt. Það er tilhlökkunarefni að hittast. Samt reynist sumum það sárt. Lífs- þræðir eru stundum einkennilega ofnir . . .“ Bókin er 190 bláðsíður að stærð. Útgefandi er Æskan. Og enn mælti hann - 20 ræður og greinar eftir Finnboga Guðmundsson 'Bókaútgáfan Skuggsjá, Hafnar- firði, hefur sent frá sér bókina Og enn mælti hann - 20 ræður og greinar eftir Finnboga Guð- mundsson landsbókavörð. Eftir Finnboga Guðnxundsson landsbókavörð hafa áður komið út tvö söfn með ræðum og grein- um eftir hann, Að vestan og heiman 1967 og Orð og dæmi 1983. í þessari nýju bók hans eru svo tuttugu ræðui og greinar, sem flestar eru frá seinustu árum. I bókinni er fjallað um hin margvíslegustu efni, allt frá nýársdagshugleiðingu í Hafnar- fjarðarkirkju til handknattleiks á fimmta tugnum og frásagnar af ferð til Albaníu. Þá er brúð- hjónaminni, minni kvenna, erindi um Þingvelli, Þjóðarbók- hlöðu, Jón Eiríksson, Passíu- sálmahandrit Hallgríms Péturs- sonar og sitthvað fleira. Og enn mælti hann - 20 ræður og greinar er 144 bls. að stærð.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.