Dagur - 08.12.1989, Blaðsíða 7

Dagur - 08.12.1989, Blaðsíða 7
Föstudagur 8. desember 1989 - DAGUR - 7 hvað er að gerast Soroptimistaklúbbur Akureyrar heldur kökubasar í Lóni: Fáir vita eitthvað um starf- semi SoroptiimstaJdúbba Soroptimistaklúbbur Akureyrar heldur basar í Lóni laugardaginn 9. des. kl. 14.00. Þar verða seldar kökur, fagurlega skreytt kökuhús og servíettur. Margir vita lítið um starfsemi Soroptimistaklúbba á íslandi en fyrsti klúbburinn var stofanður í Reykjavík fyrir 30 árum. Soropt- imistaklúbbur Akureyrar var stofnaður 1982 og fyrsti formaður var Ása Helgadóttir. Soroptim- istaklúbbar eru starfsgreina- klúbbar sem vinna að eftirfarandi markmiðum: 1. Að gera miklar kröfur til sið- gæðis í athafnalífi. 2. Að vinna að mannréttindum og einkum að því að auka rétt- indi konunnar. 3. Að efla vináttu og einingu meðal Soroptimista allra landa. 4. Að auka hjálpsemi og skilning meðal manna. 5. Að stuðla að auknum skiln- ingi og vináttu á alþjóðavett- vangi. Frá árinu 1984 hefur það verið aðalverkefni klúbbsystra að færa öldruðum íbúum Akureyrarbæj- ar vikulega bækur og snældur frá Amtsbókasafninu. Þessi starf- semi hefur aukist mjög og er svo komið að tvær systur fara viku- lega með þessar sendingar og get- ur hver ferð tekið nokkrar klukkustundir. Fólk virðist mjög þakklátt fyrir þessa þjónustu. Fyrir jólin fylgir kökusending bókunum sem jólaglaðningur frá systrunum. í febrúar síðastliðn- um var ákveðið að gefa þjónustu- Klúhhsystur skreyta kökuhús fyrir basarinn á morgun. teknir í notkun. hópi aldraða nokkra öryggis- hnappa og hafa þeir þegar verið Bæjarbúar! Komið og kaupið kökuhús handa börnunum um leið og þið styrkið gott málefni. Möðruvallakjallari: Landsbyggðarfundur Stólpa í dag mun Stólpi, félag lands- byggðarsinnaðra menntskælinga í MA standa fyrir opnum fundi í Möðruvallakjallara á Akureyri. Verða þar flutt nokkur framsögu- erindi en að þeim loknum frjálsar umræður. Félagið var stofnað árið 1985 í Skákfélag Akureyrar: Hraðskákmót og Bikarmót Hausthraðskákmót Skákfélags Akureyrar verður haldið í félags- heimilinu föstudagskvöldið 8. desember og hefst það kl. 20. Þetta er nokkurs konar framhald af Haustmótinu. Á sunnudaginn hefst Bikarmót Skákfélagsins. Það er með útsláttarfyrirkomulagi þannig að keppandi er úr leik eftir að hafa tapað þremur vinningum. Þetta eru hálftíma skákir og tekur keppnin þrjá daga, nk. sunnu- dag, föstudaginn 15. og sunnu- daginn 17. desember. þeim tilgangi að efla umræðu um landsbyggðarmál. Félagar eru nú um 50 talsins en stofnandi félags- ins, Þorgrímur Daníelsson, mun koma í heimsókn á fundinn og halda fyrirlestur um landsbyggð- armál almennt. Þorgrímur er félagi í FUS og mun að líkindum ræða breytta stefnu Sjálfstæðis- flokksins í landsbyggðarmálum. Auk hans munu félagar úr Sam- tökum um jafnrétti milli lands- hluta og félagar úr Verði halda fyrirlestra og taka þátt í umræð- um. Allir bæjarbúar eru hvattir til að mæta á fundinn og láta skoðanir sínar í ljós. Nemendasýning hjá Abce Kveikt á jólatrénu á Ráðhústorgi Á morgun laugardag, verður kveikt á jóltrénu sem Akureyr- ingar hafa fengið að gjöf frá vina- bænum Randers í Danmörku. Tréð er 10 metra hátt og verður staðsett á Ráðhústorgi. Athöfnin hefst kl. 15.45 með því að Blásarasveit Tónlistarskól- ans leikur jólalög, flutt verða ávörp og loks verður kveikt á trénu. Þá hefur það spurst út að fyrstu jólasveinarnir stefni að því að vera komnir til byggða á þess- um tíma og ætla þeir að syngja og dansa í kringum jólatréð með gestum og gangandi. Á morgun, laugardaginn 9. des- ember, verður hin árlega des- embersýning hjá nemendum í Dansstúdíói Alice. Allir dansnemendur skólans munu koma fram á þessari fjöl- breyttu danssýningu, en yngstu þátttakendur í henni eru aðeins 4 ára gamlir. Forráðamenn Dansstúdíós Alice hvetja alla til að koma og fylgjast með börnunum og ungl- ingunum leika listir sínar. Sýningin verður sem fyrr segir á morgunn í íþróttaskemmunni á Akureyri og hefst kl. 18.00 FRAMSÓKNARMENN AKUREYRI OPIÐ HÚS í Hafnarstræti 90 laugardaginn 9. desember frá ki. 16.00. Veitingar. Framsóknarfélag Akureyrar. MISYNING í Sjallanum föstudaginn 8. desember kl. 22.00 Sálin hans Jóns míns leikur fyrir dansi Ess • Fan Unique • Fínar línur JMJ • Perfect • Sportbúðin • Tara Sfatöút* Opnunartími " desember _____venju Laugardagur 9. desember kl. 10-18. Laugardagur 16. desember kl. 10-22. Fimmtudagur 21. desember kl. 09-22. Þorláksmessa 23. desember kl. 10-23. Kaupmannafélag Akureyrar. Kaupmannafélag Akureyrar

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.