Dagur - 08.12.1989, Blaðsíða 11
Föstudagur 8. desember 1989 - DAGUR - 11
Erlingur Davíðsson.
ingu þáttarins og hafði í hótun-
um. Svona fór um sjóferð þá.
„Líkar því ver sem ég les
þáttinn oftar!“
„í annað sinn leitaði ég fanga í
Kasthvammi í Laxárdal og tók
upp á segulband viðtal við Gunn-
laug Tr. Gunnarsson bónda þar.
Ég ritaði svo þáttinn í rólegheit-
um og sendi honum til umsagnar.
Nokkru síðar hringdi ég austur
og spurði Gunnlaug, hvernig
honum hefði líkað. Hann svar-
aði:
„Illa og því verr sem ég les
þáttinn oftar.“
Við Gunnlaugur fórum síðar
yfir þáttinn í félagi og ég hrein-
skrifaði hann og bjó til prentun-
ar. Hann birtist í áttundu bók
bókaflokksins, og mér þótti hann
góður. Gunnlaugur var á annarri
skoðun þangað til áttunda bókin
var komin út og honum fóru að
berast þakkir í sendibréfum og
símleiðis. Gunnlaugur í Kast-
hvammi var skemmtilega hrein-
skilinn maður.“
- Hver voru viðbrögð almennra
lesenda og ritdómara?
„Viðbrögðin hafa m.a. verið
þau, að almenningur hefur tekið
hverri bók opnum örmum og
vitna söluskýrslurnar um það.
Sjálfur segir Björn Eiríksson
bókaútgefandi, að „Aldnir hafa
orðið“ og aðrar bækur, sem ég
hef sett saman, hafi löngum verið
kjarninn í bókaútgáfu sinni. Rit-
dómarar hafa helst fundið bóka-
flokknum það til foráttu, að ég
sneiði um of hjá einkalífi viðmæl-
enda minna. Þeir virðast ekki all-
ir hafa áttað sig á því, að flest
venjulegt fólk, m.a. viðmælendur
mínir, eiga sér leyndardóma í
hjarta, þar sem jafnan er komið
að lokuðum dyrum. Hér skilur á
milli frásagna lifandi fólks og
skáldsagnahöfundanna, sem
velta sér upp úr viðkvæmasta
einkalífi sögupersóna sinna.“
- Þú ert búinn að skrifa marg-
ar bækur?
„Þær eru rúmlega þrjátíu tals-
ins og Skjaldborg hefur gefið þær
flestar út. Auk „Aldnir hafa
orðið“ skrifaði ég sex bækur, sem
saman áttu í flokki og bera nafn-
ið „Með reistan makka“. Þá má
nefna ævisögurnar, Konuna frá
| Vínarborg, Jóa norska, Nóa
Ibátasmið og Gaman að lifa, ævi-
sögu Jóhanns Ögmundssonar.
Árið 1979 tók ég saman bókina
Miðilshendur Einars á Einars-
stöðum. Hún varð metsölubók
það árið og hefur verið endur-
prentuð tvisvar sinnum. Þá eru
ótaldar bækurnar Furður og
fyrirbæri, Undir fjögur augu og
Hildur og ævintýri hennar.“
„Miðilshendur Einars“
auðveldust
- Hvaða bók þótti þér skemmti-
legast að skrifa?
„Bókin, sem ég er að skrifa er
alltaf skemmtilegust og hefur
mér ætíð fundist það. Kannski
var fyrsta bókin, sem ég skrifaði,
skemmtilegust af þeim öllum en
það var „Konan frá Vínarborg",
ævisaga listakonunnar Maríu
Bayer Juttner, sem var hámennt-
uð tónlistarkona frá Vín, en
dvaldi hér urn skeið á Akureyri
og kenndi við Tónlistarskólann.
Ævi þessarar konu var einkar
viðburðarík og það var skemmti-
legt að rita ævisöguna. Mér finnst
ánægjulegt að hafa ritað þessa
bók.
En auðveldasta bókin var
„Miðilshendur Einars á Einars-
stöðum" og vandaði ég þó til
hennar eftir því sem mér var
framast unnt. En það var eins og
allt kæmi upp í hendurnar á mér
á meðan ég vann við þá bók. Auk
þess ritaði séra Sigurður Haukur
Guðjónsson ágætan formála."
- Ertu þá loksins sestur í helg-
an stein, eða hefurðu ný verkefni
í huga?
„Það er rosknum mönnum
varla ráðlegt að hafa miklar fyrir-
ætlanir á prjónunum. Auk þess
fylgir sú hætta háum aldri, að
menn finna ekki eins vel andlega
hrörnun og önnur algeng mein
ellinnar. Ég þarf sjálfsagt að gæta
mín á því fyrirbæri, ekki síður en
aðrir. Síðan ég lauk við átjándu
bókina í „Aldnir hafa orðið" nú í
sumar, hefi ég hvílt mig frá rit-
störfum og líkar vel. Mér þykir
líklegt, að framhaldið verði í
samræmi við það.“
Betra en ekki að
bókaflokkurinn varð til
- Ertu ánægður með bókaflokk-
inn, Aldnir hafa orðið?
„í hvert sinn er ég skilaði
handritum að nýrri bók, gladdist
ég yfir bókarlokum og fannst
þungu fargi af mér létt. En með
hvern bókarkafla og hverja bók
er ég misjafnlega ánægður og
aldrei fyllilega. Eg veit, að oftast
eða jafnvel alltaf hefði ég getað
gert betur, með meiri þolinmæði
og vandaðri vinnu. Mér þykir þó
betra en ekki, að bókaflokkur-
inn varð til, auk þess sem vinnan
við hann gaf mér gleðistundir,
kunningja og vini. Nokkra þætti í
bókaflokknum rituðu sögumenn
sjálfir. Hinir eru tveggja manna
verk og allir eru þeir færðir til
bókar í þeirri von, að þeir verði
einhverjum að gagni þegar fram
líðít stundir."
Með þeim orðum kveðjum við
heiðursmanninn Erling Davíðs-
son að sinni. Þótt bækurnar í
bókaflokknum „Aldnir hafa
orðið“ verði ekki fleiri, hefur
Erlingur ekki sagt sitt síðasta orð
á ritvellinum, ef að líkum lætur.
BB
„Fyrir hvert eitt selt jólatré, komuin við um 50 plöntmn í jörð,“ segir Hall-
grímur Indriðason hjá Gróðrastöðinni í Kjarnaskógi.
um 1500-2000 tré fyrir þessi jól.
„Við reynum að eiga tré alveg
fram undir jólin, en í fyrra seld-
ust trén t.d. upp hjá okkur fyrri-
part dags á Þorláksmessu. Okkur
þótti það mjög leiðinlegt en nú
erum við undir þetta búnir og
erum með fleiri tré.“ Auk jóla-
trésölunnar verða seld um 3-4
tonn af grenigreinum. Allur
ágóði af sölu trjáa og greina
rennur til Skógræktarfélags
Eyfirðinga til áframhaldandi
skógræktar. „Fyrir hvert eitt selt
jólatré, komum við um 50 plönt-
um í jörð,“ sagði Hallgrímur.
Um leið og jólatré er keypt er
það styrkur við gott málefni. VG
Dansleikur
í Lóni laugardaginn
9. desember kl. 22-03
★ Allir velkomnir.
Harmonikuunnendur.
ÚTBOÐ
Stjórn verkamannabústaða á Akureyri óskar
eftir tilboðum í byggingu einbýlishúss (73,2
fm brúttó) við Ægisgötu 30 á Akureyri.
Útboðsgögn verða afhent á Verkfræðistofu Norður-
lands hf. Hofsbót 4, Akureyri, föstudaginn 8. des-
ember frá kl. 15.00 gegn 10 þúsund kr. skilatrygg-
ingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað, mánudaginn 18.
desember kl. 14.00.
Ný verslun!
Opnum nýja raftækja-
verslun á morgun laugar-
daginn 9. desember, við
Hvannavelli.
/VVTT
MORÐURLJÓS
v/Hvannavelli
sími 96-22411
Laugardagur kl.14:25
49. LEIKVIKA- 9. des. 1989 1 X 2
Lelkur 1 B.Dortmund - W.Bremen
Leikur 2 Charlton - Millwali
Leikur 3 Covfentry - Arsenal
Leikur 4 Liverpool - AstonVilla
Leikur 5 Man. Utd. - C. Palace
Leikur 6 Nott. For. - Norwich
Leikur 7 Q.P.R. - Chelsea
Leikur 8 Sheff. Wed. - Luton
Leikur 9 Southampton - Man. City
Leikur 10 Tottenham - Everton
LeikurH Wimbledon - Derby
Leikur 12 Ipswich - Sunderland
Símsvari hjá getraunum er 91-84590 og -8/ LUKKULÍNAN s. 991002 Munið hópleikinn !! I464.
Akureyringar
Ferskar
fréttir með
morgunkaffinu
Áskriftar'SSr 96-24222