Dagur - 08.12.1989, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - Föstudagur 8. desember 1989
Hjá okkur er lágt vöruverð
og gott að versla
Tilboð á frosnu lambakjöti
Mörg önnur tilboð í gangi til dæmis:
Pepsí, 2 lítrar 110 kr., franskbrauð 93 kr.,
mjólk 2 lítrar 135 kr. og fl. og fl.
Nýtt greiðslukortatímabil hefst 11. desember.
Versluniri
_ ÞOEPIB
Móasíðu 1 • Sími 27755.
Opið alla daga vikunnar frá kl. 8-23.30.
Heimsendingarþjónusta.
10%
Ljósmyndasýningar á vegum
Minjasafhsins á Akureyri
Minjasafnið á Akureyri stend-
ur fyrir sýningum á gömlum
ljósmyndum á tveimur stöðum
í bænum, á Dvalarheimilinu
Hlíð og í Amtsbókasafninu.
Tilgangurinn er að fá fólk til að
bera kennsl á einstaklinga á
gömlum ljósmyndum í eigu
safnsins.
Hörður Geirsson, starfsmaður
Minjasafnins, hefur frá vorinu
1988 unnið að skráningu ljós-
myndasafns Hallgríms Einars-
sonar og sona. Þetta er viðamikið
verk og tekur það mörg ár. Svo
dæmi sé tekið voru sýndar þrjú
þúsund myndir frá vori 1987 til
vors 1988, og af þeim hefur verið
borin kennsl á um sextán hundr-
uð Ijósmyndir.
„Til að þetta skili árangri þarf
samvinnu fjölda fólks, en þær
upplýsingar sem fást eru grunn-
skráning á myndum. Seinna meir
er ætlunin að tölvuskrá allar upp-
lýsingar, og mætti nota þær t.d.
til ættfræðirannsókna, útgáfu-
starfsemi o.s.frv.," segir Hörður.
Með sýningu mynda í Hlíð
hafa eldri borgarar greiðan
aðgang að þeim, en þetta fram-
tak Minjasafnins hefur fallið í
góðan jarðveg á dvalarheimilinu
sem annars staðar þar sem eftir
hefur verið leitað.
Mjög margt fólk hefur gefið
Minjasafninu gamlar ljósmyndir,
og er ástæða til að hvetja alla sem
þurfa að losna við gamlar
myndir, filmur eða glerplötur að
hafa samband við safnið. „Slíkar
sögulegar minjar eru vel varð-
veittar í safninu, það er hinn rétti
staður til framtíðarvarðveislu,“
segir Hörður Geirsson. EHB
jólaafsláttur til jóla
Tvískiptir útigallar á börn.
Stærðir 100-130. Verð kr. 5.550,-
Fóðraðar gallabuxur á börn.
Stærðir 4-14. Verð kr. 2.240,-
Skíðahanskar og lúffur.
Barnajogginggallar.
Stærðir 104-128. Verð frá kr. 1.350,-
Drengja-, dömu- og
herrapeysur.
Ath! Nýtt greiðslukortatimabil hefst 8. des.
w
• m
EYFJORÐ
Hjalteyrargötu 4 • Sími 22275
Jólavörur
á jólaverði!
Bökunarvörur,
niðursoðið grænmeti
frá K. Jónsson,
niðursoðnir ávextir,
jólakonfekt í úrvali,
jólahangikjöt og
jólasteikur frá
Kjötiðnaðarstöð KEA.
+ Frábært verð *
Opið á laugardaginn
frá kl. 10-18
Lítið inn
það kostar ekkert
Kjörbúð KEA
Brekkugötu 1
Tvu dæmi um óþekktar Ijósmyndir. Þeir sem þekkja inennina á þcssum myndum vinsamlegast hafi samband við
Minjasafnið í síma 24162.
Græðum ísland
Á síðasta ári kom út vandað
afmælisrit um landgræðslumál á
íslandi í tilefni af því að 80 ár
voru liðin frá stofnun Sand-
græðslu ríkisins. í því riti voru
um 30 vel myndskreyttar greinar.
Nú virðist Landgræðsla ríkisins
hafa ákveðið að halda þessari
útgáfu áfram, því út er komin
árbók númer 2, Árbók Land-
græðslunnr 1988, og nefnist hún
eins og afmælisritið Græðum ís-
land. Þessi árbók er í sama formi
og sú fyrri, 190 síðna, prýdd
fjölda mynda bæði litprentaðra
og svarthvítra á úrvalspappír og
er kápan einig í lit með stífum
spjöldum. Meðal annars vegna
útlits og frágangs á þetta rit frem-
ur skilið að nefnast árbók en
ársrit. Einnig gerir efnið kröfu til
bókarnafnsins vegna þess að í
henni er ekki einungis fjallað um
Sundáhugamenn!
Númer Sundfélagsins
Óðins í getraunum er
597
Sundfélagið Óðinn.
starfsemi Landgræðslunnar á ár-
inu 1988 heldur eru þarna einnig
birtar margar greinar bæði al-
menns og vísindalegs eðlis, en
allt auðlesið og auðskilið leik-
mönnum. Til dæmis um áhuga-
verðar greinar sem sérhver hugs-
andi og fróðleiksfús gróður-
verndarmaður hefði ánægju af að
lesa má nefna: Hugleiðingar um
fornleifar í uppsveitum Árnes-
sýslu, Afréttarnotkun í Biskups-
tungum, Kirkjan í sandinum
(Strandakirkja), Stutt saga úr
Svartártorfum (við Hvítárvatn)
og Sambúð lands og þjóðar. f>á
eru faglegar greinar um land-
græðslustarfið, um jarðvegseyð-
ingu, landgræðsluskóga, birki-
skóga og belgjurtir til land-
græðslu. Bókin ætti að gagnast
mönnum bæði til fræðslu og
ánægju. Eftir lestur margra
greinanna verða mönnum bæði
ljósari saga gróðurs á íslandi og
störf og markmið þeirra stofnana
og manna sem vinna að gróður-
vernd og landgræðslu. Mér finnst
þó vanta í bókina meiri upplýs-
ingar urn starfsemi Landgræðslu
ríkisins svo sem upplýsingar um
það hve mikið fjármagn fer til
hvers þáttar starfseminnar árlega
og hve margir starfsmenn vinna
þar.
Þessi árbók fjallar nokkuð um
gróður og landgræðslustarf í
Árnessýslu auk almennra við-
fangsefna. Mun vera hugmyndin
að taka þannig fyrir önnur héruð
í næstu árbókum.
Ritstjórar árbókarinnar 1988
eru Andrés Arnalds og Anna
Guðrún Þórhallsdóttir. Hafa þau
unnið gott verk við að safna efni
og koma bókinni í aðlaðandi
búning. Þetta glæsilega ritverk,
sem kostar 1.500 kr. gæti vel
sómt sér sent gjöf til góðra vina
sem unna íslenskri náttúru.
Græðum ísland er seld í af-
greiðslu Búnaðarsambands Eyja-
fjarðar og hjá Landgræðslunni í
síma 98-75088.
Bjarni E. Guöleifsson.