Dagur - 08.12.1989, Side 13
Föstudagur 8. desember 1989 - DAGUR - 13
Akureyringur búsettur í Danmörku sendir frá sér sólóplötu:
Eigiii lög o g þekkt lög eftir
Valgeir, Gunnar P. og Pétur S.
Kona er nefnd Gunnlaug
Hanna Ragnarsdóttir. Hún er
fædd og uppalin á Akureyri en
hefur til fjölda ára búiö í Dan-
mörku meö eiginmanni og
börnum. Hún er ein af þeim
sem hefur lengi átt sér draum
og lætur hann nú loks rætast.
Draumurinn var að gefa út eig-
in plötu og hann varð að veru-
leika á dögunum. A plötunni
eða geisladiskinum og kassett-
unni, sem heitir einfaldlega
„Draumurinn“, eru tíu lög eft-
ir Gunnlaugu eða Gullý,
Valgeir Guðjónsson, Gunnar
Þórðarson og Pétur Sigurðs-
son. Textar eru á dönsku og
íslensku.
í samtali við Dag sagði Gunn-
laug að hún hefði lengi haft mikla
unun af tónlist og á Akureyri
forðum daga hefði hún m.a.
sungið í Kór Barnaskóla Akur-
eyrar undir stjórn Birgis Helga-
sonar og hjá Jakobi Tryggvasyni í
Gígjunum. Síðan lá leiðin til
Danmerkur og þar hefur hún
haldið áfram að grípa í gítarinn
og skemmta sér og öðrum. Á
góðum stundum scgist hún setj-
ast niður og semja lög og nokkur
þeirra séu á nýja geisladiskinum
„Draumnum".
Á honum eru sem fyrr segir tíu
lög. Gunnlaug Hanna á þrjú lög
við texta Davíðs Stefánssonar,
Dráttarhestar, Fóstra mín og
Hátíð. Þá hefur hún gert lag við
texta Jónasar Hallgrímssonar,
Móðurást. Hin þrjú lög Gunn-
laugar Hönnu eru með dönskum
texta, Gabriel, En foraarsdag i
maj og Stemmningsbilleder. Þá
er á plötunni þekkt lag Valgeirs
Guðjónssonar, Hægt og hljótt,
við texta Gunnlaugar Hönnu
Vinteraften paa kroen. Lag Pét-
urs Sigurðssonar, Erla góða Erla
heitir í meðförum Gunnlaugar
Vtæsuággr, Guiíy Hamrn Ragnarsdomrjív
SxpíA>r^:{M>t<teKr medCD og hmmeMnd
Ik' ttðíVMV a» sf !&<««» SMItt. ,;Sft
ik; vfítt' ;f «Víi-r P.íj-iKáViw.*h,Sfcw!v>:.v-::l íxwÁ ;.:;u.i. Vjv.
VMK 'ÍÍKi'KUí:; t>5> >•?.; yvfcí ,l>:»ivx<> a* |ííshu » ,
e littd smi «jr íssm I öfc <><««?; <f • íu-
lí'CÍK-sxs,;) f-usás;.;: {.Vv.tWXO' í,,o> i
Ástf.; K.n: Oe<Uf>. J.nu Mvi* :i\»<U;x:vfi::(;;<;,
f5tf 0> <>í Í.U4IO-
: .fí >V P |
>>.«»): St').
ftWWSX «' ' {>»<■;«•
1' ÍWfoiif <!t^:Vt5SS>. Oit
:<>'• ifta',V«SfifSÍ-isv ftu
Cf>:<0>; 'kJc.r-tí f,«
litkskst kk->' ;;v>0.
trv-i <-t vctt ,'t; i p; > k V
!:(■ 'SftiS'tXM > (fcitttv
: X'l,■>',•>>. > s\;t- "' ,\ t
C>o!VK'.:V t t>C*;t > V.-tv'víXt
'V i'.-x C>k >'; A-X'-tJ StAitt-
(•síttfttsJ iw. f"'»<$?.v«:
S! >p'S»>i,\ I' •! t'l: si ,\<' < .
> Xtf '>fj>' í! x's 'ftttc x»:< ot'
ftx <S.\ , littO'C» xt'fk-o.o'
!:;•>: ;',> it'tti >s;.\<tf > &,','>»
Blaðaúrklippa úr Ugvavisen Svendborg í Daninörku 22. nóvembcr sl. þar
sem greint er frá nýútkominni plötu Gunnlaugar Hönnu Ragnarsdóttur.
Hönnu Stína söde Stína. Þá er
ógetið lags eftir Gunnar Þórðar-
son við texta Gunnlaugar Hönnu
og Lone Jensen Til dig min ven.
Um undirleik á plötunni sérfimm
manna hljómsveit skipuð dönsk-
um hljómlistarmönnum og bak-
raddir eru í höndum Gunnlaugar,
Henrik Elster og Vivi Jacobsen.
Söngkonan akureyrska segist
vera ánægö með þær viðtökur
sem „Draumurinn" hefur fengið.
Hún segir það veröa að ráðast
hversu mikilli sölu hann nær í
Danmörku og á íslandi, ef salan
verði góð sé aldrei að vita nema
ný plata líti dagsins Ijós á nýju
ári. óþh
Fulltrúafundur Landssambandsins gegn áfengisbölinu:
Ávarp til íslendinga
„Fulltrúafundur Landssambands-
ins gegn áfengisbölinu haldinn
18. nóv. 1989 hvetur fólk til íhug-
unar um hvernig hefja megi sókn
til bættra lífskjara og heilbrigðari
og hamingjurfkari lífshátta.
Margt í lífsstíl okkr leiðir til
mikilla erfiðleika, veldur heilsu-
leysi og margþættum félagslegum
vanda. „Hver er sinnar gæfu
smiður.“
Einn stærsti þátturinn í þessum
vanda er hin almenna neysla
áfengis og annarra efna sem
valda vímu. Hún skerðir sjálfs-
stjórn fólks og þá eru oft unnin
ofbeldisverk í einni eða annarri
mynd, lög brotin og fleira mætti
telja sem unnið er í skjóli vím-
unnar. Gegn henni verður að rísa
og almennri neyslu þeirra efna
sem henni valda. Til þess þarf
bæði kjark og þor. Árangurinn
verður ekki mikill með því að
sitja hjá og ætla öðrum verkið.
Hver og einn verður að takast á
við sjálfan sig, losa sig úr viðjum
vímunnar og síðan í fullri ein-
lægni og af heilindum að aðstoða
aðra. Þá er nauðsynlegt að
stjórnvöld á öllum stigum þjóð-
lífsins séu með og veiti virkan
stuðning í þessum efnum og frá
þeim þarf að koma markviss for-
ysta.
íslenska þjóðin hefur orðið
fyrir þeirri ógæfu að nú stefnir í
mjög aukna áfengisneyslu og það
þrátt fyrir rýrnandi kaupmátt
fólks. Afleiðingarnar láta ekki
heldur á sér standa. Ölvunarakst-
ur og ofbeldisverk aukast nú
mjög.
Það verður að snúa vörn í
sókn. Fólk verður að gera það
upp við sig hvort vímunni er ekki
fórnandi fyrir nýjan og betri
lífsstíl. Hverjir eru tilbúnir? Er
ég tilbúin(n)? Ert þú tilbúin(n)?
Vilji menn hjálpa geta þeir það
aðeins með því að byrja á sér
sjálfum. Annað er blekking og
látalæti.
íslendingar! Við getum búið
okkur gott þjóðfélag þar sem
hagsæld, menning, heilbrigði og
hamingja ríkir. Til þess þarf
óskerta dómgreind og færni þar
sem hver leggur sitt af mörkum af
heilindum með mannlega reisn
að leiðarljósi.
Ert þú með?“
Jólin
Hvemig væri að gefa
borvél í jólagjöf?
★
HöfStun á ,jólaveröi“
borvélar frá AEG
og Metábo
★
Opið laugardag 9. desember
td kl. 18.00
Verið velkomin
EFUR ÞUTROMPA HENDI?
SKILAFRESTUR I HUGMYNDASAMKEPPNI
ATVINNUMÁLANEFNDAR ER AÐ RENNA ÚT. t
LOKADAGUR ER 15. DESEMBER 1989. m
Atvinnumólanefnd Akureyrar