Dagur - 15.12.1989, Page 7
Föstudagur 15. desember 1989 - DAGUR - 7
hvað er að gerast
Safnahúsið á Húsavík:
16 ára piltur með myndlistarsýningu
Ríkarður Pórhallsson, 16 ára
Húsvíkingur, opnar myndlistar-
sýningu í Safnahúsinu í kvöld kl.
20. Sýningin verður einnig opin á
laugardag og sunnudag kl. 14-22.
Leikklúbburinn Saga:
Fúsi froska-
gleypir
Tvær sýningar verða á Fúsa
froskagleypi hjá Leikklúbbnum
Sögu á sunnudaginn. Hefjast þær
kl. 14 og 17 í Dynheimum. Leik-
stjórar eru Jakob Bjarnar Grét-
arsson og Steinunn Ólafsdóttir en
leikendur eru fjölmargir.
Höfundur barnaleikritsins um
Fúsa froskagleypi er Ole Lund
Kirkegaard en Olga Guðrún
Árnadóttir þýddi textann. Fetta
er bráðfjörugt leikrit kryddað
með tónlist og söngvum.
Tekið er á móti miðapöntun-
um í síma Dynheima frá kl. 13-
20.
Á sýningunni eru 23 verk, penna-
teikningar og krítarmyndir. Þetta
er sölusýning, og að sögn Rík-
arðs eru myndirnar eins ódýrar
og hugsast getur.
Þetta er fyrsta sýning Ríkarðs
og eru myndirnar allar unnar á
þessu ári. Enn hefur Rikki aðeins
notið teiknikennslu í grunnskóla.
í haust hugðist hann halda til
myndlistarnáms en varð frá að
hverfa vegna peningaskorts, en
hann stefnir til náms næsta haust.
Myndirnar hans Rikka eru all-
ar svarthvítar og segir hann það
vera til að ýta undir óhugnað.
Aðspurður um áhrif frá Alfreð
Flóka sagði hann: „Mér er oft
líkt yið Flóka vegna þess að ég
nota svipaðar aðferðir. Myndefn-
ið sæki ég á svipaðar slóðir, vinn
út frá gömlum sögum, ævintýrum
og þjóðsögum.“
Rikki hefur gert fleira en að
teikna, hann hefur verið í hljóm-
sveitum, hann hefur skrifað
smásögur og hann hefur leikið. í
vor var hann formaður Leikklúbbs
Framhaldsskólans á Húsavík og
lék eitt aðalhlutverkið í Draumi á
Jónsmessunótt. IM
Aðventukvöld í
Grundarkirkju
Næstkomandi sunnudagskvöld
kl. 20.30 verður aðvenutukvöld í
Grundarkirkju í Eyjafirði.
Ræðumaður kvöldsins verður
Jóhannes Geir Sigurgeirsson.
Börn úr Grunnskóla Hrafnagils-
hrepps munu flytja helgileik og
syngja undir stjórn Óskars Ein-
arssonar tónlistarkennara hjá
Tónlistarskóla Eyjafjarðar.
Kirkjukór Grundarkirkju syngur
undir stjórn Sigríðar Schiöth og
Sigurður Aðalgeirsson skóla-
stjóri Hrafnagilsskóla les jóla-
sögu.
Aldrei meira
Glaumar í Freyvangi fataúrval
Hljómsveitin Glaumar spilar á
dansleik fyrir framhaldsskóla-
nema í Freyvangi í kvöld, föstu-
Skákfélag Akureyrar:
Hraðskák um
helgina
Hausthraðskákmót Skákfélags
Akureyrar í unglinga- og drengja-
flokki verður haldið í húsnæði
félagsins laugardaginn 16. des-
ember nk. og hefst keppni kl.
13.30.
Á sunnudaginn kl. 14 verður
síðan hraðskákmót á vegum
Skákfélags Akureyrar á sama
stað.
Jólasöngvar í
Akureyrarkirkju
Eins og undanfarin ár verður efnt
til jólasöngva í Akureyrarkirkju,
og þangað eru allir velkomnir á
sunnudagskvöldið kemur kl.
20.30. Þar gefst fólki kostur á að
syngja jólasálmana vinsælu, sem
átt hafa svo rík ítök í landsmönn-
um. Heilu fjölskyldurnar hafa
komið saman til kirkjunnar og
aldnir og ungir sungið saman.
Það er notalegt í öllu annríkinu
að staldra við og lyfta hug í hæð.
Söngsamkoma
í Hvítasunnu-
kirkjunni
Laugardaginn 16. des. kl. 20.00
syngjum við jólin inn.
M.a. verður kórsöngur, barna-
kór, einsöngur og almennur
söngur.
í lokin syngjum við öll „Heims
um ból“, allir með logandi kerti
og rafmagnsljósin slökkt.
Kaffi á eftir.
Allir eru hjartanlega velkomnir,
bæði ungir og aldnir.
Hvítasunnukirkjan.
Fátt veitir meiri hugarhægð en
söngurinn og fögur tónlist.
Sóknarprestarnir.
dagskvöld.
Skemmtunin stendur frá kl.
23.00-03.00 og verða sætaferðir
frá Ráðhústorgi. Miðaverð á
dansleikinn er kr. 1000,-.
Opið laugardag
frá kl. 10-22
réXm
mj
HERRADEILD
Gránutelagsgötu 4
Akureyri • Sími 23599
Strengjadeild Tónlistarskólans:
Tónleikar í Akur-
eyrarkirkju í kvöld
í kvöld kl. 20.00 verða tónleikar í
Akureyrarkirkju, á vegum
strengjadeildar Tónlistarskólans
á Akureyri. Þarna koma fram
þrjár strengjahljómsveitir skól-
ans og einnig blönduð sveit
strengja-, blásara- og slagverks-
leikara, eins konar skólasinfoníu-
hljómsveit.
Flutt verður fjölbreytt efnis-
skrá. Öllum er heimill aðgangur
en aðgangur er ókeypis.
Strengjadeild Tónlistarskólans
á Akureyri er ein sú allra öflug-
asta hér á landi. Alls eru um 100
nemendur í deildinni og er mikill
kraftur í starfi hennar.
%
Opnunartími
verslana í desember
umfram venju
Laugardagur 16. desember kl. 10-22.
Fimmtudagur 21. desember kl. 09-22.
Þorláksmessa 23. desember kl. 10-23.
Kaupmannafélag Akureyrar.
Hljómsveitin Lost:
Tónleikar í Borgarbíói
Hljómsveitin Lost er um þessar
mundir að gefa út hljómsnældu
sem inniheldur lög frá gullaldar-
árurn hljómsveitarinnar.
Af því tilefni verða haldnir
útgáfutónleikar á morgun laugar-
dag kl. 16.00 í Borgarbíói. Miða-
verð á tónleikana er kr. 500.-.