Dagur - 15.12.1989, Side 9
Föstudagur 15. desember t989 - ÐAGUR - 9
Slökkvitæki og eldvarnarteppi eru sjálfsögð öryggistæki á hverju hcimili.
Gefið gaum að merkingum á raftækjum, t.d. lömpum:
Rafmagnið og rétt umgengni við það
Glcymið ekki eldavélinni cða djúpsteikingarpottinum, þótt síminn hringi.
MAX 60 W þýðir að peran má
ekki vera stærri en 60 vött. Ann-
ars hitnar lampinn of mikið. Per-
an verður líka að vera af réttri
gerð fyrir lampann.
Þetta er tákn fyrir lágmarks-
fjarlægð kastara frá brennanlegu
efni. (Fjarlægðin er breytileg.)
Stórt V táknar spennu. (Volt.)
Algengasta notendaspenna er
220 volt. Maður sem lendir inni í
straumrás með slíka spennu er í
lífshættu. Nú eru mjög í tísku
lampar með innbyggðum eða
sambyggðum spenni, sem lækkar
spennuna niður í 12 eða 24 volt.
Þessir lampar eru ýmist ætlaðir til
fastrar lýsingar, eða sem færan-
légir borð- eða gólflampar. Hita-
stig smáspenntra lampa getur far-
ið upp í 400 stig á Celsíus, en það
er fjórum sinnum hærra en gerist
með venjulega glóperulampa.
Því þarf að gæta sérstakrar var-
úðar við uppsetningu slíkra
lampa, svo og alla meðhöndlun í
námunda við brennanleg efni.
Gilding (viðurkenning)
raffanga af hálfu RER
Jólaljósasamstæður (seríur) eiga
að vera samþykktar til notkunar
af Rafmagnseftirliti ríkisins, og
þeim eiga að fylgja leiðbeiningar
á íslensku.
Inniljósasamstæður eru yfir-
leitt tengdar 220 V spennu. Þótt
ein eða fleiri perur bili í sumum
samstæðum, getur áfram logað á
hinum. En spennan hækkar þá á
þeim og þær hitna, springa eða
bræða einangrun og geta þannig
valdið íkveikju. Því er nauðsyn-
legt að eiga réttar varaperur og
skipta strax um bilaðar perur.
Utiljósasamstæður eru bæði til
fyrir beina tengingu við 220 V og
einnig fyrir 24 volt. Festið úti-
samstæður vandlega, og skiptið
strax um brotnar eða bilaðar
perur. Spennar við smáspenntar
samstæður eru prófaðir sérstak-
lega og þurfa að hafa hlotið gild-
ingu eða samþykkt af hálfu RER.
Setjið ekki fleiri samstæður við
sama spenni en ætlast er til af
framleiðanda, og notið ekki aðra
og óskylda spenna við ljósasam-
stæður.
Fjöltengi og
framlengingarsnúrur
Gangið þannig frá framlenging-
arsnúru utanhúss, að samskeyti
séu vatnsþétt.
Ef notað er fjöltengi milli raf-
tækis og veggtengils er mikilvægt
að nota rétt fjöltengi. Ef raftækið
á að vera jarðtengt verður að
nota fjöltengi með jarðtengdri
taug og kló, og að sjálfsögðu að
stinga í samband við jarðtengdan
veggtengil. Óskynsamlegt er að
hlaða mörgum straumfrekum
tækjum á sama fjöltengið.
Almennar
umgengnisreglur
Gætið þess að börn leiki sér ekki
með dúkkulampa, klemmulampa
eða önnur rafföng, sem tengd eru
220 volta spennu.
Farið ekki frá djúpsteikingar-
potti meðan hann er í sambandi.
Sjálfvirkur hitastillir getur bilað.
Sama gildir um straujárnið.
Farið ekki frá og gleymið raf-
ntagnshellu sem búið er að
kveikja á, þótt síntinn hringi eða
hringt sé dyrabjöllu og gestur
komi í kaffispjall. Slík gleymska
hefur valdið mörgum eldsvoðum.
Yfirfarið og skiptið um gamlar
og gallaðar snúrur á heimilistækj-
um. Notið réttar klær og festið
taugina vel í klónni.
Fleygið gömlum, óviðurkennd-
um jólasamstæðum.
Varist að kaupa óviðurkennd
rafföng, svo og rafföng á úti-
mörkuðum, ný eða notuð. Slíkur
varningur getur verið hættulegur.
Slökkvið á ljósasamstæðum og
öðrum skrautljósum á nóttunni,
og eins ef íbúðin er skilin eftir
mannlaus.
H Tákn fyrir tvöfalda einangrun
a | Tákn fyrir lágmarksfjarlægð kastara frá brennanlegu efni (t.d. 0,5m; 0,Sm; osfr.)
MAX 60 W Hámarksstærð peru í tiltekinn lampa
Tákn fyrir jarðtengingu
Ts Viðurkenningarmerki RER
Viðskipta vinir
athugiö!
Vöruafgreiðsla okkar á Akureyrarflugvelli
verður opin:
Laugardaginn 16. des. frá kl. 09-20.30.
Laugardaginn 23. des. frá kl. 09-21.30.
FLUGLEIDIR fE
»Tilkynning til launa-
_ skattsgreiðenda
Athygli launaskattsgreiðenda skal vakin á því að
gjalddagi launaskatts fyrir mánuðina september og
október er 15. desember. Sé launaskattur greiddur
eftir eindaga skal greiða dráttarvexti til viðmiðunar
því sem vangreitt er, talið frá og með gjalddaga.
Launaskatt ber launagreiðanda að greiða til inn-
heimtumanns ríkissjóðs, í Reykjavík tollstjóra, og
afhenda um Ieið launaskattsskýrslu í þríriti.
Fjármálaráðuneytið.
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
jlgf Styrkur til
^T2Eljn5tiICErL'tt-r' háskólanáms í Finnlandi
Finnsk stjórnvöld bjóða fram styrk handa Islend-
ingum til háskólanáms eða rannsóknastarfa í
Finnlandi námsáriö 1990-91. Styrkurinn erveitt-
ur til níu mánaða dvalar og styrkfjárhæðin er
2.300 finnsk mörk á mánuði.
Umsóknum um framangreinda styrki skal komið
til menntamálaráðuneytisins, Hverfisgötu 6, 150
Reykjavík, fyrir 10. janúar 1990. Umsóknum
fylgi staðfest afrit prófskírteina ásamt með-
mælum.
Menntamálaráðuneytið
8. desember 1989.
Súlnaberg
Alla föstudaga og laugardaga
fram að jólum
bjóðum við uppá rjúkandi kakó,
heitar vöfflur og lummur,
kalda kabarett-diska ásamt
óáfengu jólaglöggi
Bjóðum til verslana og fyrirtækja:
Snittur, smurt brauð,
heitan og kaldan mat.