Dagur - 15.12.1989, Side 13
Ovenjuleg tanntaka:
Fékk 17 tennur úr sömu holunni
Við kippum okkur ekki upp við
það þegar börnin fara að missa
barnatennurnar. Yfirleitt gengur
þetta fyrir sig á eðlilegan hátt,
gömlu tennurnar detta og í stað-
inn koma fullorðinstennur.
Charlene Stephenson gekk í
gegnum þetta eins og önnur börn
en þó með undarlegu hliðarspori.
Hún fékk nefnilega alis 17 barna-
tennur upp úr einni holunni.
„Ég hef nú unnið við tann-
lækningar í 21 ár en aldrei á þess-
ari starfsævi lent á svona fyrir-
brigði," segir tannlæknir Charl-
ene. „Ég hef reyndar aldrei heyrt
um að svo margar tennur hafi
komið upp úr einni og sömu hol-
unni.
Þetta tilfelli komst í metabók
Guinnes í Englandi. Pessi undra-
verða saga byrjaði fyrir fimm
árum þegar Charlene, þá sjö ára
gömul missti eina barnatönnina.
Ári síðar var ekki komin önnur
tönn í staðinn. Rannsókn sýndi
að fleiri en ein tönn börðust um
að komast í holuna. Tannlæknir-
inn tók til sinna ráða og fjarlægði
báðar tennurnar, sem reyndust í
minna lagi. Ekki þótti honum allt
með felldu og hélt því áfram að
rannsaka holuna og uppskar 15
tennur til viðbótar. Tennurnar
voru mjög litlar utan tvær sem
greinilega voru fullorðinstennur.
Og það sem meira var, allar tenn-
urnar höfðu rót og voru því lif-
andi.
„Því miður er ég búin að týna
sumum minnstu tönnunum núna
en ég geymi þær sem ég á eftir.
Þetta eru dýrmætir minningar-
gripir um þessa undarlegu tann-
töku,“ sagði Charlene þegar hún
var spurð um afdrif tannanna.
FVrirjólin!
HerrapeV5^
i frábaeru -
Skyrtur oð bw'di
jtrútegt örval
meðpri°na °9
Ölpur, staKKar
oq fraKKar
Wttes'°WSrh
á aðeins hr.19 ’
örva\i
Fostudágur TS.' désémber i 98ð - DAGUR - 1 §
MATVORU
MARKABURINN
MARKAÐUR
ÞAR SEM AFSLÁTTUR
ER EÐLILEGUR
HLUTUR