Dagur - 15.12.1989, Qupperneq 17
Föstudagur 15. desember 1989 - DAGUR - 17
Minning:
^jj3 Sveinn Sigurjón Stefánsson
frá Vatnsenda í Ólafsfirði
Fæddur 25. apríl 1940 - Dáinn 29. nóvember 1989
Dáinn, horfinn - Harmafregn.
Hvílíkt orð mig dynuryfir.
En ég veit að látinn lifir.
Pað er huggun harmi gegn.
Mér komu í hug þessar ljóðlínur
Jónasar Hallgrímssonar er mér
var tilkynnt andlát uppeldisbróð-
ur míns og frænda Sveins Stef-
ánssonar vöruflutningabílstjóra
frá Ólafsfirði. Við sem byggjum
þetta land verðum oft að kljást
við óblíða náttúru og taka áhættu
til að sjá okkur farborða í lífinu.
Lítið santfélag norður við ysta
haf þarf ekki síður en önnur sam-
félög sem betur eru í sveit sett á
sínunt nauðþurftum að halda.
Sveinn var einmitt í þjónustu
þess samfélags sem byggir Ólafs-
fjörð er kallið kom. Fyrir nokkr-
um árum stofnaði hann fyrirtæki
með fjölskyldu sinni sem sá um
vöruflutninga milli Ólafsfjarðar
og Reykjavíkur og hafði af-
greiðslu í Reykjavík hjá Land-
flutningum hf. Kona hans og dæt-
ur tóku af alhug virkan þátt í
fyrirtækinu. Til rnarks um þann
samhug fjölskyldunnar er það að
elsta dóttir hans, Arna, aflaði sér
réttinda til að aka svo stóru farar-
tæki sent vöruflutningabifreið er.
Hún fór stundum með föður sín-
um í þessar ferðir til að létta und-
ir með honum við aksturinn á
langri leið.
Sveinn Sigurjón Stefánsson
fæddist á sumardaginn fyrsta 25.
apríl 1940 á Vatnsenda í Ólafs-
firði. Foreldrar hans voru Anna
Sveinsdóttir, en hennar foreldrar
voru Guðlaug Bjarnadóttir og
Sveinn Sigmundsson á Grundar-
landi í Unadal í Skagafirði og
Stefán Stefánsson, en foreldrar
Stefáns voru Stefanía Stefáns-
dóttir og Stefán Björnsson er
bjuggu í Vík í Héðinsfirði. Anna
dvelur nú á Elli- og hjúkrunar-
heimilinu Hornbrekku í Ólafs-
firði, en Stefán lést 1974. Varla
er hægt að hugsa sér betri sumar-
gjöf en lítinn son sem auk þess er
frumburður ungra hjóna. Brátt
stækkaði systkinahópurinn og
auk mín og systur minnar Emelíu,
barna Oddnýjar föðursystur
Sveins og Báru Sæmundsdóttur
uppeldisdóttur ömmu okkar var
það fjölmennur barnahópur sem
Akureyringar -
Nærsveitamenn
jólahla5borð
Bautans
Föstudaga og laugardaga
fram að jólum.
Borð sem svigna undan
síldar-, fisk- og kjötréttum
að ógleymdu Bautabúrs
hangikjötinu og laufabrauði.
Jólagrautur (hnetuverðlaun).
Þeir sem vilja taka
úr sér hrollinn
bjóðum við uppá
jólaglögg og piparkökur
-fenga og óáfenga.
ólst upp við leiki og störf á Vatns-
enda. Systkini Sveins eru sex,
þau: Stefanía, sem býr í Reykja-
vík, gift Jóhannesi Bjarnasyni,
Anna Lilja, býr á Akureyri, gift
Guðmundi Ólafssyni, Páll Gísli
er dvelur á Reykjalundi, Guð-
laug Sigríður býr á Akureyri, gift
Gunnlaugi Guðmundssyni, Jó-
hanna Lovísa, býr í Kópavogi,
gift Eyvindi Jóhannssyni og Sig-
urrós Þórleif, býr á Sauðárkróki,
gift Birni Sigurbjörnssyni.
Þegar Sveinn var aðeins 10 ára
gamall missti Anna, móðir hans,
heilsuna og hefur dvalið langtím-
um saman á sjúkrahúsum síðan.
Stefán, faðir hans, hélt áfram
búskap með öll börnin ásamt
aldraðri móður sinni og systrum.
Það lá því beint við að Sveinn
hjálpaði til við búskapinn enda
var hann ekki nema um fermingu
þegar hann var farinn að vinna að
öllum búskaparstörfum eins og
fullorðinn inaður. Þá var vél-
væðingin, sem síðar átti eftir að
breyta búskaparháttum til sveita,
lítið sem ekkert komin í Ólafs-
fjörð og öll sveitastörf unnin með
hestum. Honum fórst sú vinna
svo vel úr hendi að fljótt var farið
að leita til hans af öðrum sem
höfðu túnbletti og vantaði að fá
þá slegna,
Kappið og dugnaðurinn komu
snemma fram í fari Sveins bæði
við leik og nám. Ólafsfjörður er
snjóþung sveit svo að sjaldan
verður þar snjóavant á veturna. í
Ólafsfirði hafa löngum verið
skíðamenn í fremstu röð. Það lá
því í hlutarins eðli að Sveinn fór
mjög ungur að stunda skíði. Oft
og tíðum þurfti að grípa til þeirra
til að koma sér á milli staða.
Sveinn fór margar ferðirnar á
skíðum að heiman og í skólann,
leið sem er rúmlega einnar stund-
ar gangur. Hann lét sér ekki
nægja þessar gönguferðir, því fór
hann að æfa skíðaíþróttina af
kappi og náði að komast í
fremstu raðir á skíðamótum
íslands.
Sveinn var ágætlega vel gefinn
og fljótur að átta sig á hlutunum.
□ RÚN 598912177 - Jólaf.
70 ára verður á morgun, laugardag-
inn 16. desember, Hansína í Dala-
kofanum (Lyngholti 20) hér í bæ.
Hjálpræðisherinn,
Hvannavöllum 10.
AAtá^r/^Föstudaginn kl. 20.00,
vksm&P æskulýður.
Laugardaginn kl. 14.00-20.00, for-
eldrar! látið okkur passa börnin fyr-
ir ykkur, 200 kr. klst. 50% afsláttur
fyrir systkini.
Sunnudaginn kl. 11.00, helgunar-
samkoma.
Kl. 13.30, sunnudagaskóli.
Kl. 17.00, við syngjum “Jólin í
garð.“ Æskulýðskórinn syngur,
börnin sýna helgileik. Kaffi á eftir.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
HVÍTASUtimifíKJAtl v/smmshlíd
Laugardagur 16. des. kl. 20.00,
syngjum jólin inn. Söngsamkoma.
Sunnudagur 17. des. kl. 15.00, jóla-
tréshátíð sunnudagaskólans.
Þriðjudagur 19. des. kl. 20.00, Litlu
jól æskulýðshópsins.
Hann nýtti sér þá námsmögu-
leika sem buðust í Ólafsfirði á
þeim tíma þegar hann var að
vaxa úr grasi. Þá var starfandi í
Ólafsfirði iðnskóli sem nokkrir
áhugasamir menn höfðu komið á
fót til að gera æskufólki staðarins
kleift að afla sér þeirrar bóklegu
menntunar sem þá tilheyrði iðn-
námi. Sveinn stundaði þar nám
og lauk þaðan prófi án þess að
ætla sér frekar í iðnnám.
Sjálfsbjargarviðleiöúa var
honum í blóð borin. Hann lærði
fljótt að bjargast á eigin spýtur og
vildi síst af öllu vera upp á aðra
kominn. Greiðvikni og ósérhlífni
voru svo stór þáttur í lífi Sveins
að oft og tíðum frestaði hann sín-
um eigin störfum til að liðsinna
öðrunt. Hann vildi láta hlutina
ganga, kunni ekki að hlífa sjálf-
um sér og var lítt hrifinn af seina-
gangi hjá öðrum. Hann var skiln-
ingsríkur faðir því alltaf var hann
tilbúinn að hlusta á dætur sínar
og stóð með þeim í blíðu og
stríðu. Þá kont oft glettnin fram
með góðlátlegum athugasemd-
um. Sveinn var mjög barngóður
og börn hændust að honum.
Hann kunni svo vel að skilja og
tala þeirra mál að óðar en varði
voru þau komin upp í fang hans.
Hann kom oft á mitt heimili og
gat gengið hér inn og út á nóttu
sem degi. Þá var oft slegið á létta
strengi með börnum mínum og
vinunt þeirra með góðlátlegu
gríni og var það oft svo að þegar
bíllinn var kominn að húsinu þá
komu vinir barnanna í heimsókn
til að hitta Svein. Hann unni
byggðarlagi sínu mjög og vildi að
hagur þess væri sem bestur og
taldi mikilvægt að íbúunum
fækkaði ekki því svo lítið byggð-
arlag mætti engan missa. Hann
sagði stundum við mig að í hvert
sinn sem hann flytti eina fjöl-
skyldu í burtu frá Ólafsfirði þá
þyrfti hann helst að flytja þangað
aftur tvær í staðinn.
Þann 28. maí 1966 kvæntist
Sveinn eftirlifandi konu sinni
Björku Arngrímsdóttur ættaðri frá
Hólmavík. Hún er dóttir hjón-
Munkaþverárkirkja.
Sunnudagaskóli og fjölskyldustund
sunnudaginn 17. desember kl.
11.00.
Sóknarprestur. __________________
Grundarkirkja.
Aðventukvöld verður í Grundar-
kirkju sunnudaginn 17. desember
kl. 20.30.
Ræðumaður verður Jóhannes Geir
Sigurgeirsson.
Kirkjukórinn og börn úr Grunn-
skóla Hrafnagilshrepps syngja,
fluttur verður helgileikur og lesin
jólasaga.
Sóknarnefnd.
Akureyrarprestakall.
Sunnudagaskóli Akureyrarkirkju
verður n.k. sunnudag kl. 11 f.h.
Hugsað til jólanna. Öll börn vel-
komin og fullorðnir einnig.
Messað verður í Akureyrarkirkju
n.k. sunnudag kl. 5 e.h. (Athugið
breyttan messutíma.) Kór Oddeyr-
arskóla syngur í messunni undir
stjórn Ingimars Eydal.
B.S.
Jólasöngvakvöld verður í Akureyr-
arkirkju n.k. sunnudagskvöld kl.
8.30.
Fjölmennum í þessar samveru-
stundir og búum liugi okkar undir
komu jólanna í kirkjunni.
Sóknarprestar.
anna Guðnýjar Bergsveinsdóttur
og Arngríms Guðbjörnssonar.
Arngrímur lést 1983, en Guðný
býr í Ólafsfirði. Sveinn og Björk
hófu búskap fyrst á Vatnsenda
með Stefáni föður Sveins, en
tóku við búinu 1967 þegar Stefán
fluttist niður í kaupstaðinn. Þau
bjuggu á Vatnsenda til ársins
1969 en þá seldu þau jörðina og
fluttu sig um set til kaupstaðar-
ins.
Sveinn var virkur þátttakandi í
ýmsum félögum í Ólafsfirði. Fyr-
ir utan félagsstörfin sem fylgdu
skíðaíþróttinni tók hann þátt í
leikstarfsemi Leikfélags Ólafs-
fjarðar, var unt skeið formaður
þess félags og sté stundum upp á
fjalirnar og tók þátt í leiksýning-
unum. Hann söng um tíma með
Karlakór Ólafsfjarðar og var
einnig í stjórn hans. Kiwanis-
klúbbur Ólafsfjarðar var stofnað-
ur í ntars 1976. Sveinn var fyrsti
forseti þess félagsskapar og
gegndi því starfi í hálft annað ár.
Eftir að akfært varð l'yrir Ólafs-
fjarðarmúlann var fengin sjúkra-
bifreið til Ólafsfjarðar og nokkrir
ungir menn tóku að sér að annast
sjúkraflutninga í sjáll'boðavinnu
rnilli Ólafsfjarðar og Akureyrar.
Sveinn var einn af þeim sem tók
þátt í því ábyrgðarmikla starfi og
var alltaf reiðubúinn til þeirra
ferða. Einnig var hann formaður
í vörubílstjórafélaginu Múla á
Dalvík.
Skömmu eftir að hann fluttist
til kaupstaðarins fór hann að
vinna með vörubíl og þunga-
vinnuvélar. Þessi atvinna var
frernur ótrygg og átti það illa við
Svein að sitja aðgerðarlaus þegar
lítið var að gera enda var honum
mjög umhugað að sjá vel fyrir
fjölskyldu sinni. Til að tryggja sér
öruggari atvinnu keypti hann
vöruflutningabifreið til flutninga
á vörum milli Ólafsfjarðar og
Reykjavíkur. Starfsemi þessi var
ekki stór í sniðum í fyrstu en
jókst brátt og var hann nú hin
síðustu ár með tvo bíla í förum.
Sveinn var öruggur bílstjóri og
kunni að bregðast rétt við ef
eitthvað bar útaf í akstrinum. En
örlögin höguðu því svo að hann
náði ekki heim úr sinni síðustu
ferð.
Það er sár söknuður hjá eigin-
konu, dætrum, dótturdóttur,
ntóður og systkinum er sjá nú á
bak hraustum og góðum dreng á
miðjum aldri sent búinn var að
afkasta miklu en átti þó svo
margt ógert. Sveinn og Björk
eignuðust fjórar dætur en þær
eru: Guðný Arna, fædd 9. febrú-
ar 1966, stundar nám í viðskipta-
fræði við Háskóla íslands, dóttir
hennar er Sveindís Ösp fædd 2.
nóventber 1986. Anna, fædd 8.
desember 1967, stundar nám við
Fósturskóla Islands. Sigríður
Guðrún, fædd 5. september
1971, hún er við nám í Mennta-
skólanum á Akureyri og Soffía
Snædísfædd 24. september 1984.
Útför Sveins fór lram frá
Ólafsfjarðarkirkju laugardaginn
9. desember sl. í bltðskaparveðri
að viðstöddu fjölmenni.
Kæra Björk og dætur, ég og
fjölskylda mín vottum ykkur
dýpstu samúð. Minningin unt
góðan dreng mun fylgja okkur
um aldur og ævi.
Sveinbjörn Sigurðsson,
frá Vatnsenda.
Jólavörur
á jólaverði!
Bökunarvörur,
niðursoðið grænmeti
frá K. Jónsson,
niðursoðnir ávextir,
jólakonfekt í úrvali,
jólahangikjöt og
jólasteikur frá
Kjötiðnaðarstöð KEA.
Jólagos og jólaöl
★ Frábært verð *
Opið laugardaginn
frá kl. 10-20
Lítið inn
það kostar ekkert
Kjörbúð KEA
Brekkugötu 1