Dagur - 15.12.1989, Page 19
Föstudagur 15. desember 1989 - DAGUR - 19
íþróttir
Knattspyrna:
Væri mikill fengur
að fá Sigurð í Þór
- segir formaður deildarinnar
Líkur benda til þess að Sigurð-
ur Lárusson knattspyrnumað-
ur flytji norður aftur og leiki
með Þórsliðinu næsta sumar.
„Ef af verður verður þetta
geysilegur styrkur fyrir okkur.
Sigurður er öndvegisdrengur
og góður knattspyrnumaður
þannig að það væri frábært að
fá hann í raðir Þórs að nýju,“
sagði Sigurður Arnórsson for-
maður knattspyrnudeildar
Þórs.
Sigurður Lárusson, sem er 35
ára að aldri, lék um árabil með
ÍBA og Þór en flutti á Skipaskag-
Sigurður Lárusson.
íþróttir
helgarinnar:
HandknatUcikur
1. dcild karla...KA-Stjarnan í íþrótta-
höllinni á Akureyri kl. 20.3(1
Völsungur gegn Fram-b og Gróttu-b
fyrir sunnan um hclgina:
Sunnudagur:
Akureyrarmót í yngri flokkum frá kl.
9.30
Blak
Laugardag:
Bikarkcppni á Húsavík: Völsungur og
KA í karla og kvcnnaflokki: Konurnar
kl. 14.00, karlarnir strax á cftir.
ann 1979 og spilaði síðan með
ÍA-liðinu. Hann lék 28 leiki með
ÍBA, 16 nteð Þórsliðinu í 1. deild
og svo 206 leiki á Skaganum.
Sigurður lék einnig 11 landsleiki.
En Þór myndi ekki einungis fá
sterkan meistaraflokksmann ef
Sigurður flytti norður því sonur
Sigurðar, Lárus Orri Sigurðsson,
er feiknasterkur leikmaður og
hefur leikið marga leiki með
drengjalandsliði íslands. Hann er
nú að ganga upp í 2. flokkinn og
ætti að styrkja liðið þar verulega.
Þetta mál er hins vegar enn á
umhugsunarstigi og veltur á því
hvort Sigurður fær vinnu við sitt
hæfi á Akureyri en hann er lærð-
ur smiður.
Jóhannes Bjarnason og félagar í KA-liðinu fá erfiða mótherja í kvöld þegar Stjarnan kemur til Akureyrar. Mynd: kl
íþróttir helgarinnar:
Otrúlega mikilvægur leikur
- segir Jóhannes Bjarnason um Stjörnuleikinn í kvöld
Það sem hæst ber í íþróttalíf-
inu hér norðan heiða þessa
helgina er leikur KA og
Stjörnunnar í 1. deildinni í
handknattleik í íþróttahöllinni
á Akureyri í kvöld kl. 20.30. Á
Húsavík leika heimamenn við
KA í bæði karla og kvenna-
flokki í bikarkeppninn í blaki á
laugardag. Yölsungarnir í
handboltanum leika tvo leiki
fyrir sunnan, við Fram-b og
Gróttu-b.
„Þetta er ótrúlega mikilvægur
leikur,“ sagði Jóhannes Bjarna-
son leikmaður meistaraflokks
KA í handknattleik er hann var
inntur eftir hvernig leikurinn við
Stjömuna legðist í hann. „Ástæð-
an er sú að ef við sigrum í leikn-
um losnar mannskapurinn við
fallpressuna sem hefur verið ein
aðalástæðan fyrir því að KA-liðið
1X21X21X21X21X21X21X21X21X2
Stórmeistarajafntefli
Skákmennirnir Rúnar Sigurpálsson og Jón Árni Jónsson skildu
jafnir í síðustu viku í getraunaleiknum. Þeir leiða því aftur sam-
an hesta sína í þessari viku og verður að gaman að sjá hvor af
þessum skákmönnum hefur betur í viðureigninni.
Enginn var með 12 rétta í síðustu viku hjá fslenskum get-
raunum og verður því potturinn tvöfaldur þessa vikuna. Seðill-
inn er ekki mjög snúinn og ef úrslitin verða samkvæmt bókinni
ætti potturinn örugglega að ganga út. íslenska ríkissjónvarpið
ætlar að sýna leik Chelsea og Liverpool og munu aðdáaendur
ensku knattspyrnunnar örugglega fagna því vegna þess að
leikirnir í þýska boltanum, sem sýndir hafa verið að undanförnu,
hafa ekki verið mikið fyrir augað. En hörkuviðureign á Stamford
Bridge í Lundúnum og verður gaman að sitja við skjáinn á laug-
ardaginn.
Rúnar:
Arsenal-Luton 1
Charlton-C. Palace 2
Chelsea-Liverpool x
Coventry-Wimbledon 1
Man. Utd.-Tottenham 1
Millwall-Aston Villa 2
Norwich-Derby 1
Sheff. Wed-QPR x
Oxford-Wolves x
Portsmouth-Sunderland 2
Port Vale-Sheff. Utd. x
West Ham-Oldham 1
Jón Arni:
Arsenal-Luton 1
Charlton-C. Palace x
Chelsea-Liverpool 2
Coventry-Wimbledon 2
Man. Utd.-Tottenham 2
Millwall-Aston Villa 2
Norwich-Derby 2
Sheff. Wed-QPR 1
Oxford-Wolves x
Pourtsmouth-Sunderland x
Port Vale-Sheff. Utd. 2
West Ham-Oldham 1
1X21X21X21X21X21X21X21X21X2
hefur leikið langt undir getu í
flestum leikjunum í vetur. Hins
vegar er því ekki að leyna að
okkur hefur gengið illa með
Stjörnuna hér heima síðustu 3
árin og ef eitthvað er þá eru
Garðbæingarnir með sterkara lið
en undanfarin ár. Það veltur því
mikið á stuðningi áhorfenda í
Höllinni í kvöld því þeir geta
orðið áttundi maðurinn inni á
vellinum fyrir okkur," sagði
Jóhannes.
Það er vert að taka undir þessi
orð Jóhannesar og fjölmenna í
Höllina í kvöld kl. 20.30 til að sjá
KA taka á móti Bikarmeisturum
Stjörnunnar.
Handknattleikur:
/ 1 s
Akureyrarmót a smmudagiim
- keppt í öllum yngri flokkum
Akureyrarmót í yngri flokkun-
um í handknattleik fer fram í
íþróttahöllinni á sunnudaginn.
Keppnin hefst kl. 9.30 með
leik í 4. flokki kvenna og verð-
ur spilað stanslaust upp í 2.
flokk karla til klukkan 15.30.
Þórsarar voru með mun betri
yngri flokka í fyrra þannig að
KA-menn munu örugglega mæta
grimmir til leiks að þessu sinni.
En lítum á dagskrána á mótinu
en þess skal getið að þetta er 1.
umferð Akureyrarmótsins:
Bautamótið
í innanhússbolta
- nýju reglurnar gilda
Hið árlega Bautamót meistara-
flokks karla í innanhússknatt-
spyrnu verður haldið í íþrótta-
höllinni á Akureyri 27. des-
ember næstkomandi. Áætlað
er að 16-20 lið taki þátt í mót-
inu og verður spilað eftir nýju
reglunum þ.e. með markmanni.
Leiktími er áætlaður 2x8
mínútur og leikið verður á 25x40
m velli. Mörkin eru 2x5 m (eins
og í mini-knattspyrnu) en að
öðru leyti verður keppt eftir
reglugerð KSÍ um innanhúss-
knattspyrnu. Tvö efstu lið í
hverjum riðli fara áfram í úrslit.
Byrjað verður að leika kl. 9.30
um morguninn og verður að
klára mótið þennan dag því þetta
er eini lausi tíminn í Höllinni
milli jóla og nýárs.
4. flokkur kvenna KA-Pór a-lið kl. 9.30.
3. flokkur kvenna KA-Pór a-lið kl. 10.05
6. flokkur karla KA-Þór c-lið kl. 10.50
6. flokkur karla KA-Pór b-lið kl. 11.15
6. flokkur karla KA-Þór a-lið kl. 11.40
5. flokkur karla KA-Þór b-lið kl. 12.05
5. flokkur karla KA-Þór a-lið kl. 12.40
4. flokkur karla KA-Pór b-lið kl. 13.15
4. flokkur karla KA-Þór a-lið kl. 14.45
3. flokkur karla KA-Þór a-lið kl. 14.45
2. flokkur karla KA-Þór a-lið kl. 15.30
Jólasveinar
koma í heimsókn
kl. 3 e.h. laugar-
daginn 16. desember
VeriÖ velkomin.
HAGKAUP
Akureyri