Dagur - 15.12.1989, Blaðsíða 20
Akureyri, föstudagur 15. desember 1989
Verslunareigendur
Starfsmannahópar
Eins og undanfarin ár sér veislueldhús
Bautans um að útbúa veitingarnar fyrir ykkur:
M.a. snittur, smárétti og heitar og kaldar máltíðir.
Upplýsingar í síma 21818.
Gervigrasvöllur er alls ekki
óraunhæfur möguleiki á Akur-
eyri hvað rekstrarkostnað
varðar. Þetta er a.m.k. niður-
staða samstarfsncfndar um
gervigrasvöll sem nýlega hefur
lokið störfum en í skýrslu
nefndarinnar eru lagðar fram
væntanlegar kostnaðartölur
um byggingu og rekstur gervi-
grasvallar á Akureyri. Skýrsl-
an var kynnt íþróttaráði í gær.
Þegar umræða um gervigras-
völl var hvað mest fyrr á þessu ári
var gengið út frá því að orku-
kostnaður vegna hans á Akureyri
yrði um 20 milljónir króna á ári.
Aætlað var að kostnaður við
byggingu vallarins yrði um 60-100
milljónir króna. Vegna áætlana
um orkukostnað, sem þótti allt of
hár, lognaðist umræðan um
Enn dræmt á
loðmimiðunum:
Tunglið
í liði með
loðminni
Tunglið virðist gengið í lið með
loðnunni. Sökum mikils tungls-
Ijóss á miðunum fyrir Norð-
austurlandi síðustu nætur hef-
ur loðnuveiði verið mjög treg
enda kemur loðnan ekki upp
þegar mikil birta er. Aðeins
einn bátur tilkynnti afla í gær.
Tvö hundruð tonn af loðnu var
eini aflinn sem tilkynnt var um til
loðnunefndar í gær. Beitir til-
kynnti um þennan afla og landaði
á Norðfirði. f>á hélt Helga II til
lands seint í fyrrakvöld með 1000
tonn og var því landað á Siglu-
firði fyrir hádegi í gær.
Um miðjan dag í gær var farið
að þykkna upp á miðunum og
bjuggust sjómenn því við áð
loðnan kæmi hærra í sjó í nótt.
JÓH
gervigrasvöll út af um stund, en
samstarfsnefndin hefur komist að
niðurstöðum sem ættu að snúa
þessari þróun við.
Eftir að samstarfsnefndin hafði
verið skipuð var það eitt af fyrstu
verkum fulltrúa hvors íþróttafé-
lags á Akureyri að kanna ítarlega
óskir félaganna um æfingatíma
og yfirfara þær hugmyndir með
þjálfurum. Niðurstaðan varð sú
að hvort félag þyrfti um 750 tíma
á ári og að viðbættum tímum
fyrir skóla, almenning og fleiri
mætti ætla að notkun á stórum
velli gæti numið um 2000 tímum
á ári. Þá sóttu tveir nefndar-
manna ráðstefnu og sýningu í
Þýskalandi í haust og fundi og
ráðstefnu um gervigrasvelli hér-
lendis. Að lokum var leitað til
ráðgjafaverkfræðistofu um óháð
kostnaðarmat á framkvæmda- og
rekstrahugmyndum samstarfs-
nefndarinnar.
Við kostnaðaráætlun voru
lauslega skoðaðir þrír staðir af 5-
6 svæðum sem þóttu koma til
greina fyrir hugsanlegan gervi-
grasvöll, vestan Eikarlundar, við
Verkmenntaskólann og austan
Sólborgar. Reynt var að meta all-
an kostnað við vallaruppbygging-
una þ.e. tekinn var með kostnað-
ur vegna lýsingar, bílastæða, vall-
arhúss og fleira. Helstu niður-
stöður voru þær að hvar sem
völlurinn yrði staðsettur, yrði
kostnaður með öllu um 113-115
milljónir króna, þar af aðeins
vegna vallarins 82-87 milljónir.
Þá ber loks að geta áætlana
um orkukostnað. Við mat á
orkunotkun var gengið út frá hóf-
legum kröfum um notkun frá
október til febrúar. Reiknað er
með að lítið afl yrði notað á
snjóbræðslukerfið þessa mánuði
en meira síðari hluta æfingatíma-
bilsins. Til viðmiðunar var að
nokkru litið til kostnaðar vegna
kyndingar göngugötunnar á
Akureyri og eru niðurstöður þær
að ef kynt er með afgangsraforku
næmi árskostnaður við hitaveitu
og lýsingu um 3,9 milljónum á ári
en ef notuð er hitaveita, 8,5 millj-
ónir á ári en þessar tölur eru báðar
mun lægri en þær tölur sem áður
hafa verið nefndar. VG
Jólaösin að byrja í innanlandsfluginu:
Margir virðast treysta á sumarfæri þjóðveganna
- íjöldi pantana ekki í samræmi við íjölda aukaferða hjá Flugleiðum
Um næstkomandi helgi fer
jólaösin hjá flugfélögunum á
fullan skrið. Fyrstu aukaferð-
irnar eru settar á um þessa
helgi og reyndar fer Flugfélag
Norðurlands fyrstu aukafcrð-
irnar í dag. Margt bendir hins
vegar til að fjöldi fólks ferðist
landleiðis fyrir þessi jól enda
hefur tíð verið góð um allt land
og færð á vegum verið með því
besta. Fleiri samfelldir frídagar
eru um þessi jól en í fyrra og
því var búist við að fleiri ferð-
uðust innanlands en raunin er
sú t.d. hjá Flugleiðum að pant-
anir fyrir jólin eru svipaðar og
í fyrra, þrátt fyrir að fleiri
aukaferðir hafi verið settar á
nú.
„Þessi óvenju stóra jólaáætlun
okkar gerir að verkum að hlutfall
pantana er lægra miðað við sæta-
framboð. Ef við lítum hins vegar
á fyrri hluta desembermánaðar
þá eru flutningar á frakt meiri
en í fyrra og munar þar 2%.
Fólksflutningar hafa á sama
tímabili aukist um 4%,“ segir
Einar Sigurðsson, blaðafulltrúi
Flugleiða.
„Það er dálítið um aukaferðir
hjá okkur fyrir jólin en við getum
ekki séð allt fyrir og viljum því að
fólk panti og í samræmi við það
setjum við upp ferðir. Við kom-
um öllum á áfangastað fyrir jól,“
segir Sigurður Aðalsteinsson,
framkvæmdastjóri FN. „Stærsta
breytingin er sú að við fljúgum á
næstum alla staði á laugardag og
sunnudag. Síðustu vikuna ætlum
við okkur síðan að fljúga á alla
okkar staði daglega.“
Sigurður segir merkjanlegt að
fólk ætli sér að nota gott færi á
vegum og ferðast landleiðina.
„Þetta þýðir kannski að í fluginu
verður þetta jafnara og gengur
greiðar fyrir sig. Það verður gott
að ferðast með flugi fyrir jólin í
segir Sigurður. JÓH
ar.
Söluhæstu bækur og plötur:
Geirmundur og Guðrún seljast
- löngu látinn höfundur með nýja bók í öðru sæti bókalistans
Maður lést
í eldsvoða á
Skagaströnd
Eldur kviknaði í húsi á Skaga-
strönd aðfaranótt fímmtudags-
ins með þeim hörmulegu
afleiðingum að einn maður
Iést.
Atburðurinn gerðist um klukk-
an hálf fjögur á fimmtudagsnótt-
ina. Eldsupptök eru ókunn en
húsið er gjörónýtt samkvæmt
upplýsingum lögreglu.
Ekki er unnt að birta nafn þess
látna að svo stöddu. kj
Skýrsla samstarfsnefndar um gervigrasvöll:
Áður áætlaður rekstrarkostnaður
gervigrasvallar fjarri lagi
- raunhæfur möguleiki á slíkum velli á Akureyri
Listinn yfír söluhæstu bæk-
urnar á Norðurlandi þessa
vikuna hefur nokkuð breyst
frá síðasta föstudegi. Stefán
Jónsson á tréfæti hefur fallið
úr 1. sæti í 3.-4. sæti og saga
Guðrúnar Ásmundssdóttur
skotist upp í 1. sæti. Bækurn-
ar í fyrstu fjórum sætunum
skera sig nokkuð úr hvað sölu
snertir, en þær hafa afgerandi
forystu. Geirmundur heldur
hins vegar sínu striki og hefur
afgerandi forystu á hljóm-
plötulistanum. En lítum nán-
ar á listana.
Þær bækur sem selst hafa best
síðustu viku eru:
1. Ég og lífið. Saga Guðrúnar
Ásmundsdóttur.
2. Dauðalestin e. Alistair heit-
innMac Lean.
3-4. Lífsgleði á tréfæti með
byssu og stöng e. Stefán
Jónsson.
3-4. Sagan sem ekki mátti
segja. Endurminningar Björns
Sv. Björnssonar.
15. Aldnir hafa orðið. Skráð af
Erlingi Davíðssyni.
6. Ég heiti ísbjörg - Ég er ljón
e. Vigdísi Grímsdóttur.
7. Frændi Konráðs e. Vilhjálm
Hjálmarsson.
8. Það glampar á götu e. Björn
Jónsson.
9-10. Lífsreynsla III. bindi.
Bragi Þórðarson tók saman.
9-10. Arfur hins liðna e. Mary
Stewart.
Skagfirski sveiflukóngurinn
Geirmundur er aldeilis ekki á
því að gefa eftir fyrsta sætið.
Plata hans „í syngjandi sveiflu“
hefur náð afgerandi forystu í
sölu á öllu Norðurlandi. Nýir
inn á topp tíu þessa vikuna eru
skagfirski tenórinn Jóhann Már
Jóhannsson, Rokklingarnir og
Björgvin og gestir. Listinn lítur
annars svona út:
1. Geirmundur Valtýsson/Í
syngjandi sveiflu.
2. Sálin hans Jóns míns/Hvar er
draumurinn?
3. Bubbi Morthens/Nóttin
langa.
4. Ríó/Ekki vill það batna.
5. HLH-flokkurinn/Heima er
best.
6. Síðan skein sól/Ég stend á
skýi.
7. Jóhann Már Jóhannsson/Ef
væri ég söngvari.
8. Örvar Kristjánsson/Frjálsir
fuglar.
9. Rokklingar/Lög í flutningi
barna.
10. Björgvin Halldórsson og
gestir/Jólaplata. VG/óþh
dagar
tlljóla