Dagur - 28.02.1990, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 28. febrúar 1990 - DAGUR - 7
Sigurður Hallinarsson, leikstjóri, Steinunn Áskelsdóttir, gjaldkeri og Hrefna Jónsdóttir aðstoðarleikstjóri.
„Fimm innan um fimm hundruð sæti“
- Steinunn gjaldkeri í stólaleiðangri
Steinunn Áskelsdóttir er gjald-
keri Leikfélags Húsavíkur og
hún var með hópnum sem
skrapp í stólaleiðangurinn til
Reykjavíkur. Það er best að
biðja Steinunni að segja sög-
una af sætunum.
„Okkur bárust fregnir af því að
Stórstúka íslands hefði keypt
Tónabíó og vildi selja stólana úr
húsinu. Það er búinn að vera
draumur okkar að fá betri stóla í
Samkomuhúsið, svo að við feng-
um okkar mann í Reykjavík til
að fara í Tónabíó og skoða stól-
ana. Honum leist mikið betur á
þá en stólana okkar hér, svo
hann samdi um kaupin. í fyrstu
héldum við að við fengjum þarna
200 stóla fyrir 100 þúsund
krónur.
Við skelltum okkur fimm upp í
bíl, keyrðum til Reykjavíkur og
mættum eldsnemma á laugar-
dagsmorgni niður í Tónabíó þar
sem við hittum mann frá Stór-
stúkunni. I bíóinu voru 500 sæti
og samningurinn hafði hljóðað
upp á það að við tæmdum bíóið.
Þarna stóðum við fimm innan um
fimm hundruð sæti og sáum bara
okkar sæng útbreidda, við urðum
að losa húsið ef við ætluðum að
fá þessi sæti sem okkur vantaði.
Við vorum búin að fá gám frá
Alla Geira til að setja okkar stóla
í og það var hringt eftir ruslagámi
til að setja hina í, og við bara
byrjuðum, skrúfuðum lausa 500
stóla og vorum orðin ansi sterk
og þreytt á laugardagskvöld. Þá
tók Hallmar Sigurðsson sig til og
hringdi í fjóra vini sína, gamla
Húsvíkinga, og bað þá að koma
morguninn eftir og hjálpa okkur
að bera út stólana sem átti að
henda. Þeir mættu klukkan tíu
um morguninn og það munaði
aldeilis um þá, því þeir voru bún-
ir að fylla tvo stóra gáma klukkan
eitt og þar með vorum við búin
að tæma bíóið.
Gámurinn kom norður á
fimmtudag. Á föstudag tókum
við gömlu stólana út úr Sam-
komuhúsinu og settum þá á bíl,
þvoðum gólfteppið og máluðum
salinn og senuna. Á laugardags-
morgni fengum við heilmikið lið
sem byrjaði á því að skrúbba upp
nýju stólana og síðan voru þeir
skrúfaðir niður í salinn. Á sunnu-
dag var byrjað klukkan ellefu og
við vorum búin um fjögurleytið.
Nú höfum við þessa fínu bekki,
hreinan og nýmálaðan sal og svið
og þetta tókst okkur á tíu dög-
um.“
Nýju sætin í salnum eru 130
núna, vegna þess hve sýningin er
mannmörg og rúmfrek, en ann-
ars er rými fyrir 160 sæti í húsinu.
í haust voru heilmiklar lagfæring-
ar gerðar á neðri hæð leikhússins,
á salnum þar og tveim búnings-
herbergjum, og aðeins er eftir að
gera endurbætur á eldhúsinu og
einu búningsherbergjanna, en
anddyri leikhússins verður málað
fyrir frumsýninguna.
„Við erum búin að vera alveg á
fullu og þetta er óskaplega
skemmtilegt. Við hlökkum mikið
til að fara að sýna ykkur verkið
því ég held að þetta sé með því
stórkostlegasta sem við höfum
gert,“ sagði Steinunn. IM
í æfingu og undirbúnmgi
Félagasamtök -
Byggingaverktakar
Til sölu ca. 260 m2 húsnæöi á besta staö í bænum.
Leyfi er fyrir þremur íbúðum.
Upplýsingar í síma 22580 til kl. 17 virka daga.
Fyrirlestur
Samtök um sorg og sorgarviöbrögö veröa meö fyrir-
lestur um „sorgina og trúmál'1 fimmtud. 1. mars kl.
20.30 í Akureyrarkirkju. Fyrirlesari veröur Sigfinnur
Þorleifsson sjúkrahússprestur á Borgarspítalanum.
Kaffi og umræður á eftir í safnaöarheimilinu.
Allir velkomnir.
Stjórnin.
Hestamenn!
Látum ekki aka á okkur
í skammdeginu - notum
ENDURSKINSMERKI
HESTAMANNAFÉLAGIÐ LÉTTIR
StotnaöS núv 1928 P O Boi 348 - 602Aku(«yri
Nýtt
í fatadeild
Á börnin
Gallabuxur, st. 104-170 ............. kr. 1795,-
Bómullarbuxur, 4 litir, st. 104-170 . kr. 1595,-
Jogging buxur, 4 litir, st. 104-170 . kr. 1295,-
Jogging bolir, st. 104-146 .......... kr. 1295,-
Á dömur
Rúllukragabolir, 5 litir ........ kr. 1395,-
Bómullarpils, 5 litir............ kr. 1695,-
Frakkar, 2 geröír............ frá kr. 6495,-
Buxnapils............................ kr. 3595,-
Konubuxur, 3 litir, st. 40-52 ... kr. 2295,-
Tökum upp í vikunni 2 gerðir af sundbolum,
aerobick fatnaö o.fl.
Á herra
Gallabuxur, st. 30-38 ............. kr. 1995,-
Gallabuxur, víðar.................. kr. 2295,-
Gallajakkar........................ kr. 3395,-
Stakkar, 3 gerðir.............. frá kr. 4495,-
Póló bolir .................... kr. 1495,-
Náttföt............................ kr. 1195,-
LEE gallabuxur á dömur og herra.
Opið föstudaga til kl. 19.00
og laugardaga til kl. 14.00.
Veríð velkomin
HAGKAUP
Akureyri