Dagur - 28.02.1990, Blaðsíða 12

Dagur - 28.02.1990, Blaðsíða 12
D&6ÐE Akureyri, miðvikudagur 28. febrúar 1990 Kodak Express Gæóaframköllun ^★Tryggðu filmunni þinni íbesta cPeáí6myndir' . Hafnarstræti 98, sími 23520 og Hofsbót 4, sími 23324. Flugsamgöngur hófust að nýju á Norðurlandi eftir hádegi í gær. Þá stytti ioks upp og Flugleiðir flugu ótt og títt milli Reykjavíkur og Akureyrar. Ein vél var ekki fyrr farin á loft frá Akureyrarflugvelli er önnur kom inn til lendingar. Flugfélag Norðurlands stóð einnig í ströngu í gær. Vegurinn til Siglufjarðar er enn lokaður en einangrunin var rofin í gær með flugi, bæði á vegum FN og Arnarflugs. Mynd: kl Jökull hf. á Raufarhöfn: Rauðinúpur koniinn úr klössun - fer í leiðangur fyrir Hafrannsóknastofnun Bæjarstjórnarkosningarnar á Blönduósi: Lítil hreyfíng komin á framboðsmál - ekki von á nýjum framboðslistum Rauðinúpur ÞH-160, togari Jökuls hf. á Raufarhöfn, er kominn úr viðamikilii klössun og fór hann út síðastliðið sunnudagskvöld. Ekki hefur viðrað vel til veiða í þessum fyrsta túr togarans á þessu ári. Hólmsteinn Björnsson, fram- kvæmdastjóri Jökuls, sagði að túrinn yrði stuttur því Rauði- núpur þyrfti að vera kominn inn næstkomandi sunnudag. Ástæðan fyrir því að Rauði- núpur getur ekki verið lengur að veiðum í þessum túr er sú að hann verður leigður til Hafrann- sóknastofnunar á mánudaginn. Árlega fara fimm af japönsku togurunum í rannsóknaleiðangra fyrir stofnunina. „Þetta eru stofnmælingar. Tog- ararnir skipta sér um allt landið og taka ákveðið magn á fyrirfram ákveðnum stöðum. Síðan er þetta mælt og borið saman við árið á undan og breytingarnar metnar. Það er einn fiskifræðing- ur um borð í hverju skipisagði Hólmsteinn. Þetta er sjötta árið sem þessi leiðangur er farinn. Rauðinúpur verður í 20 daga hjá Hafrann- sóknastofnun en hann mun síðan fara aftur á veiðar 25. mars og afla hráefnis fyrir Fiskiðju Rauf- arhafnar. SS Lítil hreyfing er komin á fram- boðsmál til bæjarstjórnarkosn- inga á Blönduósi, þó skýrast línur væntanlega eitthvað um helgina. Fundir verða hjá bæði H-Iista Alþýðuflokks og Fram- sóknar og D-lista Sjálfstæðis- flokks næstkomandi laugar- dag. K-Iisti Alþýðubandalags og óháðra sem nú myndar meirihluta með H-lista Fram- sóknar og krata mun einnig funda um helgina. Hjá H-iista mun einhverra breytinga vera að vænta, líklega dregur Hilmar Kristjánsson bæjarstjórnarfulltrúi sig í hlé. „Það er lítil umræða komin á framboðsmál, þetta skýrist allt um helgina, við erum bara nokk- uð bjartsýn,“ sagði Hilmar. Sigríður Friðriksdóttir bæjar- stjórnarfulltrúi D-lista Sjálf- stæðisflokks, sem nú er í minni- hluta í bæjarstjórn, vildi ekkert segja um framboðsmálin, nema að þau yrðu eitthvað rædd á aðal- fundi næstkomandi laugardag. Kristín Mogensen bæjarstjórn- arfulltrúi K-lista ætlar ekki gefa kost á sér en uppstillingarnefnd er starfandi og er niðurstöðu að vænta frá henni í næstu viku. Ekki hefur heimildamaður Dags á Blönduósi heyrt um að von sé á nýjum framboðslistum til bæjar- stjórnarkosninga. kg Norðurland: Þokkalegasta öskudagsveður Á þessari stundu „hlaupa lítil börn um bæinn" á Akureyri í þökkalegu veðri sem lýsir sér í norðankalda, lítilsháttar élja- gangi og 6 stiga frosti, ef spá Veðurstofunnar frá hádegi í gær hefur gengið eftir. Spákortið frá hádegi í gær gerði ráð fyrir fremur hægri norð- austanátt og smáéljum á Norður- og Austurlandi. Þetta er hið þokkalegasta öskudagsveður, sérstaklega ef miðað er við veðr- ið undanfarna daga. Á fimmtudag er jafnvel búist við suðvestanátt með þurru og björtu veðri á Norður- og Aust- urlandi. SS Áhrif ófærðarinnar: Höfum tapað tals- verðiim viðskiptiim - segir Gunnar Karlsson hótelstjóri KEA Þingeyjarsýsla: MeðaJhraði mjólkurbfls nokkur hundruð metrar á klst. „Það er allt kolófært,“ sagði Svavar Jónsson hjá Vegagerð- inni, aðspurður um ástand vega í Þingeyjarsýlu í gær. Svavar átti von á að veður lagaðist og í dag átti að reyna að opna allar aðalleiðir. Lög- regla vissi ekki um nein óhöpp eða teljandi vandræði vegna veðurs og færðar í gær, enda ekki margir á ferð á vegum úti. Nokkrir dagar eru síðan hægt hefur verið að flytja kísilgúr frá Mývatnssveit til Húsavíkur. Kís- ilvegur hefur verið ófær og á föstudag fór fluttningavagn, hlaðinn kísil, á hliðina við Skútustaði. Síðdegis á mánudag var jeppi tvo tíma frá flugvellinum í Aðaldal til Húsavíkur, 12 km leið, og var hann þó dreginn, af stærri bíl, að Mýrarkvísl, en ferð- in sóttist seint vegna sótsvarts byls. Á mánudag var mjólkurbíll fimm tíma fram og til baka, á milli Fosshóls og Ingjaldsstaða, leið sem er rúmur kílómetri. Er mjólkurbíllinn þó með framdrif og hafði dráttarvél með tönn sér til aðstoðar. Snjógöngin sem bíll- inn fór eftir á þessari leið náðu víða uppfyrir spegla á bílnum, og eru því orðin á fjórða metra á dýpt. Bárðardalur er allur meira og Það getur verið hættulegt að leika sér með eldfæri. Þetta sannaðist á Uppanum síðast- liðið mánudagskvöld er eldur læsti sig í yfirhöfn manns sem stundaði þennan leik. Annar maður brá skjótt við og slökkti í yfirhöfninni og hlaut við það minna ófær, en að sögn kunnugra eru íbúar þar vanir því að vegir teppist dag og dag, eru því við- búnir, og láta slíkt ekki valda sér vandamálum að óþörfu. Töluvert mikill snjór mun vera kominn í Kinn og Ljósavatnsskarð. IM smávægileg brunasár á hendi. Að sögn Þráins Lárussonar á Uppanum var hér aðeins um lít- ilsháttar óhapp að ræða, en þau eru sem kunnugt er ekki óalgeng á vínveitingastöðum. Hann sagði að ekki hefði verið nein hætta á ferðum. SS „Veðrið það sem af er þessu ári hefur leitt til þess að við höfum tapað talsverðum við- skiptum,“ sagði Gunnar Karls- son hótelstjóri á Hótel KEA í samtali við Dag, en eins og fram hefur komið í fréttum hafa Flugleiðir t.d. þurft að fella niður rúmlega þriðjung alls flugs um landið það sem af er þessu ári. Gunnar segir að ófærðarhelg- arnar séu nú orðnar fimm að tölu og segi það sig sjálft að þetta dragi úr fólki að ferðast á þessum árstíma. „Fólk er ekki fyrir það að taka áhættu og verða veður- sjúkdóma í janúar sl. Inflúensu hefur ekki tekist að stinga sér niður að ráði, aðeins 8 voru skráðir sjúkir hennar vegna í mánuðinum. Jafn margir fengu lungna- bólgu, en 298 manns voru skráðir með kvef og hálsbólgu. Þá fengu 11 strepptókokkahálsbólgu og einn eitlafár. Þeir eru alltaf nokkrir sem fá hlaupabólu, að þessu sinni fjórir og einn fékk hettusótt. Maga- kveisa hrjáði 107 einstaklinga, 6 fengu kláðamaur, 2 flatlús og 4 þvagrásarbólgu. VG teppt,“ sagði hann. „Ferðamenn kvekkjast og eru alls ekki tilbúnir að rjúka af stað jafnvel þó það konii góð helgi inni á milli. Þetta getur haft mjög skaðleg áhrif til lengri tíma.“ VG Rafmagnsleysi á Akur- eyri í gær: Yfirálag á spenni við Rangárvelli Ástæðan fyrir rafmagnsleysi á Akureyri íaust fyrir hádegi í gær er sú að álag var orðið of mikið fyrir aðalspenninn í að- veitustöðinni við Rangárvelli þannig að varnarbúnaður kúplaði spenninum frá til að skemmdir yrðu ekki á honum. Aðeins er einn aðalspennir í aðveitustöðinni nú þar sem hinn spennirinn er í viðgerð erlendis. Svanbjörn Sigurðsson, veitu- stjóri Rafveitu Akureyrar, sagði í samtali við blaðið í gær að ekki ætti að þurfa að óttast að raf- magn fari af á næstunni þrátt fyrir að álag verði mikið. „Ég á von á að menn verði bet- ur á verði eftir að þetta kom fyrir þannig að keyra mætti díeselvél ef þetta hættustig í álagi nálgast aftur,“ sagði Svanbjörn. JÓH Heilsugæslustöðin á Akureyri: Heflsufar með ágætasta móti Heilsufar íbúa á svæði Heilsu- I virðist með ágætasta móti ef gæslustöðvarinnar á Akureyri marka má skýrslu um smit- Uppinn: Leikur að eldi

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.