Dagur - 28.02.1990, Blaðsíða 11

Dagur - 28.02.1990, Blaðsíða 11
íþróffir Miðvikudagur 28. febrúar 1990 - DAGUR - 11 HM-slagurinn hefst í kvöld - fyrsti leikurinn gegn Kúbumönnum kl. 19 Úrslitakeppni heimsmeistara- keppninnar í handknattleik hefst í Tékkóslóvakíu í dag. Eins og flestum er kunnugt eiga íslendingar lið í keppninni og leika þeir í riðli með Júgó- slövum, en þeir eru núverandi heimsmeistarar, Spánverjum og Kúbumönnum. Fyrsti leik- ur íslendinga er einmitt í kvöld kl. 18 er þeir mæta Kúbu- mönnum, á morgun leika þeir gegn Spánverjum og á laugar- dag gegn Júgóslövum. Fyrirkomulag keppninnar er þannig að 16 lið taka þátt og leika þau í fjórum riðlum. í A-riðli Gísli Pálsson, sundmaður úr Óðni, setti nýlega Akureyrar- met í 1500 m skriðsundi á Sundmóti Ármanns sem fram Leiðrétting í blaðinu í gær var frétt um aðal- fund KA sem reyndist ekki rétt í öllum atriðum. Þar var vitnað til fjárhagsörðugleika íþróttafélaga í bænum og m.a. sagt að Þór ætti í miklum erfiðleikum vegna skulda. Þetta mun ekki vera rétt og er beðist velvirðingar á því. Þá var því einnig haldið fram í fréttinni að svo virtist sem ekkert fé myndi renna til KA frá Akur- eyrarbæ á þessu ári. Þetta mun einnig vera rangt og er sömuleið- is beðist velvirðingar á því. leika Ungverjaland, Frakkland, Svíþjóð og Alsír, í B-riðli S-Kórea Rúmenía, Tékkóslóvakía og Sviss, í C-riðli Júgóslavía, Spánn, ísland og Kúba og í D-riðli Sovétríkin, Pólland, A-Pýska- land og Japan. Þrjú efstu liðin úr hverjum riðli komast áfram í milliriðla og taka með sér stig úr innbyrðis viður- eignum. Reyndar gildir svoköll- uð 25% regla verði tvö lið eða fleiri með sama stigafjölda í riðlakeppninni, en það þýðir að lið missir stig sem það hefur hlot- ið gegn andstæðingum sem ekki náðu 25% af mögulegum stigum úr riðlunum. Það sama gildir síð- skriosundi fór í sundhöll Reykjavíkur. Gísli synti á 18:07.24 mínútum og nægði sá árangur honum til silfurverðlauna. Sundfólk Óð- ins hlaut alls tvenn silfurverð- laun og tvenn bronsverðlaun á mótinu. Gísli hlaut einnig bronsverð- laun á þessu móti er hann synti 400 m skriðsund á 4:35.98 mínút- um. Þá hlaut Elsa M. Guðmunds- dóttir úr Óðni einnig tvenn verð- laun á mótinu. Hún synti 200 m bringusund á 2:57.40 og hlaut silfurverðlaun og bronsverðlaun hlaut hún fyrir að synda 100 m bringusund á 1:21.12 mínútum. Mót þetta var undirbúningur fyrir íslandsmeistaramót innan- húss sem haldið verður í Vest- mannaeyjum í apríl. Þegar hafa 10 sundmenn úr Óðni náð lág- markstímum fyrir það mót. an þegar lið fara upp úr milliriðl- unum. Það má ljóst vera að lítið má út af bera í þessari keppni enda lið- in ákaflega jöfn að getu. íslend- ingar lentu í 6. sæti í síðustu heimsmeistarakeppni og því hef- ur verið lýst yfir að það sæti sé markmiðið að þessu sinni. Mjög mikilvægt er að liðið lendi í einu af 8 efstu sætunum því með því tryggir liðið sér sæti í næstu A- keppni sem fram fer í Svíþjóð árið 1993. Verði Svíar meðal átta efstu þjóðanna kemst 9. liðið einnig í lokakeppnina þar sem gestgjafar eiga ávallt sæti í keppninni. Sjö efstu liðin á HM í Tékkó- slóvakíu tryggja sér einnig sæti á Ólympíuleikunum á Spáni árið 1992. Sama gildir þar, verði Spánverjar í einu af 7 efstu sæt- unum kemst 8. liðið einnig með. Miklar væntingar eru gerðar til íslenska liðsins eins og svo oft áður en þó virðist sem menn líti raunsærri augum á málin nú en áður. Þrátt fyrir það ætti að vera óhætt að gera nokkrar kröfur til liðsins. Það er nú leikreyndasta lið heims með valinn mann í hverju rúmi. Nokkrir liðsmanna þess hafa leikið yfir 200 landsleiki og fjöldamargir á milli 100 og 200 leiki. Slíkt vegur geysilega þungt í keppni sem þessari þegar tauga- spennan er í algleymingi og eitt mark getur í raun ráðið úrslitum um hvort lið lenda í A eða C- keppni. En íslendingar eiga ekki létt verk fyrir höndum. Fyrstu mót- herjarnir eru Kúbumenn en segja má að þeir séu óþekkt stærð. íslendingar hafa aldrei leikið gegn þeim en vitað er að liðið er mjög sterkt og með nokkra frá- bæra leikmenn innanborðs. Eng- inn skyldi vanmeta þetta lið og trúlega er lítil hætta á að íslend- ingar geri það eftir ófarirnar gegn S-Kóreumönnum sem öllum áhugamönnum um handknattleik er í fersku minni. Annar leikur okkar er gegn Spánverjum sem ætíð hafa reynst Islendingum erf- iðir og þrátt fyrir að vel hafi gengið gegn Júgóslövum á síð- ustu árum þarf ekki að fjölyrða um styrkleika þeirra. Komist íslenska liðið í milli- riðil er líklegast að það leiki gegn Pólverjum, A-Þjóðverjum og Sovétríkjunum. Ætti liðið að eiga þokkalega möguleika gegn tveimur fyrrnefndu þjóðunum en möguleikarnir gegn Sovétmönn- um eru hverfandi enda fyrirfram talið nánast vonlaust að þeir tapi leik á þessu móti. En í rauninni er tilgangslaust að velta vöngum yfir gengi liðsins fyrirfram - það eina sem er víst er að allt getur gerst. Og íslenska þjóðin getur ekkert gert nema sameinast í bæn fyrir framan sjónvarpstækin og vona það besta. Bjarki Sigurðsson i kunnuglegri stellingu. Bjarki og félagar verða í eldlín- unni í kvöld. Handknattleikur: Þorbjöm Jensson dæmdur í þriggja mánaöa leikbann Sundmót Ármanns: Gísli setti Akureyrarmet - í 1500 m íslenskar getraunir: Aukaseðill vegna HM íslenskar getraunir standa fyrir aukagetraunaseðli í tengslum við HM í handknattleik sem hefst í Tékkóslóvakíu eins og flestum íþróttaáhugamönnum mun kunnugt. Leikirnir sem eru á þessum aukaseðli fara fram í dag, 28. febrúar, 1. mars og 3. mars. Skilafrestur á seðl- inum er til kl. 18.55 í dag. Til gamans voru nokkrir þekktir handknattleiksáhuga- menn fengnir til að spá í seðilinn og látum við leikina og spá sér- fræðinganna fylgja hér með. Dómstóll HSÍ hefur dæmt Þorbjörn Jensson, þjálfara 1. deildarliðs Vals í handknatt- leik, í þriggja mánaða keppn- isbann og til greiðslu á 10.000 króna sekt. Bannið hlýtur Þor- björn fyrir að kalla lið sitt af leikvelli í leik gegn Gróttu á alþjóðlegu handknattleiksmóti í Garðabæ fyrir skömmu. Ástæðan var óánægja Vals- manna með dómara leiksins, þá Guðmund Lárusson og Guðmund Stefánsson. Sam- kvæmt reglum HSÍ er þetta óheimilt og hámarksrefsing fyrir brot af þessu tagi getur varðað allt að sex mánaða leik- banni. Mótið var haldið með sam- þykki HSÍ og þátttöku U-21 landsliðsins og telst því mót á vegum HSÍ. 1 18. grein reglu- gerðar HSÍ um handknattleiks- mót segir m.a: „Flokk, sem hætt- ir leik, áður en dómari gefur merki um að leiktími sé liðinn, má setja í leikbann allt að sex mánuði, bæði flokkinn í heild og hvern einstakan leikmann og dæma allt að kr. 10.000. í sekt.“ Valsmenn hafa ákveðið að ! áfrýja dómnum til Dómstóls ÍSÍ. Knattspyrna: Dómarar á faraldsfæti íslenskt knattspyrnudómaratríó muD halda til Svíþjóðar í vor og dæma leik Svíþjóðar og Japan, sem fram fer í Gautaborg þann 23. maí nk. Guðmundur Har- aldsson, KR, dæmir leikinn en þeir Sveinn Sveinsson, Fram og Bragi V. Bergmann, Umf. Ár- roðanum, annast línuvörslu. Þá mun Eyjólfur Ólafsson dæma leik Englands og Belgíu í Evrópukeppni kvennalandsliða sem fram fer í Englandi þann 7. apríl. Bogdan Kowalczyk Jón Hjaltalín Magnússon Guijón Guðmundsson Einar Magnússon Eiríkur Jónsson Bjarni Felixson Sigmundur Steinarsson Tékkóslóvakía-Sviss 28. feb. 18.00 1 1 1 1 1 1 1 Ísland-Kúba 28. feb. 18.00 1 1 X 1 1 1 1 Sviss-S-Kórea 1. mars 16.00 1 2 1 1 2 2 X Rúmenía-Tékkóslóvakía 1. mars 18.00 2 2 2 2 1 1 X Spánn-ísland 1. mars 18.00 X 2 X 2 2 2 2 Pólland-A-Þýskaland 1. mars 18.00 1 2 1 X 2 2 2 Ungverjaland-Svíþjóð 3. mars 16.00 1 2 1 X 1 2 1 S-Kórea-Tékkóslóvakía 3. mars 16.00 2 2 2 2 2 1 1 Rúmenía-Sviss 3. mars 18.00 2 2 1 X 1 1 1 Júgóslavía-Ísland 3. mars 16.00 2 2 2 2 2 2 1 Spánn-Kúba 3. mars 18.00 1 1 2 1 1 1 1 Sovétríkin-A-Þýskaland 3. mars 16.00 1 1 1 1 1 1 1 Þorbjörn Jensson, þjálfari Vals. Hann gekk af velli með lið sitt fyrir skömmu og það gæti reynst Valsmönnum dýrt.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.