Dagur - 13.03.1990, Blaðsíða 1
Reykvískir vélsleðamenn í kröppum dansi:
Óku út á úfið SkjáJfanda-
fljót og misstu sleða á kaf
Fulltrúar iðnaðarráðuneytisins og viðræðuncfndar um álver við Eyjafjörð sýndu hinuin erlendu gestum in.a.
aðstæður við Dysnes. Frá vinstri: Andrés Svanbjörnsson, frá markaðsskrifstofu iðnaðarráðuneytis og Landsvirkjun-
ar, Max Krocker, forstjóri hollenska álfyrirtækisins Hoogovens, Bond Evans, aðstoðarforstjóri Alumax, Paul
Dracke, forstjóri Alumax og Sigús Jónsson, bæjarstjóri á Akureyri. Mynd: kl
Tveir vélsleðamenn úr Reykja-
vík misstu sleða sína á kaf í
úfið Skjáifandafljót sl. laugar-
dagskvöld. Enginn ís var á
fljótinu þar sem mennirnir fór
út á það og töldu þeir sig
örugga yfir með því að stýra
sleðunum eins og hraðbátum
eftir vatnsfletinum. Þetta fór
þó öðruvísi en ætlað var og
tveir sleðanna fóru í fljótið.
Okumennirnir rennblotnuðu
og fengu aðhlynningu í Stóra-
tungu í Bárðardal.
Vélsleðamennirnir voru að
koma frá_ vélsleðakeppninni
i„Mývatn ’9Ö“, sem haldin var í
Mývatnssveit unt helgina. Með
Reykvíkingununt voru tveir
akureyrskir sleðamenn, en fljót-
lega misstu þeir fyrrnefndu sjónir
Forráðamenn Alumax og Hoogovens kynntu sér aðstæður í Eyjafirði í gær:
Ejjafjörður hentar vel fyrir álver
- segir Paul Dracke, forstjóri bandaríska álfyrirtækisins Alumax
„Mér líst vel á þetta svæði og
tel að það henti vel fyrir
álverksmiðju. Hins vegar eru
fleiri staðir inni í myndinni og
of snemmt er að segja til um
staðsetningu álverksmiðju hér
á landi,“ sagði Paul Dracke,
forstjóri bandaríska álfyrir-
tækisins Alumax í samtali við
Dag eftir skoðunarferð hans,
Bond Evans, aðstoðarforstjóra
Alumax, og Max Krocker, for-
stjóra hollenska álfyrirtækisins
Hoogovens og fulltrúa iðnaðar-
ráðuneytisins í Eyjafirði í gær.
Fulltrúar álfyrirtækjanna
tveggja komu til Akureyrar í
gærmorgun og skoðuðu aðstæður
í firðinum með tilliti til byggingar
200 þúsund tonna álbræðslu. Á
móti hinum erlendu gestum tóku
fulltrúar viðræðunefndar sveitar-
félaganna um byggingu álvers við
Eyjafjörð og forsvarsmenn Iðn-
þróunarfélags Eyjafjarðar.
Meðal annars litu gestirnir á
aðstæður við Dysnes, sem helst
hefur verið nefnt til sögunnar fyr-
ir álbræðslu í Eyjafirði. Þá fóru
þeir í skoðunarferð um Akureyri
og voru upplýstir um ýmislegt
varðandi atvinnu- og menningar-
líf bæjarins.
Á fundi á Hótel KEA, að
aflokinni skoðunarferðinni, var
fulltrúum álfyrirtækjanna gerð
grein fyrir ýmsu varðandi Akur-
eyri og Eyjafjarðarsvæðið. Til
glöggvunar var m.a. brugðið upp
nokkrum litskyggnum frá svæð-
inu og það sýnt í sumarskrúða.
Poul Dracke sagði að við
ákvörðun um staðsetningu
álvers myndi Alumax leggja mik-
ið upp úr stöðugu vinnuafli.
„Fyrir okkur er mikilvægt að fá
gott og stöðugt vinnuafl. Auðvit-
að hafa fleiri þættir áhrif á þetta
en án góðs vinnuafls gerist
ekkert."
Forstjóri Alumax sagði að
staðsetning álverksmiðju í
Straumsvík væri bæði jákvæð og
neikvæð fyrir Alumax. Hann
vildi ekki kveða upp úr um hvort
hann teldi óæskilegt að byggja
nýja sjálfstæða álverksmiðju við
hlið álvers Alusuisse í Straums-
vík. „Hér er um mjög ólík álfyr-
irtæki að ræða. Við erum hvo-rki
betri eða verri en þeir, einfald-
lega öðruvísi," sagði Paul
Dracke.
Hann sagðist ekki geta tjáð sig
um það á þessari stundu hvort
líkur á byggingu álbræðslu við
Eyjafjörð hefðu aukist. „Við eig-
um eftir að fara í saumana á
mörgum hlutum áður en ákvörð-
un liggur fyrir.“
I dag verður undirrituð í
Reykjavík viljayfirlýsing Atlantal-
hópsins, Alumax, Hoogovens og
isænska fyrirtækisins Granges um
byggingu álvers á íslandi. Með
viljayfirlýsinguna í höndum
munu fulltrúar fyrirtækjanna
setjast að samningaborði með
íslenskum stjórnvöldum og
semja um raforkuverð til nýrrar
álbræðslu. Pokist málið í sam-
komulagsátt er stefnt að ákvörð-
un urn staðsetningu álvers í mat'
nk. og endanlegir samningar
verði undirritaðir í september
nk. óþh
Sigurður P. Sigmundsson,
framkvæmdastjóri Iðnþróunarfélags Eyjaíjarðar hf.:
Mikilvægt að kynna Eyja-
fjörð fyrir Alumax-mönnum
Sigurður P. Sigmundsson,
framkvæmdastjóri Iðnþróun-
arfélags Eyjafjarðar, sagði að
aflokinni kynningarferð og
fundi með forsvarsmönnum
Alumax og Hoogovens í gær
að það mætti að minnsta kosti
fullyrða að staða Eyjafjarðar
gagnvart staðsetningu nýrrar
sjálfstæðrar álbræðslu væri
ekki lakari en annarra svæða
sem hefðu verið nefnd í þessu
sambandi.
Sigurður sagði að í máli
Dracke, forstjóra Alumax, hefði
komið fram að það fyrirtæki
hefði góða reynslu af rekstri
álvera á smærri stöðum. „Með
því var hann að gefa í skyn að
Eyjafjörður væri hvað það snertir
ekki í lakari samkeppnisstöðu en
höfuðborgarsvæðið,“ sagði
Sigurður.
„í kynningu okkar á svæðinu
lögðum við mikla áherslu á þá
þjónustu sem væri að finna á
Akureyri. Hér væru m.a. fram-
haldsskólar, háskóli, stærsta
sjúkrahús landsins fyrir utan
höfuðborgarsvæðið og þjónustu-
fyrirtæki við iðnað,“ sagði
Sigurður.
Hann sagði það greinilega hafa
komið fram í máli erlendu gest-
anna að eftir að búið væri að
skrifa undir viljayfirlýsingu um
byggingu nýs álvers skipti mestu
að ná samningum um raforku-
verð. Áður en niðurstaða fengist
út úr þeim viðræðum væri erfitt
að segja til um framhaldið. Ef
málið færi áfram í jákvæðan far-
veg væri að því stefnt að taka
ákvörðun um staðsetningu í maí
nk. „Við erum ánægðir með að
hafa fengið tækifæri til kynningar
á þessu svæði. Það að þessir
menn hafi komið hér og fari heim
með margvísleg gögn um Eyja-
fjarðarsvæðið skiptir auðvitað
ákaflega miklu máli. Pví teljum
við að gagnvart Alumax sé
Eyjafjörður nú meira inni í
myndinni en áður,“ sagði Sigurð-
ur. óþh
af þeim og villtust af leið. Reyk-
víkingarnir lentu heima í Svartár-
koti í Bárðardal og var vísað
rétta leið eftir þjóðveginum að
brúnni og upp hjá Hlíðarenda.
Hins vegar dugðu leiðbeiningarn-
ar ekki betur en svo að félagarnir
lentu á afleggjaranum niður í
Stórutungu. Leið þeirra lá þaðan
niður að Skjálfandafljóti.
Einn sleðamannanna gerði sér
lítiö fyrir og „sigldi“ sleða sínum
þar yfir fljótið. Ekki nóg með
það. Kappinn kórónaði afrekið
með því að stýra „fleytunni“ til
baka. Að vísu komst hann ekki
alla leið, því sleðinn fór í fljótið
nokkrum metrum frá bakkanum.
Litlu betur fór fyrir næsta manni,
hann hikaði örlítið og var refsað
með því að missa sleðann ofan í
fljótið.
Mennirnir náðu sleðunum upp
og tókst um síðir að koma þeim í
gang. „Sjómennirnir" voru hins
vegar drifnir undir heita bunu í
Stórutungu og klæddir í þurr föt.
óþh
Loðnuveiðin:
Iitil veiði
þessa dagana
Loðnuveiðin helur verið
sveiflukcnnd á síðustu sólar-
hringum. Að sögn Ástráðs
Ingvarssonar, hjá Loðnu-
nefnd, er aflinn á vertíðinni
nú kominn í 618 þúsund tonn
og því eru ríflega 140 þúsund
lestir eftir af því sem íslensku
skipunum er heimilt að veiða.
Á laugardaginn bárust
Loðnunefnd tilkynningar um
5450 tonn en þar var að mestu
leyti um að ræða slatta frá
fimmtudegi og föstudegi. Á
sunnudaginn var tilkynnt um
1750 tonn.
Flotinn er nú á veiðum fyrir
sunnan land. Skipin eru aðal-
lega á þrcmur svæðum, þ.e. við
Lónsbugt, Dyrhólaey og
Reykjanes. Sem stendur er eng-
in veiði fyrir vestan land.
Prjú skip lönduðu á Norður-
landi um helgina. Guðmundur
Ólafur ÓF landaði 350 tonnum
í Ólafsfirði, Pétur Jónsson land-
aði 900 tonnum á Pórshöfn og
Hilmir landaði 1330 tonnum á
Siglufirði.
Örn KE er eina skipið sent
lokið hefur kvóta þeim sem út-
hlutað var í upphafi en fær
væntanlega viðbót, eins og önn-
ur skip í flotanum. JÓH
Færð á Norðurlandi:
Aflar helstu leiðir færar
Síðdegis í gær var orðið fært á
öllum helstu þjóðvegum á
Norðurlandi. Fært var í austur
frá Akureyri til Húsavíkur og
þaðan til Vopnafjarðar. Kísil-
vegur var sömuleiðis fær.
Þá var sömuleiðis fært til Dal-
víkur og um hádegi í gær var leið-
in til Ólafsfjarðar orðin fær.
Öxnadalsheiði og Holtavörðu-
heiði voru báðar ruddar í gær og
því var fært frá Akureyri til
Reykjavíkur. Hins vegar var ill-
fært um Fljót til Siglufjarðar en
ruðningstæki unnu þar af krafti
við mokstur og var vonast til að
þangað yrði fært í gær. VG