Dagur - 13.03.1990, Síða 2
2 - DAGUR - Þriðjudagur 13. mars 1990
fréttir
Viðræður EFTA og EB:
Utanríkisráðherra heldur
kyrniingarfundi á Akureyri
b
Jón Baldvin Hannibalsson,
utanríkisráðherra, keniur til
Akureyrar í dag í því skyni að
kynna viðræður EFTA og EB
á almennum fundi og einnig á
sérstökum upplýsingafundum í
framhaldsskólunum. Þá mun
utanríkisráðherra heimsækja
FUF Skagafirði:
Aöalíiindur
um helgina
- stóriðju- og
utanríkismál rædd
Aðalfundur FUF í Skagafirði
var haldinn á Sauðárkróki um
helgina. Sigurður Árnason
flutti skýrslu fráfarandi stjórnar.
Ný stjórn var kosin og fékk
hún samhljóða kosningu. All-
snarpar umræður urðu á fund-
inum. Deildu menn hart um
stóriðjumál, einkum álver við
Eyjafjörð. Greinilegt var að
sitt sýndist hverjum um ágæti
stóriðju á íslandi og arðsemi
slíks iðnaðar.
Utanríkis- og varnarmál voru
einnig rædd. Taldi meirihluti
fundarmanna að endurskoða
þyrfti hlutverk íslands innan
NATO.
Vera Bandaríkjahers á Kefla-
víkurflugvelli var einnig rædd.
Voru fundarmenn nokkuð sam-
mála um að tími væri kominn til
að Bandaríkjaher færi að taka
pokann sinn.
Staðsetning varaflugvallar fyrir
millilandaflug var rædd. Töldu
fundarmenn Sauðárkrók vænleg-
an kost til staðsetningar slíks
flugvallar. Höfnuðu fundarmenn
því samhljóða að Mannvirkja-
sjóður NATO kæmi nálægt fjár-
mögnun slíks flugvallar. kg
fyrirtæki. Með honum í för eru
Þorlákur Helgason, upplýs-
ingafulltrúi, og Kristinn T.
Haraldsson, starfsmaður utan-
ríkisráðuneytisins.
Utanríksráðherra kemur til
Akureyrar í dag, þriðjudag, kl.
15 og mun Sigfús Jónsson, bæjar-
stjóri, taka á móti gestunum. Síð-
an verður farið í heimsókn í Ála-
foss, Útgerðarfélag Akureyringa
og Slippstöðina.
í kvöld kl. 21 hefst síðan
almennur upplýsingafundur um
viðræður EFTA og EB í Alþýðu-
húsinu. Auk gestanna taka Sigfús
Jónsson, bæjarstjóri, og Sigurður
P. Sigmundsson, framkvæmda-
stjóri Iðnþróunarfélags Eyja-
fjarðar, þátt í fundinum. Sem
kunnugt er hófust undirbúnings-
viðræður EFTA og EB í desem-
ber sl. og er gert ráð fyrir að eig-
inlegar samningaviðræður geti
hafist í vor.
Á miðvikudaginn mun utan-
ríkisráðherra halda upplýsinga-
fundi í Menntaskólanum á Akur-
eyri, Verkmenntaskólanum og
Háskólanum. SS
Frá hátíðarmessunni á Hólum á laugardaginn. Endurgerð kirkjunnar er nú lokið og skartar hún nú mörgum fögrum
munum. Mynd: kg
Hátíðarmessa í Hóladómkirkju
- forseti íslands meðal kirkjugesta
Hátíðarmessa var haldin í
Hóladómkirkju í tilefni af
endurgerð kirkjunnar. Messan
fór fram síðastliðinn sunnu-
dag. Margmenni var við at-
höfnina enda var veöur með
eindæmum gott. Nú er lokið
endurgerð kirkjunnar og skart-
Bárðardalur:
Hygmyndum um að leggja
MSKÞ niður mótmælt
Á fundi í Hreppsnefnd Bárð-
dælahrepps, var ákveðið að
mótmæla framkomnum hug-
myndum um að leggja niður
Mjólkursamlag Kaupfélags
Þingeyinga á Húsavík og flytja
mjólkina til vinnslu á Akur-
eyri.
„Mjólkursamlag KP hefur haft
viðunandi rekstur og er ein af
máttarstoðum atvinnulífsins á
Húsavík," segir m.a. í ályktun-
inni sem samþykkt var samhljóða
eftir umræður um framtíð Mjólk-
ursamlagsihs á Húsavík.
Fjöldi ályktana og mótmæla,
við hugmyndum um að leggja
MSKÞ niður, hafa verið sam-
þykkt í sveitarstjórnum og félög-
um í Suður-Þingeyjarsýslu, síðan
tillögur afurðastöðvanefndar
voru kynntar á síðasta ári. IM
Húsavíkurhöfn:
Rækjutogara sakaði ekki á sandhryggnuin
Rækjutogarinn Shetland
Callenger, sem skráður er í
Leirvík á Hjaltlandi og er
2800 tonna skip, tók niðri á
sandhrygg við bryggjuna í
Húsavíkurhöfn skömmu eftir
hádegi á föstudag. Skip þurfa
að gæta sjávarfalla þegar þau
eru á ferð við bryggjuna.
Togarinn skemmdist ekki við
þetta óhapp og hægt var að
hefja löndun úr honum með
krana af bryggjunni. Togarinn
losnaði síðan á flóðinu um
kvöldið.
Þetta er í fyrsta sinn sem er-
lendur rækjutogari kemur til
hafnar á Húsavík, en hann var
að landa 50 tonnum af rækju til
vinnslu hjá Fiskiðjusamlagi
Húsavíkur og 50 tonnum sem
fer í gámum á markað erlendis.
IM
ar kirkjan nú mörgum fögrum
munum. Má þar nefna nýtt
orgel sem sett var upp í des-
ember. Altarisbrík kirkjunnar
er komin úr viðgerð hjá
Þjóðminjasafninu og er það
hinn fegursti gripur.
Sr. Hjálmar Jónsson predikaði
og fyrir altari þjónuðu þeir sr.
Sigurður Guðmundsson vígslu-
biskup Hólum og sr. Gísli Gunn-
arsson Glaumbæ.
Allir kirkjukórar Skagafjarð-
arprófastsdæmis sungu við mess-
una og voru það samtals um sex-
tíu manns. Orgelleikur var í
höndum organista allra kirkju-
kóranna, það voru; Sólveig S.
Einarsdóttir Varmalæk, Stefán
Gíslason Varmahlíð, Rögnvald-
ur Valbergsson Sauðárkróki,
Helga Kristjánsdóttir Silfrastöð-
urn, Anna K. Jónsdóttir Mýra-
koti og Jónína Sigurðardóttir
Egg.
Söngstjórn var í höndum
Hauks Guðlaugssonar söngmála-
stjóra.
Meðal gesta við hátíðarmessu
var frú Vigdís Finnbogadóttir
forseti íslands og margir fleiri
góðir gestir.
Ávörp fluttu að messu lokinni
Sigurður Guðmundsson vígslu-
biskup Hólum, Óli Þ. Guðbjarts-
son dóms- og kirkjumálaráðherra
og Guðmundur Guðmundsson
framkvæmdastjóri. Að lokinni
hátíðarmessu var kirkjugestum
boðið til kaffidrykkju í húsnæði
bændaskólans á Hólum.
Það var álit kirkjugesta nú að
þeim endurbótum loknum, sem
gerðar hafa verið á kirkjunni,
megi með sanni segja að dóm-
kirkjan á Hólum sé orðið eitt fal-
legasta guðshús landsins. kg
i
skál<
F
Hraðskákmót Akureyrar:
Jakob hraðskákmeistari
Hraðskákmót Akureyrar var
haldið síðastliðinn sunnudag.
Sigurvegari varð Jakob Krist-
insson og hlaut hann 17V2 vinn-
ing af 24 mögulegum og þar
með sæmdarheitið hraðskák-
meistari Akureyrar 1990.
Næstir komu Gylfi Þórhallsson
og Rúnar Sigurpálsson með 17
vinninga og í fjórða sæti varð
Jón Björgvinsson, fyrrum
hraðskákmeistari, með 16
vinninga.
Röð næstu keppenda varð
þessi: 5. Arnar Þorsteinsson 141/2
v. 6. Þórleifur Karlsson 14. 7.
Ólafur Kristjánsson 13. 8. Sigur-
jón Sigurbjörnsson 11 Vi. 9. Þór
Valtýsson 11. 10. Bogi Pálsson 10
v. og í 11. sæti varð Kári Elíson
með 8'/2 vinning.
Að sögn Gylfa Þórhallssonar
var mótið mjög jafnt og sterkt,
enda níu keppendur með yfir
2000 skákstig. Jón Björgvinsson
leiddi mótið lengst af og var á
tímabili með 2'/2 v. mcira en
næsti maður. Síðan skiptust Gylfi
og Rúnar á að taka forystuna og
var Rúnar efstur fyrir síðustu
umferð. Þá tapaði hann fyrir
Ólafi og Jakob vann Jón. SS
Fjórtánda Reykjavíkurskákmótið:
Sex Akureyringar
mætatilleiks
Fjórtánda Reykjavíkurskák-
mótið hefst laugardaginn 17.
mars næstkomandi og stendur
það yfir í hálfan mánuð. Vænt-
anlega verða tefldar 11 um-
ferðir eftir Monrad kerfi og er
þetta alþjóðlega mót gríðar-
lega sterkt og fjölmennt. Ak-
ureyringar ætla ekki að láta sig
vanta.
Sex félagar úr Skákfélagi
Akureyrar munu taka þátt í
Reykjavíkurskákmótinu að
þessu sinni, þeir Jón Garðar
Viðarsson, Áskell Örn Kárason,
Arnar Þorsteinsson, Ólafur
Kristjánsson, Rúnar Sigurpáls-
son og Bogi Pálsson.
Þegar hafa yfir áttatíu kepp-
endur skráð sig í mótið, þar af
um 30 stórmeistarar víðs vegar
að. Akureyringarnir fá því
örugglega að etja kappi við ýmsa
þekkta menn og geta safnað
reynslu í sarpinn. SS