Dagur - 13.03.1990, Page 9

Dagur - 13.03.1990, Page 9
Þriðjudagur 13. mars 1990 - DAGUR - 9 Það mæddi mikið á Jóni Erni Guðmundssyni gegn UMFN. Jón lék geysivel fyrir liðið þrátt fyrir að hafa ekki skorað mikið. Körfuknattleikur: „VaraJið“ Þórs mætti Njarðvíkingimi - og tapaði 72:126 Ólánið elti Þórsara á röndum þegar þeir voru að reyna að komast til Njarðvíkur á sunnu- dag til að leika þar gegn heimamönnum síðasta leik sinn í Úrvalsdeildinni í körfu- knattleik. Flest allir lykilmenn liðsins urðu veðurtepptir fyrir norðan og Dan Kennard lá veikur í rúminu þegar leikur- inn fór fram þannig að útlitið var ekki bjart. Njarðvíkingar höfðu mikla yfirburði í leikn- um og unnu stórsigur þrátt fyr- ir hetjulega baráttu Þórsara, 126:72. Hluti Þórsliðsins fór suður á laugardaginn en afgangur- inn ætlaði að koma daginn Davíð Hreiðarsson átti stórleik gegn UMFN og skoraði 33 stig. eftir. Þeir komust hins vegar aldrei vegna veðurs og til að bæta gráu ofan á svart lagðist Dan Kennard fársjúkur í rúmið og gat ekki leikið með. Þegar leikurinn hófst var því aðeins Jón Örn á staðnum af byrjunarliðinu en meðal þeirra sem ekki komust voru Konráð Óskarsson, Guð- mundur Björnsson, Eiríkur Sig- urðsson, Jóhann Sigurðsson og Björn Sveinsson. Þórsarar náðu ekki að halda lengi í Njarðvíkinga á sunnudag- inn. Eftir að staðan var orðin 6:6 skildu leiðir og Njarðvíkingar skoruðu 16 stig í röð og ljóst var að allt stefndi í stórsigur. Staðan í leikhléi var 60:31 Njarðvík í vil og þrátt fyrir að Þórsarar næðu að standa í Njarðvíkingunum framan af síðari hálfleik var um vonlausa baráttu að ræða. Liðið átti síðan annan slæman kafla, Njarðvíkingar breyttu þá stöð- unni úr 80:52 í 99:52 og úrslitin voru ráðin. Ljósi punkturinn í leik Þórsara var barátta þeirra og frábær frammistaða Davíðs Hreiðars- sonar en hann hefur lítið fengið að spreyta sig til þessa. Davíð Iék á als oddi og skoraði 33 stig, greinilega efnilegur piltur. En það var við ofurefli að etja og Þórsarar mæta áreiðanlega tví- efldir í úrslitaleikinn um Urvals- deildarsætið gegn Víkverja um næstu helgi. Stig UMFN: Teitur Örlygsson 26, Kristinn Einarsson 22, Patrick Releford 22, Jóhannes Kristbjörnsson 20, Ástþór Ingason 13, Friðrik Ragnarsson 13 og Helgi Rafnsson 10. Stig Þórs: Davíð Hreiðarsson 33, Ágúst Guðmundsson 12, Þórir Guð- laugsson 11, Jón Örn Guðmundsson 7, Skarphéðinn Eiríksson 5 og Stefán Frið- leifsson 4. MG/JHB Slakur leikur á Króknum: Tindastóll og KR áttust við í úrvalsdeildinni í körfubolta um helgina. Leikurinn var í heild slakur og voru bæði liðin langt frá sínu besta. Greinilegt var að Tindastólsliðið vantaði bandaríska leikmanninn James Lee en hann er hættur keppni vegna meiðsla. Slök dómgæsla setti einnig mark sitt á leikinn. Það var frekar slakur leikur sem liðin buðu áhorfendum á Sauðárkróki upp á. KR fór með sigur af hólmi, gerði 91 stig gegn 77 stigum heimamanna. Sterkast- ur í liði KR var Páll Kolbeinsson með tuttugu og eitt stig. Hann þurfti þó að fara af leikvelli í síð- ari hálfleik með fimm villur. Lít- ið bar á Rússanum í liði KR, greinilegt var að hann hafði lítinn áhuga á leiknum. Hjá Tindastóli stóðu þeir upp úr Sturla Örlygsson, Haraldur Leifsson og Björn Sigtryggsson. Sýndu þeir ágæta baráttu á köflum. Slök dómgæsla einkenndi leik- inn. Lentu bæði liðin í miklum villuvandræðum, sem mátti að hluta til rekja til mistaka hjá dómurunum. Tindastólsliðið er verulega slakara eftir að hafa misst bandaríska leikmanninn James Lee og ekki er gott að segja hver úrslitin hefðu orðið ef hans hefði notið við. Dómarar voru Kristján Möller og Kristinn Óskarsson Stig KR: Páll Kolbeinsson 21. Birgir Mikaesson 21, Guöni Guðnason 11, Anatoli Kantun 10, Lárus Árnason 9, Matthías Einarsson 9, Böðvar Guðjóns- son 5, Hörður Gunnarsson 5. Stig Tindastóls: Sturla Örlygsson 22, Valur Ingimundarson 15, Haraldur Leifs- son 16, Björn Sigtryggsson 13, Sverrir Sverrisson 6, Pétur Vopni 5. Sverrir Sverriisson og félagar áttu slakan dag gegn KR-ingum. KR lagði Tindastól Akureyrarmótið um helgina þótti takast vel og voru þátttakendur fjölmargir. Skíði: Akureyrannótið í stór- svigi 12 ára og yngri Akureyrarmótið í stórsvigi 12 ára og yngri fór fram í Hlíðar- fjalli á laugardag. Mótið heppnaðist ágætlega, fjöldi þátttakcnda mætti til leiks í kyrru veðri en nokkuð miklu frosti. Úrslit urðu þessi: Piltar, 11-12 ára: 1. Jóhann Arnarson Þór 1:26.61 2. Fjalar Úlfarsson Þór 1:28.07 3. Ásgeir H. Leifsson KA 1:29.88 Stúlkur, 11-12 ára: 1. Brynja Þorsteinsdóttir KA 1:21.06 2. Hrefna Óladóttir KA 1:22.41 3. Andrea Baldursdóttir KA 1:23.45 Piltar, 10 ára: 1. Óðinn Árnason Þór 1:28.99 2. Gísli Hilmarsson Þór 1:34.20 3. Rúnar Friðriksson Þór 1:36.45 Stúlkur, 10 ára: 1. Guðrún V. Halldórsd. Þór 1:31.52 2. Sigríður Jóna Ingadóttir Þór 1:33.64 3. Anna María Oddsdóttir Þór 1:37.47 Piltar, 9 ára: 1. Jóhann Þórhallsson Þór 1:43.66 2. Hörður Rúnarsson Þór 1:49.79 3. Rúnar Jónsson Þór 1:52.17 Stúlkur, 9 ára: 1. Helga Halldórsdóttir Þór 1:55.12 2. Rannveig Jóhannsdóttir 1:55.98 3. Sólveig Rósa Sigurðard. Þór 1:56.61 Piltar, 8 ára: 1. Kristinn Magnússon KA 1:24.00 2. Matthías Þ. Hákonars. Þór 1:31.40 3. Bernharð Ingimundars. Þór 1:34.72 Stúlkur, 8 ára: 1. Ása K. Gunnlaugsd. KA 1:21.58 2. Auður Dóra Franklín KA 1:30.85 3. Brynja B. Guðmundsd. KA 1:31.79 Piltar, 7 ára: 1. Jón Víðir Þorsteinsson KA 1:31.53 2. Egill Jóhannsson KA 1:32.89 3. Birkir Baldvinsson KA 1:35.23 Stúlkur, 7 ára: 1. Arna Arnarsdóttir KA 1:29.35 2. Hildur Jana JúlíusdóttirKA 1:29.55 3. Ragnh.TinnaTómasd. KA 1:31.01

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.