Dagur - 13.03.1990, Side 16
Vélsleðakeppnin „Mývatn ’90“ fór fram í Mývatnssveit um helgina. Sjaldan eða aldrei hafa jafn margir sleðamenn
skráð sig til keppni og í sumum greinum var keppni jöfn og hörð. Eins og sjá má var vel tekið á, spyrnt og spólað
og lagst á stýrið í kröppustu beygjunum. Úrslit og myndir er að finna á bls. 4 og 5 í dag. Mynd: kl
Þrjár ríkisjarðir
lausar í Presthólahreppi
- þó ekki vísbending um fólksflótta
Jarðadeild landbúnaðarráðu-
neytisins hefur nýverið auglýst
átta ríkisjarðir lausar til ábúð-
ar frá næstu fardögum. Helm-
ingur jarðanna er á Norður-
landi, þrjár í Presthólahreppi
og ein í Fljótahreppi.
Að sögn Jóns Höskuldssonar í
landbúnaðarráðuneytinu gefa
þrjár lausar ríkisjarðir í Prest-
hólahreppi ekki til kynna flótta af
jörðum þar. Hann segir að þegar
séu umsóknir um þessar jarðir og í
rauninni hafi ráðuneytið áhuga á
að sameina tvær þeirra, Presthóla
og Hrauntún. Ábúandinn á
þriðju lausu ríkisjörðinni, Hjarð-
arási, hefur sótt um ábúð á Prest-
hólum.
Jón segir það yfirleitt aldrei
vandamál að fá ábúendur á ríkis-
jarðir þegar þær losni. Hann seg-
Aðalfundir tveggja eyfirskra hestamannafélaga um helgina:
Hringur og Léttir samþykktu mngöngu í L.H.
Aðalfundir hestamannafélag-
anna Léttis og Hrings hafa
samþykkt inngöngu í Lands-
samband hcstamannafélaga sem
þessi félög hafa staðið fyrir
utan síðastliðin tvö ár. Þriðja
félagið, Funi, heldur sinn
aðalfund í vikunni og þar ræðst
hvort félagsmenn samþykkja
hliðstæða tillögu stjórnar um
inngöngu í L.H. Fjórða félag-
ið, sem á sínum tíma sagði skil-
ið við L.H. er Þráinn á Greni-
vík en félagið hefur ekki tekið
þátt í viðræðum við L.H. að
undanförnu og því Ijóst að af
inngöngu þess verður ekki að
sinni.
Mikill meirihluti félagsmanna í
Hring og Létti samþykktu tillögu
stjórnar um inngöngu í L.H. Á
aðalfundi Léttis á sunnudag
greiddu á áttunda tug manna
atkvæði, nokkrir seðlar voru auð-
ir, 63 lýstu sig fylgjandi inngöngu
en 8 á móti. Á aðalfundi Hrings á
Dalvík á föstudagskvöld voru
mættir ríflega 20 manns og þar
voru 16 samþykkir inngöngu.
„Á fundinum voru umræður
um þetta mál sem og öll önnur.
Menn lýstu sig ánægða með að nú
skuli sjást fyrir endann á deilunni
og ég held að menn hafi verið
nokkuð ánægðir með það sem út
úr þessum samningaviðræðum
hefur komið. Hins vegar er ljóst
að vinnan er ekki búin þar sem
nefndirnar tvær sem skipaðar
voru eftir viðræður okkar við
L.H. í haust, hafa ekki lokið
störfum. Þær eiga hins vegar að
ljúka sínum störfum í haust og
það sem út úr þeirra vinnu kemur
verður lagt fyrir landsþing. Við
væntum þess að málin vinnist
áfram á þeim nótum sem við ætl-
umst til. í því trausti göngum við
nú inn,“ segir Jón Ólafur Sigfús-
son, formaður Léttis.
Sem áður segir var vilji félags-
manna í Hring skýr gangvart inn-
göngutillögunni. Samkvæmt upp-
lýsingum blaðsins komu fram
raddir á fundinum um að lítið
hafi breyst í málum L.H. og
eyfirsku félaganna frá í haust en
tími væri þó nú til að ýta þessum
ágreiningi til hliðar.
Áðurnefndar starfsnefndir
hafa hafnað tillögu Eyfirðinga
um að tvískipta landsmótum í
gæðingakeppni og kynbótamót.
Á hinn bóginn hafa nefndirnar
lagt til að hafa landsmót þriðja
hvert ár og landsmótsstöðum
verði fjölgað í fjóra. Tveir verði á
Norðurlandi og tveir á Suður-
landi. Hugmyndin er þó að lands-
mót verði á Suðurlandi að fjórum
árum liðnum en síðan þriðja
hvert ár þar á eftir. Þetta er meg-
ininntak þeirra hugmynda sem
lagðar voru fyrir aðalfundina en
ekkert þessara atriða er frágeng-
ið og verður ekki fyrr en eftir
landsþing í haust. JÓH
Framboðsmál á Húsavík:
Framsóknarmeim með skoðanakönmin
- A- og G-listar ekki með sameiginlegt framboð
Framboðsmálin eru ofarlega á
baugi hjá forsvarsmönnum
flokkanna á Húsavík þessa
dagana og um helgina var mik-
ið fundað um málin. Ekki náð-
ist samstaða forsvarsmanna A-
lista og G-lista um sameigin-
legt framboð og Framsóknar-
menn ákváðu að gerð yrði
skoðanakönnum um val fram-
bjóðenda á lista sinn.
Að sögn Regínu Sigurðardótt-
ur, sem er í uppstiliingarnefnd
fyrir G-lista, Alþýðubandalags
og óháðra, náðist ekki sú sam-
staða sem menn töldu að .þyrfti
að vera til sameiginlegs
framboðs, hvorki hjá A-lista eða
G-lista. Sameiginlegt framboð
fékk því ekki hljómgrunn á fund-
um aðstandenda listanna sl.
sunnudag. Regína sagði að G-
listafólk færi nú að vinna að því
að stilla upp, hvort sem það yrði
gert með forvali eða uppstillingu,
um það væri ekki búið að taka
ákvörðun en hún yrði tekin á
næstu dögum.
Framsóknarmenn héldu
félagsfund á sunnudagskvöld og
þar kynnti uppstillingarnefnd
hvað áunnist hefði. Að sögn
Egils Olgeirssonar, eins nefnd-
armanna, var samþykkt að beina
því til uppstillingarnefndar og
stjórnar að halda skoðanakönn-
un um val á frambjóðendum
meðal flokksbundins fólks, og
verður fundað um framkvæmd
könnunarinnar strax í kvöld. IM
Samið við SJS-verktaka um innréttingasmíði í Helgamagrastræti 53:
Vangaveltur um undirverktaka
- Aðalgeir Finnsson dró tilboð sitt ekki til baka
Akureyrarbær hefur samiö viö
SJS-verktaka um innréttinga-
smíði og frágang á húsinu
Helgamagrastræti 53, en bók-
un bæjarráðs frá 28. febrúar
vegna byggingaverktakanna
sem tilboð gerðu er að hluta á
misskilningi byggð.
í bókuninni segir orðrétt svo,
eftir að greint hafði verið frá til-
boðsfjárhæðum þriggja verktaka
í húsið: „Tilboð sem barst frá
Aðalgeir Finnssyni hf. var dregið
til baka.“ í samtali sem blaða-
maður átti við Aðalgeir Finnsson
segir Aðalgeir að þessi hluti
bókunarinnar sé rangur, hann
hafi aldrei dregið tilboð sitt til
baka.
Samkvæmt því sem Dagur
kemst næst eru eigendur innrétt-
ingaverkstæða á Akureyri
óhressir, því þeir hafa heyrt að
SJS-verktakar ætli ekki að semja
við undirverktaka í bænum um
hurðasmíði o.fl. þætti, heldur
hefðu samið eða ætluðu að semja
við fyrirtækið Tré-X í Reykjavík
um tiltekna verkþætti. Væri það
hart að á sama tíma og Akureyr-
arbær væri að semja við SJS-
verktaka væru þeir síðarnefndu
að flytja atvinnu úr byggðarlag-
inu.
Dagur hafi samband við einn
eigenda SJS-verktakafyrirtækis-
ins og spurðist fyrir um þetta
mál. Vildi hann ekki láta neitt
hafa eftir sér að svo stöddu, en
SJS-verktakar munu ekki hafa
gengið frá neinum samningum
við undirverktaka ennþá. EHB
ir að jarðir hafi yfirleitt ekki ver-
ið auglýstar til ábúðar þar sem
ábúendur hafi auðveldlega feng-
ist án auglýsinga. Núverandi
landbúnaðarráðherra hafi hins
vegar tekið upp þá stefnu að aug-
lýsa allar lausir ríkisjarðir til
ábúðar. óþh
Flugleiðin
Akureyri-Keflavík:
Flugleiðir sækja
ekki um leyfi
Að sögn Einars Sigurðssonar,
blaðafulltrúa Flugleiða, voru
þau mistök gerð nú um heig-
ina að senda út fréttatilkynn-
ingu þess efnis að félagið hafí
hug á að sækja um leyfí til
áætlunarflugs milli Keflavík-
ur og Akureyrar ef af bygg-
ingu álvers verði við Eyja-
ljörð. Ekki hafí fyrst verið
gengið úr skugga um hvort
Flugfélag Norðurlands hygg-
ist nýta sér þessa leið en F.N.
hefur sérleyfi á fíugleiðinni.
Einar sagði að Flugleiðir
muni ekki sækja um leyfi á þess-
ari leið en óski F.N. velfarnaöar
í þessu flugi enda kemur fram í
yfirlýsingu sem Sigurður Aðal-
stcinsson, framkvæmdastjóri
Flugfélags Norðurlands, sendi
frá sér í gær að líklega hefji
félagiö flug á þessari leið síðar á
árinu. Sigurður segir að tclag-
ið hafi ekki getað nýtt sér sér-
leyfiö enn sökum aðstöðuleysis
fyrir farþega í innanlandsflugi í
flugstöð Leifs Eiríkssonar. Að
lausn þessa vandamáls sé nú
unnið hjá samgönguráðuneyt-
inu.
Sigurður segir það mat F.N.
að flug á áðurnefndri flugleið
geti verið arðbært enda leggi
daglega fjöldi farþcga af Eyja-
fjarðarsvæöinu Ieið sína til
útlanda. Álver við Eyjafjörð
skipti varla sköpum en mundi,
eins og öll önnur umsvif í hér-
aðinu, stuðla aö fjölgun farþega
og tíðari ferðurn á þessari
flugleið. JÓH
Egilsstaðir:
Einbýlishús
íeldi
Einbýlishús á Egilsstöðum
eyðilagðist í eldi aðfaranótt
laugardags.
í húsinu sváfu hjón með eitt
barn er eldurinn kom upp. Hús-
bóndinn vaknaði og gat vakið
konu sína og barn og komust
þau öll út án erfiðleika. í gær
var ekki vitað um eldsupptök en
málið er í rannsókn, að sögn lög-
reglunnar á Egilsstöðum. IM