Dagur - 28.03.1990, Blaðsíða 4
4 - DAGUR - Miðvikudagur 28. mars 1990
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 1000 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 90 KR.
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 660 KR.
RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI: EGILL H. BRAGASON
BLAÐAMENN:
JÓN HAUKUR BRYNJÓLFSSON (íþróttir),
KÁRI GUNNARSSON (Sauðárkróki vs. 95-35960),
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON,
STEFÁN SÆMUNDSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR,
LJÓSMYNDARI: KRISTJÁN LOGASON
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RlKARÐUR B. JÓNASSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRlMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI:
HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
SÍMFAX: 96-27639
Hreppasjónarmið
verða að víkja
Þeirri skoðun vex stöðugt fylgi að nýju álveri
beri að velja stað utan suðvesturhorns landsins.
Ef marka má niðurstöður nýlegrar skoðana-
könnunar SKÁÍS og Stöðvar tvö er mikill meiri-
hluti þjóðarinnar þessarar skoðunar. Þá hafa
afdráttarlausar yfirlýsingar Steingríms Her-
mannssonar, forsætisráðherra og fleiri stjórn-
málaleiðtoga um þjóðhagslega hagkvæmni þess
að reisa álverið á landsbyggðinni, haft mikið að
segja um breytt viðhorf landsmanna gagnvart
staðarvalinu.
Það er gömul saga og ný að þegar rökin eru á
þrotum er freistandi að grípa til rangfærslna og
útúrsnúninga. Þetta hafa þeir gert, sem geta
ekki fyrir nokkurn mun hugsað sér að nýtt álver
verði reist annars staðar en í Straumsvík. Það
fyrsta sem þeim kom í hug af þessum toga var
að setja fram þá fullyrðingu að með því svo mik-
ið sem ræða möguleika á annarri staðsetningu
en Straumsvík væru ráðamenn að stofna mögu-
leikunum á því að nýtt álver yrði reist hér á landi
í hættu. Þessi fullyrðing er röng og fyrst og
fremst sett fram í annarlegum tilgangi. Meðan
verið var að ræða hugsanlega stækkun álversins
í Straumsvík, kom auðvitað enginn annar staður
til greina, eins og gefur að skilja! Um leið og
fyrirhuguð stækkun var út úr myndinni og
Alusuisse hætti þátttöku í Atlantal hópnum,
gjörbreyttust forsendur fyrir staðarvalinu. Um
leið kom Eyjafjörður sterklegast til álita, eins og
reyndar áður en hugmyndir um stækkun álvers-
ins í Straumsvík komu til umræðu. í annan stað
hefur því verið haldið fram, m.a. af bæjarstjóran-
um í Hafnarfirði, að svokölluð margfeldisáhrif
nýs álvers séu mest, verði það reist á suðvestur-
horninu. Þessi fullyrðing er einnig alröng. Marg-
feldisáhrif álvers eru þau sömu, hvar á landinu
sem það verður reist. Hins vegar er ljóst að verði
nýtt álver reist á suðvesturhorninu mun marg-
feldisáhrifanna einungis gæta á höfuðborgar-
svæðinu en hvergi annars staðar. Verði það
reist annars staðar, t.d. í Eyjafirði, mun marg-
feldisáhrifanna gæta að hluta til þar en að veru-
legu leyti á höfuðborgarsvæðinu. Af þessum
sökum meðal annars, er þjóðhagslega hag-
kvæmt að reisa álverið annars staðar en á suð-
vesturhorninu.
Hvernig sem á málið er litið má hiklaust full-
yrða að það yrði skynsamleg ákvörðun, með til-
liti til þjóðarhagsmuna, að reisa nýtt álver utan
suðvesturhorns landsins. Staðarvalsákvörðunin
er stærri en svo að hreppasjónarmið og tog-
streita milli einstakra byggðarlaga eða lands-
hluta megi ráða ferðinni. í þessu máli verða
minni hagsmunir að víkja fyrir meiri. BB.
Viljum við ekki allar
stefha tíl sigurs?
„Ég fann hnútinn þegar ég var í sturtu. í fyrstu var ég sannfærð
um að hann væri hættulaus. „Það eru hinar konurnar sem fá
krabbamein, ekki ég“. En ég ákvað samt að láta athuga þetta
nánar, - svona til öryggis. Ég reyndist vera með krabbamein. -
Þegar ég fékk staðfestinguna, sat ég á móti lækninum, að því er
virtist róleg og yfirveguð, en allt mitt innra var í algjöru uppnámi.
Ég fann angistina magnast innra með mér - ég svitnaði, en samt
var mér hrollkalt. „Guð minn góður, ég dey“. En lækninn spurði
ég bara um hvar og hvenær ég ætti að mæta til aðgerðar. Ég gat
ekki hugsað. Var dofin. Síðar komu aðrar tilfinningar, reiði,
afneitun, þetta hlaut að vera misskilningur. Ég reyndi að gera
samning við lífið. Bara að ég fái að lifa þangað til börnin mín eru
búin með námið, flutt að heiman. Bara að ég fái að klára þetta og
þetta, síðan er ég tilbúin að deyja.“
Svava Aradóttir.
Þetta er kafli úr frásögu fert-
ugrar konu sem birtist í tímariti
sænska krabbameinsfélagsins.
Síðar í frásögninni segir þessi
kona frá léttinum sem fylgdi því
að geta rætt um kvíða sinn og
angist við fjölskyldu sína og heil-
brigðisstarfsfólk, sem þá um leið
gat svarað spurningum sem
brunnu á henni. Þessar tilfinning-
ar sem sænska konan lýsir á svo
einlægan hátt eru þekktar hjá
konum sem lenda í slíkri aðstöðu
og eru hinar sömu hvar sem er í
heiminum.
Pegar krabbamein greinist í
brjósti er líklegt að sú sem fyrir
því verður spyrji: „Hvers vegna
ég“. Þrátt fyrir að vitað sé um
ákveðin atriði sem setja einn hóp
kvenna í meiri áhættu en annan,
er ekkert algilt svar til við þessari
spurningu. Hinsvegar liggur tölu-
verð vitneskja fyrir um bestu
mögulegu meðferð við brjósta-
krabbameini og hefur sú vitn-
eskja skilað sér í auknum líkum á
bata hin síðari ár. Mun fleiri geta
vænst þess að læknast af kraSba-
meini en áður, og því fyrr sem
krabbameinið greinist, því meiri
möguleikar eru á að ná fullri
heilsu.
Krabbameinsfélagið hefur haft
forgöngu um skipulagða leit að
brjóstakrabbameini, í því augna-
miði að greina meinið á byrjun-
arstigi. Konur eru hvattar til að
notfæra sér þann möguleika og
fara reglulega í brjóstamynda-
töku eftir fertugt.
Til þess að átta sig á hvort ein-
hverjar breytingar verða í brjóst-
inu er mikilvægt að konan þekki
hvernig eðlilegt brjóst er við-
komu. Góð regla er að skoða
brjóstin einu sinni í mánuði t.d.
viku eftir að blæðingum lýkur.
Konur sem eru hættar með
blæðingar geta valið einhvern
ákveðinn dag, t.d. fyrsta dag
mánaðarins. Þannig lærist konum
að þekkja brjóstin sín og átta sig
á ef einhverjar breytingar verða.
Við skoðun á brjóstum er
mikilvægt að missa engan hluta
brjóstsins úr. Gott ráð er að
hugsa sér brjóstið eins og klukku-
skífu með tölustöfum 1-12.
Byrjaðu á að þreifa þann hluta
brjóstsins sem fjærst er geirvört-
unni, kl. tólf. Farðu svo allan
hringinn frá 12 til 1, 2 o.s.frv.
Færðu fingurna svo innar á
brjóstið, þreifaðu hringinn frá 12
til 1,2 o.s.frv. Endurtaktu þetta
þangað til þú kemur innst á
brjóstið við geirvörtuna. Þreif-
aðu hana sérstaklega og kreistu
létt til að kanna hvort vökvi kem-
ur úr brjóstinu. Hikaðu ekki við
að leita læknis ef það er eitthvað
sem þér finnst vera athugavert
eða þú ert óörugg með.
Konubrjóstið hefur í allri
menningu og á öllum tímum ver-
ið tákn fyrir frjósemi og móöur-
hlutverkið. Brjóstin eru mikil-
vægasta tákn okkar kvenna sem
kynvera og hefur því óspart verið
haldið á lofti. Mörg ljóðskáld og
listmálarar hafa tileinkað konu-
brjóstinu verk sín. Þau eru ófá
tárin sem ungar stúlkur hafa fellt
vegna brjóstanna sinna. Annað-
hvort voru þau of lítil eða of stór.
Brjóstin eru órjúfanlega tengd
ímynd okkar sem kvenna, bæði í
huga okkar sjálfra svo og ann-
arra. Að missa brjóstið er mörgum
konuni óbærileg hugsun. Hræðsl-
an getur orðið svo mikil að hún
hindrar konuna í að skoða brjóst-
in sín og jafnvel að leita læknis,
ef hún finnur einhverja breytingu
í brjóstinu. Aukin þekking og
fræðsla um nútíma meðferð við
brjóstakrabbameini og það að
geta fengið svör við spurningum
sínum hjálpar til við að yfirvinna
óttann.
Síðustu 10 árin hefur mikil þró-
un orðið í allri þjónustu til kvenna
sem gangast undir brjóstaaðgerð
á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur-
eyri. Hjúkrunarfræðingur hittir
alltaf konuna fyrir aðgerðina. I
þessu fyrsta viðtali er áhersla
lögð á að draga úr kvíða og gefa
henni tækifæri til að ræða við
aðra konu sem um leið getur gef-
Við skoðun á brjóstum er mikilvægt
að missa engan hluta brjóstsins úr.
Gott ráð er að hugsa sér brjóstið
eins og klukkuskífu með tölustöfum
1-12.
Konubrjóstið hefur í allri menningu og á öllum tínium verið tákn fyrir frjó-
semi og móðurhlutverkið.
ið faglegar upplýsingar og svarað
spurningum seni upp koma. Það
er öllum mikið áhyggjuefni að
vera með illkynja sjúkdóm, en
auk þess veldur væntanlegur
brjóstamissir flestum konum
miklu hugarangri. Og það er ekki
léttbærara fyrir eldri konur en
þær yngri oft á tíðum. Sami
hjúkrunarfræðingurinn fylgir svo
konunni eftir meðan á sjúkrahús-
dvöl stendur og eftir það eins
lengi og konan sjálf óskar eftir.
Það er afar niikilvægt að þau
tengsl sem myndast í fyrsta við-
tali séu ekki rofin og að sami aðili
sé til staðar frá upphafi sem ráð-
gefandi stuðningsaðili við kon-
una og starfsfólkið sem annast
hana.
Hjúkrunarfræðingurinn og
konan hittast áður en til útskrift-
ar kemur og þá fær konan ráð-
leggingar um æfingar, fræðslu um
brjóstaskoðun og fleira sem mið-
ar að því að konan nái heilsu og
geti tekist á við þau vandamál
sem upp geta komið. Konan fær
bráðabirgðabrjóst og gengið er
frá fyrstu pöntun urn gerfibrjóst
og brjóstahaldara til trygginga-
stofnunar. Stundum er þetta
lokaviðtal, en oft hefur konan
samband við hjúkrunar-
fræðinginn eftir að heirn er korn-
ið enda er hjúkrunarfræðingur-
inn áfram stuðningsaðili og milli-
göngumaður niilli konunnar og
ýmissa aðila sem hafa með með-
ferð hennar að gera.
„Samhjálp kvenna“ er stuðn-
ingshópur kvenna sem gengist
hafa undir skurðaðgerð vegna
krabbameins í brjósti. Þessar
konur veita ómetanlegan stuðn-
ing með persónulegum samtöluní
og ráðgjöf sem standa konunni til
boða og koma fulltrúar þeirra í
heimsóknir á sjúkrahúsið eða
heim ef óskað er. „Samhjálp
kvenna“ er ekki síður stuðningur
við starfsfólk heilbrigðisþjónust-
unnar og á FSA er mjög góð sam-
vinna þarna á milli. Fulltrúar frá
„Samhjálp kvenna“ eru konuni
hjálparlegar við að máta og velja
gerfibrjóst en fyrsta miðvikudag
hvers mánaðar eru þau afgreidd í
húsnæði Endurhæfíngarstöðvar-
innar, Bjargi, kl. 17-19.
Konur! Við ráðum sjálfar svo
miklu um framtíð okkar og
heilsu, en við verðum líka að
taka ábyrgð! Stuðlum að eigin
heilbrigði og höldum 10. heilsu-
boðorðið: Skoðum brjóstin mán-
aðarlega og förum reglulega í
brjóstamyndatöku eftir fertugt.
Okkar er valið, viljum við ekki
allar stefna TIL SIGURS?
Akureyri 20. inars 1990
Svava Aradóttir.
Höfundur er hjúkrunarfræðin|>ur og
starfar seni hjúkrunarfranikvæmdastjóri
FSA.