Dagur - 19.04.1990, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - Fimmtudagur 19. apríl 1990
/f7
»
' :
Oskum viðskiptavinum okkar
gleðilegs sumars
með þökk fyrir veturirm.
TRYGGING HF
Sunnuhlíö 12
Simi 96 - 21844
-47
/Æ
%
Óskum viðskiptavinum okkar
gleðilegs suinars
með þökk fyrir veturinn.
HLtQlilIBR
Glerárgötu 32 • Akureyri útvarpsvirika
Mt I j IAK I
$
/Æ
h
s
Oskum viðskiptavinum okkar
gleðilegs sumars
með þökk fyrir veturinn.
S .
VATRYGGIINGAFELAG
ÍSIANDSIII
Svæðisskrifstofa Glerárgötu 24, símar 23812 og 24242
£
<r
%
Óskum starfsfólki okkar
og viðskiptavinum
gleðilegs sumars
með þökk fyrir veturinn
sem er að líða.
HAGKAUP Norðurgöfu 62. J^j
-__________ _______________V
/y^
*
Óskum viðskiptavinum okkar
gleðilegs sumars
með þökk fyrir veturinn.
Skóverslun M.H. Lyngdal
Hafnarstræti 103, sími 23399.
Sunnuhlíð 12, sími 26399.
Óskum viðskiptavinum okkar
gleðilegs suniars
með þökk fyrir veturinn.
cpediSmyndirz
Hafnarstræti 98, sími 23520
Hofsbót 4, sími 23324
Á:
47
Guðrún Jakobsdóttir, Jóhanna Steingrímsdóttir og Sara Hólm.
Mynd: IM
ITC Fluga að Ýdölum:
Kyrming á verkum Jóhönnu í Árnesi
Jóhanna Álfheiður Steingríms-
dóttir, rithöfundur í Árnesi í
Aðaldal, var heiðursgestur á
fundi ITC Flugu að Ýdölum
þriðjudagskvöldið 10. apríl, en
þar fór fram kynning á verkum
hennar. Um 30 manns sóttu
fundinn, og var það allt of fátt
fólk sem þar með fékk tæki-
færi til að njóta og fylgjast með
athyglisverðri dagskrá.
Dagskráin hófst með fundi í
deildinni og þar flutti María
Ketilsdóttir fræðsluerindi um
deildarstarfið í þessum ágætu
samtökum, sem kölluðu sig Mál-
freyjur þar til karlar fengu heim-
ild til að gerast félagar. Allir
félagar í ITC Flugu eru konur, og
stóðu þær vel að kynningu á
verkum kynsystur sinnar.
Guðrún Jakobsdóttir, formað-
ur félagsins var dagskrárstjóri og
kynnti hún Jóhönnu og sagði frá
verkunt hennar, en Jóhanna las
úr verkum sínum ásamt níu
Flugufélögum. Hóhnfríður Pét-
ursdóttir las úr bók Jóhönnu, Á
bökkum Laxár, yndislega frásögn
um Maríuveiði, sem Jóhanna
færði Vilhjálmi á Hafralæk þegar
hún var barn. Kristín Arinbjarn-
ardóttir las einnig hrífandi frá-
sögn frá bernsku Jóhönnu, af því
er móðir hennar laumaðist til að
rækta rós í kirkjuglugga. Frásögn
þessi verður í Yrkju, afmælisbók
frú Vigdísar Finnbogadóttur.
Kristbjörg Steingrímsdóttir, syst-
ir Jóhönnu las ljóð eftir hana.
Guðný Jónsdóttir las smásöguna
Hús húsanna, sem birtist í
afmælisriti Kvenfélagasambands
Islands. Sögu sem segir mikið um
innsýn höfundarins í hugsunar-
hátt eldri kynslóðar og
manneskjulegheit hennar.
Jóhanna las kafla úr bók sinni
Veröldin er alltaf ný. Guðný Kol-
beinsdóttir las þulu eftir
Jóhönnu. Þórhildur Sigurðar-
dóttir las morgunorð sem Jó-
hanna skrifaði fyrir útvarp, og
voru þau hugleiðing um að vinn-
an göfgaði manninn. Sara Hólm
las upphafskafla bókarinnar Dag-
ur í lífi drengs. María Ketilsdótt-
ir las úr nýjustu bók Jóhönnu,
Maríuhænan - gestir í garðinum,
einnig endursagði hún söguna og
sýndi myndskreytingar Hólm-
fríðar Bjartmarsdóttur. Að lok-
um las Guðrún Sigurðardóttir
órímuð Ijóð og bráðgóða þulu
sem ort var á gamansömu nótun-
urn.
Eftir kynninguna ávarpaði
Jóhanna fundinn og þakkaði fyrir
umfjöllunina. Ræddi hún um
verk sín af mikilli hógværð og
sagði að sér kæmu orðin rit-
höfundur Og verk spánskt fyrir
sjónir. í raun hefði hún aldrei
verið mjög hrifin af krosssaum
eða öðrum hannyrðum, en þess í
stað varið tómstundum sínum til
skrifta.
Pað er óhætt að taka undir ósk-
ir frá konum í Flugu, sem fram
komu í fundarlok, um að Jó-
hanna fari ekki að fá áhuga fyrir
krosssaum. ITC Fluga og Jóhanna
mega hafa hjartans þökk fyrir
ánægjulega kvöldstund, og svo
miklu fleira fólk mætti fá að
hlýða á flutning hinnar ágætu
dagskrár sem boðið var upp á að
Ýdölum. IM
Samsýning tíu listamanna:
Silfurskip, myndlist og vefiiaður
- í Safnahúsinu á Húsavík
Afniælisncfnd Húsavíkurbæj-
ar stendur fyrir samsýningu tíu
listamanna í Safnahúsinu, og
verður sýningin opin frá kl. 14-
17 til sunnudags, 22. apríl.
Mjög góð aðsókn hefur verið
að sýningunni sem var opnuð
með viðhöfn á skírdag, enda
markar sýningin í raun upphaf
hátíðahaldanna vegna 40 ára
afmælis Húsavíkur sem kaup-
staðar.
Á sýningunni eru eldri og yngri
verk starfandi listamanna sem
búsettir eru í Þingeyjarsýslu eða
ættaðir þaðan. Sýningin einkenn-
ist af miklum fjölbreytileika, en
þó njóta verk hvers listamanns
sín útaf fyrir sig. Á sýningunni
eru pasteimyndir eftir Auði
Helgadóttur, olíumálverk eftir
Kára Sigurðsson, oiíu- og akríl-
myndir eftir Trausta Ólafsson,
vatnslitamyndir eftir Sigurð Hall-
marsson og pennateikningar eftir
Ríkarð Þórhallsson. Þorvaldur
Daði Halldórsson á eitt verk á
sýningunni, sem hann nefnir Sál
hússins og unnið er með bland-
aðri tækni. Hallfríður Jónasdóttir
sýnir verk ofin úr hrosshári,
Hólmfríður Bjartmarsdóttir sýnir
Sýningargestir virða fyrir sér verk á sýningunni. Mynd: im
myndvefnað úr ull og Oddný E.
Magnúsdóttir ntyndir ofnar úr
hrosshári og ull.
Einnig eru á sýningunni verk
eftir Sigurð Þórólfsson frá Bald-
ursheimi, gull- og silfursmið.
Annars vegar er verk unnin úr
silfri, á blágrýti eða palesander.
Hins vegar eru silfurskip; ótrú-
lega fíngerð líkön af skipum sem
gerð eru úr silfri, gulli, og jafnvel
demanti og mannshári.
Það er ekki oft sent tækifæri
gefast til að sjá sýningar sem
bjóða upp á slíkan fjölbreytileika
sem Samsýningin í Safnahúsinu
og þeir sem tök hafa á að sjá sýn-
inguna, ættu ekki að láta hana
fram hjá sér fara. IM