Dagur - 19.04.1990, Side 11

Dagur - 19.04.1990, Side 11
AOO h IWno lOh — ClllíTiAn — nh Fimmtudagur 19. apríl 1990 - DAGUR - 11 myndlist Víðidalstungukirkja: Fermt á sunnudag Sunnudaginn 22. apríl nk. kl. 11.00 verða þrjú börn fermd í Víðidalstungukirkju í Breiða- bólstaðarprestakalli. Fermingarbörnin eru: Ásdís Olga Sigurðardóttir, Kolugili, Víðidal. Flrönn Bjarnadóttir, Melrakkadal. Sigurður Björn Gunnlaugsson, Nýpukoti, Víðidal. Páskasýningar Aðal.steinn Svanur. að hann er þó nokkuö á snið við troðnar slóðir. Haukur Ágústsson. Tvær myndlistarsýningar voru á Akureyri yfir páskana. Pær voru hvor með sínu móti og forvitni- legar til samanburðar á mynd- máli. Hörður Jörundsson opnaði sýningu í Gamla Lundi 12. apríl. Sýningin er opin til 19. apríl. Á sýningu Harðar eru þrjátíu og níu myndir allar unnar með vatnslitum. Blær þeirra er þó ekki sá, sem venjulega er tengdur þessum miðli, heldur er hann lík- ari því, sem næst með til dæmis akryllitum. Hörður er óragur við að mynda ákveðna og aðskilda fleti í myndum sínuni. Hann not- ar líka sterka og ákveðna liti, sem fara vel saman, og virðist hafa næmt auga á því sviði. Jafn- framt er honum lagið að ná hríf- andi bæbrigðum með litablöndun og nærfærnislegri samfellu „sjatt- eringa“, til dæmis á himinlitum. Myndefni Harðar eru flest sótt í náttúruna, mest í landslag. Hann fjallar um þau í natúralist- ískum stíl en þó með nokkru skáldlegu ívafi, sem nægir til þess að lyfta nokkrum myndum á sýn- ingu hans yfir það venjulega. Til þes$a má nefna mynd númer eitt, sem ber heitið Að fjallabaki, óg mynd númer þrjátíu og sjö, sem nefnist Suðurnámur í Land- mannalaugum. I þessum mynd- um nýtur litnæmi Harðar sín sér- lega vel og einnig drátthæfni hans, sem reyndar er greinileg í fleiri myndum á sýningunni. Hörður brýtur ekki nýjar leiðir með þessari sýningu, en hún er heildstæð og vel sjónar virði. Aðalsteinn Svanur Sigfússon opnaði sýningu á ellefu olíuverk- urn í húsakynnum Myndlistar- skólans á Akureyri 11. apríl. Sýningu Aðalsteins Svans lauk 16. apríl. Verkin á sýningu Aðalsteins Svans voru flest allstór og sum í óvenjulegu formi. Stórir vegg- fletir salarkynna Myndlistarskól- ans komu sér vel fyrir þessi málverk; þau hefðu ekki notið sín í öðru sýningarhúsnæði á Akureyri. Myndir Aðalsteins Svans voru allar meira og minna táknræns eðlis. I flestum þeirra s'áfu nakt- ar manneskjur yfir landslagi, en i öðrum voru táknin annars eðlis og jöðruðu á stundum við skreyt- ingu og flúr, sem myndaði ramma um nokkuð stílfærða, natúralistíska landslagsmynd. í nokkrum myndanna brá fyrir til- hneigingu til samhverfu, sem fór ekki ætíð nógu vel, þó að stund- um tækist bærilega. Ein mynd skar sig nrjög úr á sýningu Aðalsteins Svans. Hún var númer eitt og bar heitið Syndafallið. í þessari mynd naut sín vel einlægni sú og tákngleði blönduð votti af „prímitívisma", sem að mörgu leyti einkenndi sýninguna. Sýning Aðalsteins Svans bar það með sér, að hann er að leita Kaupfélag Eyfirðinga Hörður Jörundsson. fyrir sér um tjáningarform. Það getur orðið forvitnilegt að fylgj- ast með honum í leitinni, af því | FRAMSÓKNARMENN ||d AKUREYRI Skrifstofa Framsóknarflokksins, Hafnarstræti 90, Akureyri, verður opin í aprílmánuði alla virka daga frá kl. 13.00-17.00, sím- inn er 21180. Starfsmaður verður Sigfríður Þorsteinsdóttir. Fólk er eindregið hvatt til að líta inn eða hafa samband við skrifstof- una í síma og láta skrá sig til starfa við kosningaundirbúninginn. Þá þarf fólk, sem ekki verður heima á kjördag, að fara að huga að utankjörfundaratkvæðagreiðslu. Kjörskrá liggur frammi innan skamms og eru stuðningsmenn Fram- sóknarflokksins beðnir vinsamlegast að hafa samband við skrifstof- una og láta vita um fólk sem dvelur erlendis við nám eða störf og er á kjörskrá á Akureyri. Framsóknarfélag Akureyrar.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.