Dagur - 21.04.1990, Page 7

Dagur - 21.04.1990, Page 7
Blátum Á engum stað utan Þingvallar við Öxará eru fleiri íslenskir sögustaðir en í Kaupmanna- höfn. Einn þessara sögustaða er Bláturn, sem var hluti af hinni gömlu Kaupmannahafnarhöll. Köbenhavns Slot. Eiríkur af Pommcrn, systursonur Mar- grétar Valdimarsdóttur atter- dags, (1397-1459), gerði höllina að setri sínu árið 1416. Síðan hefur Kaupmannahöfn verið konungssetur, og þar sem kon- ungshöllin stóð áður á Hallar- hólmanum stendur Kristjáns- borgarhöll nú, aðsetur danska þjóðþingsins. Bláturn gnæfði við inngang- inn að hinni gömlu Kaup- mannahafnarhöll. eins og sjá má af mynd, allt til þess að hann var brotinn niður árið 1732. Fyrir þá sem koma til Kaup- mannahafnar nú, má taka miö af standmyndinni af Friðriki VII, framan við Kristjánsborg-. arhöll, andspænis Holmens kirke. Bláturn var í raun ríkis- fangelsi Dana í 300 ár. Þar urðu margir kunnir menn að gista svarta dýflissu, þeirra á meðal nokkrir nafntogaðir íslending- ar. Bláturns er fyrst getið sem fangelsis árið 1494, þegar Hans konungur af Danmörku, ís- landi, Noregi og Svíþjóð (1455- 1513) lét varpa ráðuneytisstjóra sínum (renteskriver) í svarthol- ið, fyrir sakir sem nú eru gleymdar. Kunnasti fangi í Bláturni er hins vegar Leonora Christina, dóttir Kristjáns IV og síðari konu hans, Kristínar Munck. Leonora Christina var gift Corfitz Ulfeldt sem var rigs- hofmester („forsætis- og fjár- málaráðherra") konungs og valdamesti maður Danmerkur um langt skeið. Hálftróðir Leonoru Christ- inu, Friðrik konungur III, lagði hins vegar litla rækt við hálfsyst- ur sína og mág sakaði þau hjón Hin gamla Kaupinannahafnarhöll, „Kobenhavns Slot“. Bláturn var hluti þeirrar merku byggingar. Fryggvi Gíslason skrifar um drottinssvik. Corfitz Ulfeldt komst undan en Friðrik III lét varpa systur sinni í fangelsi í Bláturni hinn 8da ágúst 1663, þar sem hún sat fangin nær 22 ár, eða til loka maímánaðar 1685. í fangelsinu vann Leonora Christina við hannyrð- ir, listvefnað en lengst mun dag- bók hennar úr fangelsinu halda nafni hennar á loft. Þegar í ágúst 1663 hóf hún að skrifa þessa dagbók, sem hún kallaði Jammers Minde. Við dauða hennar var handritið að dag- bókinni sent til sonar hennar, sem hafði farið landflótta með föður sínum til Austurríkis. Hélst handritið í ættinni nær 200 ár og vissu fáir um. Árið 1868 fann danski fræðimaður- inn F. R. Friis handritið og gaf það út árið eftir. Jammers Minde hefur komið út í íslenskri þýðingu og hefur auk þess verið lesið í útvarpi. Jón Ólafsson Indíafari (1593- 1679) gisti dýflissu í Bláturni, eins og hann segir frá í ævisögu sinni, og Halldór Laxness lætur Jón Hreggviðsson gista Bláturn, sem þó á ekki við rök að styðjast. Jón bóndi á Rein kom þar aldrei. Guðmundur Andrés- son málfræðingur á sér hins vegar einna sérkennilegasta sögu þeirra fanga íslenskra sem gist hafa Bláturn. Guðmundur fæddist að Bjargi í Miðfirði um 1610, gekk í Hólaskóla en lauk ekki prófi en varð djákn á Reynistað í Skagafirði en missti kjól og kall fyrir hórdómsbrot 1644. Guðmundur samdi síðan ritgerð um lög þau sem þá giltu um hórdóm á íslandi, svokali- aðan Stóradóm. Þótti ritgerðin bæði guðlast og föðurlandssvik, enda mun hann hafa sneitt að valdsmönnum og fyrirfólki í rit- gerð sinni. Var Guömundur dæmdur til fangavistar í Blá- turni 1649 og fluttur utan um haustið. Segir sagan að hann hafi haft sér það helst til skemmtunar í turninum um veturinn að horfa út um fangelsisgluggann á stjörnur og himintungl. Eitt sinn hafi hann fallið út um gluggann og lirapað til jarðar en lent í vistarverum konungs fyrir einhverjar undarlegar sakir. Hafi konungur þá látið taka mál hans upp að nýju og að lokum sýknað hann gegn því að hann færi aldrei aftur til íslands. Mikill ævintýrablær er á sögn- inni um það hvernig Guðmund- ur Andrésson slapp úr Bláturni. En hinn 12. júní árið 1650 er Guðmundur skráður í stúdenta- tölu við Kaupmannahafnarhá- skóla og bjó á Garði. Sinnti hann einkum fornum fræðum. Fyrir tilstilli Ole Worm, sem bæði var læknir og fornfræðing- ur og kunnugur mörgum íslend- ingum, tók Guðmundur að skýra Eddukvæði og þýddi bæði Hávamál og Völuspá á latínu og vann sér fyrir hylli lærðra manna. Arið 1654 geisaöi mikil drepsótt í Kaupmannahöfn og lést Guðmundur Andrésson í henni. Hann skildi hins vegar eftir sig í handriti íslenska orða- bók með latneskum þýðingum sem gefin var út árið 1688 og var um langt skeið helsta orða- bók um íslenskt mál. Þannig kemur Bláturn við sögu íslands og íslenskrar tungu. Laugardagur 21. apríl 1990 - DAGUR - 7 tónlist Jazzveisla Á Húsavík er fjölbreytt tónlist- arlíf. Mikið ber þar á áhuga á jazzi. Hann kemur ekki síst fram í því samstarfi, sem er meö Tón- listarskóla Húsavíkur og Jazz- þingi. Á vegum þessara aðila er starfræktur tólf manna jazzkór. sem kallar sig Norðaustan tólf, og einnig sautján manna létt- sveit. Síðasta vetrardag bauð Jazz- þing á Húsavík til jazzveislu í Félagsheimili bæjarins. Þetta er þriðja veislan af þessu tagi. en þær hafa verið árlegur hluti af starfsemi Jazzþings allt frá upp- hafi félagsskaparins. Jazzveislan á Húsavík hófst á söng jazzkórsins undir stjórn Davids Thompsons. Kórinn flutti nokkur lög, sem flest eru ný á söngskrá hans. Raddirnar féllu vel saman og söngurinn var sem næst ætíð hljómhreinn og agað- ur. Greinilegt er, að í kórnum er efniviður og geta til góös árang- urs. í jazzveislu jazzþings skorti hins vegar verulega á hvað dirfsku og næmni í túlkun snerti. Helst var, sem söngfólkið héldi aftur af sér líkt og það væri ekki nógu þjálfaö í notkun söngkerfis- ins og að ónóg æfing vlli því, að talsvert skorti á öryggi í flutningi. Næsti réttur var kvartett, sem skipaður er Haraldi Jóhannssyni. baritónsaxófónleikara, Siguröi Friðrikssyni, píanóleikara, Leifi Vilhelmi Baldurssyni. gítar- leikara, og Boga Ingólfssyni. trommuleikara. Kvartettinn lék snoturlega, en Ijóst er, að meiri æfingar er þörf. Grunnurinn hefur verið lagður. Reynist hann traustur og veröi byggt ofan á hann af alúö. má vænta góðra hluta í framtíðinni. Aðalrétturinn í jazzveislu Jazzþings var kvartett Tómasar R. Einarssonar, kontrabassa- leikara. Auk hans skipa kvart- ettinn Sigurður Flosason, saxó- fónleikari, Eyþór Gunnarsson, píanisti. og Pétur Grétarsson. trommuleikari. Allir eru þessir tónlistarmenn ntiklir snillingar á hljóðfæri sín og sýndu glæsileg tilþrif í leik sínum og túlkun. Kvartettinn kom fram tvisvar í jazzveislunni. I fyrra skiptið sér- staklega spillti það mjög, hve hranalega sá snjalli trommuleik- ari. Pétur Grétarsson, lék á trommusettið. Það á ekki að henda góða tónlistarmenn að láta hljóðfæri sitt yfirgnæfa í tíma og ótíma og ónýta þannig þá sam- fellu, sent verður að einkenna samleik eigi hann aö njóta sín og standa undir nafni. Eftirréttur jazzveislunnar var leikur léttsveitar Jazzþings og Tónlistarskólans á Húsavík undir stjórn Sandy Miles. Vitað var, að sveitin. sem er ung að árum. var líkleg til þess að skila sínu lilut- verki vel, en hún fórtalsvert frant úr björtustu vónurh. Leikur hennar var þéttur og öruggur og í flutningnum var lifandi sveifla og leikgleði. sem hreif áheyrendur með sér. Hann er merkilegur þessi meiður jazztónlistarinnar. sent þessi árin er að vaxa upp á Húsa- vík. Áhugamenn um tónlist almennt og jazz sérstaklega hafa fulla ástæðu til þess að fylgjast meö honum. Þeir ættu ekki að setja sig úr færi aö njóta ávaxta hans. þegar þeir eiga þess kost. Þeir munu ekki ganga burt snauðari. Hauktir Ágústsson. Nýjar keimslubækur í landfræði íslands Hjá Námsgagnastofnun eru konmar út tvær bækur um ísland sem einkum eru ætlaðar börnum á aldrinum 10-12 ára. Þær bera heitin Land og lífog Landshorna á milli. Höfundur er Torfi Hjart- arson, Björn Rúriksson tók llest- ar ljósmyndir. Land og líf kom út á síðasta 'skólaári. Þar er fjallað um sam- búö lands og þjóðar í stórum dráttum og leitast við að skýra ýnisa lykilþætti í íslenskri nátt- úru. Bókinni er ætlað að draga upp einfalda mynd af landinu í heild, sýna samhengi og vekja skilning. Hún á ekki síst að sýna frant á að náttúra landsins býr yfir miklu og snertir okkur öll. Landshorna á milli gerir skil á einstökum landshlutum, lýsir staðháttum, helstu kennileitum, byggð og atvinnulífi. í bókinni er landinu skipt í níu hluta og er fjallað um hvern hluta í þremur opnum. Lesendur kynnast börn- um sem segja frá heimabyggð sinni og ýmsu sem þar drífur á daga, rekast á þjóðsögur í stuttri endursögn og lesa ýmislegt um lífshætti á fyrri tímum. Fjallað er um ýmsa þætti atvinnulífs og staði sem búa yfir óvenjulegu líf- ríki, náttúrufari eða sérstæðri byggð. I báðum bókunum er fjöldi spurninga og verkefni af margvís- legum toga. Þeini er ekki síst ætl- að að gæða efnið lífi og færa það nær börnum. Myndefnid leikur einnig mikilvægt hlutverk því að í bókunum tveimur eru um tvö hundruð litprentaðar myndir, Ijósmyndir, teikningar og kort. Efni beggja bókanna kernur einnig út á hljóðbókum. Þar er texti bókanna lesinn inn á hljóm- band og myndefninu lýst. Að þesu sinni er bryddað upp á þeirri nýjung að gæða hljóðbækurnar lífi með tónlist og umhverfis- hljóðum. Þær eiga því að gcta nýst í almennri kennslu þó að fyrst og fremst séu þær ætlaðar þeim seni af einhverjum ástæðum eiga erfit með lestur. 1 ráði er að gefa út verkefna- hefti og vinnukort með bókunum og áætlað er að gera myndbönd um einstaka landshluta. Unnið við Hamar: Þórsarar hvattir til að mæta Þórsarar vinna þessa dagana af krafti við félagsheimili sitt. Hamar, og hafa félagsmenn ekki látið sig vanta frekar en fyrri daginn. í dag, laugardag, ert'yrir- hugað að taka til hendinni svo um munar og eru allir Þórsarar og velunnarar félagsins hvattir til að mæta í Hamar og leggja hönd á plóg. Sannast þá hið forn- kveðna að ntargar hcndur vinna létt verk. Þórsarar! Gefið ykkur tíma um helgina til að vinna upp- byggingarstarf í þágu félagsins.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.