Dagur - 28.04.1990, Blaðsíða 13

Dagur - 28.04.1990, Blaðsíða 13
Laugardagur 28. apríl 1990 - DAGUR - 13 ekki eftirsóknarverö fyrir suma flytjendur, er hún góð fyrir aðra. Þótt t.d. Bubba Morthens henti ekki að taka þátt, getur það hentað öðrum prýðilega. Bæði Söngva- keppnin og Landslagið eru kærkomin tæki- færi fyrir höfunda að koma lagasmíðum sín- um á framfæri. Þarna geta menn vakið athygli útgefenda á sér og svona keppnir hvetja menn til að semja lög og reyna að koma þeim inn í úrslit. Það þýðir ekkert fyr- ir menn að vera fúlir þótt þeir korni ekki sínunt lögum áfram. Margir frægir tónlistar- menn hafa orðir fyrir þvt' að lögum þeirra hafi verið hafnað. Þá er bara að setjast nið- ur og semja betra lag." „Eigum tvímælalaust erindi“ Skiptar skoðanir eru um hvort íslensk dæg- urlög eigi yfir höfuö erindi á erlendan markað. Strax-ævintýri Stuðmanna gekk ekki upp og fleiri má telja sem hafa lent í hlutverki Garðars Hólm. Hörður hefur sín- ar skoðanir á þessu eins og öðru: „Tökum Sykurmolana sem dæmi. Þeir eru að mínu áliti frábær hljómsveit. Mér finnst mjög gaman að hlusta á þá. Þeir eru svo skemmtilega hráirog ferskir. Sykurmol- arnir eru frumlegir og þeir eiga tvímælalaust erindi á erlendan markaö. Mezzoforte átti líka erindi meðan þeir spiluöu saman. Ég man nú ekki eftir fleiri hljómsveitum t svip- inn en auðvitað eigum við aö reyna fyrir okkur á erlendum markaði." Taliö berst aftur að Söngvakeppninni og undirbúningi hennar. Hörður segir aö búiö sé að leggja mikla vinnu í undirbúninginn. Myndbandiö við lagið veröi tilbúið fljótlega en ætlunin sé að nota upptöku frá keppninni í sjónvarpssal. „Viö skjótum smá skrauti inn í og gerum myndbandið líflegra." Hljómsveitin Stjórnin fer öll á sviöiö Júgóslavíu. Reglur keppninnar eru þannig að ekki má spila af böndum nema þau hljóðfæri sem menn hafa á sviðinu. Lagið verður flutt af bandi en ekki „live" eins og gert var hér heima. Jón Kjell fer út til að stjórna hljómsveitinni. Höfundar lags og texta fara auðvitað líka. „Við höfum með okkur fólk til að sjá um förðun og æfa frarn- komu á sviðinu. Egill Eðvarðsson fer fyrir hönd Sjónvarpsins og sennilega einhverjir fleiri," segir Hörður. Býsna dýrt spaug Óhjákvæmilega kemur upp í hugann hversu mikinn kostnað þátttakan í Evrópusöngva- keppninni hefur í för með sér fyrir höfund keppnislags. Höröur glottir þegar kostnað- arhliðin berst í tal. „Þetta er búið að vera býsna dýrt spaug. Eftir keppnina hér heima var ég strax kom- inn í þó nokkurn mínus. Verðlaunateð scm skiptist milli mín og textahöfundar nægði ekki til að greiða þann kostnað sem ég var búinn að leggja í lagið. Það má líka segja að ég hafi lagt meiri kostnað í lagið en ég hefði þurft. Við fengum t.d. danshöfunda til að hjálpa okkur við sviðsetninguna og í það fór mikill tími og peningur. Við réöum einnig sérstakan búningahönnuð til að hanna bún- inga á okkar fólk. Þetta kostar allt mjög mikla peninga. Lagið var orðið plötuhæft þegar við mætt- um með þaö í keppnina. Ég hafði búist við að lagið yröi flutt af handi í sjónvarpssal en svo breytti Sjónvarptð tilhögun keppninnar. Öll lögin voru flutt í beinni útsendingu af hljómsveitinni sem Sjónvarpið lagði til." 011 sæti fyrir neðan miðju óviðunandi Það var með hálfum huga að blaðamaður bað Hörð að spá um úrslit keppninnar í vor, minnugur þess að Sverrir Stormsker ætlaöi að svipta sig lífi ef hann hafnaði neðar en í sextánda sætinu. En Svert ir er enn á lífi svo spurningin var látin vaöa. „Auðvitað stefnum við á fyrsta sætið - en fólk má þó ekki misskilja ntig. Ef við stefnd- urn ekki á fyrsta sætið færum við ekki með rétt hugarfar í keppnina. Það er auðvitað með þessa keppni eins og aðrar að maður mætir til leiks með það markmið að sigra. Geri maður það ekki, er ekki unnið nógu vel. Ég held líka að við íslendingar séum búnir að ofnota sextánda sætið! En án gríns, held ég að við verðum ofarlega í þess- ari keppni, þó að ég hafi ekki heyrt hin lögin. Við skulum orða þetta svo að öll sæti fyrir neðan miðju séu óviðunandi ..." Og nú er bara að bíða og sjá hvort Hörð- ur G. Ólafsson sé „spámannlegar vaxinn" en íslenskir fyrirrennarar hans í Evrópu- söngvakeppninni. kg Hörður „Bassi“ Ólafsson í helgarviðtali um Evrópusöngvakeppnina og fleira sé búinn að spila „Lets twist again" nokkur þúsund sinnum, enda komst það lag ekki inn á prógrammið hjá Styrmingu. Það er svolítið skrítin saga bak viö það hvernig Styrming varð til. Þannig var að það vantaði hljómsveit á eitt ball. Þá var talað við mig og Ægir Ásbjörnsson. Þetta var í miðri viku og ballið um næstu helgi. Við Ægir fengum til liðs viö okkur Karl Jónsson trommara úr Herramönnum og Ómar Bjarnason gítarleikara. Við æfðum í tvo daga fyrir þetta ball og spiluðum síöan. Aö nokkrum tíma liðnum komum viö Ægir sam- an og ég sagði: „Andskotinn hafi það, við erum búnir að æfa heilt prógramm, við för- um ekki að hætta núna." Síðan fínpússuð- um við prógrammið og fengum Kristján Gíslason hljómborðsleikara og söngvara til liðs við okkur. Þannig varð Styrming til, eig- inlega bara óvart." Tvö lög með þessari frekar óþekktu hljómsveit eru væntanlcg á safnplötu í apríl næstkomandi. Annað lagið verður sveifla eftir Hörð en hitt róleg ballaða eftir Kristján Gíslason. Ægir Ásbjörnsson samdi textana við bæði lögin. Það virðist sem sagt nóg að gera hjá tónlistarmanninum Herði G. Ólafs- syni. „Hentar kannski ekki Bubba Morthens“ „Hjá mér er næst á dagskrá að vinna þrjú til fjögur lög sem koma út á stórri plötu með Stjórninni. Sú plata kemur til með að heita „Éitt lag enn" og kemur út í lok aprfl. „Eitt lag enn“ verður titillag þeirrar plötu." Talinu víkur aftur að söngvakeppninni. Gengi íslands hefur ekki verið nijög glæsi- legt fram að þessu og deilt hefur verið um hvort þátttaka sé raunhæf. „Ég held að keppnin sé mjög góð fyrir íslenskt tónlistarlíf. Þó svo að keppnin sé Söngvakeppninni hafa verið tilkynnt. Hverjar skýringarnar eru vita allir eftir á en enginn fyrirfram. „Það er ekki gott að segja hvað veldur. Við höfunt verið með ágætis lög en þau hafa kannski verið of róleg. Ég held einnig að lögin fái ekki næga kynningu í þeim löndum sem síðan greiða atkvæði. Þess vegna verða lögin að vera grípandi strax við fyrstu spilun. Ég held líka að hinar keppnisþjóð- irnar líti á okkur sem hálfgerða byrjendur og gefi okkur ekki stig þess vegna. Þetta er svipað og með handboltalandsliðið, það eru stundum dalir og stundum fjöll. Við verðum bara að reyna að sætta okkur við það.“ Alæta á tónlist Nú víkur talinu að sveitaballabransanum, sem Hörður hefur gert út á í næstum tuttugu ár. Hörður glottir þegar hann er spurður um sveitaböllin. Það er greinilega ntargs að minnast frá þeim vettvangi. „Auðvitað bitnar þessi sveitaballabransi á fjölskyldunni. Ég er heppinn að því leyti að ég er sjálfstæður atvinnurekandi og hef því frjálsari hendur um vinnutíma. Fyrstu árin var rólegt að gera í tannsmíðunum svo að tekjurnar af spilamennskunni komu sér vel. Það stendur enginn í spilamennsku nema hafa gaman af henni, sérstaklega af sínu hljóðfæri. Sá sem hefur ekki gaman af sínu hljóðfæri stendur ekki nema tvo, þrjá mánuði í sveitaballabransanum." Hörður gengur undir nafninu Bassi meðal vina og kunningja. Á heimavelli gegnir hann varla öðru nafni. „Þetta gælunafn hlaut ég strax í vöggu. Ég held ég hafi ekki verið farinn að syngja neitt þá, sennilega bara grenjað." Aðspurður segist Hörður vera alæta á tónlist. „Annars hlusta ég ekki mjög mikið á tónlist og hef ekki keypt mikið af plötum á seinustu árum. I gegnum spilamennskuna verður maður þó auðvitað að pæla mikið í lögum. Það þarf að ákveða hvaða lög á að spila og þess háttar." „Lets twist again“ þúsund sinnum Hörður spilar nú með eigin hljómsveit, Styrmingu. Áður hafði hann spilað með hljómsveit Geirmundar Valtýssonar í sautján ár en sú hljómsveit hefur verið ein vin- sælasta sveitaballahljómsveit á íslandi í fjölda ára. „Það var afskaplega bindandi að spila með Geira. Þessi eilífi þeytingur var líka farinn að verða leiðigjarn. Með minni hljómsveit ræð ég meira hvar við spilum og hvenær. Mér finnst líka mikilvægt að ráða meira hvaða tónlist ég spila. Ég hugsa að ég

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.