Dagur - 28.04.1990, Blaðsíða 22
22 - DAGUR - Laugardagur 28. apríl 1990
Pað er hægt að gera hagkvæm innkaup, jafnvel
þegar um lyf er að ræða, og hagkvæm innkaup felast
ekki í að kaupa lakari vöru heldur í því að
kaupa ódýrari vöru þegar hún gerir sama
gagn og hin dýrari. Hafðu hugfast að eftirlit
með lyfjum á íslandi er með því strangasta
sem gerist í heiminum og það tryggir að öll
lyf sem seld eru hér á landi standast ítrustu
kröfur.
Til þess að auðvelda læknum val á þeim
lyfjum sem bestu kaup eru í, hafa sérfræðingar
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis tekið saman
skrá yfir lyf sem hafa að geyma sömu virku
efnin og önnur dýrari, stundum margfalt
dýrari lyf. Ef læknirinn þinn velur lyf af
þessari skrá í samráði við þig, getur þú lagt
þitt af mörkum til að lækka lyfjakostnað
landsmanna og þú greiðir jafnframt lægra
gjald fyrir lyfið en ella.
Lœkkum
lyfjakostnað
HEILSAN ER PÍN DÝRMÆTASTA EIGN
HEILBRIGÐIS- OG TRYGGINGAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS
ARGUS/SÍA