Dagur - 28.04.1990, Blaðsíða 22

Dagur - 28.04.1990, Blaðsíða 22
22 - DAGUR - Laugardagur 28. apríl 1990 Pað er hægt að gera hagkvæm innkaup, jafnvel þegar um lyf er að ræða, og hagkvæm innkaup felast ekki í að kaupa lakari vöru heldur í því að kaupa ódýrari vöru þegar hún gerir sama gagn og hin dýrari. Hafðu hugfast að eftirlit með lyfjum á íslandi er með því strangasta sem gerist í heiminum og það tryggir að öll lyf sem seld eru hér á landi standast ítrustu kröfur. Til þess að auðvelda læknum val á þeim lyfjum sem bestu kaup eru í, hafa sérfræðingar Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis tekið saman skrá yfir lyf sem hafa að geyma sömu virku efnin og önnur dýrari, stundum margfalt dýrari lyf. Ef læknirinn þinn velur lyf af þessari skrá í samráði við þig, getur þú lagt þitt af mörkum til að lækka lyfjakostnað landsmanna og þú greiðir jafnframt lægra gjald fyrir lyfið en ella. Lœkkum lyfjakostnað HEILSAN ER PÍN DÝRMÆTASTA EIGN HEILBRIGÐIS- OG TRYGGINGAMÁLARÁÐUNEYTIÐ TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS ARGUS/SÍA

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.