Dagur - 19.05.1990, Page 8
8 - DAGUR - Laugardagur 19. maí 1990
Húsbréf
10% afsláttur
Verð:
107 a.h. kr. 8.662,50
133 a.h. kr. 10.296,-
70 a.h. kr. 4.940,10
Gúmmívinnslan hf.
Rettarhvammi 1 Akureyri Simi 96-26776
Rafgeymar
og
hjólbarðar
Gott verð.
HÚSNÆDISSTOFNUN
RÍKISINS
SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 696900
Hið íslenska bókmenntafélag:
Vorhefti Skímis
Kynningarmynd um húsbréfakerfið verður sýnd í
ríkissjónvarpinu mánudaginn 21. maí kl. 22.45.
störf, Haraldur Sigurðsson á
grein um landmælingar Björns,
og Gunnar Harðarson ritar um
Njálu og íslenska heimspeki.
Tvær aðrar ritgerðir eru um hug-
mvndasögu og heimspekileg efni.
Stefán Olafsson hugleiðir áhrif
ólíkra lífsskoðana á vinnuna í
sögu Vesturlanda og Kristján
Kristjánsson leggur nytjastefnu í
siðfræði á metaskálarnar.
Þrjú Skírnismál eru í heftinu.
Ólafur Davíðsson veltir fyrir sér
sameiningu Evrópu og framtíð
þjóðríkja. Stefán Baldursson og
Þórólfur Þórlindsson svara grein
Halldórs Guðjónssonar um
markmið háskóla sem birtist í
síðasta hefti Skírnis. Loks leitar
Gunnar Karlsson svara við þeirri
spurningu, hvort eitthvað megi
læra af sögunni.
Efni greina um bækur eru
einnig fjölbreytt. Kristján Árna-
son skrifar um Ijóðabók Stefáns
Harðar Grímssonar, „Yfir heið-
an morgun“. Garðar Baldvinsson
skrifar ítarlega grein um íslensk-
ar þýðingar á bókum þriggja
blökkukvenna. Útgáfa Iðunnar
á „íslensk-enskri orðabók" er
viðfangsefni greinar Halldóru
Jónsdóttur. í síðustu tveimur
greinunum er spilað saman
íslenskum skáldsögum og erlend-
um fræðiritum. Rory McTurk
kannar „Tímaþjóf" Steinunnar
Sigurðardóttur í Ijósi frásagna-
fræði Gérard Genette og Dagný
Kristjánsdóttir les fléttu „Yfir-
valds“ Þorgeirs Þorgeirssonar
útfrá bók Peter Brooks, „Read-
ing for the Plot“.
Tilvonandi íbúðakaupendur:
Byrjið á að sækja um umsögn ráðgjafastöðvar,
áður en þið takið nokkrar skuldbindandi
ákvarðanir á fasteignamarkaðnum. Það er
mikilvægt öryggisatriði fyrir bæði kaupendur
og seljendur og algjört skilyrði fyrir íbúðar-
kaupum í húsbréfakerfinu.
ítarlegt kynningarefni um húsbréfakerfið liggur
frammi hjá fasteignasölum um land allt og í
afgreiðslu Húsnæðisstofnunar.
Vorhefti Skírnis, Tímarits Hins
íslenska bókmenntafélags, 164.
árg. er komið út. Ritstjórar eru
Vilhjálmur Árnason og Ástráður
Eysteinsson.
Skírnir birtist nú í nýjum bún-
ingi. Kápuna prýðir myndin
„Þistlar" eftir Júlíönu Sveinsdótt-
ur. Hrafnhildur Schram skrifar
kynningu á Júlíönu í þættinum
„Myndlistarmaður Skírnis“.
Skáld Skírnis er að þessu sinni
Gyrðir Elíasson. Gyrðir er lang-
yngstur þeirra höfunda, sem
skipað hafa þennan sess og er
þetta í fyrsta sinn, sem birt er
smásaga undir þessum lið.
Meðal annars efnis má nefna
tvær ritgerðir um íslenskar forn-
bókmenntir og koma þær úr
gjörólíkum áttum. Nýsjálenski
fræðimaðurinn Russell Poole
bregður allnýstárlegu ljósi á
dróttkvæði, en íslensk alþýðu-
kona, Kristín Geirsdóttir frá
Hringveri á Tjörnesi, heldur á
lofti hefðbundnum skilningi á
stöðu íslensks sagnaefnis.
Þrjár ritgerðir fjalla um þenn-
an merka mann, Björn Gunn-
laugsson. Bergsteinn Jónsson
skrifar yfirlit um ævi hans og
Einföld og örugg
fasteignaviðskipti
Nú stendur húsbréfakerfiö öllum opiö við
kaup og sölu notaðra íbúða. Með þessum
nýja valkosti á að aukast öryggi bæði
kaupenda og seljenda, jafnframt því sem
stuttur afgreiðslutími og hátt langtímalán
á einum stað mun koma báðum aðilum
til góða.
Húsbréfaviðskipti grundvallast á því að
tilvonandi kaupandi hafi í höndum umsögn
ráðgjafastöðvar um greiðslugetu sína.
Án hennar er hvorki hægt að gera
kauptilboð né fá íbúð metna.
Þjóðarflokkurinn
Hverfafundir
Hverfafundir Þjóðar-
flokksins verða haldnir:
í Hvammi sunnudaginn 20. maí kl. 20.30.
í Húsi aldraðra mánudaginn 21. maí kl. 20.30.
I Lóni þriðjudaginn 22. maí kl. 20.30.
í Sunnuhlíð, starfsmannasal KEA, miðviku-
daginn 23. maí kl. 20.30.
Komið og kynnið ykkur framsækna bæjarmálastefnu!